Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 60
ÞÓRUNN Antonía, Afkvæmi
guðanna, Bæjarins bestu,
Búdrýgindi, O.N.E. og XXX
Rottweiler leika á tón-
leikum í Austurbæ í kvöld.
Athygli vekur að allir ald-
urshópar eru velkomnir á
tónleikana. „Þetta eru einu
jólatónleikarnir þar sem er
ekkert aldurstakmark.
Þarna fá allir að sjá ís-
lensku stjörnurnar,“ segir
Jón Gunnar Þórðarson,
skipuleggjandi.
Þórunn Antonía hefur
leikinn á rólegu nótunum
við kassagítarundirleik föð-
ur hennar, Magnúsar Þórs
Sigmundssonar. Eftir það
ráða rappsveitirnar að
mestu ríkjum.
Jón Gunnar segir mikið
lagt í tónleikana. Hann lofar
mikilli ljósasýningu með
leysigeislum og góðu hljóð-
kerfi.
Tónleikarnir kallast
Mountain Dew-jólahlaðborð
enda verður boðið upp á
þennan nýja drykk á staðn-
um. „Fólk getur drukkið
eins mikið og það vill,“ segir
Jón Gunnar, sem hefur hug
á því að gera tónlistar-
jólahlaðborðið að árlegum
viðburði.
Tónleikar fyrir alla aldurshópa í Austurbæ
Lofar ljósasýningu
Þórunn Antonía, Afkvæmi
guðanna, Bæjarins bestu, Bú-
drýgindi, O.N.E. og Rott-
weiler í Austurbæ í kvöld.
Miðaverð er 1.000 krónur og
er forsala í Japis. Húsið opnað
19:30 og tónleikarnir hefjast
hálftíma síðar.Rottweilerhundarnir koma fram á tónleikunum.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ GEFST jafnan góður tími til
að lesa yfir jólin og ekki bara mærð-
arlegar örlagasögur eða ævisögur
embættis- og ógæfumanna. Að sögn
bóksala hefur sala á erlendum bók-
um aukist talsvert á undanförnum
árum og ræðst kannski að einhverju
leyti af því hvað helstu bókaversl-
anir eru duglegar við að fylgjast
með og tryggja að jafnan séu nýj-
ustu bækur á boðstólum og þær
sem mest umtal hafa vakið erlendis.
Ekki dregur og úr áhuganum að er-
lendar bækur eru loks lausar við
verndarskattinn illræmda og því lag
að nýta jólin til að lesa forvitnilegar
erlendar bækur sem komið hafa út á
árinu eða eru loks að koma í kilju.
Safran Foer –
Everything is Illuminated
Fáar bækur hafa verið eins um-
deildar vestan hafs og þessi fyrsta
skáldsaga; ýmist er að
menn lofa hana fyrir
að vera snilldarverk
eða henni og höfundi
hennar er fundið allt
til foráttu. Einfalda
má söguþráðinn með
því að segja að bókin
segi sögu helfararinn-
ar gegn gyðingum í Úkraínu, en hún
er líka um leit nútímamanns að
sjálfum sér aukinheldur sem hún
gefur býsna góða mynd af lífinu í
þessu fyrrum Sovétríki og bregður
um leið upp speglinum að vestrænu
markaðsræði. Innbundin.
W.G. Sebald – Austerlitz
Það var mikill skaði þegar Win-
fried Georg Sebald lést í bílslysi fyr-
ir ári. Eftir hann
liggja nokkrar merki-
legar bækur, en engin
eins merk og sú sem
hér er tínd til sögunn-
ar, Austerlitz. Hún
kom út á síðasta ári
og er því ekki alveg
ný af nálinni, en tínd
til af því tilefni að hún kom út á kilju
fyrir stuttu. Líkt og með bók Safr-
ans Foers segir hún sögu helfarar-
innar og á það meira að segja sam-
eiginlegt með þeirri fyrrnefndu að
höfuðpersóna hennar er ungur mað-
ur sem er í leit að fortíð sinni. Þar
skilur þó með þeim Foer og Sebald
því sá síðarnefndi er mun meiri rit-
höfundur og bók hans sannkallað
snilldarverk. Hún er þó ekki auðles-
in og margur gefst upp á stíl Se-
balds. Kilja.
Peter Robinson – Aftermath
Peter Robinson skrifar bækur um
lögreglumanninn Alan Banks og
hefur skrifað þær
nokkrar. Banks sver
sig ætt við breska lög-
reglumenn sem gjarna
bregður fyrir í glæpa-
sögum, glímir við
flækjur í einkalífinu,
finnst gott að fá sér í
glas og hefur gaman
af tónlist sem samstarfsmenn hans
hafa ekki smekk fyrir. Með tíman-
um hefur Banks orðið raunverulegri
í huga þeirra lesenda sem lesa bæk-
ur Robinsons og bækurnar um hann
er ævinlega ágætis afþreying. Kilja.
Stephen L. Carter –
Emperor of Ocean Park
Meira fé var greitt fyrirfram fyrir
þessa bók en dæmi voru um í
bandarískri útgáfu-
sögu og fyrirfram-
pantanir af bókinni
tryggðu að hún myndi
ná metsölu frá fyrsta
útgáfudegi. Getur
nærri að menn hafi
deilt hart um bókina
og allt umstangið í
kringum hana og lætin urðu síðan
til þess að margir gagnrýnendur
gátu ekki metið hafa óhlutdrægt.
Flestir eru þó sammála um að hún
er skemmtileg aflestrar, textinn að
vísu torleiður, enda notar Carter
aldrei eitt orð þegar hann getur
troðið inn tíu, en fléttan er snjöll og
framvindan trúverðug. Fín bók til
að sökkva sér í í jólaleiðindunum.
Innbundin.
Haruki Murakami –
After the Quake
After the Quake er smásagnasafn
en þótt sögurnar fjalli um ólíkar
persónur og ólíkar að-
stæður tengjast þær
allar jarðhræringun-
um í Kobe í janúar
1995. Þær hörmung-
ar, og sarin-árásin í
jeðanjarðarlestum í
Tókýó í mars sama
ár, urðu til þess að
Haruki sneri aftur til Japan eftir
margar ára sjálfskipaða útlegð, og
hóf að leita að japanskri þjóðarsál.
Sögurnar í After the Quake eru all-
ar snilldarlega skrifaðar eins og
Harukis er von og vísa og þó tengsl-
in á milli þeirra virðist óljós við
fyrstu sýn, að frátöldum jarðskjálft-
anum, þá er mun meira á seyði und-
ir niðri. Kilja.
Richard Russo – Empire Falls
Richard Russo fékk Pulitzer-
verðlaunin fyrir þessa bók sína og
þótt hún risti ekki
djúpt er hún mjög
þægileg aflestrar;
segir frá fólki sem les-
andanum er ekki
sama um og um leið
sögu af því hvernig
breyttir tímar skilja
fólk eftir allslaust,
hvort sem er í sögunarmyllum vest-
ur í Amríku eða vestur á fjörðum.
Ekki spillir svo endirinn þar sem
hið góða sigrar, eða virðist gera það
í það minnsta, að vísu fyrir tilstilli
deus ex machina. Kilja.
Jasper Fforde – Lost in a Good
Book / The Eyre Affair
Seint þreytist ég á að mæla með
bókum Jaspers Ffordes, Lost in a
Good Book og The
Eyre Affair. Þær
segja frá bókalög-
reglunni Tuesday
Next, sem glímir við
siðblindan glæpa-
mann og siðblint risa-
fyrirtæki. Í grunnat-
riðum má segja að
bækurnar séu glæpasögur, og býsna
spennandi sem slíkar, en þær eru
líka bráðskemmtileg ævintýri með
ótal bókmenntalegum tilvísunum.
Þannig getur hver sem er lesið
bækurnar sér til skemmtunar en
þeir sem eru vel heima í enskum
bókmenntum fá enn meira út úr
þeim. Lost in a Good Book er seinni
bókin um Tuesday Next og kom út í
kilju á þessu ári.
Clive Barker – Abarat
Clive Barker er þekktastur fyrir
hryllingssögur sínar sem sumar eru
svo krassandi að þær
ættu ekki bara að
vera bannaðar börn-
um. Það kom því
nokkuð á óvart er
hann sendi frá sér
ævintýri fyrir ung-
menni, Abarat, fyrr á
þessu ári. Að sögn er
ævintýrið byggt á 250 olíumálverk-
um sem Barker málaði áður en
hann byrjaði að skrifa, en sagan
segir frá stúlkunni Candy Quacken-
bush sem býr í heldur ömurlegum
smábæ í Minnesota. Hún berst á
óútskýrðan hátt til annars heim,
Abarat, þar sem hún flækist í bar-
áttu á milli dags og nætur, góðs og
ills. Skemmtilega skrifuð saga og
ævintýraleg, hæfilega hryllileg og
spennandi. Innbundin.
Útlend bókajól
Bókajólin íslensku þurfa ekki bara að vera á
íslensku. Árni Matthíasson stingur upp á
nokkrum erlendum bókum.
TÓNLISTARMAÐURINN Sig-
urður Kristinsson hleypti loks út
hugmynd sem hann var búinn að
ganga með í maganum um nokkra
hríð þessi jólin. Afrakst-
urinn er jólaplatan Svona
vil ég hafa það..., þar
sem sígild jólalög eins og
„Nú er Gunna á nýjum
skóm“, „Gefðu mér gott í
skóinn“ og „Litli tromm-
arinn“ eru sett í hátíðleg-
an og á stundum annars
konar búning.
„Upphaflega ætlaði ég
að taka þekkt jólalög og
snúa þeim á ranghverf-
una,“ útskýrir Sigurður.
„En lögin tóku svo bara
sjálf völdin og fóru sína
eigin leið og skilgreindu
sig nokkuð sjálf. Þannig
að það varð minna úr hryðjuverka-
starfseminni en efni stóðu til
(hlær).“
Sigurður segir að ein ástæðan
fyrir plötunni sé að hann sé orðinn
dauðleiður á jólalagasíbyljunni.
„Þetta er allt eitthvað vélrænt
bjölluglingur. Ég legg hins vegar
áherslu á lifandi flutning og að
leyfa tónlistinni að njóta sín.“
Fjórar söngkonur hjálpa Sigurði
í áttina að því takmarki, þær
Andrea Gylfa, Halla Dröfn, Sigrún
Vala og Hólmfríður Rafnsdóttir.
Síðasta lag plötunnar stingur
dálítið í stúf við önnur lög hennar.
Hið ellefu mínútna „Fyrirheit“ ku
nefnilega vera forsmekkur að
væntanlegri sólóskífu Sigurðar
sem verður tveggja diska plata.
Jólaplatan er tekin upp í barna-
herberginu sem prýðir heimili Sig-
urðar á forláta græjur og fullkom-
inn tölvuupptökubúnað sem hann á
sjálfur. En er hann
ekkert hræddur við að
drukkna í jólaflóði-
nu.„Mér er svosem al-
veg sama um það,“ segir
Sigurður rólegur í
bragði.
„Málið er að hafa
komið þessu sómasam-
lega frá sér og fengið
líka dýrmæta reynslu í
að standa í svona verki
frá upphafi til enda.
Ég var að þessu til að
sýna fram á að jólalög
eru líka falleg tónlist,
ekki árstíðabundið
ástand.“
Platan fæst á www.simnet.is/til-
bod, í Gripið og greitt, Hljómalind
og í MosRaf, Mosfellssveit.
Jólaplatan Svona vil ég hafa það…
Með sínu nefi
Hin tvítuga Halla Dröfn og Sigrún Vala, þrettán ára, eru
meðal söngkvenna á jólaplötunni Svona vil ég hafa það…
TENGLAR
.....................................................
www.vefsmidjan.is/siggik
TVÖ rit í Bandaríkjunum sem bera með sér talsverða
vigt hafa sett tvo íslenska listamenn í öndvegi í ársupp-
gjöri sínu.
David Fricke, aðstoðarritstjóri Rolling Stone, setur
fram lista yfir tíu plötur sem hann mælir sérstaklega
með fyrir árið 2002. Þar á meðal er frumburður rokk-
sveitarinnar Leaves, Breathe. Þar segir Fricke Leaves
vera hina sönnu Coldplay. Þeir leiki seiðandi og ang-
urværar melódíur sem minni á Radiohead og gotneskt
sýrurokk Echo and the Bunnymen. Fricke segir að
endingu að Leaves sé athyglisverðasta sveit Íslands,
sem sé starfandi í dag.
Aðrar plötur á lista Fricke er m.a. plata dönsku
sveitarinnar Under byen, bandarísku sveitarinnar Low
og sólóplata fyrrum söngspíru Led Zeppelin, Robert
Plant.
New York Times birtir þá lista yfir bestu tónlist-
arkassa ársins eða „box set“. Þetta form, sem einatt
inniheldur einhverskonar heildarsöfn á nokkrum disk-
um, tók mikinn kipp fyrir fimmtán árum eða svo, þegar
geisladiskar urður almennari. Á listanum er m.a. kassi
Bjarkar Guðmundsdóttur, Family Tree, sem inniheldur
ásamt bestu lögum hennar sjaldgæf lög frá ýmsum
skeiðum ferils hennar. Aðrir kassar sem eru nefndir
eru t.a.m. með Jeff Buckley, Miles Davis, Flaming Lips
og Dwight Yoakam.
Tónlistaruppgjör vestanhafs
Björk og Leaves meðal útvalinna