Morgunblaðið - 08.01.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 6. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 mbl.is
Undir tungu
hlýinda
Trausti Jónsson veltir fyrir sér
þrálátum vetrarhlýindum 8
Garðar Thór Cortez syngur þrjá
meistara Vínartónlistarinnar 23
Gúmmíkarlinn
frá Georgíu
Ronald Valur Eradze segir áskorun að vera
kominn í sterkan landsliðshóp Íþróttir 1
Vínartónleikar
Sinfóníunnar
EIGENDANEFND Landsvirkjunar, sem skil-
aði af sér skýrslu í gær, telur yfirgnæfandi líkur
vera á hagnaði af rekstri Kárahnjúkavirkjunar
og að arðsemisútreikningar Landsvirkjunar hafi
verið faglega unnir og vel rökstuddir. Samkvæmt
mati efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins á
þjóðhagslegum áhrifum af álveri Alcoa í Reyðar-
firði mun árlegur hagvöxtur aukast um 1,5% á
framkvæmdatíma til ársins 2006. Árlegur hag-
vöxtur undir lok framkvæmdatíma er talinn
verða 5% en til samanburðar taldi ráðuneytið í
síðustu spá sinni að hagvöxtur á þessu ári yrði
1,75%, án stóriðjuframkvæmda.
Framleiðslustig þjóðar- og landsframleiðslu
verður 3% meira en spá ráðuneytisins frá desem-
ber sl. Fjármálaráðuneytið vann þetta mat að
beiðni iðnaðarráðuneytisins. Útreikningar efna-
hagsskrifstofunnar miðast við að álver Alcoa hefji
framleiðslu árið 2007 með um 320 þúsund tonna
afkastagetu á ári. Til lengri tíma er talið að lands-
framleiðsla verði 1% meiri en ella og þjóðarfram-
leiðsla 0,75% meiri. Miðað við óbreytt gengi krón-
unnar býst fjármálaráðuneytið við að útflutn-
ingur verði 10–14% meiri næstu tvo áratugina
eftir að framkvæmdum lýkur.
Fullnægjandi arðsemi að mati ráðherra
Verðbólga áranna 2005 og 2006 er talin verða
um 4,5–6,5%, án mótvægisaðgerða. Á hinn bóg-
inn er hætta á að hagvöxtur minnki nokkuð á ár-
unum 2007–2010. Á framkvæmdatíma dregur úr
atvinnuleysi en að framkvæmdum loknum er það
talið munu aukast á ný.
Eigendanefnd Landsvirkjunar bendir á að það
sé eigenda fyrirtækisins að ákveða hvort metin
arðsemi Kárahnjúkavirkjunar sé fullnægjandi.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra telur að
svo sé, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, telur að skýrsla nefndarinnar undirbyggi
jákvæða niðurstöðu en endanleg afstaða Reykja-
víkurborgar liggur ekki fyrir.
Landsvirkjun miðar í sínu arðsemismati við
11% ávöxtunarkröfu á eigið fé, að raunávöxtun
virkjunarinnar verði 5,5% og að núvirt sjóð-
streymi verði jákvætt um 6,6 milljarða kr. Raf-
orkuverð er ekki upplýst í skýrslu nefndarinnar
en samkvæmt heimildum blaðsins er það vel yfir
meðalorkuverði sem álver greiða í heiminum.
Árlegur hagvöxtur 5% við
lok álversframkvæmda
Ráðherra/4
Eigenda/24–25
Eigendanefnd telur yfirgnæfandi líkur á hagnaði af Kárahnjúkavirkjun
ÞAÐ var ekki sérlega hlýlegt að fylgjast með þeim Reyni Bess Júl-
íussyni og Axel Heiðari Guðmundssyni í Hafnarfjarðarhöfn í gær,
þar sem þeir voru að rafsjóða festingar utan á bryggjuþil suðurhafn-
arinnar fyrir risastór bíldekk, sem taka eiga högg af stóru skipunum
þegar þau leggjast að bryggju. Þeir hafa aðeins bláfjöruna til verks-
ins, eða um tvo tíma dag hvern og víla ekki fyrir sér að dengja sér
hálfir ofan í Atlantshafið til að taka til hendinni við bryggjuna.
Að sögn Más Sveinbjörnssonar, framkvæmdastjóra Hafnarfjarð-
arhafnar, er verið að endurnýja dekkin, eða þybburnar eins og þau
kallast, á höfninni. „Við endurnýjum þær reglulega en núna erum
við einnig að endurskipuleggja þær. Dekkin sem eru fyrir liggja lóð-
rétt og þau eru tekin upp en dekkin sem koma í staðinn munu liggja
lárétt, sjö dekk í röð.“
Vélsmiðja Péturs Auðunssonar sér um verkið en nú er aðeins hluti
hafnarinnar tekinn í gegn. „Við gerum þetta eftir hendinni eftir því
hvernig gengur að safna dekkjum. Við þurfum dekk, sem hafa verið
notuð undir bíla og þau fáum við hjá dekkjaverkstæðinu Furu.“
Morgunblaðið/RAX
Nota færi til bryggju-
viðgerða á bláfjöru
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti
kynnti áætlun sína um eflingu efnahagslífs
landsmanna í ræðu sem hann hélt í Chicago í
gær en á meðal þess sem forsetinn leggur til
er að skattur á arð hlutabréfa verði afnum-
inn og að hjón og barnafólk fái aukinn afslátt
á sköttum. Þá lagði hann til að réttur til at-
vinnuleysisbóta yrði framlengdur.
„Við getum ekki verið sátt fyrr en sérhver
þáttur í efnahag okkar er orðinn heilbrigður
og kraftmikill,“ sagði Bush. „Við munum
ekki unna okkur hvíldar fyrr en sérhvert fyr-
irtæki fær tækifæri til að vaxa og allir sem
vilja vinnu geta fengið hana.“ Ætlunin er að
beita fjárframlögum og skattalækkunum er
kosta munu ríkið alls um 674 milljarða doll-
ara næstu tíu árin. Skattbyrði minnkar á
næstu 16 mánuðum um alls 98 milljarða doll-
ara. Munu skattar 92ja milljóna manna
lækka að jafnaði um 1.083 dollara, tæplega
90 þúsund ísl. kr., á árinu.
Andvígur tvísköttun arðs
Bush hafði áður sagt að hann ætlaði ekki
að leggja til að skattar á arð hlutabréfa yrðu
afnumdir heldur yrðu þeir lækkaðir. En
embættismenn sögðu að hann hefði ákveðið
að leggja til að þeir yrðu algerlega afnumdir
þar sem arðurinn væri í reynd tvískattaður.
Stuðningsmenn Bush segja að skatta-
lækkanirnar muni hafa jákvæð áhrif en aðrir
benda m.a. á að þær muni valda halla á fjár-
lögum og segja demókratar það ábyrgðar-
leysi. Gengi dollarans hækkaði á mánudag
og uppsveifla varð á mörkuðum er efni til-
lagnanna spurðist út en verðbréfahækkunin
gekk að nokkru til baka í gær nema á Nasd-
aq-markaðnum sem hækkaði enn.
Reuters
Bush kynnir tillögur sínar í Chicago í gær.
Bush boð-
ar skatta-
lækkun
Chicago, Washington. AP, AFP.
NIÐURSTÖÐUR rannsókna vísindamanna
benda til þess að fólk sem þjáist af offitu um
fertugt sé líklegt til þess að deyja allt að sjö
árum fyrr en ella. Sé fólk of feitt og reyki þar
að auki getur það stytt ævina um allt að 14
ár.
Hollenskir vísindamenn birtu í gær niður-
stöður rannsókna í rúma fjóra áratugi á um
3.500 sjálfboðaliðum í Massachusetts í
Bandaríkjunum og reiknuðu út hve mörg ár
offita kostaði. Er skerðingin á lífslíkum álíka
mikil og vegna reykinga.
Dr. Serge Jabbour, yfirmaður megrunar-
stofnunar í Fíladelfíu, segir að niðurstöðurn-
ar bendi til þess að sé fólk of feitt milli þrí-
tugs og fertugs geti það stytt lífið þótt fólk
grennist síðar. „Skilaboðin eru að menn
verða að takast fljótt á við vigtina. Sé beðið of
lengi getur verið of seint að afstýra tjóni.“
Offita styttir
ævina mjög
Fíladelfíu, Washington. AP, AFP.
HÖRÐ átök urðu um undirtökin í
Tryggingamiðstöðinni (TM) sl. vetur
þegar Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Bónuss, og samherjar hans í
Orca-hópnum reyndu að ná virkum
yfirráðum yfir félaginu. Í þriðju
grein Agnesar Bragadóttur af fjór-
um í greinaflokknum Baráttan um
Íslandsbanka, sem birt er í blaðinu í
dag, kemur fram að þeir Jón Ásgeir
og Hreinn Loftsson, þáverandi
stjórnarformaður TM, hugðust
knýja fram breytingar á félaginu,
gera Hreiðar Má Sigurðsson, aðstoð-
arforstjóra Kaupþings, að forstjóra.
Létu þeir útbúa ráðningarsamn-
ing TM við Hreiðar Má, sem var frá-
genginn og undirritaður í desember
2001, og töldu einungis eftir að af-
greiða samninginn og samþykkja á
stjórnarfundi. Um og upp úr áramót-
unum 2001–2002 varð þeim það ljóst
að Gunnar Felixson nyti mjög öflugs
stuðnings í félaginu og meðal eig-
enda þess. Fjölskylda Sigurðar heit-
ins Einarssonar, útgerðarmanns í
Vestmannaeyjum, sem hafði verið
stærsti hluthafinn í TM, lagðist ein-
dregið gegn áformum Hreins og
Jóns Ásgeirs um forstjóraskipti og
stóð öll saman í stuðningi við Gunnar
Felixson, forstjóra TM.
Reyndu að knýja fram
forstjóraskipti í TM
Fastir/12
♦ ♦ ♦