Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ LÍKUR Á ARÐI AF VIRKJUN Niðurstaða eigendaskýrslu Landsvirkjunar er að arðsemisút- reikningar vegna Kárahnjúkavirkj- unar byggist á eðlilegum forsendum. Miklar líkur séu á að virkjunin verði arðsöm. Tekist á um TM Rótgróin valdablokk tók sig sam- an um að koma meirihlutaáhrifum í Tryggingamiðstöðinni aftur í hend- ur fjölskyldunnar í Vestmanna- eyjum í fyrravetur. Kemur þetta fram í þriðju greininni í flokknum Baráttan um Íslandsbanka. Frumvarp um álver Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja fram frumvarp þegar Alþingi kemur saman 21. janúar um heimild til að semja við Alcoa um að reisa ál- ver við Reyðarfjörð. Banki kaupir hlut í SH Landsbankinn hefur keypt nær 25% hlut Þormóðs ramma – Sæ- bergs og fyrirtækis í eigu Róberts Guðfinnssonar í SH. Verðið var nær tveir milljarðar króna. Bush kynnir til lögur George W. Bush Bandaríkja- forseti kynnti í gær tillögur sínar um eflingu efnahagslífsins með skatta- lækkunum og fleiri ráðstöfunum. Áætlun hans er til tíu ára og á að kosta alls 674 milljarða dollara. Slóvenar sigruðu Slóvenar sigruðu Íslendinga 32– 25 í vináttulandsleik í handbolta í Reykjavík í gærkvöldi. Frakkar með í hernaði? Forseti Frakklands, Jacques Chirac, ávarpaði franska hermenn í gær og gaf í skyn að Frakkar myndu ef til vill taka þátt í hernaði gegn Írak. Bretar hafa þegar kallað út varalið og hyggjast senda bæði her- menn og skip til Miðausturlanda. Vaxandi áhugi á þorskeldi Slátrað var um 150 tonnum af eld- isþorski í fyrra og er mikill áhugi víða um land á að auka þorskeldi. Í skýrslu sem gerð var fyrir sjávar- útvegsráðuneytið er sagt að hugs- anlega geti eldið skilað ríflega 30 þúsund tonnum árið 2011. 2003  MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR BLAÐ B LÍKURNAR á að enski knatt- pyrnumaðurinn Lee Sharpe leiki með Grindavík í úrvalsdeildinni í umar hafa minnkað verulega. Sig- urbjörn Dagbjartsson, einn þeirra em hyggjast standa straum af komu þessa fyrrverandi leikmanns Man- hester United til landsins, segir þó ð málið sé ekki úr sögunni. „Við teljum að við séum komnir angt með að mæta fjárhagslegum kröfum hans. Hann gaf okkur afsvar gær án þess að á það reyndi, en einn kkar fer síðar í mánuðinum til Eng- ands, færir honum fisk eins og hon- um hafði áður verið lofað, og þá fær hann formlegt tilboð frá okkur í hendurnar,“ sagði Sigurbjörn við Morgunblaðið í gær. Sharpe vill fá um 400 þúsund krón- ur fyrir hvern leik sem hann spilar með Grindavík, sem gerir um 7 millj- nir króna ef hann yrði með í öllum eikjum í úrvalsdeildinni. „Okkar til- boð er ekki alveg svo hátt, en með ukagreiðslum og ef allt gengur upp, gæti hann farið nærri þeirri upphæð. Þetta skýrist síðar meir, en þó ekk- rt yrði af þessu á ég von á að Sharpe komi eftir sem áður í heimsókn til kkar í sumar þar sem góð kynni hafa tekist milli hans og okkar,“ agði Sigurbjörn Dagbjartsson. Litlar líkur á að Sharpe komi B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A Ó É FÆREYSKA landsliðið í knatt- pyrnu mætir vel undirbúið til eiks gegn Íslendingum í und- ankeppni Evrópumóts landsliða 7. úní. Henrik Larsen landsliðsþjálf- ari kallar saman 25 manna hóp til æfinga um aðra helgi á Tóftum og aftur í Þórshöfn tveimur vikum íðar. 14. febrúar fer færeyski hópurinn í níu daga æfingabúðir il Spánar og eftir það kemur hann af og til saman frameftir vori. Í lok apríl leika Færeyingar tvo lands- eiki við Kasakstan á heimavelli. Færeyingar standa vel að vígi því flestallir leikmanna þeirra pila með færeyskum liðum og þeir eiga auðvelt með að kalla hóp- nn saman. Í 25 manna hópnum sem boð- aður hefur verið fyrir fyrstu æf- ingarnar eru fjórir fyrrum leik- menn íslenskra liða. Það eru þeir Jens Martin Knudsen, Sámal Joen- sen og John Petersen sem spiluðu með Leiftri og Pól Thorsteinsson sem lék með Val. Leikurinn við Ísland á Laugar- dalsvellinum 7. júní er fyrsti leikurinn af fimm hjá Færeyingum á þessu ári. Þeir eiga síðan eftir heimaleiki við Þýskaland, Ísland og Litháen og útileik gegn Skot- landi. Færeyska liðið gerði jafn- tefli við Skota, 2:2, og tapaði 2:0 í Litháen og 2:1 í Þýskalandi í fyrstu þremur leikjum sínum í keppninni. Góður undirbúningur hjá Færeyingum DÖNSKU Olsen-bræðurnir eiga að syngja dönskum handknattleiksmönnum og dönsk þjóðinni baráttuanda í brjóst á meðan heim meistaramótið stendur yfir í Portúgal. Bræ urnir, sem slógu eftirminnilega í gegn þega þeir unnu Söngvakeppni evrópskra sjónvar stöðva fyrir nærri þremur árum, hljóðrituð nýlega baráttusöng tileinkaðan danska land liðinu sem á eftir að óma í Danmörku á með keppnin fer fram. Lagið heitir „Vi tænder ly set“ eða „Við kveikjum ljósið“. Lagið verðu frumflutt ásamt myndbandi á blaðamannafu danska landsliðsins í íþróttamiðstöðinni í Ba erup á morgun. Olsen-bræðurnir vilja með l inu leggja sitt lóð á vogarskálarnar til þess blása danska karlalandsliðinu baráttuanda brjóst með von um að það komi heim með ve laun frá HM eftir 26 ára bið. Olsen-bræður kveikja á Dönum Eradze lék sinn fyrsta landsleikfyrir Íslands hönd sl. laugardag í Kaplakrika en hann lék áður með landsliði Georgíu þar sem hann er fæddur. „Ég var tauga- óstyrkur fyrir fyrsta leikinn og það var mjög skrítið að upplifa það að standa úti á gólfinu og heyra þjóðsöng Ís- lands. Þegar ég fékk tækifæri í síð- ari hálfleiknum var gaman að finna stuðninginn frá félögum mínum í landsliðinu og áhorfendum. Ég geri miklar kröfur til mín og veit einnig að margir búast við því að ég verji öll skot sem koma á markið. Í lands- leikjum er maður að glíma við at- vinnumenn sem skjóta betur á markið en áhugamenn hér á Íslandi. Það er staðreynd.“ Eradze l þriðja leiknum vegna meiðs sem eru ekki alvarleg. „Það inn taka áhættu þegar aðei vikur eru þar til HM hefst gal. Ég tel mig eiga jafna m á við hina markmennina á að í lokahópinn og er bjartsý leika fyrir íslenska landsliðið Eradze sagði að landslið G sem hann lék með áður væ eins sterkt og það íslenska. „ er ekki með Ólaf Stefánsson Jóhannesson, Guðjón Val son og Sigfús Sigurðsson. stoltur og glaður ef ég fen færi á stórmóti,“ sagði Erad Morgunblaðið/Árni Varnarmenn Slóveníu tóku fast á Íslendingum í gær og komst Sigurður Bjarnason hvorki lönd né strönd að þessu sinni. „Skrítið að heyra þjóðsönginn“ „ÞETTA voru æfingaleikir og það gengur á ýmsu þegar verið er að prófa nýja hluti. Ég hef að minnsta kosti ekki miklar áhyggjur þessa stundina þrátt fyrir að við höfum tapað frekar illa í þriðja og síðasta leiknum gegn Slóvenum,“ sagði markvörðurinn Roland Valur Eradze að loknum þriðja leik Íslendinga gegn Slóvenum í Laug- ardalshöll. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson  NÝR LAND CRUISER 90  330 HESTAFLA IMPREZA  BREYTTUR CRUISER PARÍS-DAKAR  BÍLASÝNINGIN Í DETROIT  FÖRGUN GAMALLA BÍLA  AUDI SÝNIR LÚXUSJEPPA Blanda af sportbíl og jeppa Umboðs- og þjónustuaðili fyrir öryggis- og þjófavarnarbúnað frá Clifford og Avital. Alhliða lausn í bílafjármögnun Suðurlandsbraut 22 540 1500 www.lysing. is FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 30/33 Viðskipti 16 Kirkjustarf 33 Erlent 17/19 Staksteinar 34 Höfuðborgin 20 Skák 35 Akureyri 21 Bréf 36 Suðurnes 21/22 Dagbók 38/39 Landið 22 Leikhús 40 Listir 23 Fólk 40/45 Forystugrein 24 Bíó 42/45 Viðhorf 28 Ljósvakamiðlar 46 Umræðan 28/29 Veður 47 * * * ÖKUMAÐUR vörubíls sem var í vega- vinnu við stæði að nýrri Þjórsárbrú var fluttur á slysadeild Landspítalans í Foss- vogi í gærkvöldi eftir að bíll hans valt þeg- ar verið var að sturta jarðefni á vinnu- svæðinu. Bíllinn fór á hliðina og við það tognaði ökumaðurinn en slasaðist ekki alvarlega. Vörubíll valt við Þjórsárbrú TALIÐ er 22 tonna bílfarmur af gleri hafi eyðilagst þegar drátt- arbíll með tengivagn valt á að- rein að Reykjanesbraut í gær- morgun. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild með minni- háttar meiðsl en bíllinn og vagn- inn eru töluvert skemmdir. Að- reinin var lokuð í um klukku- stund á meðan bílnum var komið á réttan kjöl og hreinsað til á vettvangi. Ekki er ljóst hvers vegna bíllinn valt en tildrög óhappsins eru til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík. Morgunblaðið/Golli Valt með 22 tonn af gleri UMSVIF flugfélagsins Atlanta í pílagrímaflugi í ár verða þau minnstu síðan árið 1995. Davíð Másson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Atlanta, sagði að ástæðan væri sú að flestar flugvélar félagsins væru í lang- tímaverkefnum og því gæti fé- lagið ekki sinnt tímabundnum verkefnum eins og pílagríma- fluginu með sama hætti og stundum áður. Pílagrímaflugið stendur frá 4. janúar til 15. mars. Davíð sagði að Atlanta væri með átta flug- vélar í pílagrímaflugi að þessu sinni. Flogið væri frá Malasíu, Indónesíu og Nígeríu til Sádi- Arabíu. Hann sagði að 38 flug- áhafnir væru í þessu verkefni og um 40% starfsfólksins væru Ís- lendingar. Viðbúnir stríði Margir óttast að stríð muni brjótast út í Írak á næstu vikum eða mánuðum. Davíð sagði að Atlanta fylgdist vel með fréttum frá þessu svæði. „Við erum til- búnir með áætlanir um hvernig við bregðumst við ef það brjót- ast út átök,“ sagði Davíð. Davíð sagði að verkefnastaða hjá Atlanta væri mjög góð um þessar mundir. Félagið væri með 21 flugvél í verkefnum um allan heim. „Við erum að fljúga í verkefni í Ástralíu og Argentínu svo það er ekki ofmælt að við störfum um allan heim. Það er lægð í flugheiminum, en við höf- um með öflugri markaðssetn- ingu komist inn á ný markaðs- svæði. Það er spáð áframhaldandi lægð í flugheiminum alveg til 2005, sérstaklega þó í farþega- flugi. Við teljum að við getum nýtt okkur breyttar aðstæður og sjáum sóknarfæri á mörgum stöðum,“ sagði Davíð. Góð verkefnastaða hjá flugfélaginu Atlanta Minnstu umsvif í píla- grímaflugi um árabil TÖLUVERT hrun hefur orðið úr Víkurhömrum rétt vestan við Víkurklett í Mýrdal. Hrunið hef- ur komið alveg ofan frá brún rétt vestan við Heljarkinnarhaus úr svokölluðum Hillum. Hrunið úr Víkurhömrum hefur valdið tölu- verðum skemmdum á gróðri og nokkrir steinar hafa fallið á golf- vallarbraut sem sáð var í síðast- liðið sumar og myndað í henni nokkrar aukaholur. Líklegt er að mikil úrkoma að undanförnu valdi hruninu. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Úrkoma veldur hruni úr Víkurhömrum í Mýrdal Fagradal. Morgunblaðið. FJÖLDI skráðra atvinnulausra á landinu var 5.339 í gær en þar af voru 2.767 karlar og 2.572 konur. Að sögn forstjóra Vinnumála- stofnunar er þetta mun meira at- vinnuleysi en var í nóvember og er útlit fyrir að atvinnuleysi verði meira í ár en í fyrra. Að sögn Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar, liggja ekki fyrir samantektartöl- ur um atvinnuleysi í desember. „Þetta er talsvert meira nú en í nóvember en það er hins vegar alveg í samræmi við það sem er á þessum tíma því hörðustu mán- uðirnir í þessum efnum, janúar og febrúar, eru að ganga í garð. Það er mikið af nýskráðu at- vinnuleysi núna í byrjun mán- aðarins en ég held að það verði nálægt því sem við spáðum síðast að það yrði, þ.e. á bilinu 2,8 til 3,2 prósent.“ Hann segir þróunina hafa ver- ið þá að undanförnu að atvinnu- leysi hafi verið að aukast smátt og smátt. „Við erum farnir að sjá atvinnuleysi sem hefur ekki sést síðan 1997 og teljum í sjálfu sér ekki að það lagist mikið á höf- uðborgarsvæðinu fyrr en fer að draga fram á vormánuðina. Loðnan mun örugglega slá á mikið atvinnuleysi sem er í Vest- mannaeyjum þannig að það koma svona tímabundnir kippir í jákvæða átt á ákveðnum svæðum á landinu. En það mun í sjálfu sér ekki gerast mikið fyrr en fer að draga undir vor.“ Hann segir atvinnulífið venju- lega taka kipp á þeim árstíma. „Þetta er nokkuð reglubundin sveifla en hún er dýpri núna en hún hefur verið. Við vonum auð- vitað að stóriðjuframkvæmdir muni auka veltuna í samfélaginu þannig að það rétti úr kútnum, að minnsta kosti á næsta ári, en við höfum ástæðu til að ætla að atvinnuleysi verði á þessu ári talsvert meira en það var í fyrra.“ Mikið af nýskráðu atvinnuleysi Atvinnuleysi hefur ekki verið meira á landinu síðan 1997 FIMM voru fluttir til aðhlynningar á Heil- brigðisstofnunina á Sauðárkróki eftir árekstur fólksbíls og jeppa á eystri Héraðs- vatnabrú um klukkan hálfþrjú í gær. Sam- kvæmt upplýsingum lögreglunnar á Sauð- árkróki lentu bílarnir saman á miðri brúnni, sem er einbreið, en við það valt jeppinn á hliðina. Einn reyndist vera nokkuð skorinn í and- liti auk þess sem hann hlaut höfuðhögg. Annar handleggsbrotnaði en hinir þrír sluppu að mestu við meiðsl. Loka varð veg- inum vegna slyssins og var hann ekki opn- aður aftur fyrr en um klukkan fimm síðdeg- is. Skullu saman á miðri brú Sauðárkróki. Morgunblaðið. LÍKURNAR á að enski knattspyrnumað- urinn Lee Sharpe leiki með Grindavík í úr- valsdeildinni í sumar hafa minnkað veru- lega. Sharpe vill fá um 400 þúsund krónur fyr- ir hvern leik sem hann spilar með Grindavík, sem ger- ir um 7 milljónir króna ef hann yrði með í öllum leikjum í úrvalsdeildinni. Sigurbjörn Dag- bjartsson, einn þeirra sem hyggjast standa straum af komu þessa fyrr- verandi leikmanns Manchester United til landsins, segir þó að málið sé ekki úr sögunni. „Okkar tilboð er ekki alveg svo hátt, en með aukagreiðslum og ef allt gengur upp gæti hann farið nærri þeirri upphæð,“ segir hann. Sharpe vill 400 þúsund fyrir hvern leik  Litlar líkur/B1 Lee Sharp ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.