Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 31 ✝ Gunnar Ingi Löv-dal fæddist í Reykjavík hinn 25. febrúar 1964. Hann lést af slysförum í Reykjavík föstudag- inn 27. desember síð- astliðinn. Hann var sonur hjónanna Sig- rúnar Jóhönnu Jóns- dóttur og Edvards Lövdal, þau slitu samvistum. Systkini Gunnars Inga eru Ragnar Kornelíus, f. 28. september 1958, Jón Valdimar, f. 9. desember 1959, d. 1. mars 1982, Sigurður Jóhann, f. 26. júlí 1962, Ólafía Vigdís, f. 3. júní 1965, Sigrún Edda, f. 11. október 1966, Ingiberg, f. 13. september 1969, og Sigurgeir, f. 3. maí 1977, Kári Þór, f. 22. júlí 1965, og Gyða, f. 17. desember 1965. Gunnar Ingi eignaðist þrjú börn, þau eru Jónas Ingólfur, f. 30. september 1982, Sonny, f. 16. maí 1991, og Sunna Lind, f. 4. ágúst 1992. Gunnar Ingi ólst upp í Breiðholti og var í Breiðholtsskóla til 13 ára aldurs, fór þá tvo vetur í Húsa- bakkaskóla í Svarf- aðardal. Hann lauk grunnskólaprófi í Reykholti í Borgar- firði. Gunnar Ingi stundaði aðallega störf tengd sölu- mennsku og sjó- mennsku. Hann stundaði sjó frá unga aldri, bæði við fiskveiðar og einnig á far- skipum. Hann var tvö ár til sjós í Noregi. Gunnar Ingi starfaði um árabil við sölu á notuðum bif- reiðum. Hann hafði skipstjórn- arréttindi og gerði út skemmti- bátinn MS Andreu þegar hann lést. Útför Gunnars Inga verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Mig langar að minnast Gunna með fáeinum orðum. Ég er búinn að þekkja Gunna í góð tíu ár og á ég honum margt gott að þakka af þessum árum enda eru minningarnar margar og góðar. Ég og Gunni unnum saman um tíma við að mála, hann stytti oft stundirnar við vinnuna því hann var mikill húm- oristi og hafði gaman af að segja frá. Þeir voru ófáir mennirnir sem Gunni hitti að hann gaf þeim ekki nafn og auðvitað fann hann nafn á mig sem var „Njalli“, ég vildi fá smá skýringu á þessu nafni og jú það var ekki flók- ið, honum fannst ég nöldra helst til mikið við vinnuna og eftir það kallaði hann mig aldrei neitt annað. Þá fannst mér við hæfi að kalla hann Dagstein en Gunni var ekki eins hrif- inn af því og fannst það ekki eins sniðugt, hann var nefnilega einn af þeim sem hafði gaman af að stríða og gera grín en átti ekki eins gott með að taka því sjálfur. Gunni var góður vinur og gaman að umgangast hann. Það væri hægt að sitja og skrifa margar blaðsíður um Gunna en það ætla ég ekki að gera því minninguna um Gunna mun ég geyma í hjarta mínu. Kæra fjölskylda, skarðið sem Gunni skilur eftir verður aldrei fyllt en minningarnar eru margar sem munu lifa með okkur um ókomna tíð. Ég bið góðan Guð að vera með og styrkja börnin hans, Jónas Ingólf, Sonny, Sunnu Lind, foreldra og systkini í þeirra miklu sorg og alla aðra aðstandendur. Minning um góðan dreng lifir. Þinn vinur og mágur, Bjarni Þór. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Gunni. Mikið ofboðslega er erfitt og sárt að sjá á eftir þér og söknuðurinn er alveg óbærilegur, en það er gott til þess að hugsa að Nonni hefur tekið á móti þér og er það huggun harmi gegn. Þegar ég fékk að vita að þú værir látinn komst ég ekki hjá að hugsa til þess hversu ótrúlegt og ósanngjarnt þetta líf væri og á erfitt með að sætta mig við það að nú sé bæði búið að taka Nonna og þig frá okkur langt um aldur fram. En það á að vera einhver tilgangur með þessu þó svo að ég sjái hann ekki núna og viti ekki hver hann er. En ég finn styrk í minningunni um þig, þessar minningar eru ljúfar, þær lifa í hjört- um okkar og verða ekki teknar frá okkur. Þegar ég minnist þín er það fyrsta sem kemur í hugann hversu mynd- arlegur og fallegur þú varst, þú varst skemmtilegur og fyndinn en samt svolítill einfari sem fórst þínar eigin leiðir, manni fannst ekki lífið alltaf leika við þig en samt einhvern veginn gastu alltaf séð hlægilegu hliðina á þessu öllu saman og bara slóst því upp í grín og hélst ótrauður áfram. Það virtist vera alveg sama hvenær eða hvar þú komst, alltaf varstu hrókur alls fagnaðar, svo ótrúlega orðheppinn og hafðir mikla frásagn- arhæfileika sem ekki er okkur öllum gefinn og því var alltaf svo gaman að hlusta á þig segja frá því sem á daga þína hafði drifið og því fólki sem þú hittir því þú hafðir yfirleitt alltaf eitt- hvað um það að segja. Þú hafðir mik- inn áhuga á bílum og hafðir gaman af að stússast í að kaupa og selja bíla enda varstu mikill sölumaður. Þú hafðir mjög gaman af tónlist og varst alltaf til í að grípa gítarinn og taka lagið. Þú varst hugmyndaríkur og varst einn af þeim sem framkvæmdir þær hugmyndir sem þér leist vel á og það var fyrir um ári sem þú fékkst þá hugmynd að kaupa þér bát og eins og svo oft þá framkvæmdir þú hugmyndina og báturinn varð þinn. Þú lagðir allt í þennan bát og varst mikið stoltur af honum og gerðir hann út til sjóstangar og skemmti- ferða. Ég var ekki ein af þeim fjöl- mörgu sem fóru í ferð með þér þó svo að oft hafir þú boðið mér og ekki skildir þú þá áráttu mína að vilja aldrei út á sjó fara og auðvitað gastu slegið því upp í grín og spaugað með það. Þú eignaðist þrjá sólargeisla, Jónas Ingólf, Sonny og Sunnu Lind. Þú varst svo stoltur af þeim enda börnin falleg og öllum þeim kostum búin sem faðir getur verið stoltur af. Sporin sem í dag verða stigin verða þung og erfið en minning um góðan dreng mun lifa um ókomna tíð. Guð þig geymi, elsku Gunni. Þín systir. Edda. „Af hverju þurfti nú Gunni að deyja, hann sem var svo mikill grín- karl?“ sagði litla frænka þín og ég spurði mig að þessu sama. Reyndi að finna svar en allt sem ég gat sagt var að stundum bara deyr fólk þótt það sé ekki gamalt og veikt. Svona er lífsins skóli og við verðum að halda áfram, muna að ekkert er sjálfsagð- ur hlutur í lífinu. Ég hugsa um börn- in þín, hvað lífið hefur nú þegar kennt þeim, Jónas Ingólf, Sunnu Lind og Sonny. Öll svo falleg, hrein og bein. Við mæðgur vottum þeim okkar dýpstu samúð og óskum þess að Guð veri með þeim í þessum erf- iðleikum. Elsku Gunni, þú varst sannarlega „grínkarl“. Við minnumst þín og margra gleði- og hláturstunda með þér, gítarsins og skemmtilegra sagna og orðatiltækja frá þér. Þú hafðir gott hjarta. Við kveðjum þig með söknuði, kæri frændi og mágur. Svanhildur A. Sigurgeirs. Theódóra og Dagbjört. Að kvöldi 27. desember sitjum við Jói mágur í kaffi, Raggi er staddur uppi á fjöllum með útlendinga, Edda hringir til mín með þessar hörmu- legu fréttir, hann Gunni okkar er dá- inn. Það koma margar ljúfar minning- ar upp í huga mér, en ekki er auðvelt að setja þær á blað. Það var fyrir tæpum 27 árum að ég kynntist Gunna, en hann var þá 12 ára snáði, en ég 17 ára, þetta var þegar ég fór að vera með honum Ragga mínum. Gunni var ekki lengi að ná hjarta mínu, því hann var mjög hugljúfur, þótt hann hefði mikið skap. Í gegnum tíðina var Gunni mikið með okkur, þótt það hefði ekki verið eins mikið í seinni tíð. Gunni var hrókur alls fagnaðar, spilandi á gítarinn og sögumaður góður. Það var hægt að sitja tímun- um saman og hlusta á hann segja sögur bæði af sjálfum sér og öðrum. Ekki er hægt að sleppa því að segja frá gömlu góðu systkinapartí- unum, Gunni spilandi á gítarinn og við sungum með, þetta voru frábær- ar samkomur. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég þig, Gunni minn. Guð blessi þig og börnin þín: Jónas Ingólf, Sonny og Sunnu Lind. Foreldrum, systkinum, Birnu og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk. Kristín Halldórsdóttir. GUNNAR INGI LÖVDAL  Fleiri minningargreinar um Gunnar Inga Lövdal bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, VALBORG GÍSLADÓTTIR, Bergöldu 4, Hellu, áður Mávahlíð 34, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hulda S. Eggertsdóttir, Eggert Ólafsson, Eggert V. Guðmundsson, Eygló Bergs, Sigurður B. Guðmundsson, Jaroon Nuamnui og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, ÓLAFUR BERGMANN ELÍMUNDARSON frá Hellissandi, til heimilis í Stóragerði 7, Reykjavík, varð bráðkvaddur sunnudaginn 5. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 14. janúar kl. 13.30. Fyrir mína hönd, systkina og annarra vandamanna, Viktoría Daníelsdóttir. Elskuleg móðir okkar, ástvina mín, tengda- móðir, amma og langamma, ODDLAUG VALDIMARSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánu- daginn 6. janúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju miðviku- daginn 15. janúar kl. 13.30. Halldóra Ólafsdóttir, Alda Jóna Ósk Ólafsdóttir, Ólafur Svanur Gestsson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Aðalsteinn Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MIKAEL GABRIELSSON, Mijo Benkovic leigubílstjóri, lést mánudaginn 6. janúar. Sigríður Ósk Guðmundsdóttir, Anna Benkovic Mikaelsdóttir, Paula van der Ham, Stefán Benkovic Mikaelsson, Hildur Björg Hafstein, Elísabet Benkovic Mikaelsdóttir, Ólafur H. Jónsson og barnabörn. Sambýlismaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, VILMUNDUR HAFSTEINN REIMARSSON, Hreggnasa, Bolungarvík, lést á Sjúkrahúsi Ísafjarðar mánudaginn 6. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Sigfríður Hallgrímsdóttir, Reimar H. Vilmundarson, Guðrún H. Vilmundardóttir og aðrir aðstandendur. Bróðir okkar, mágur og frændi, KRISTJÁN M. JÓHANNESSON, Eyjabakka 11, lést á hjartadeild Landspítalans aðfaranótt sunnudagsins 5. janúar. Guðleif K. Jóhannesdóttir, Þorsteinn S. Sigvaldason, Magnús Jóhannesson, Guðríður Guðmundsdóttir, börn og barnabörn þeirra. Ástkær frænka okkar, KATRÍN ELLERTSDÓTTIR, Sólheimum 12, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 4. janúar. Útförin verður gerð frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 15. janúar kl. 11.00. Fyrir hönd vandamanna, Elín Gunnarsdóttir, Guðjón Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.