Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 14
Samheldni í Eyjum Guðbjörg Matthíasdóttir, ekkja Sigurðar heitins Ein- arssonar í Vestmannaeyjum, og sonur hennar og Sig- urðar, Einar, voru einörð í stuðningi sínum við Gunn- ar Felixson. Síðar kom á daginn að Gunnar naut víðtæks stuðnings, langt út fyrir raðir eigenda. Andvígur formennsku Davíð Oddsson forsætisráðherra var andvígur því að Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingarnefndar, yrði formaður í stjórn TM í mars 2001, því hann taldi að formennska hjá TM jafnhliða formennsku í nefnd- inni gæti leitt af sér ýmiss konar hagsmunaárekstra. Mynduðu bandalag í afmæli Alla ríka Fjórmenningarnir, þeir Brynjólfur Bjarnason, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Róbert Guðfinnsson og Krist- inn Björnsson, mynduðu með sér bandalag í afmæli Alla ríka, í lok janúarmánaðar í fyrra. Þeir þjörmuðu næt- urlangt að Bjarna Ármannssyni og sannfærðu hann að lokum um að Straumur mætti ekki selja 10,72% hlut sinn í TM til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Eftir þetta sagði Bjarni endanlega skilið við þá Jón Ásgeir Jóhann- esson og Þorstein Má Baldvinsson og gekk í lið með „hinum ráðandi öflum“. Hugði á hrókeringu í forstjórastól Jón Ásgeir Jóhannesson hafði fullan hug á því haustið 2001 að hrókering yrði í forstjórastól TM, Gunnar Fel- ixson stigi niður af stólnum og Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Kaupþings, tæki sæti hans. Þor- steinn Már Baldvinsson, félagi Jóns Ásgeirs í Orca, átti í ákveðnum erfiðleikum í þessum efnum, því hann var einnig vinur Gunnars og viðskiptavinur TM í áraraðir. Ekki kom til þess að Þorsteinn Már þyrfti að velja hvort hann styddi Jón Ásgeir eða Gunnar, því þeir Jón Ásgeir náðu ekki undirtökunum í TM. Davíð Oddsson Þetta eru þeir Jón Ásgeir og Hreinn Loftsson m.a. að gera í trausti þess að Ovalla Trading muni fá að kaupa bréf Straums í TM, en Straumur átti 10,72% í TM og með þeim bréf- um ásamt bréfum Eignarhaldsfélagsins Vors og Fountaine Blanc Holding S.A. (bæði í eigu Péturs Björnssonar) að viðbættum hlut Ovalla Trading, 18,02%, töldu Jón Ásgeir og Hreinn Loftsson að þeir væru komnir með ráðandi hlut í TM, samtals 33,5% hlut. Á þessum tíma var sú skoðun ríkjandi innan Íslandsbanka, að sölusamningur um bréf Straums í TM hefði verið gerður á milli Straums og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, aðaleiganda Ovalla Trading, með vitund Bjarna Ármannssonar. Í janúar fyrir ári er Jón Ásgeir tekinn að ókyrrast og farinn að senda mönnum í stjórn TM fyrirspurnir um „hvort standa eigi við það sem talað var um í Vestmannaeyjum í vetur“. Hér mun Jón Ásgeir hafa átt við áform sín og Hreins Loftssonar um forstjóraráðningu Hreiðars Más Sigurðssonar. Leist að sönnu vel á Hreiðar Má Staðreynd málsins mun vera sú, að Sigurð- ur heitinn Einarsson hafði talsvert áður en hann veiktist hitt Hreiðar Má að máli og því er haldið fram að honum hafi litist vel á hann sem ungan, framsækinn og dugmikinn mann, sem gæti átt glæsta framtíð fyrir sér í viðskiptalíf- inu, jafnvel innan Tryggingamiðstöðvarinnar. Jafnframt er fullyrt að í þeim efnum hafi Sig- urður verið að horfa til framtíðar, þ.e. þegar sá tími kæmi að Gunnar Felixson drægi sig í hlé fyrir aldurs sakir, en Gunnar er ekki nema liðlega sextugur. Löngu síðar, eða skömmu fyrir aðalfund TM 2001, sem haldinn var í mars, fóru þeir Jó- hannes Jónsson í Bónus og Hreinn Loftsson til Vestmannaeyja og hittu fjölskyldu Sigurð- ar heitins og nána ráðgjafa hennar að máli, þeirra á meðal Gunnlaug Sævar Gunnlaugs- son. Markmið þeirra Jóhannesar og Hreins mun hafa verið að fullvissa fjölskylduna í Vestmannaeyjum um að þeir vildu gott sam- starf við hana um stefnumörkun og rekstur TM. Jóhannes mun m.a. hafa hreyft því á þeim fundi, að Baugur hygðist opna Bónusverslun í Vestmannaeyjum. Aðalerindi tvímenninganna var samt sem áður að vinna forstjóraráðningu Hreiðars Más fylgi fjölskyldunnar. Munu þeir hafa fengið svör á þann veg, að mönnum litist ljómandi vel á Hreiðar Má og vel mætti skoða þann möguleika að hann kæmi að fyrirtækinu sem aðstoðarforstjóri við hlið Gunnars, með það fyrir augum að taka við sem forstjóri síðar meir. Þeir Jóhannes og Hreinn töldu sig hins veg- ar hafa náð óformlegu samkomulagi um að Hreiðar Már yrði gerður að forstjóra. Fullyrt er að Hreiðar Már hafi haustið 2001 hitt stjórn TM og um það hafi ríkt samkomulag, að hann tæki við sem forstjóri, en þeim í Vestmanna- eyjum hafi einfaldlega snúist hugur. Aftur stendur hér orð gegn orði í þessari frásögn. Hlutverk Hreiðars Más átti samkvæmt kenningunni að vera að stjórna því fjármála- fyrirtæki sem Tryggingamiðstöðin er og öll- um hennar sjóðum. Þau völd sem felast í að stjórna bótasjóðum tryggingafélags eins og Tryggingamiðstöðvarinnar eru gífurleg, því þar er um að ræða sjóði á milli 13 og 14 millj- arða króna, auk þess sem hlutabréfaeign fé- lagsins er nálægt 8 milljörðum króna. Sá eða þeir sem stýra bótasjóðum trygg- ingafélaga taka ákvarðanir um hvernig sjóð- irnir skulu ávaxtaðir, hvaða hlutabréf skulu keypt og seld, hvaða skuldabréf skulu keypt og seld og svo framvegis, þannig að klárlega hefðu þeir Jón Ásgeir og félagar verið fljótir til og aukið hlutabréfaeign TM í Íslandsbanka áfram til muna, hefðu þeir náð því marki, sem þeir voru svo sérstaklega nálægt í janúarlok á þessu ári, að tryggja sér undirtökin í Trygg- ingamiðstöðinni með því að eignast bréfin sem Straumur átti í TM. Tilraunir í þá veru höfðu reyndar hafist fyrr um haustið, þegar þeir Jón Ásgeir og Hreinn gerðu um það tillögu í stjórn TM, að félagið keypti ákveðinn hlut í Íslandsbanka, sem stjórninni leist ekki illa á í sjálfu sér, en taldi þó hlutinn, sem lagt var til að TM keypti, held- ur stóran. Við nánari skoðun á þeirri tillögu, komu ákveðnir hlutir í ljós, sem mönnum í stjórn TM þóttu hálfdularfullir og beinlínis ógeð- felldir, svo sem það, að þegar málið var af- greitt í stjórn TM, þá var Kaupþing búið að kaupa bréf í Íslandsbanka fyrir 1.200 milljónir króna sem voru ætluð TM. Kaupþing lenti í hálfgerðum vandræðum með þessi kaup sín, en á endanum keypti TM bréfin í Íslands- banka af Kaupþingi í desember í fyrra fyrir 1.185 milljónir króna og var þannig orðin fjórði stærsti hluthafinn í Íslandsbanka með 4,31% hlut. Gagnrýni á vinnubrögð Í stjórn TM gætti nokkurrar óánægju hjá ákveðnum stjórnarmönnum með þau vinnu- brögð að stjórnarmenn í TM, Jón Ásgeir og félagar, hefðu fengið Kaupþing til þess að kaupa hlutinn í Íslandsbanka og „geyma“ þar til stjórnarsamþykkt væri fengin í TM fyrir kaupunum. Jón Ásgeir gaf lítið fyrir slíka gagnrýni og sagði að fjórir stjórnarmanna hefðu frá upp- hafi verið hlynntir kaupunum og því væri ekk- ert athugavert við þessi vinnubrögð. Í við- skiptum væri það einfaldlega oft lykilatriði að hugsa hratt og framkvæma hratt, annars gætu góð viðskiptatækifæri glatast. Þetta segja kunnugir að sé oftast leiðarljós Jóns Ás- geirs í viðskiptum. Einhver núningur varð á milli þeirra Jóns Ásgeirs og Hreins Loftsson- ar í kjölfar þessarar afgreiðslu, þar sem Hreinn sem stjórnarformaður taldi brýnt að ávallt væri farið að lögum og reglum í öllum viðskiptum félagsins og eðlilegt hefði verið að fá fyrst stjórnarsamþykkt í TM fyrir kaup- unum og ráðast í þau að því búnu. Sérstaka athygli manna vakti í þessu sam- bandi, að Hreinn Loftsson, sem þá var stjórn- arformaður TM, sagði í samtali við Morgun- blaðið hinn 5. desember 2001 að ekki væru áform um að Tryggingamiðstöðin yki enn hlut sinn í Íslandsbanka, en fyrir þessi kaup hafði félagið átt 1,31% í Íslandsbanka. Aðrir stjórnarmenn höfðu litla trú á sann- leiksgildi þessara orða stjórnarformannsins, því þegar þetta var voru menn orðnir sann- færðir um að Jón Ásgeir myndi beita hvaða ráðum sem væri, til þess að fá TM til að auka enn við hlut sinn í Íslandsbanka, þar sem full- yrt var að hann hefði fyrir margt löngu sett Hreinn Loftsson Gunnar Felixson Hreiðar Már Sigurðsson Brynjólfur Bjarnason Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson Róbert Guðfinnsson Guðbjörg Matthíasdóttir Einar Sigurðsson Jón Ásgeir Jóhannesson Kristinn Björnsson Þorsteinn Már Baldvinsson 14 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.