Morgunblaðið - 08.01.2003, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
A
ð vissu marki samhliða þeirri
atburðarás, sem rakin var í
fyrstu tveimur greinunum, átti
sér stað hatrömm valdabarátta
um undirtökin í Tryggingamið-
stöðinni, sem auðvitað var angi
af sama meiði, því einnig í þess-
ari baráttu var lokamarkmið Orca-hópsins,
eða öllu heldur þeirra sem eftir voru í honum,
þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Þor-
steins Más Baldvinssonar, að ná undirtökun-
um í Íslandsbanka, en nú með öðrum hjálp-
armeðölum – nefnilega bótasjóðum og
hlutabréfaeign Tryggingamiðstöðvarinnar.
Þeir Jón Ásgeir Jóhannesson og Eyjólfur
Sveinsson stofnuðu félagið Ísak í sameiningu í
júní 2000, um kaup á 3% hlut í TM sem þeir
keyptu á genginu 52,5. Niðurstaðan varð hins
vegar sú að Jón Ásgeir greiddi allan hlutinn.
Hreinn Loftsson kom fyrst að Trygginga-
miðstöðinni skömmu síðar, eða um haustið
2000, m.a. í nafni Péturs Björnssonar, fyrrver-
andi eiganda Vífilfells, sem Hreinn annaðist á
ýmsan hátt fjárfestingar fyrir. Þeir félagar
fjárfestu í 8,25% hlut Búnaðarbankans í TM.
Það var ekki síst fyrir orð Bjarna Ármanns-
sonar, annars forstjóra Íslandsbanka, sem þá
var stjórnarformaður Straums, sem Hreinn
og félagar fjárfestu í TM með þessum hætti,
enda taldi Bjarni að TM væri mjög góður fjár-
festingarkostur.
Jón Ásgeir Jóhannesson og Hreinn Lofts-
son stofnuðu svo haustið 2001 Ovalla Trading
sem keypti 18,02% í TM og félagið varð þann-
ig stærsti hluthafinn í TM. (Ovalla Trading er
að 85% í eigu Gaums, sem er í eigu þeirra Jó-
hannesar Jónssonar í Bónus, sem á 20%, og
barna hans, Jóns Ásgeirs, sem á 45%, og
Kristínar, sem á 10%, og móður þeirra, Ásu
Ásgeirsdóttur, sem á 20%, og að 15% í eigu
Hreins Loftssonar, eða fyrirtækis hans, Aust-
ursels.)
Fjölskyldan í Vestmannaeyjum vissi af
þessum kaupum þeirra og var ekki með neinar
áhyggjur af þeim, því Hreinn Loftsson hafði
m.a. farið á fund Gunnlaugs Sævars Gunn-
laugssonar, stjórnarformanns Ísfélags Vest-
mannaeyja, og sagt honum, að þessi fjárfest-
ing sín, Jóns Ásgeirs og Péturs Björnssonar,
fyrrverandi eiganda Vífilfells, sem Hreinn
annaðist fjárfestingar fyrir, væri þannig
hugsuð að þeir vildu koma að Tryggingamið-
stöðinni sem góðum fjárfestingarkosti og
Hreinn lýsti þeim áherslum sem hann vildi
leggja í félaginu og mun hafa fengið ágætis
hljómgrunn fyrir hugmyndum þeirra, svo sem
um einfaldari og ódýrari tryggingar, einskon-
ar „Bónus-tryggingar“.
Hreinn lagði sérstaka áherslu á það við fjöl-
skylduna í Vestmannaeyjum, að hann myndi
aldrei taka þátt í því að gera nokkuð það sem
kæmi henni illa.
Hann gaf það einnig sterklega til kynna að
hann væri ekki síður að gæta eigin hagsmuna
og Péturs Björnssonar, sem átti einnig hluti í
TM í gegnum önnur félög, Eignarhaldsfélagið
Vor og Fountaine Blanc í Lúxemborg, en
hagsmuna Jóns Ásgeirs.
Átti sér einskis ills von
Snemma árs 2001 er fjölskylda Sigurðar
heitins Einarssonar auðvitað enn í sárum.
Hafði fyrst þurft að sjá á bak Sigurði langt um
aldur fram hinn 4. október árið 2000 og rúm-
um tveimur mánuðum síðar, hinn 9. desember
árið 2000, hafði frystihús Ísfélags Vestmanna-
eyja brunnið og uppbygging í kjölfar brunans
var því í fullum gangi.
Ekkja Sigurðar, Guðbjörg Matthíasdóttir,
börn þeirra Sigurðar og vinir voru því ekki
fyrst og fremst upptekin af hinu trausta og
rótgróna fyrirtæki Tryggingamiðstöðinni,
sem fjölskyldan hafði ávallt átt mjög stóran
hlut í, heldur sorgarferlinu og því mikla upp-
byggingarstarfi sem ráðist var í í kjölfar brun-
ans.
Því hafði verið þannig háttað frá því að Sig-
urður Einarsson féll frá, að Gunnar Felixson,
forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, sá um
eignarhlut fjölskyldunnar í TM og gagnvart
því fyrirkomulagi var fjölskyldan bæði róleg
og sátt.
Eftir að þeir Hreinn Loftsson og Jón Ásgeir
Jóhannesson voru orðnir svo stórir hluthafar í
Tryggingamiðstöðinni haustið 2001, var hald-
inn hluthafafundur í TM að þeirra ósk, þar
sem ákveðið var að þeir fengju stjórnarsetu í
samræmi við eignarhlut.
Fyrst hafði Hreinn Loftsson reyndar hugs-
að sér að verða stjórnarformaður á aðalfundi
TM í mars 2001, en eftir að Davíð Oddsson
forsætisráðherra hafði lýst sig andvígan því
Fastir með mikla
fjármuni í TM
ÞRIÐJI ÞÁTTURINN Í VALDABARÁTTU ÞEIRRA JÓNS ÁS-
GEIRS JÓHANNESSONAR OG FÉLAGA VIÐ HIN RÓTGRÓNU
ÖFL Í VIÐSKIPTALÍFINU TÓK Á SIG NÝJA OG MUN HARÐ-
ARI MYND EN MENN HAFA ALMENNT ORÐIÐ VITNI AÐ HÉR
Á ÍSLANDI. ÞETTA VAR BARÁTTAN UM YFIRRÁÐIN Í
TRYGGINGAMIÐSTÖÐINNI SEM Í RAUN HÓFST Í SEPTEM-
BER 2001 OG LAUK Í MARS 2002. ÞAR DRÓ TIL STÓRTÍÐ-
INDA OG KOM TIL MIKILLA ÁTAKA, ÁÐUR EN NIÐURSTAÐ-
AN VARÐ SÚ AÐ RÓTGRÓIN VALDABLOKK VIÐSKIPTA-
LÍFSINS TÓK SIG SAMAN UM AÐ KOMA MEIRIHLUTA-
ÁHRIFUM Í TM Á NÝJAN LEIK Í HENDUR FJÖLSKYLD-
UNNAR Í VESTMANNAEYJUM.
Eftir Agnesi Bragadóttur
Baráttan um Íslandsbanka