Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.01.2003, Blaðsíða 38
DAGBÓK 38 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Goðafoss og Selfoss koma og fara í dag. Mánafoss kemur í dag. Helga fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Joching kemur í dag. Fréttir Bókatíðindi 2002. Númerin sem dregin voru út í desember 2002 eru: 1. des. 4336, 2. des. 61698, 3. des. 62921, 4. des. 23624, 5. des. 75816, 6. des. 57338, 7. des. 90096, 8. des. 74378, 9. des. 99888, 10. des. 6154, 11. des. 101286, 12. des. 61905, 13. des. 80070, 14. des. 99087, 15. des. 14950, 16. des. 89946, 17. des. 44604, 18. des. 47037, 19. des. 91010, 20. des. 34179, 21. des. 39546, 22. des. 86644, 23. des. 98673, 24. des. 77861. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551 4349, opin mið- vikud. kl. 14–17. Flóa- markaður, fataúthlutun og fatamóttaka opin annan og fjórða hvern miðvikud. í mánuði kl. 14–17, s. 552 5277 Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofa, kl. 13–16.30 opin smíða- og handavinnustofa, kl. 13 spilað. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–10.30 Bún- aðarbankinn, kl. 13–16.30 spiladagur, bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud: kl. 16 leikfimi. Fimmtud: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bóka- safnið, kl. 15–16 bóka- spjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Félagsstarfið, Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 10–10.45 leikfimi, kl.14.30–15 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus, hár- greiðslustofan opin kl. 9–16.45 nema mánu- daga. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9 silkimálun, kl. 13–16 körfugerð, kl. 10–13 op- in verslunin, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. kl. 13.30 bankaþjónusta Búnaðarbanka. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, mosa- ik, gifs og íslenskir steinar og postulíns- málun, leikfimi kl. 10, söngur kl. 14, dans, kl. 15.30, hárgreiðslustofan opin 9–14. Námskeið í módelteikningu byrjar 8. janúar kl.13, innritun hafin í síma 568 3132 eða í félagsmiðstöðinni hjá Selmu, miðvikud. til föstud. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9.30 hjúkrunarfræð- ingur á staðnum, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, byrj- endur. Félagsstarf eldri borg- ara í Grafarvogi. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi hittast á fimmtudögum kl. 10, aðra hverja viku er púttað á Korpúlfs- stöðum, hina vikuna er keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi er í Graf- arvogslaug á þriðjudög- um kl. 9.45 og föstu- dögum kl. 14. Síðasta miðvikudag í hverjum mánuði eru fræðslu- og skemmtifundir í fund- arsal Miðgarðs við Langarima 21. Aðrir atburðir verða augl. í Morgunblaðinu og á www.grafarvogur.is, og í pósti til þátttakenda í starfi Korpúlfanna. Ný- ir félagar velkomnir. Upplýsingar gefur Þrá- inn í síma 5454 500. Félag eldri borgara Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréút- skurður kl. 9, myndlist kl. 10–14, línudans kl. 11, pílukast kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin kl. 10–13 virka daga. Morgunkaffi, blöðin og matur í há- degi. Miðvikudagur: Göngu-hrólfar ganga frá Glæsibæ kl. 10. Línudanskennsla Sig- valda kl. 19.15. Skrifstofa félagsins er í Faxafeni 12, sími 588 2111. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, um- sjón Helga Þórarins- dóttir, frá hádegi spila- salur opinn, kl. 13.30 kóræfing, mánudaginn 13. janúar hefst nám- skeið í postulínsmálun, umsjón Sigurbjörg Sig- urjónsdóttir, skráning hafin. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10–17, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 13 glerlist. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 9–17, heitt á könnunni. Kynning verður á starf- seminni frá janúar til maí kl. 14. Skráning á námskeið á sama tíma. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, bútasaum- ur, útskurður, hár- greiðsla og fótaaðgerð, kl. 11 banki, kl. 13 bridge. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur og jóga, kl. 10 jóga, kl. 13 dans- kennsla, framhalds- hópur, kl. 14 línudans, kl. 15 frjáls dans. Fóta- aðgerðir og hársnyrt- ing. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10–11 samverustund, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 13–13.30 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 10.30– 11.30 jóga, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tré- skurður. Tréskurður byrjar miðvikudaginn 15.janúar kl. 13,nýir fé- lagar velkomnir. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10 fótaaðgerðir, morgunstund, bókband og bútasaumur, kl. 12.30 verslunarferð, kl. 13 handmennt og kór- æfing, kl. 13.30 bók- band. ITC deildin Melkorka heldur fund að Borg- artúni 22, 3. hæð. mið- vikudaginn 8. janúar, kl. 20. Fundurinn er öllum opinn. Upplýs- ingar veitir Hulda Gísladóttir í síma 587 1712. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 19.30 félagsvist. Rangæingar – Skaft- fellingar. Munið spila- vistina í kvöld í Skaft- fellingabúð, Laugavegi 178, kl. 20. Kaffiveit- ingar. Vinahjálp, brids spilað á Hótel Sögu í dag kl. 13.30. Minningarkort Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsamlegast hringi í síma 552-4994 eða síma 553-6697, minning- arkortin fást líka í Há- teigskirkju við Háteigs- veg. Minningarkort Kven- félags Langholts- sóknar fást í Lang- holtskirkju sími 520 1300 og í blómabúðinni Holtablómið, Lang- holtsvegi 126. Gíróþjón- usta er í kirkjunni Minningakort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkjuhúsinu v/ Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555 0104 og hjá Ernu s. 565 0152 (gíróþjónusta). Í dag er miðvikudagur 8. janúar, 8. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Ég mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan hjálpara, að hann sé hjá yður að eilífu. (Jóh. 14, 16.) LÁRÉTT: 1 dregur á tálar, 8 árstíð, 9 kinnungur, 10 eldivið- ur, 11 hnýta skóþveng, 13 sár, 15 málms, 18 klöpp, 21 verkfæri, 22 glöddu, 23 ilmar, 24 þolgóð. LÓÐRÉTT: 2 skipuleggi, 3 tilbiðja, 4 formóðir manna, 5 af- kvæmum, 6 viðbragð, 7 þver, 12 tunga, 14 reyfi, 15 saklaus, 16 elsku, 17 andvarpi, 18 æki, 19 guð- legri veru, 20 gef að borða. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 mjólk, 4 sýsla, 7 glíma, 8 ólæti, 9 met, 11 atti, 13 garn, 14 negla, 15 görn, 17 töng, 20 las, 22 flúði, 23 tálmi, 24 glata, 25 lurka. Lóðrétt: 1 mygla, 2 ólíkt, 3 kram, 4 snót, 5 snæða, 6 as- inn, 10 eigra, 12 inn, 13 gat, 15 göfug, 16 rjúfa, 18 örlar, 19 geiga, 20 lina, 21 stal. Víkverji skrifar... VÍKVERJI þekkir fólk sem ásumarhús við Hafravatn og greiðir Mosfellsbæ skilvíslega fast- eignagjöld og stendur í þeirri trú að það eigi að fá eitthvað í staðinn, eins og til dæmis myndarlegan ruslagám á svæðið. Þá er líka beðið eftir því að Mosfellsbær muni taka að sér viðhald á vegum sem liggja að afleggjurum að bústöðum. En árin líða og ekkert gerist. Ruslinu er safnað í svarta poka og tekið með þegar heim er haldið og einhverjir framtakssamir sumar- húsaeigendur hafa upp á sitt eins- dæmi tekið að sér að sjá um viðhald á vegum. Fólkið veltir því fyrir sér hvort ekki standi nú til hjá Mos- fellsbæ að taka sig á í þessum efnum enda er sumarhúsaeigendum sífellt að fjölga á þessu svæði og með fleiri bústöðum fá bæjaryfirvöld meira í kassann. Kannski er líka ráð að sum- arhúsaeigendur við Hafravatn fari að stofna hagsmunasamtök og þrýsta á bæjaryfirvöld um þjónustu. x x x NÚ ÞEGAR landsmenn eru búnirað borða á sig gat yfir jólin ætla margir að söðla um og borða hollan mat og hreyfa sig. Víkverji veltir því fyrir sér hvers vegna stórmarkaðir sýna þessu ekki meiri áhuga. Nú væri tilvalið að láta grænmetistorg og ávaxtaborð svigna undan ferskmeti, bjóða upp á allar hugsanlegar teg- undir af salati og grænmeti og ávöxt- um og bjóða viðskiptavinum hollar uppskriftir þar sem þessar vörur eru í aðalhlutverki. Þetta eru vörurnar sem ættu að vera á tilboði núna. Reyndar er Víkverji hundleiður á flestum stórmörkuðunum hérlendis. Að hans mati ríkir stöðnun á mat- vörumarkaði og það vantar fersk- leika í búðirnar. Það þarf nefnilega að halda verslununum betur við en gert er, lagfæra og endurbæta, bjóða nýj- ungar og vekja athygli á vörum sem lengi hafa verið til og vera með frum- leg tilboð og kynningar. Víkverja finnst matvörubúð Hagkaupa í Kringlunni komast næst þessu. Get- ur einhver bent honum á svona versl- un hérlendis þar sem það er beinlínis gaman að fara og kaupa í matinn? x x x OG ÞAR sem einhverjir kvarta yf-ir því að Víkverji nöldri stöðugt er mátulegt á þá að hann endi þetta með einhverju jákvæðu. Víkverji held- ur nefnilega ekki vatni yfir bókasafn- inu á Seltjarnarnesi og finnst mál til komið að deila þessu með lesendum. Á bókasafnið getur hann leitað þegar hann vill komast í algjöra ró. Þar starfa bara elskulegar konur sem leggja sig í líma við að aðstoða við leit á bókum, myndbandsspólum eða geisladiskum. Og úrvalið er fjöl- breytt. Konurnar brydda upp á ýmsu, hafa t.d. boðið upp á stand með bókum sem þær mæla sjálfar með, bjóða upp á stand með jólablöðum á aðventu og setja á standinn bækur um ferðalög þegar fer að vora. Þegar Víkverji hefur verið að leita og ekkert fundið bregst það ekki að þær koma með uppástungur sem hitta í mark. Iðulega fer hann heim með úttroðinn poka af lesefni fyrir heimilisfólkið. Ekki nóg með að hann hafi með sér bækur heim og jafnvel bíómynd eða tónlist heldur getur hann síðan sest niður í rólegheitum og sökkt sér nið- ur í slúður og viðtöl sem hann finnur í nýjustu tímaritunum. Víkverji hefur hugsað sér að stinga því að konunum við tækifæri hvort ekki sé hægt að fullkomna þetta með kaffisopa fyrir gesti og gangandi. Takk fyrir traustið – en nei, takk ÞEGAR rætt er um þær ábyrgðir sem eigendum Landsvirkjunar er ætlað að axla þá held ég að gott sé að setja þær í samhengi sem flestum er skiljanlegt en hætta að tala um þetta sem einhverjar stjarnfræðilegar upphæðir sem erfitt er að höndla fyrir þá sem yfirleitt eru að fjalla um tölur í heimilisbókhaldinu sínu. Samhengið er gróflega á þá leið að lánsupphæðirnar eru ca 80 þúsund milljónir og Reykjavíkurborg stend- ur á bak við 45%, Akureyri 5% og restin dreifist á alla íbúa landsins, háa sem lága (einnig íbúa Akureyrar og Reykjavíkur). Reykvíkingurinn fær sérstaklega kr. 360.000 til að bera ábyrgð á og Akur- eyringurinn kr. 200.000 en auk þess fá allir landsmenn kr. 140.000. Þannig ber hver Reykvíkingur ábyrgð á kr. 500.000, Akureyringur kr. 340.000 og aðrir íbúar landsins kr. 140.000. Við Reykvíkingar höfum breitt bak og látum margt yfir okkur ganga, eins og að hafa verið hálfdrættingar eða minna í tugi ára þegar rætt er um ítökin í lýðræð- isþjóðfélaginu Íslandi og þar fyrir utan hafa þessir örfáu þingmenn Reykvík- inga (þessir með mörgu at- kvæðin á bak við sig) yfir- leitt verið uppteknir við landsstjórnina og haft tak- markaðan áhuga á málefn- um borgarinnar. Þegar fjárfestar íhuga að leggja út fé eða ganga í ábyrgðir þá er það yfirleitt gert í von um hagnað og því er eðlilegt að spyrja hvaða hagnað Reykvíkingar og Akureyringar hafa af þess- ari ábyrgð umfram aðra landsmenn því gera verður þá eðlilegu kröfu að ef allt gengur á besta veg þá muni Reykvíkingar og Akureyr- ingar hagnast verulega um- fram aðra í landinu, eða er það ekki réttlátt? Svarið við spurningunni hlýtur að vera „já“ alveg eins og það er ljóst að þessir sömu að- ilar munu tapa langmestu ef allt fer á versta veg. Nokkrar fáránlegar spurningar – eða hvað? Hvar á landinu mun störf- um fjölga vegna ábyrgð- anna? Munu framkvæmd- irnar lækka lánin og framfærslukostnaðinn? Munu Reykvíkingar og Ak- ureyringar fá lægra raf- orkuverð? Þetta hljómar örugglega fáránlega í eyr- um einhverra en fáránleik- inn hefur mörg andlit. Það hefur að mér finnst verið feimnismál fyrir Reykvíkinga að svara fyrir sig en þeir eru m.a. sakaðir um að hafa ekki minnsta skilning á þörfum þeirra sem utan höfuðborgar- svæðisins búa svo ekki sé rætt um þá ósvinnu að þétt- býlisfólk geti haft skoðun á hvernig skynsamlegast sé að nýta landið Ísland – svo getum við velt fyrir okkur hverjir eigi Ísland. Ef við Reykvíkingar og Akureyringar erum þess verðugir að ganga í sér- staka ábyrgð, umfram aðra í landinu, fyrir áhættusöm- ustu og stærstu fjárfest- ingu síðustu ára þá væri til- breyting að heyra orðin „takk fyrir“ en þegar ég hugsa mig betur um þá vil ég frekar sleppa undan ábyrgðinni ef mögulegt er. Sturla Þengilsson, Sjafnargötu 9, R. Tapað/fundið Seðlaveski týndist SVART seðlaveski týndist í miðbæ Reykjavíkur á gaml- árskvöld. Finnandi hafi samband í síma 551 2911. Harpa. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is GLEÐILEGT ár, góðir landsmenn! Eins og venjulega á gamlárskvöldi settist ég fyrir framan sjónvarpið þegar áramótaskaupið byrjaði og það á skilið hrós. Gott skaup með nokkrum fínum punktum. En það sem fór virki- lega fyrir brjóstið á mér var þegar verið var að gera grín að mynd Hrann- ar. Það var kannski ekki beint það að verið væri að gera grín að myndinni heldur þeim sjúkdóm sem því miður of mörgum finnst greinilega vera eitt- hvert skemmtiefni, lotu- græðgi. Ég skil ekki alveg hvers vegna það hefur tíðkast að gera grín að át- röskunarsjúkdómum og þá aðallega lotugræðgi. Þetta er því miður al- gengur sjúkdómur og al- varlegur. Ég hef sjaldan séð að gert sé mikið grín að þunglyndum eða öðr- um geðsjúkdómum enda það talið vera alvarlegt mál, hvers vegna ekki át- röskun líka? Það er jú geðsjúkdómur. Lotu- græðgissjúklingum finnst þeir vera vonlausir, sjálfs- hatrið og niðurlægðin á sjálfinu er ótrúlegt og ég efast stórlega um að mynd af einhverri ofur- hressri leikkonu ælandi upp við grindverk með móður sína sér til hvatn- ingar sé eitthvað til að auka sjálfstraustið, frekar er það brotið enn meir niður. Niðurlægð Reykjavíkurmær. Fór fyrir brjóstið á mér 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 K r o s s g á t a

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.