Morgunblaðið - 08.01.2003, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
LJÓSANNA hátíð er um garð gengin og
tími til kominn að taka niður skreytingar og
tré sem hafa prýtt heimili, götur og torg að
undanförnu. Bjarni Snorrason hjá Orku-
veitu Reykjavíkur var þannig önnum kafinn
við að taka niður jólaskreytingar á Lauga-
vegi í gærkvöldi. Sjálfsagt eru þær ófáar
ljósaperurnar sem fara um hendur hans og
annarra starfsmanna Orkuveitunnar þessa
dagana.
Þá verða starfsmenn borgarinnar á ferð í
dag og næstu tvo daga og safna saman jóla-
trjám eftir hátíðirnar. Þeir munu að öllum
líkindum hafa í nógu að snúast því áætlað er
að Reykvíkingar skreyti heimili sín með 45
þúsund jólatrjám yfir hátíðirnar og nýtir
mikill meirihluti þeirra sér þessa þjónustu.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólaljós og
greni víkja
Jólatrjám safnað/20
VELTA hjá
greiðslukortafyrir-
tækjunum Visa Ís-
land og Europay Ís-
land jókst að
raungildi um 3% í
desember 2002, mið-
að við desem-
bermánuð árið áður.
Heildarvelta var 27,9
milljarðar, saman-
borið við 27,1 milljarð á sama tíma árið áður.
Heildarvelta kreditkorta nam 13,8 millj-
örðum króna í mánuðinum, en 13,5 milljörð-
um árið 2001, ef tekið er tillit til 2% verðbólgu
á síðasta ári.
Alls voru debetkort notuð í viðskiptum fyr-
ir 14,1 milljarð króna í jólamánuðinum, sem
er 500 milljónum króna meira en árið áður.
Aukning í debetkortaveltu er því meiri en
veltu vegna kreditkortanotkunar.
Af kreditkortaveltu fóru 10,7 milljarðar í
gegnum posakerfið svokallaða, eða 78%. Í
desember 2001 fóru 10,2 milljarðar í gegnum
kerfið, eða um 76%.
Kortavelta í
desember 3%
meiri en 2001
!"
#
$%
&"
- ( .
$8:=> 0F=> &G;&/
26/>
26/=
57/2
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gærmorgun tillögu Valgerðar
Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um
að leggja fyrir þingflokka stjórn-
arflokkanna og Alþingi, þegar þing
kemur saman 21. janúar, frumvarp
til laga um heimild til samninga um
álverksmiðju Alcoa í Reyðarfirði.
Valgerður upplýsir í samtali við
Morgunblaðið að jafnframt hafi
hún sent forstjóra Alcoa, Alain J.P.
Belda, bréf í gær um að ríkis-
stjórnin hafi afgreitt málið fyrir
sitt leyti. Hún segir að þetta hafi
skipt máli vegna stjórnarfundar
rita fjárfestingar-, lóðar- og hafn-
arsamninga. Samkvæmt upplýs-
ingum frá iðnaðarráðuneytinu
verða samningar um verkefnið
ekki undirritaðir nema fyrir liggi
heimildarlög frá Alþingi og jákvæð
niðurstaða stjórna Alcoa og Lands-
virkjunar um samninga milli aðila,
sem þegar hafa verið áritaðir.
Þá þarf að liggja fyrir niðurstaða
Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA,
um ríkisstyrk vegna verkefnisins,
en von er á þeirri niðurstöðu upp
úr miðjum febrúar, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins.
Alcoa, sem hefst á morgun og
stendur fram á föstudag.
Valgerður segist ekki vilja upp-
lýsa um efnisatriði frumvarpsins
en það sé í flestu leyti sambærilegt
lögum um heimild til samninga um
álverksmiðju á Grundartanga sem
samþykkt var fyrir nokkrum ár-
um.
Samninganefndir iðnaðarráðu-
neytis, Alcoa og Fjarðabyggðar
hafa áritað samninga vegna bygg-
ingar og rekstrar álverksmiðju í
Reyðarfirði. Í frumvarpinu er leit-
að heimildar Alþingis til að undir-
Álversfrumvarp lagt
fyrir þingflokka
Forstjóra Alcoa sent bréf um að ríkisstjórnin
hafi afgreitt málið fyrir sitt leyti
JAKE Siewert, upplýsinga-
fulltrúi Alcoa, segir að fréttir
gærdagsins um skýrslu eig-
endanefndar Landsvirkjunar
og boðað frumvarp ríkis-
stjórnarinnar séu mjög já-
kvæðar.
„Við erum ánægðir með að
ríkisstjórnin hefur stigið mik-
ilvægt skref í að koma laga-
setningunni áleiðis,“ sagði
Siewert en vildi ekki tjá sig
frekar fyrr en að loknum
stjórnarfundi fyrirtækisins í
Bandaríkjunum á föstudag,
þar sem reiknað er með loka-
ákvörðun Alcoa um verkefnið
hér á landi.
Talsmaður Alcoa
Mjög já-
kvæðar
fréttir
LOÐNUVERTÍÐ er í algleymingi þessa dagana og mikið að gera
eins og vera ber. Í gær var loðnulöndun í fullum gangi á Þórshöfn
og Karl Helgason, skipverji á Júpíter ÞH, önnum kafinn við vinnu
sína. Júpíter kom inn á miðnætti aðfaranótt þriðjudags með 1.300
tonn af loðnu og var stefnt að því að halda aftur á miðin í gær-
kvöldi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Loðnuvertíð í algleymingi
TIL umræðu er innan Samfylking-
arinnar að Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir verði pólitískur leiðtogi Sam-
fylkingarinnar í kosningabarátt-
unni fyrir alþingiskosningarnar í
maí og forsætisráðherraefni að
loknum kosningum.
Eftir að ljóst varð að Ingibjörg
Sólrún gæfi kost á sér í fimmta
sætið í öðru Reykjavíkurkjördæm-
inu hefur verið rætt um það innan
forystu Samfylkingarinnar hvernig
skipuleggja bæri innkomu hennar í
landsmálin.
Sá möguleiki hefur verið ræddur
að Ingibjörg taki sæti ofar á listan-
um en hið fimmta en svo virðist
sem fallið hafi verið frá því, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Er ástæða þess ekki síst sú, að í
ljósi þeirrar miklu umræðu, sem
verið hefur um Ingibjörgu og
fimmta sætið, væri pólitískt við-
kvæmt að færa hana í öruggara
sæti. Þá yrðu allir þeir, sem fyrir
eru á listanum, samkvæmt niður-
stöðum prófkjörs, að fallast á slíka
breytingu.
Horft til Noregs
Innan forystu Samfylkingarinnar
hefur verið horft til hinna Norður-
landanna við lausn á þessu máli en
þar má finna fordæmi fyrir því að
einn maður leiði kosningabaráttu
en annar sé formaður flokksins.
Má þar nefna er Jens Stolten-
berg var forsætisráðherraefni
norska Verkamannaflokksins í
kosningunum árið 2001 en ekki
Torbjørn Jagland, formaður
flokksins. Samkvæmt þessum hug-
myndum yrði Ingibjörg hinn póli-
tíski talsmaður flokksins í kosn-
ingabaráttunni en Össur Skarp-
héðinsson myndi einbeita sér að
hinu innra starfi flokksins og jafn-
vel leiða stjórnarmyndunarvið-
ræður.
Málið hefur ekki verið rætt inn-
an þingflokks Samfylkingarinnar
ennþá en vilji mun vera fyrir því að
taka endanlega ákvörðun sem
fyrst.
Rætt um Ingibjörgu sem
forsætisráðherraefni FJÓRÐUNGUR hlutafjár í Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hf.
skipti um eigendur í gær þegar
Landsbanki Íslands keypti bréf
Þormóðs ramma – Sæbergs hf. og
fyrirtækis í eigu Róberts Guð-
finnssonar, stjórnarformanns SH,
fyrir um 372 milljónir að nafnvirði.
Gengið í viðskiptunum var 5,20
krónur á hlut og var kaupverð
hlutarins því 1.934 milljónir króna.
Landsbankinn stærsti
hluthafinn
Fyrirhuguð sameining SH og
SÍF er talin líkleg til að hækka
gengi bréfa í SH og taldi Lands-
bankinn að hagstætt væri að
kaupa hlutabréf í félaginu nú, áður
en sameiningarferlið fer í gang.
Landsbankinn er eftir viðskiptin
orðinn stærsti hluthafinn í SH með
rúm 25% en næst á eftir kemur
Brim ehf. sem er í eigu Hf. Eim-
skipafélags Íslands, með um 20%
hlut.
Gengi bréfa í SH hækkaði um
tæp 15% á liðnu ári, fór hæst í 5,4
krónur og lægst í 4,25 krónur á
hlut. Ef frá eru skilin viðskipti
gærdagsins voru síðast viðskipti
með bréfin hinn 30. desember sl.
og var gengi þeirra við lok þess
dags 4,9. Miðað við það gengi
greiddi Landsbankinn því um 6%
yfirverð fyrir hlutinn í SH. Loka-
gengi bréfanna í gær var 5,0 krón-
ur á hlut.
Tveggja milljarða hlutur í
SH seldur Landsbankanum
Landsbankinn/16
♦ ♦ ♦