Morgunblaðið - 11.01.2003, Side 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
8
3
0
4
/ sia
.is
FITUL&LÍTIÐ
Ef þú ert að spá í línurnar getur þú notið þess að smyrja með fitulitlu viðbiti
sem bragðast líkt og smjör. Létt og laggott – þyngdarlausa viðbitið.
ÞAÐ VAR allt á tjá og tundri í höf-
uðstöðvum Landlæknisembættisins
í gær, þó ekki vegna farsóttar, held-
ur flutninga sem standa yfir. Emb-
ættið er nefnilega að flytja á Aust-
urströnd 5 á Seltjarnarnesi og verða
skrifstofur þess opnaðar þar á
mánudaginn. Það var því mikið um
að vera í gær er starfsmenn pökk-
uðu saman föggum sínum í gömlu
skrifstofunni á Laugavegi 116 og
héldu á vit nýrra ævintýra á Nesinu.
En þetta er ekki í fyrsta sinn sem
landlæknir fær aðstöðu á Seltjarn-
arnesi því þegar embættið varð til
árið 1760 var landlæknir þar allt til
ársins 1834. „Það ár var embættið
flutt til Reykjavíkur,“ útskýrir Sig-
urður Guðmundsson landlæknir
sem gaf sér tíma til að ræða við
blaðamann þrátt fyrir að standa
nánast á haus ofan í pappakassa í
gær. „Þá var verið að búa til höf-
uðborg og embættið flutt frá út-
kjálkanum, þ.e. Nesinu.“
Aftur til heimahaganna
Landlæknisembættið var lengi
vel í Arnarhvoli að sögn Sigurðar en
flutti á Laugaveg 116 árið 1981 þar
sem það hefur verið þar til nú.
„En núna ætlum við að fara aftur
til heimahaganna á Seltjarnarnesi.
Flutningarnir hafa þó átt sér um
tveggja ára aðdraganda. Það var
orðið ljóst að við þyrftum annað
húsnæði, orðið þröngt um okkur og
skrifstofurnar komnar á þrjá staði.
Svo flutningar voru orðnir tímabær-
ir.“
Sigurður segist ánægður með
nýju aðstöðuna sem sé í nýju hús-
næði sem hafi verið sérstaklega
skipulagt með starfsemi Landlækn-
isembættisins í huga. Þá sé útsýnið
betra á Austurströndinni. „Ég get
ekki borið útsýnið á gamla og nýja
staðnum saman. Á nýja staðnum
horfi ég beint á Esjuna en á Lauga-
veginum beint á lögreglustöðina,
með fullri virðingu fyrir vinum okk-
ar í lögreglunni.“
Sigurður segir að þrátt fyrir
þessa gömlu tengingu við Seltjarn-
arnesið hafi það ekki verið meg-
inástæða þess að embættið flytur á
Austurströndina. Starfsmenn Land-
læknisembættisins eru 24 og höfðu
þeir allir með tölu í nógu að snúast í
gær við flutningana.
„Það þarf eiginlega að flytja á
fimm ára fresti,“ segir Sigurður að
lokum áður en hann tók til við að
pakka ofan í kassa á nýjan leik.
„Það er alltaf svo mikið drasl sem
þarf að henda.“
Landlæknisembættið flytur frá Laugavegi 116 á Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi
Flytur á ný til
heimahaganna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stund milli stríða. Sigurður Guðmundsson landlæknir og starfsfólk Landlæknisembættisins tók sér hlé frá flutn-
ingunum í gær og gæddi sér á pizzu. Skrifstofa embættisins verður opnuð á nýja staðnum á mánudaginn.
Seltjarnarnes
Jóns Péturs og Köru, Skákskóli Ís-
lands, Jassballetskóli Báru, Karate-
félagið Þórshamar, Balletskóli
Eddu Scheving, Frístundamiðstöðin
Tónabær, Borgarbókasafnið í
Kringlunni, Háteigskirkja og Hall-
grímskirkja.
Á fjölskylduhátíð Nella nágranna
í Tónabæ verður boðið upp á atriði
OPIÐ hús verður hjá fjölmörgum
aðilum sem bjóða upp á tómstunda-
og íþróttastarf í austurborginni í
dag. Um árlegan viðburð er að ræða
er kallast Dagur Nella nágranna.
Þá er börnum og foreldrum í hverf-
unum sem markast af Þingholtun-
um, Suðurlandsbraut og Grensás-
vegi boðið að kynna sér það
fjölbreytta starf sem í boði er fyrir
börn utan hefðbundins skólatíma.
Jafnframt verður lífleg fjöl-
skylduhátíð haldin kl. 16:30 í Fé-
lagsmiðstöðinni Tónabæ, Safamýri
28.
Þrettán aðilar sem bjóða upp á
þjónustu fyrir börn og unglinga
verða með opið hús milli kl. 13 og
16. Það eru knattspyrnufélögin Val-
ur og Fram, Mímir – símenntun,
Skátafélagið Landnemar, Dansskóli
úr smiðju þjónustuaðila og happ-
drætti. Meðal vinninga verða nám-
skeið fyrir börn og unglinga frá
þeim sem taka þátt í deginum.
Verkefnið er skipulagt af For-
varnarfélaginu Samtaka, sem er
samstarfsverkefni nokkurra aðila
sem starfa með börnum í hverfun-
um hans Nella.
Dagur
Nella
nágranna
Austurborg
Ljósmynd/Ásdís
Fjölskylduhátíðin í Tónabæ á Degi Nella nágranna í fyrra var vel sótt. Þar
var m.a. hægt að fylgjast með borðtennissnillingum sýna meistaratakta.
SKOTMENN í Reykjavík hafa nú
fengið æfinga- og keppnisaðstöðu
innanhúss í Egilshöllinni í Grafarvogi
samkvæmt viðbótarsamningi sem
borgarstjórinn í Reykjavík undirrit-
aði í gær ásamt eigendum Egilshall-
arinnar. Samningurinn hefur í för
með sér enn frekari leigu borgarinnar
á aðstöðu í höllinni, en samkvæmt
honum fær fimleikafólk Fjölnis sér-
útbúna aðstöðu, Korpuskóli aðstöðu
til íþróttakennslu og frjálsíþróttafólk
í Reykavík fær þreföldum á æfingaað-
stöðu sinni innanhúss.
Samið um aðstöðu
til íþróttaiðkunar
Grafarvogur
Morgunblaðið/RAX
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri undirritar samninginn ásamt
(f.v.) Snorra Hjaltasyni og Sigurði Sigurgeirssyni, eigendum Egilshall-
arinnar, og Önnu Kristinsdóttur, formanni Íþrótta- og tómstundaráðs.