Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 35
Látið minninguna lifa um ókomna tíð á gardur.is!
upplýsingar í síma 585 2700 eða hjá útfararstjórum.
gardur.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Sími 893 8638
Hef starfað við
útfarir í 20 ár
Sími 567 9110
www.utfararstofan.is
✝ Steinunn Sigur-borg Gunnars-
dóttir fæddist á Ísa-
firði 1. desember
árið 1943. Hún lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans við
Hringbraut 20. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Gunnar Sig-
urðsson, skipasmið-
ur frá Bæjum á Snæ-
fjallaströnd, f. 8. júlí
1907, d. 18. ágúst
1996, og Steinunn
Sigurborg Jakobs-
dóttir, húsmóðir frá Aðalvík, f.
20. mars 1905, d. 28. maí 1986.
Steinunn var yngst
sex barna þeirra
hjóna.
Steinunn giftist
16. maí 1964 eftirlif-
andi eiginmanni sín-
um, Sveinbirni Guð-
mundssyni frá
Bolungarvík, f. 25.
júlí 1942, og eiga
þau þrjú börn, Hildi,
f. 21. apríl 1964,
Guðmund, f. 11. jan-
úar 1966, og Önnu
Láru, f. 8. júní 1981,
og fimm barnabörn.
Útför Steinunnar
fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Elsku hjartans mamma. Við sökn-
um þín svo mikið. Það er svo erfitt og
sárt að vita að við eigum ekki eftir að
sjá þig aftur. Þú varst sannkölluð fyr-
irmyndarmóðir, sú besta í heimi.
Margs er að minnast og margs er
að sakna. Hún mamma var trú og
traust og átti auðvelt með að sýna
það. Hún var líka mjög ákveðin og
þegar hún tók sér eitthvað fyrir hend-
ur þá gafst hún aldrei upp þó á móti
blési. Mamma var mikið fyrir útilegur
og sunnudagsbíltúra t.d. í Herdísar-
vík og Reykjarneshringinn og oftar
en ekki var stoppað í Grindavík og
fengið kaffi hjá Hildi.
Mamma var líka mjög hugmynda-
rík eins og þegar við fjölskyldan fór-
um í sumarbústað austur fyrir fjall á
fimmtugsafmælinu hans pabba. Þá
eins og alltaf á afmælum bakaði
mamma köku og þegar átti að setja
kertin á voru ekki til 50 kerti þá dó
hún sko ekki ráðalaus og náði sér í 40
kerta ljósaperu og setti hana á kök-
una miðja og 10 kerti í kring og það
vakti mikla lukku og hlátur hjá okkur.
Af helgum augum hrynja tár,
í helgri sál er tregi sár
og tryggð í helgu geði.
Hví grætur sá, er gefur fró?
Hví grætur mannkyns líf og ró?
Hví grætur himna gleði?
(Helgi Hálfdánarson.)
Elsku mamma, takk fyrir allt og
hvað við erum heppin að hafa átt
svona einstaka mömmu. Nú ertu laus
við kvalirnar sem að kvöldu þig und-
an farin ár. Farðu nú í friði, sofðu
rótt, elsku hjartans mamma.
Þín börn
Hildur, Guðmundur
og Anna Lára.
Yngsta systir mín er látin, aðeins
59 ára að aldri. Ég man að þegar von
var á henni í heiminn var ég ekki
mjög hrifin. Ég var að verða 13 ára,
elsta systirin og átti þegar 3 yngri
systkini og mér fannst ég hafa verið
barnapía, síðan ég mundi eftir mér.
En þetta breyttist fljótlega og ég tók
miklu ástfóstri við litlu systur mína
og var orðin nógu stór til að finnast
gaman að passa hana og leika við
hana. Þegar hún var 3ja ára eða svo
fór ég í burtu, sumartíma. Ég hringdi
í mömmu í tíma og ótíma til að vita
hvort hún saknaði mín ekki svo mikið,
að ég þyrfti að koma heim. En auðvit-
að voru nógir til að dekra við hana,
hún var yngst og prinsessan í fjöl-
skyldunni. Þegar Steina var 9 ára
eignaðist ég mína eigin prinsessu,
Kristínu, dóttur mína og næstu árin
ólust þær upp saman, eins og systur.
Steina fór alfarin að heiman innan við
tvítugt. Hún giftist Sveinbirni Guð-
mundssyni, ættuðum úr Bolungarvík
og bjuggu þau allan sinn búskap í
Hafnarfirði. Þau eiga þrjú börn,
Hildi, Guðmund og Önnu Láru og
fimm barnabörn.
Sumarið 2001 greindist Steina með
krabbamein. Hún tók því af miklu
æðruleysi og þegar hún hringdi og
sagðist vera að fara í geislameðferð
var hún ákveðin í að vera jákvæð og
treysta því að meðferðin bæri árang-
ur. En batinn lét bíða eftir sér og í
des. sl. fékk hún úrskurð um að mein-
ið hefði dreift sér og batahorfur væru
engar. Eftir það hrakaði henni ört og
um miðjan desember var hún flutt á
Landspítalann, þar sem hún lést að
morgni 20. des. sl. Ég er þakklát fyrir
að hafa getað verið hjá henni síðustu
nóttina, sem hún lifði, ásamt hennar
nánustu. Mér fannst gott að sjá hvað
þessar yndislegu hjúkrunarkonur,
sem voru á vakt þessa nótt, önnuðust
hana af mikilli alúð og hlýju og
reyndu að láta henni líða sem best og
sendi ég þeim þakklætiskveðjur.
Systir okkar, María Rebekka, sem
býr líka í Hafnarfirði á miklar þakkir
skilið fyrir alla þá umhyggju sem hún
sýndi henni og hjálpaði henni allt sem
hún gat, einnig þó hún ætti sjálf við
veikindi að stríða undanfarna mán-
uði.
Mági mínum, börnum þeirra og
fjölskyldum, sendum við, fjölskyld-
urnar á Ísafirði innilegar samúðar-
kveðjur og vonum að þau styrki hvert
annað og standi saman í framtíðinni.
Guð geymi þig, litla systir.
Sigþrúður (Dúa).
STEINUNN
SIGURBORG
GUNNARSDÓTTIR ✝ Axelína Geirs-dóttir fæddist á
Veigastöðum í Sval-
barðsstrandar-
hreppi hinn 5. sept-
ember 1905 og ólst
þar upp. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Seli á Akureyri hinn
14. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Jóhann
Geir Jóhannsson, f.
17.2. 1882, bóndi á
Veigastöðum, og
kona hans, Kristjana
Halldórsdóttir, f.
7.3. 1876. Axelína var elst fimm
systkina, en hin systkinin eru lát-
in. Þau voru Elínbjörg Geirsdótt-
ir, f. 23.4. 1908, gift Pétri
Jóramssyni, sjómanni úr Kefla-
vík. Þau eignuðust þrjú börn,
Hilmar, Kristján og Dagmar.
Önnur systkini, Eiríkur Geirs-
son, f. 19.9. 1911. Halldóra Sess-
elja Geirsdóttir, f. 22.5. 1915.
Ragnar Geirsson, f. 7.11. 1922.
Þau bjuggu öll á Veigastöðum,
síðar í Smáratúni 1 á Svalbarðs-
eyri.
Eftir að Axelína gifti sig var
hún húsfreyja í Sveinbjarnar-
gerði á Svalbarðs-
strönd. Maður henn-
ar var Halldór
Jóhannesson, bóndi
í Sveinbjarnargerði,
f. 22.9. 1904, d. 14.
október 1982. For-
eldrar hans voru Jó-
hannes Halldórsson
bóndi Sveinbjarnar-
gerði og Kristjana
Jónsdóttir hús-
freyja. Börn Axel-
ínu og Halldórs eru:
1) Jónas Eiríkur, f.
29.8. 1936, kona
hans Anny Lars-
dóttir, sonur þeirra er Jónas
Halldór. 2) Jóhannes Geir, f. 26.8.
1940, kona hans Herdís Jónsdótt-
ir og eiga þau tvö börn, Halldór
og Ingibjörgu. 3) Haukur, f. 25.5.
1945, kona hans Bjarney Bjarna-
dóttir, þau eiga þrjú börn: Heiðu,
Eirík Hauk og Halldóru Kristínu.
4) Vigdís, f. 15.8. 1946, og maður
hennar er Sævaldur Valdimars-
son. Vigdís á fimm börn, Axelínu
Kjartansdóttur, Knút Horne,
Halldór Horne, Anne Horne og
Hildi Horne.
Útför Axelínu fór fram frá
Svalbarðskirkju 22. desember.
Okkur systkinin langar til að
minnast ömmu okkar sem lést 14.
desember síðastliðinn, þá nýorðin
97 ára gömul. Amma var ein af
þessum kjarnorkukonum sem
ávallt þurfa að hafa eitthvað fyrir
stafni og vildi hún aldrei vera upp
á aðra komin. Hún hélt sitt eigið
heimili alveg þar til fyrir rúmi ári
þegar ellikerlingin bankaði upp á
og byrjaði að herja á hana fyrir al-
vöru. Þá tók hún á móti henni,
enda fannst henni orðið tímabært
að hún fengi sína hvíld. Hún var
elst af fimm systkinum og hafði
hún lifað þau öll, og afa hafði hún
misst fyrir tuttugu árum þannig að
það ríkti engin sorg hjá ömmu yfir
því að fá að kveðja þennan heim.
Amma var ein af þessum konum
sem voru af gamla skólanum, hún
stjórnaði heimili sínu af skörungs-
skap og það var alltaf pússað út að
dyrum. Hún var handverkskona
mikil og þegar hún var upp á sitt
besta var garðurinn hennar með
þeim glæsilegri í sveitinni. Þegar
við rifjum upp stundirnar með
ömmu er margt sem kemur upp í
huga okkar, hún hefur einhvern
veginn verið einn af þessum föstu
punktum í tilverunni sem eru
óhagganlegir. Verið til staðar, allt-
af með kökur og heitt á könnunni
og tilbúin til að spjalla. Í nútíma-
samfélagi þar sem hraðinn er mik-
ill skipta ömmurnar miklu máli,
þangað hafa barnabörnin getað
leitað og hvílt sig og slappað af.
Þær eru ófáar stundirnar þar sem
við systur höfum skroppið til
ömmu og náð okkur í ástarsögu eða
bara góða bók og lagst svo við hlið-
ina á ömmu og lesið. Ekkert talað,
bara lesið hlið við hlið og notið
kyrrðarinnar. Þetta eru ómetan-
legar stundir sem við erum mjög
þakklát fyrir. Amma hafði mjög
gaman af því að spila og spilaði hún
oft við okkur systkinin, þetta voru
skemmtilegar stundir og mikið
hlegið, hún hafði afskaplega gaman
af því að hlæja og það var gaman
að sjá hvað henni leið vel eftir góða
hláturstörn.
Amma var skapmikil og hafði
áhrif á alla í kringum sig, hún hafði
álit á hlutunum og var ekkert að
liggja á sinni skoðun. Hún þoldi illa
„leti“ eins og hún kallaði það og
vildi halda fólki við efnið, enda þeg-
ar kom að því að hugur hennar var
langt á undan líkamlegri getu
fannst henni nóg komið. Hún var
alltaf eitthvað að dútla og lesa al-
veg fram undir það síðasta og það
verður mjög skrítið að fá ekki jóla-
kaffið hjá henni eins og venja var á
aðfangadag. Hún var mjög stolt af
fólkinu sínu og fylgdist vel með
framvindu mála hjá öllum fjöl-
skyldumeðlimum, allir áttu sitt
pláss uppi á vegg eða í hillu í stóru
myndasafni sem hún hafði komið
sér upp. Þetta gátum við systkinin
skoðað tímunum saman þegar við
komum í heimsókn og fræðst um
fjarskylda ættingja og uppruna
okkar. Amma var heill hafsjór af
upplýsingum þegar kom að ætt-
fræði. Þessara stunda söknum við
sárt en minningin lifir áfram um
góða ömmu sem ætíð var til staðar
þegar á þurfti að halda.
Við viljum sérstaklega þakka öll-
um þeim sem komu að aðhlynningu
hennar, og sérstaklega starfsfólki í
heimahjúkrun á Akureyri og
starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Sels Akureyri.
Heiða Hauksdóttir,
Eiríkur Haukur Hauksson,
Halldóra Kristín Hauksdóttir.
AXELÍNA
GEIRSDÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga. Greinunum er hægt að skila í tölvupósti (netfangið
er minning@mbl.is), á disklingi eða í vélrituðu handriti. Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höf-
undar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími er
569 1115. Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum í húsi Morgun-
blaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaup-
vangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum.
Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukk-
an hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit-
letraður. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með
bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda
örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess
að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Birting afmælis-
og minningargreina