Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 39 OPIÐ HÚS - SÓLHEIMUM 26 Til sölu falleg sérhæð með glæsilegu útsýni til allra átta. Íbúðin er á efstu hæð í fallegu fjórbýli. Góð björt stofa, 28 fm sólskáli, 3 svefnherbergi, rúmgott eldhús og salerni með glugga. Elísabet Agnarsdóttir gsm 822 0336 Heimilisfang: Sólheimar 26. Stærð íbúðar: 123,2 fm. Brunabótamat: 13,4 millj. Byggingarár: 1960. Áhvílandi ca 4 millj. Verð: 14,5 millj. Opið hús: frá kl. 15-17. Hrafnhildur Bridde lögg. fasteignasali SUÐURLANDSBRAUT Sími 520 9300 Opið hús - Heiðarhjalla 7 - Kópavogi Sigurbjörn Skarphéðinsson lögg. fasteignasali Heimilisfang Heiðarhjalli 7, Kópavogi. Byggingarár 1994. Stærð 268 fm. Verð 32,9 millj. Opið hús sunnudaginn 12. janúar frá kl. 14-16. Frekari upplýsingar: www.thingholt.is Glæsilegt og vandað 268 fm parhús á 3 hæðum með fallegu útsýni í suðurhlíð- um Kópavogs. Húsið er með 6 rúmgóðum svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, glæsilegri eldhúsinnréttingu, stofu og sjónvarpsherbergi og innbyggðum bílskúr með geymslu. Ofan á bílskúr eru 20 fm suðursvalir og 10 fm svalir út úr eldhúsi. Í húsinu eru innréttingar og hurðir frá HB úr kirsuberjaviði og stáli. Íbúðin er innréttuð af innanhússarkitekt og lýsingin er frá Lumex. Á lóðinni er nýtt 150 fm upphitað bílaplan og á bak við húsið er náttúrulegur garður með birki og grenitrjám. Verð 32,9 m. Áhv. 7,6 m. Kristinn Gestsson sölufulltrúi sýnir eignina í dag á milli kl. 14 og 16. Verið velkomin. Kristinn Gestsson gsm 694 1930 i j i l f t i li EINBÝLI  Haukanes - sjávarlóð Vorum að fá í einkasölu 311 fm einb. á tveimur hæðum auk 46 fm bílskúrs. Húsið þarfn- ast standsetningar. Glæsilegt útsýni. V. 29,5 m. 3001 RAÐHÚS  Móaflöt - raðhús Vorum að fá í einkasölu glæsilegt 190 fm raðhús á einni hæð auk 45 fm bílskúrs. Húsið hef- ur verið standsett á sérlega smekklegan hátt. Arinn. Möguleiki er á aukaíbúð í húsinu. V. 22,8 m. 3000 Logaland - endaraðhús Erum með í einkasölu gott u.þ.b. 195 fm end- araðhús ásamt 24 fm bílskúr. Húsið skiptist þannig: 1. hæð stofa, borðstofa, eldhús, herbergi, snyrting og forstofa. Jarðhæð/kjallari: þrjú herbergi, (fjögur skv. teikningu), baðherbergi, þvottahús, geymsla, hol og bakútgangur. Parket og góðar suðursvalir. Möguleiki á skiptum á minni eign. V. 23,5 m. 2995 Urðarbakki - raðhús Gott rað- hús á pöllum með innbyggðum bílskúr og stórum vestursvölum. Húsið er vel skipulagt en þarfnast einhverrar stands- etningar. Skipti á minni eign koma til greina. Mjög góð staðsetning og stutt í alla þjónustu. V. 17,5 m.1470 Bakkasel - endaraðhús m. aukaíbúð Gott endaraðhús á tveimur hæðum auk kjallara, samtals 245 fm auk 24 fm bílskúrs. Eignin skiptist þannig að í kjallara er 3ja herbergja séríbúð. Á 1. hæð er forstofa, þvottahús, eldhús, gestasnyrting, herbergi, stofa og borð- stofa. Á efri hæð eru þrjú herbergi, sjón- varpshol og baðherbergi. Mjög gott ástand og viðhald. Skipti möguleg á minni eign. V. 22,9 m. 2484 Bakkasel - glæsilegt Fallegt og mjög vel staðsett 242,1 fm endaraðhús með möguleika á séríbúð í kjallara (m. fullri lofthæð) auk 19,5 fm bílskúrs og yf- irbyggðum svölum. Svalir hafa verið yfir- byggðar. Mjög skemmtileg aðkoma er að húsinu, sameiginleg lóð er hellulögð og fallega upplýst (gangstéttar eru hellu- lagðar og með hita. V. 23,9 m. 2905 Birtingakvísl - fallegt raðhús Erum með í einkasölu ákaflega vandað og fallegt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, samtals u.þ.b. 200 fm. Vandaðar innréttingar, parket og flís- ar og yfirbyggður garðskáli. Glæsileg lóð með pöllum og skjólveggjum. V. 21,9 m. 2730 Falleg og björt u.þ.b. 72 fm íb.í kjallara í góðu húsi og með sérinn- gangi. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð m.a. eldhús, bað og parket. Falleg íbúð á eftirsóttum stað. Íb. verður sýnd í dag, sunnu- dag, á milli kl. 14 og 16. Íbúðin er laus strax. V. 10,5 m. 2780 Tómasarhagi 40 - opið hús í dag, sunnudag HÆÐIR  Bólstaðarhlíð - góð Mjög skemmtileg og vel skipulögð 6 herb.íbúð á 2. hæð í fallegu fjórbýlishúsi. Íbúðin skiptist þannig: 2-3 stofur, 3-4 herbergi, eldhús, baðherbergi og hol. 3014 4RA-6 HERB.  Kleppsvegur - mikið útsýni - laus strax Falleg og björt 100 fm endaíbúð á 7. hæð í lyftublokk við Kleppsveginn með frábæru útsýni til þriggja átta. Eignin skiptist í hol, þrjú herbergi, stofu, baðherbergi, eldhús. Stórar vinkilsvalir eru út af stofunni. Parket á gólfum. V. 11,9 m. 1181 3JA HERB.  Miklabraut 60 fm þriggja herb.íbúð í kjallara í góðu húsi á horni Miklubrautar og Engihlíðar. Íb. getur verið laus fljót- lega. Áhv. 4,5 m. í húsb. V. 7,7 m. 2999 Kötlufell - útsýni Mjög falleg 3ja herbergja 85 fm íbúð í húsi sem er allt klætt að utan og með yfirbyggðum svöl- um. Íbúðin skiptist í hol, tvö herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Parket og flísar á gólfum. Nýleg eldhúsinnr. og flís- ar á baði. V. 10,7 m. 2997 Álftamýri - góð staðsetning 3ja herbergja björt íbúð á 3. hæð sem skiptist í hol, tvö herbergi, stofu, eldhús og bað. Í kjallara fylgir sérgeymsla svo og sameiginlegt þvottahús, hjólag. o.fl. V. 10,2 m. 2866 Sóltún - nýtt lyftuhús - íbúð með sérlóð Glæsileg og nýleg 103 fm íbúð í eftirsóttu húsi við Sóltún. Fal- leg íbúð með vönduðum innréttingum. Íbúðin skiptist í hol, tvö herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús. Sér- lóð og verönd til suðurs. 2979 2JA HERB.  Frostafold - m. bílskýli Falleg 2ja herb. um 60 fm íb. á 5. h. í lyftublokk auk stæðis í bílageymslu í mjög góðu fjölbýli. Parket á gólfum og suðursvalir. Húsvörður. Mikið útsýni. Áhv. um 5,0 m. í byggsj. Íb. er laus strax. V. 10,3 m. 2996 ATVINNUHÚSNÆÐI  Miðhraun - nýtt og glæsilegt atvinnuhúsn. Erum með í einkasölu þetta glæsilega og nýja atvinnuhúsnæði. Um er að ræða hús sem er fullbúið að utan og með malbikaðri lóð en að innan er húsið tæplega tilb. til innréttinga. Húsið selst í nokkrum einingum sem eru fimm talsins, hver u.þ.b. 500 fm. Hver eining er með steyptu millilofti og fjórum innkeyrsludyrum þ.e. tveimur á hvorri hlið og er hægt að aka í gegnum húsið. Gott verð. 2608 jöreign ehf Sími 533 4040 www.kjoreign.is Ármúla 21, Reykjavík Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali, SALTHAMRAR - GRAFARVOGI Glæsilegt og vandað einnar hæðar einbýlishús ásamt tvö- földum bílskúr, um 193 fm. Húsið stendur innst í lokuðum botnlanga á fallegum útsýnis- stað. Falleg lóð með skjól- veggjum og verönd. Gróður- hús, kjörið tækifæri. Verð 27,9 millj. Nánari uppl. Ólafur í gsm 896 4090 og Dan í gsm 896 4013 Norður-Héraði – Árleg uppskeru- hátíð Ungmennafélagsins Ássins á Norður-Héraði var haldin að venju í byrjun árs. Hátíðin hófst með að spiluð var félagsvist þar sem keppt var í tveimur aldursflokkum, fjórtán ára og yngri og fimmtán ára og eldri. Íþróttamaður Ungmennafélags- ins Ássins 2002 var útnefndur Fannar Ingi Veturliðason. Fannar setti meðal annars UÍA-met í há- stökki og langstökki á Unglinga- landsmóti UMFÍ í Stykkishólmi í sumar leið og vann þær greinar báðar. Fannar hampaði einnig Ís- landsmeistaratitlum á árinu auk þess að sigra í flestum keppnum sem hann tók þátt í. Auk þess fengu viðurkenningu á uppskeruhátíðinni systkinin Karitas Hrönn og Sölvi Baldurs- börn fyrir góðan árangur og ástundun í íþróttum á árinu. Kar- itas vann til 9 verðlauna á árinu, þar af 7 gull, og Sölvi hlaut 11 verðlaun, þar af 2 gull. Stökkvari valinn íþróttamaður Ássins Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins Fannar Ingi Veturliðason með far- andbikar sem fylgir sæmdarheitinu íþróttamaður Ungmennafélagsins Ássins ásamt eignargrip. EKKI er rétt að mörg dæmi séu um það að dómkvaddir matsmenn hafi hrakið niðurstöður örorkumats Líf- eyrissjóðsins Framsýnar. Þetta segir Bjarni Brynjólfsson, framkvæmda- stjóri Framsýnar, vegna ummæla Jó- hanns Alberts Sævarssonar hæsta- réttarlögmanns í Morgunblaðinu á þriðjudaginn en þar sagðist Jóhann hafa rekið nærri tug mála á hendur sjóðnum á árunum 1998 til 2000 og að leiðrétting hafi fengist í langflestum þeirra með því að sjóðurinn hafi fallist á niðurstöðu dómkvaddra mats- manna. „Hið rétta er að frá því sjóð- urinn var stofnaður árið 1996 hafa átta einstaklingar rekið mál vegna ör- orkumats og hafa niðurstöður gengið í báðar áttir. Svo menn sjái þetta í réttu ljósi má nefna að það eru um tvö þúsund einstaklingar á örorkulífeyri hjá okkur og í fyrra höfum við vænt- anlega fengið um þrjú hundruð um- sóknir. Vitaskuld geta komið upp álitamál enda hér um mat að ræða. Við gerum okkur grein fyrir að hvert mál skiptir þann einstakling sem í hlut á miklu. En sem betur fer eru þetta ekki fleiri tilvik.“ Spurður um þá tilgátu Jóhanns að marga skorti þrek til þess að standa á rétti sínum gagnvart sjóðnum segir Bjarni að nauðsynlegt sé að Sjálfs- björg komi með lista yfir einstaklinga hafi samtökin slíkan lista tiltækan. „Við erum að sjálfsögðu ekki vísvit- andi að reyna að hafa réttindi af okk- ar félögum. En við erum með trún- aðarlækni, m.a. annars til þess að tryggja að það sé ákveðin festa og samræmi í örorkumati.“ Lækkun örorkumats hjá Framsýn Fimm fengið leiðréttingu á sjö árum TOGARASKIPSTJÓRI hefur í Hér- aðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur í 100 þúsund króna sekt fyrir brot á lögum um atvinnuréttindi skipstjórn- ar- og vélstjórnarmanna í byrjun maí sl. Var honum gefið að sök að hafa siglt skipi sínu úr höfn vanmönnuðu vegna þess að stýrimaður og yfirvél- stjóri höfðu eigi gild atvinnuréttindi er varðskipið Óðinn kom að skipinu þar sem það var að veiðum á Reykja- neshrygg. Í skýrslu skipherra Óðins segir að komið hafi í ljós við eftirlit að atvinnu- réttindi stýrimanns höfðu runnið úr gildi tveimur mánuðum áður og at- vinnuréttindi yfirvélstjórans hálfum mánuði fyrir brottför. Skipstjórinn neitaði sök og hélt því fram að skipstjóri bæri ekki refsi- ábyrgð á því að atvinnuréttindi skip- verja væru runnin út heldur væri það á ábyrgð lögskráningarstofunnar að fylgjast með því og gera viðeigandi ráðstafanir í þeim efnum. Á það féllst Héraðsdómur Reykja- víkur ekki, sagði siglingalög segja að skipstjóri skyldi annast um að skip væri haffært og að það væri vel útbúið og nægilega mannað til fyrirhugaðrar ferðar. Í því fælist að skipstjóra væri skylt að gæta þess þegar skipi væri siglt úr höfn að skipverjar hefðu þau starfsréttindi sem lög og reglur krefðust á hverjum tíma. Þá þýðing- armiklu starfsskyldu væri skipstjór- anum óheimilt að fela öðrum og breyttu lög um lögskráningu sjó- manna engu um skyldur skipstjórans í þessu sambandi. Þá segir héraðsdómur að engu máli skipti sú viðbára skipstjórans að í áhöfninni hafi verið menn með fullgild réttindi og skipið því fráleitt van- mannað, enda voru þeir menn ekki skráðir þannig á skipið og ekki hefur komið fram að þeir hafi starfað á því sem slíkir í þessari ferð skipsins. Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Verjandi ákærða var Brynjar Níelsson hrl. Málið sótti Þorsteinn Skúlason fyrir hönd ákæruvaldsins. Togaraskip- stjóri dæmdur í 100 þús. kr. sekt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.