Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 32
SKOÐUN 32 SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Frönskunámskeið hefjast 13. janúar Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna Taltímar Einkatímar Námskeið fyrir börn. Viðskiptafranska Hringbraut 121 - JL-húsið, 107 Reykjavík, fax 562 3820 Veffang: http://af.ismennt.is Netfang: af@ismennt.is Innritun í síma 552 3870 og 562 3820 Námskeiðin hefjast 13. janúar UMRÆÐUR um íslenska heil- brigðiskerfið hafa verið býsna há- værar að undanförnu. Helstu um- ræðuefnin hafa verið þessi: 1. Erfiður rekstur heilbrigðisstofn- ana. 2. Launakjör lækna. 3. Biðlistar og skortur á úrræðum fyrir nokkra hópa sjúklinga. 4. Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Í öllum nágrannalöndum okkar er umræðan af svipuðum toga. Ástæð- an er augljós. Á heilbrigðissviðinu verða stöðugt til nýjar þarfir og eft- irspurn eftir hverskonar heilbrigð- isþjónustu eykst látlaust. Þessu valda m.a. breytingar á aldurssam- setningu þjóðanna; langlífi eykst og hlutfall aldraðra af íbúafjölda hækk- ar ört. Læknavísindum fleygir fram, unnt er að takast á við fleiri og fleiri sjúkdóma. Ný tækni og ný lyf kalla á meiri og meiri fjármuni. Staðreyndin er sú, að heilbrigð- iskerfi okkar og annarra þjóða er nánast óseðjandi. Á síðustu árum og áratugum hafa verið reyndar marg- ar aðferðir til að draga úr kostnaði heilbrigðisþjónustunnar. Nýjar kenningar og kraftaverkamenn hafa komið fram á sjónarsviðið. Nýjar aðferðir og rekstrarform hafa verið reynd, en kostnaðurinn hefur stöð- ugt aukist og vandamálin aðeins tekið á sig nýja mynd. Allar tilraun- ir til sparnaðar hafa beinst að rekstri heilbrigðisstofnana, en þær hafa ekki snúist um að draga úr eft- irspurn eftir þjónustunni. Íslendingar eiga gott heilbrigðis- kerfi á hvaða mælikvarða, sem not- aður er. Það er engu að síður eðli- legt að fram komi kröfur um aukna þjónustu á hefðbundnum sviðum og nýjum. Þannig er það og verður á meðan þjóðin er sammála um að við- halda og styðja velferðarkerfið. Annað væri óeðlilegt. Eða man ein- hver eftir tilteknum árum eða ára- bili að algjör sátt hafi ríkt um öll þjónustustig velferðarkerfisins? Hallarekstur heilbrigðisstofnana Þeir, sem harðast gagnrýna halla- rekstur heilbrigðisstofnana, mættu stundum kynna sér betur rekstrar- grundvöllinn og hafa eftirfarandi at- riði í huga:  Hlutfall launakostnaðar í heild- arrekstrarkostnaði sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana almennt er 65–70%. Hjá öldrunarstofnun- um getur launakostnaður orðið 80 af hundraði.  Á undanförnum árum hefur launanefnd ríkisins gert og geng- ið frá kjarasamningum við flesta hópa fagfólks. Þar má nefna samninga við hjúkrunarfræð- inga, sjúkraliða, sjúkraþjálfara (BHM) og lækna. Launahækk- anir þessara hópa hafa verið um- talsverðar. Prósentuhækkanir hafa verið mun hærri en þekkist á almennum launamarkaði.  Heilbrigðisstofnunum er gert að fara eftir þessum samningum og að auki að gera sérstaka stofn- anasamninga, sem oftar en ekki hafa í för með sér viðbótarhækk- anir.  Stéttarfélög fagfólks eru yfirleitt vel skipulögð og hafa náð veru- legum árangri í kjarabaráttu sinni.  Fjárfestingar í nýrri tækni hafa verið miklar. Þessar fjárfesting- ar hafa verið nauðsynlegar svo heilbrigðiskerfið megi halda í við öra þróun.  Álag á heilbrigðisstofnanir hefur almennt aukist mikið. Því valda fleiri og fjölþættari aðgerðir og endurhæfing, aukning margvís- legra geðraskana, kröfur um meiri þjónustu við aldraða, nýjar greiningar ýmissa kvilla og með- ferð þeirra. Allt þetta hefur í för með sér mikla aukningu útgjalda. Rekstrar- kostnaður hækkar, fjárhagsáætlan- ir riðlast og það verður erfitt fyrir stjórnendur heilbrigðisstofnana að halda sig innan ramma fjárlaga. Vandinn kemur oftar en ekki að ut- an og er ekki heimatilbúinn. Launakjör lækna Laun lækna hafa hækkað veru- lega á síðustu misserum. Í blaði Frjálsrar verslunar, þar sem gerð er grein fyrir tekjum 2.400 Íslend- inga á síðasta ári (2001) kemur m.a. fram, að 51 forstjóri í fyrirtækjum er með yfir 1 milljón króna í laun á mánuði, 38 starfsmenn fjármálafyr- irtækja, 33 „ýmsir menn úr atvinnu- lífinu“, 1 sveitarstjórnarmaður, 2 þingmenn, 5 lögfræðingar, 2 endur- skoðendur, 5 verkfræðingar, 30 sjó- menn og útgerðarmenn og 42 læknar. Þessar tölur voru birtar áður en nýir kjarasamningar voru gerðir við sérfræðinga í apríl sl. Þeir samn- ingar færðu sérfræðingum um 25% launahækkun. Þekkt eru dæmi um 30% hækkun. Það er því ljóst að margir læknar eru með launahæstu einstaklingum hér á landi. Hins veg- ar er skylt að taka það fram, að sér- fræðinám er langt og starfsævi lækna tiltölulega stutt. Þess er einn- ig að geta, að laun lækna fara ekki ávallt eftir vinnuálagi. Þegar rætt er um launakjör innan heilbrigðisgeirans er rétt að leiða hugann að eftirfarandi atriðum:  Launamunur innan heilbrigðis- stofnana getur orðið allt að ní- faldur. Þá eru borin saman laun lækna annars vegar og starfs- fólks í eldhúsi, ræstingu og við almenna umönnun hins vegar.  Skortur á starfsfólki í heilbrigð- iskerfinu, einkum fagfólki, hefur haft veruleg áhrif til launahækk- ana. Þetta á sérstaklega við um sjúkrastofnanir utan Reykjavík- ur. Starfsfólk innan nokkurra faghópa hefur nánast verið á uppboðsmarkaði.  Það er brýn nauðsyn að endur- skoða allt launakerfi heilbrigðis- geirans og ákvarða þrepaskipt- ingu á milli starfshópa. Heil- brigðisstofnanir, sem ekki eru í eigu ríkisins, eiga að afhenda Samtökum atvinnulífsins samn- ingsumboð sitt.  Stöðugt vaxandi sérhæfing með- al fagfólks kallar á ný viðhorf og verklag.  Það verður að endurmeta störf tekjulægstu hópanna og stuðla að því að almenn umönnunar- störf, einkum meðal aldraðra, verði eftirsóknarverðari og þá m.a. tekjulega. Biðlistar Biðlistar geta verið mælikvarði á afköst heilbrigðiskerfisins. Um þessar mundir er einkum rætt um biðlista eftir bæklunaraðgerðum, endurhæfingu og hjá öldrunar- stofnunum. Einnig hefur komið fram gagnrýni á úrræðaleysi í mál- efnum geðsjúkra. En biðlistar gefa ekki alltaf rétt mynd af ástandi mála. Í mörgum tilvikum er fólki komið á aðgerðarlista, ef fyrirsjáan- legt er, að að aðgerða verður þörf í náinni framtíð. Biðlistar gefa þó oft- ast skýra mynd af vaxandi þörf.  Bæklunaraðgerðir geta sparað mikla fjármuni. Þær geta komið í veg fyrir að sjúklingar verði ör- yrkjar og fái bætur samkvæmt því.  Bæklunaraðgerðir geta skilað einstaklingum aftur til vinnu og gert þeim kleift að bjarga sér sjálfir á heimili.  Bæklunaraðgerðir spara umtals- verðan lyfjakostnað.  Allar aðgerðir til að hjálpa öldr- uðum að vera heima sem lengst eru þjóðhagslega hagkvæmar.  Einn mikilvægasti þáttur heil- brigðismála er hverskonar end- urhæfing. Öll endurhæfing, sem eykur getu einstaklinga til þátt- töku í virku samfélagi, sparar mikla fjármuni. Öflugar forvarn- ir geta einnig haft mikil áhrif til að draga úr kostnaði. Rauði þráðurinn í allri umræðu um forvarnir og endurhæfingu er sá, að árangurinn fari að verulegu leyti eftir því hvort unnt verður að móta og geirnegla þá vel ígrunduðu staðhæfingu í huga almennings, að HEILBRIGÐISKERFIÐ – ÓSEÐJ- ANDI HÍT – EÐLILEG ÞRÓUN? Eftir Árna Gunnarsson „Allar til- raunir til sparnaðar hafa beinst að rekstri heilbrigðisstofnana, en þær hafa ekki snúist um að draga úr eftirspurn eftir þjónustunni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.