Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.01.2003, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 27 Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang travest@simnet.is Golfferðir okkar til Túnis njóta sífellt meiri vinsælda, því auk góðra golfvalla býður Túnis upp á margbrotna sögu og menningu og gott loftslag við Miðjarðarhafsströndina. Hvernig væri að framlengja golftímabilið við kjöraðstæður? Búa á fyrsta flokks strandhótelum í þægilegum hita, borða góðan mat og leika golf á góðum golfvöllum? Næsta vetur og vor býður Ferðaskrifstofa Vesturlands upp á tvær 11 daga golfferðir til Túnis, þar sem ekkert er til sparað til að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð.  Brottfarir eru 21. febrúar og 25. apríl.  Verð í brottför 21. febrúar er kr. 135.500 á mann í tvíbýli.  Verð í brottför 25. apríl er kr. 144.500 á mann í tvíbýli.  Aukagjald fyrir eins manns herbergi er kr. 15.000. Fararstjóri: Sigurður Pétursson, golfkennari. Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar, fararstjórn, akstur, gisting á fyrsta flokks hótelum í 10 nætur með morgun- og kvöldverði, 8 vallargjöld og ein skoðunarferð. Bókanir og nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Vesturlands í síma 437 2323. G LF í Túnis Microsoft Business Solutions Allt sem þú vilt vita um allan þinn rekstur Nánari upplýsingar hjá söluaðilum Axapta: Viðskiptaker fi sem veitir fyrir tæki þínu samkeppnisforskot Axapta–viðskiptalausnir UM þessar mundir stendur yfir sýn- ing í Tórínó á Ítalíu sem nefnist Masterpieces/Capolavori – lista- og listhandverksmenn frá Picasso til Sottsass. Á sýningunni eiga verk u.þ.b. eitt hundrað evrópskir lista- og listhandverksmenn sem vinna með gler, keramik, textíl, skartgripi og silfursmíði. Meðal listamannanna eru Sigrún Ólöf Einarsdóttir og Søren S. Larsen. Tilefni sýningarinnar er það að 100 ár eru síðan haldin var „Hin al- þjóðlega sýning 1902“ í Tórínó – við- burður sem talinn er marka byrjun listhönnunar, en þar var teflt saman iðnhönnun (bílum), nytjahönnun (húsgögnum) og listmunum (grafík- verkum og ljósmyndum o.fl.). Sýningin er haldin í 366 ára gam- alli höll, Palazzo Bricherasio, sem stendur í miðri Tórínó og var Evr- ópudeild World Craft Council fengin til samstarfs við val á sýnendum og við gerð sýningarskrár. Sigrún og Søren sýna tvö verk hvort, en listamennirnir eru ekki valdir eftir löndum eins og oft er þó venjan. Meðal sýnenda má m.a. finna Bert Frijns (gler – Holland), Paula Bartron (gler – Svíþjóð), Allan Scharff (hönnun – Danmörk), Bodil Manz (keramik – Danmörk), Ant- oine Leperlier (gler – Frakkland). Vegleg bók var gerð um sýn- inguna sem stendur til 26. janúar. Sigrún og Søren sýna í Tórínó Annað verka Sørens S. Larsen í Tórínó, Himinfley. Í TILEFNI af síðasta degi á sýningum J.B.K. Ransu og Giovannis Garcia-Fenech, Ex-Geo og Six Heads, In- doors, í Nýlistasafninu verð- ur efnt til umræðufundar kl. 15–16 í dag, sunnudag, á 2. hæð safnsins um strauma og stefnur í málaralist/myndlist samtímans. Á fundinum flyt- ur Halldór Björn Runólfs- son, listfræðingur og lektor við LHÍ, stutta framsögu og mun svo, ásamt J.B.K. Ransu, Bjarna Sigurbjörns- syni og Einari Garibalda Eiríkssyni, velta upp nokkrum spurningum um málverkið fyrir frjálsar samræður. „Myndlistarumræða samtímans snýst ekki lengur um hreintrúar- stefnur eða skóla innan málaralistar. Hún snýst heldur ekki um það hvort málverk eigi meiri rétt á sér en aðrir tjáningarmiðlar, sbr. málverk gegn öðrum miðlum. Þó eimir ef til vill enn eftir af því viðhorfi að málverkið sé sérstakt og frábrugðið annarri mynd- list,“ segir Geir Svansson, fram- kvæmdastjóri Nýlistasafnsins. „Þeir sem því trúa geta m.a. vísað til lista- sögunnar. Og listasagan, sá baggi, það góss, vekur ýmsar spurningar: Er eitthvað nýtt að gerast í málverkinu, er málverkið að stefna eitthvert annað eða er ekki hægt að komast und- an skugga listasögunnar? Og er það æskilegt? Er lista- sagan, og vísun til hennar, forsenda listsköpunar í mál- aralist? Þessar og margar aðrar spurningar verða til umræðu á fundinum í Ný- listasafninu, ekki síst spurningin um það hvort hægt sé að efna til umræðu um málverkið í dag án þess að verða tuggunum að bráð.“ Aðgangur er ókeypis. Umræðufundur um málverkið J.B.K. Ransu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.