Morgunblaðið - 13.02.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BOÐAR SKATTALÆKKUN
Davíð Oddsson forsætisráðherra
boðaði skattalækkun í ræðu sinni á
Viðskiptaþingi í gær. Sterk staða
ríkissjóðs og tekjuauki vegna hag-
vaxtar gerðu þetta mögulegt, ef rétt
væri haldið á spilunum. Þá gagn-
rýndi hann Seðlabankann fyrir að
lækka vexti seint og sagði það m.a.
hafa stuðlað að óþarflega háu gengi.
Ná til Bandaríkjanna
George Tenet, yfirmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar, sagði í gær
að Norður-Kórea réði yfir kjarn-
orkueldflaugum sem gætu hæft
skotmörk í Bandaríkjunum. Sama
dag lýsti Alþjóðakjarnorku-
málastofnunin því yfir að stjórn N-
Kóreu hefði brotið alþjóðasáttmála
til að hindra útbreiðslu kjarn-
orkuvopna.
19–40% hærri gjöld
Árið 2002 greiddu íbúar á höf-
uðborgarsvæðinu að meðaltali 19–
40% hærri fasteignagjöld en þeir
gerðu árið 2000. Verðbólga var 15%
á tímabilinu. Fasteignagjöld eru að
meðaltali lægst í Reykjavík en hæst
í Kópavogi. Fasteignaskattur er
lægstur í Garðabæ en hæstur á Sel-
tjarnarnesi og í Hafnarfirði.
Þungorðir þingmenn
Bandarískir þingmenn hafa látið
þung orð falla í garð Frakka og
Þjóðverja vegna stefnu þeirra í mál-
efnum Íraks. Rætt hefur verið um
viðskiptaþvinganir gegn Frökkum
og að draga bandarískt herlið frá
Þýskalandi.
Met í blindskák
Helgi Áss Grétarsson stórmeist-
ari setti Íslandsmet í blindskák-
arfjöltefli í gær þegar hann tefldi við
11 skákmenn í höfuðstöðvum Olís.
Helgi Áss vann fimm skákir, gerði
tvö jafntefli og tapaði fjórum. Hann
þurfti rúmlega tvo og hálfan tíma til
að slá metið.
Microsoft á Íslandi
Á næstu mánuðum mun stórfyr-
irtækið Microsoft setja á fót eigin
skrifstofu hér á landi og hefur Elvar
Steinn Þorkelsson, fyrrv. forstjóri
Teymis hf., verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri. Fyrirtækið vill
styrkja stöðu sína hér á landi.
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
FLUGFISKUR AUGLÝSINGAR FÓLK
Ferskum fiskflökum er
nú flogið beint frá Ís-
landi á Humber svæðið
í Englandi.
Athyglisverðustu aug-
lýsingar ársins verða
valdar fljótlega.
Þórdís Sigurðardóttir hef-
ur tekið við starfi for-
söðumanns MBA-náms
við Háskólann í Reykjavík
FLUGFISKUR/4 ATHYGLIVERÐUSTUR/6 SKREFI/11
VANSKIL hjá innlánsstofnunum
minnkuðu á síðasta fjórðungi síðasta árs
eftir nær stöðugan vöxt frá ársbyrjun
2001, sam-
kvæmt tölum
Fjármálaeftir-
litsins um
vanskil um-
fram einn
mánuð.
Vanskil
námu um síð-
ustu áramót
ríflega 26
milljörðum
króna og voru
um 3,52% af
útlánum. Vanskil drógust saman hjá bæði
fyrirtækjum og einstaklingum á síðasta
fjórðungi. Vanskil einstaklinga námu rúm-
um 11 milljörðum króna eða um 6,14% af
útlánum en vanskil fyrirtækja voru rúmir
15 milljarðar króna sem eru 2,68% af út-
lánum.
Björn Björnsson, aðstoðarforstjóri Ís-
landsbanka, segir að vanskil í bankanum
hafi stöðugt minnkað frá því í september
2001. Vanskil í bankanum hafi einnig
minnkað umtalsvert í krónum talið, þar
sem útlán hafi dregist lítillega saman á
sama tímabili. Björn segir að svo virðist
sem einstaklingar séu nú gætnari í lántök-
um, fyrirtæki fari gætilegar í fjárfest-
ingum og fjármálastjórn hafi almennt
batnað. Eins hafi starfsmenn bankans lagt
sig fram við að leysa þau vandamál sem
upp hafa komið. Vanskil séu því ekki al-
varlegt vandamál í bankanum í dag.
Þór Þorláksson, framkvæmdastjóri
áhættustýringasviðs Landsbankans, telur
að vanskil hafi náð ákveðnu hámarki á síð-
ari hluta síðasta árs. Þróunin verði von-
andi sú að enn dragi úr vanskilum. Hann
segir mörg dæmi um að fyrirtæki og ein-
staklingar hafi komið skipulagi á sín fjár-
mál og það skýri að hluta minni vanskil.
Jafnframt sé nú verið að vinna úr gjald-
þrotum fyrirtækja og einstaklinga og af-
skrifa lán þeirra. Hann segir vanskil enn
meiri en þegar þau voru minnst fyrir um 3
til 4 árum en mun minni en fyrir um ára-
tug.
V I Ð S K I P T I
Dregur úr
vanskilum
Í fyrsta sinn eftir stöðugan
vöxt í tvö ár
STÓRFYRIRTÆKIÐ Micro-
soft Corporation mun á næstu
mánuðum setja á fót eigin skrif-
stofu hér á
landi. Elvar
Steinn Þor-
kelsson, fyrr-
verandi for-
stjóri Teymis
hf., hefur ver-
ið ráðinn
framkvæmda-
stjóri Micro-
soft Ísland og
verður hann
ábyrgur fyrir
starfsemi
Microsoft hér á landi.
Elvar var ábyrgur fyrir öllu
sölu- og markaðsstarfi Oracle
Corporation á Íslandi frá árinu
1991 og stofnaði fyrirtækið
Teymi hf. ásamt Opnum kerfum
og Tæknivali árið 1995. Hann
var forstjóri fyrirtækisins þar til
síðastliðið haust er Teymi og
Skýrr sameinuðust.
Alfarið í eigu Microsoft
Elvar segir að til að byrja með
verði starfsemi Microsoft Ísland
stýrt frá Microsoft í Danmörku,
og eins og þar í landi verði fyr-
irtækið alfarið í eigu Microsoft.
Hann segir að ástæðan fyrir því
að Microsoft vilji koma sér fyrir
á Íslandi sé sú að fyrirtækið vilji
styrkja stöðu sína hér á landi,
með samhæfðu og öflugu sam-
starfi við sína samstarfsaðila.
Horft verði til núverandi sam-
starfsaðila jafnt sem nýrra aðila,
sem séu tilbúnir að bjóða fram
krafta sína og virðisauka til
handa viðskiptavinum Microsoft
hér á landi. Í annan stað sé mik-
ill vilji fyrir því að reyna að
koma höfundarréttarmálum í
viðunandi horf fyrir Microsoft,
en þau séu alls ekki í góðu lagi
hér á landi.
Á fullri ferð í þróun
„Áhrifa Microsoft gætir á öllum
stigum upplýsingatækninnar.
Með .NET-grunntækninni býður
Microsoft þá tækni, sem gerir
næstu kynslóð Netsins að veru-
leika. Microsoft er á fullri ferð í
þróun þessarar grunntækni, sem
gerir kleift að allar núverandi
upplýsingar má hagnýta og
dreifa, óháð stýrikerfum, gagna-
grunnum eða forritunarmálum.
Markaðssetning á XP og Of-
fice XP hefur gengið mjög vel
frá því að þessi hugbúnaður kom
á markað, og ennfremur ýmiss
konar annar hugbúnaður og
tölvubúnaður, sem Microsoft
markaðssetur. Á næstu mánuð-
um og misserum verður engin
breyting á, nýjar vörur, nýjar út-
gáfur munu líta dagsins ljós á
öllum sviðum starfseminnar. Ég
hlakka því mikið til þess að vera
í forsvari fyrir þetta stærsta og
öflugasta hugbúnaðarfyrirtæki
heims á Íslandi,“ segir Elvar.
Helstu samstarfs-
aðilarnir fjórir
Tölvudreifing hf. sér um dreif-
ingu á öllum Microsoft hugbún-
aði á Íslandi. Þá eru Aco-Tækni-
val hf., EJS hf., Opin kerfi hf. og
Nýherji hf. helstu söluaðilar
Microsoft hér á landi.
Á síðasta ári var greint frá því
að Microsoft Corporation hefði
keypt danska fyrirtækið Navi-
sion Software, sem varð í fram-
haldinu hluti af Microsoft Bus-
iness Solutions. Navision er
dreifingaraðili fyrir viðskipta-
lausnir Microsoft. Navision Ís-
land dreifir þeim hugbúnaði hér
á landi.
Microsoft með
skrifstofu á Íslandi
Elvar Steinn Þorkelsson, fyrrverandi forstjóri Teymis, hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Microsoft Ísland, sem verður alfarið í eigu fyrirtækisins Microsoft Corporation
Elvar Steinn
Þorkelsson
Miðopna: Auglýsingaverðlaun ÍMARK og SÍA
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 30
Erlent 14/16 Minningar 30/33
Höfuðborgin 17 Skák 35
Akureyri 18 Bréf 36
Suðurnes 19 Kirkjustarf 34
Landið 20 Dagbók 38/39
Neytendur 21 Fólk 44/49
Listir 22/23 Bíó 46/49
Umræðan 24/25 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
VÍSITALA neysluverðs í febrúar 2003
er 224,3 stig og lækkaði um 0,18% frá í
janúar. Ef ekki er reiknað með kostn-
aði við húsnæði er vísitalan 220,9 stig
og lækkaði um 0,36% frá í janúar.
Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 0,3% sem
jafngildir 1,1% verðbólgu á ári.
Í fréttatilkynningu frá Hagstofunni
kemur fram að vetrarútsölur leiddu til
5,7% verðlækkunar á fötum og skóm.
Markaðsverð á húsnæði hækkaði um
0,9%. Síðustu 12 mánuði hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 1,5% og án
húsnæðis um 0,3%.
Í hálffimmfréttum Búnaðarbanka
Íslands í gær kemur fram að greining-
ardeild bankans hafði spáð að vísitala
neysluverðs myndi standa í stað milli
mánaða. „Vetrarútsölur leiddu til 5,7%
verðlækkunar á fötum og skóm sem
er svipuð lækkun og hefur verið síð-
ustu ár milli janúar og febrúar. Hins
vegar er heildarlækkun vegna vetr-
arútsalna mun meiri en áður hefur
mælst, eða samtals 14% lækkun frá
því í desember, samanborið við 11%
heildarlækkun síðustu árin. Lækkun-
in nú er á skjön við verðbreytingar
síðustu ára. Fylgni fataliðarins við
gengisþróun krónunnar er afar lítil,
þrátt fyrir að stærsti hluti hans sé
innfluttur. Þessa þróun má væntan-
lega rekja til aukinnar samkeppni í
greininni. Forvitnilegt verður að sjá
hvort vísitalan gengur að fullu til baka
á næstu tveim mánuðum, eða hvort
styrking krónunnar breytir því
mynstri sem verið hefur undanfarin
ár,“ segir í hálffimmfréttunum.
!"
#
$%
&'
((
)!"
*+,
-!"
!
"#
!$
!%&#'()
*
$!
#
.
/0'
(
)!"
%&#)*+# &
(
,+,
. 1
!"
%+#'#+
$
-"
(
+
-
2'
&(
&
)!"
.#
#/*
$0*#
*!
%+
#
(
1(
2 #
!"#$%&%
'()"&* (+,"
-./
3 3- !
012
4 4!
3 3-
4 4 4
4 !
3$
3#!
3!
4 !
3 Vísitala jafn-
gildir 1,1%
verðbólgu á ári
Á GOLFVÖLLUM og öðrum túnbreiðum í ná-
býli við mannfólkið má stundum sjá gæsir
spóka sig í stórum flokkum. Golfvöllur Golf-
klúbbs Kópavogs og Garðabæjar er enginn
eftirbátur í þeim efnum. Í gær voru gæsirnar
einu sinni sem oftar að spígspora um túnin í
hægðum sínum þegar hvít grágæs, sem skar
sig úr í hópi stallsystra, veittist að vinkonu
sinni. Þeirri síðarnefndu varð auðvitað hverft
við og gargaði og baðaði út vængjunum. Hin-
um gæsunum þótti það hins vegar ekkert til-
tökumál.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gargað á golfvellinum
MAÐURINN sem lést í
vinnuslysi í Grafarvogi á
þriðjudag, hét Valdimar Gunn-
arsson, til heimilis að
Stekkjarbergi 4, Hafnarfirði.
Valdimar var fæddur 12. mars
1973. Hann lætur eftir sig
sambýliskonu og 12 ára gaml-
an son.
Hinn látni féll rúmlega 8
metra niður af vinnupalli í
Bryggjuhverfinu í Grafarvog-
inum og lenti á steinsteyptu
plani með fyrrgreindum afleið-
ingum. Vinnueftirlit ríkisins
var kvatt á vettvang til að
kanna aðstæður á slysstað og
er rannsókn málsins í höndum
lögreglunnar í Reykjavík.
Lést í
vinnuslysi
KJÓSA þarf á milli séra
Kristjáns Vals Ingólfsson-
ar, lektors og verkefnis-
stjóra, og séra Jóns Aðal-
steins Baldvinssonar,
sendiráðsprests í Lundún-
um, í annarri umferð kosn-
ingar um nýjan vígslubisk-
up Hólabiskupsdæmis.
Kjörnefnd lauk talningu at-
kvæða í gær og nú þarf að
útbúa nýja kjörseðla til að
senda þeim 63 kirkjunnar
mönnum sem eru á kjör-
skrá. Úrslit ættu að liggja
fyrir í marsmánuði.
Þrjú biskupsefni voru
sérstaklega tilnefnd á kjör-
seðli auk þess sem einn
prestur til viðbótar hafði
gefið formlega kost á sér.
Alls bárust 63 gild atkvæði
og féllu þannig að sr. Krist-
ján Valur hlaut 27 atkvæði,
eða 43%, sr. Jón Aðalsteinn fékk 18,
sr. Dalla Þórðardóttir, prestur á
Miklabæ í Skagafirði, 14 og sr.
Guðni Þór Ólafsson, prestur á Mel-
stað, 4 atkvæði. Samkvæmt
starfsreglum þarf að kjósa
á ný milli tveggja efstu
manna fái enginn meiri-
hluta atkvæða í fyrstu um-
ferð. Fái tveir jafnmörg at-
kvæði skal kosið á milli
þeirra og fái fleiri en tveir
jafnmörg atkvæði skal hlut-
kesti ráða milli hverra
tveggja kosið er. Formaður
kjörnefndar er Anna Guð-
rún Björnsdóttir lögfræð-
ingur og aðrir nefndar-
menn Arnfríður
Einarsdóttir lögfræðingur
og sr. Bragi Friðriksson,
fyrrverandi prófastur.
Sr. Jón Aðalsteinn Bald-
vinsson hefur verið sendi-
ráðsprestur í Lundúnum
frá árinu 1983 en þjónaði
áður Staðarfellsprestakalli.
Sr. Kristján Valur Ingólfs-
son hefur verið lektor við guðfræði-
deild Háskóla Íslands frá árinu 2000
en þjónaði áður á Raufarhöfn, Ísa-
firði og Grenjaðarstað.
Önnur umferð nauðsynleg í vígslu-
biskupskjöri Hólabiskupsdæmis
Kosið á milli
Kristjáns Vals og
Jóns Aðalsteins
Séra Kristján
Valur Ingólfsson
Séra Jón Aðalsteinn
Baldvinsson
OLÍUFÉLAGIÐ hf. tilkynnti
hækkun á eldsneyti í gær-
kvöldi og taka breytingarnar
gildi frá og með deginum í
dag. Lítrinn af bensíni hækkar
um 2,60 krónur, lítrinn af dísil-
olíu um 2,90 krónur, lítrinn af
flotaolíu um 2,70 krónur og
svartolíulítrinn um 1,60 krón-
ur.
Á heimasíðu fyrirtækisins
segir að breytingin endur-
spegli mikla hækkun á heims-
markaðsverði, en frá áramót-
um hafi eldsneyti hækkað á
bilinu 19–20% eftir tegundum.
Orsök hækkana á heimsmark-
aði megi rekja til langvarandi
verkfalls í Venesúela, en síð-
ustu vikur hafi heimsmarkaðs-
verð hækkað meira vegna vax-
andi ótta um átök við
Persaflóa.
95,60 kr. í sjálfsafgreiðslu
Lítrinn af 95 oktana bensíni
með fullri þjónustu hjá Olíufé-
laginu kostar nú 100,80 krónur
og lítrinn af dísilolíu 49,00
krónur. Hjá Esso Express í
sjálfsafgreiðslu er bensínlítr-
inn á 95,60 krónur.
Olíufélag-
ið hækkar
bensín-
verð