Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 35
SERGEI Movsesjan sigraði Hannes Hlífar Stefánsson með svörtu í annarri skák Olís-einvígis- ins. Staðan er því 2–0, Movsesjan í vil. Hannes hafði hvítt og eins og í fyrstu skákinni var tefld Sikileyjar- vörn. Skákin varð mjög spennandi og flókin eins og vænta mátti af þess- um tveimur skákmönnum. Hannes lék ónákvæmt í 17. leik og fékk verra. Movsesjan fylgdi vel á eftir og Hannes mátti gefast upp eftir 34 leiki. Samhliða annarri skákinni tefldu þeir Bragi Þorfinnsson og Arnar E. Gunnarsson gegn skákforritinu Chess Tiger 15, en það er þriðja stigahæsta skákforrit heims og er t.d. nokkru ofar á lista en Deep Juni- or 7. Bragi hafði svart og valdi óheppilega uppstillingu gegn skák- forritinu sem hentaði vel sú staða sem upp kom og sigraði. Arnar hafði hvítt og náði að byggja upp ágæta stöðu þar sem tígrisdýrið náði ekki að bíta frá sér. Það var loksins þegar fór að saxast á tíma Arnars að hann lék slæmum leik sem kostaði hann skákina. Þeir félagar tefla aftur við skákforritið í dag. Viðburðirnir fara fram í höfuðstöðvum Olís, Sunda- görðum 2. Það ríkir engin lognmolla í þessu einvígi og áhorfendur og skákskýr- endur verða að hafa sig alla við til að fylgjast með eins og sést á annarri skákinni. Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson Svart: Movsesjan Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Be3 Be7 7. f4 a6 8. Be2 Dc7 9. g4 h6 10. Bf3 Rfd7!? Nýr leikur. Þekkt er 10... Rc6, t. d. 11. h4 Rxd4 12. Dxd4 e5 13. Dd2 Bxg4 14. Bxg4 Rxg4 15. f5 Hc8 16. 0– 0–0 Dc4 17. Kb1 Rf6 18. Dg2 b5 19. Hd3 b4 20. Rd5 Rxd5 21. Hxd5 Bf6 22. Hxd6 Ke7 23. Hb6 Hhd8 24. Hc1 a5 25. b3 Dc3 og svartur vann (Lanka-Ginsburg, Wiesbaden 1996). 11. h4 b5 12. a3 Rb6 13. Rde2 Bb7 14. Bd4 Bf8!? Slóvakinn fer ekki út í 14... e5, sem væntanlega hefði gefið nokkuð jafnt tafl, eftir 15. Bxb6 Dxb6 16. Rd5 Dd8 17. Rxe7 Dxe7 18. f5 o.s.frv. 15. Dd3 R8d7 16. Rg3?! – Þessi leikur virðist einungis vera leiktap. Hvítur á nokkuð erfitt með að staðsetja menn sína, vegna þess að hann verður stöðugt að reikna með því, að svartur ráðist gegn peða- FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 35 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.isOD DI H F J 37 55 /1 debenhams S M Á R A L I N D ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 01 92 02 /2 00 3 Töfrum líkast Sérfræðingur Kanebo kynnir Wrinkless og nýju vorlitina, fimmtudag, föstudag og laugardag frá kl. 13-18. Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900 Yfir 60 ára frábær reynsla miðborði hans, annaðhvort með d6- d5 eða e6-e5. Til greina virðist koma að leika 16. Bg2 e5 17. Bf2 Be7 18. 0–0–0 Hc8 19. Hhf1 Rc4 20. Rd5 Bxd5 21. exd5 0–0 22. g5 Rc5 23. Bxc5 Dxc5 24. Bh3, með hótunum að drepa á c8 og h6. 16... 0–0–0 17. b4? – Hvítur kemur í veg fyrir, að svart- ur leiki Rd7-c5, en það er of dýru verði keypt, veikleikarnir í stöðu hans verða of miklir. Það virðist ekki ráðlegt að fresta því lengur að hróka. Eftir 17. 0–0–0 Rc4 18. Be3 Be7 19. g5 d5 20. exd5 Rdb6 21. Bxb6 Rxb6 22. Rge2 Rxd5 23. Rxd5 Bxd5 24. Bxd5 Hxd5 25. De4 Hhd8 26. Hxd5 Hxd5 27. Rc3 er jafntefli líklegustu úrslitin. 17... Rc4 18. Bf2 d5! 19. exd5 – Eftir 19. e5 g5 (eða 19... f6 20. exf6 Rxf6 21. Rge2 Bd6 22. Bd4 e5 23. fxe5 Rxe5 24. Bxe5 Bxe5) 20. hxg5 Bg7 21. Bd4 (21. gxh6 Rcxe5 22. fxe5 Rxe5 23. Df3 Rf3+ 24. Kf1 Bxc3 25. Hd1 d4) 21. – hxg5 22. Rh5 Bh6 á svartur mun betra tafl. 19... Dxf4 20. Rge2 Dc7 21. Dd4 Bd6 22. Hh3 – Ekki 22. Dxg7? Rce5 23. Bg2 Hdg8 og drottningin fellur. 22... Be5 23. Da7 Rf6 24. dxe6 – Eða 24. 0–0–0 Bxc3 25. Rxc3 Df4+ 26. Kb1 Rxa3+ 27. Ka1 Dxb4 28. Dc5+ Dxc5 29. Bxc5 b4 30. dxe6 fxe6, og ekki verður séð, að hvítur hafi nægar bætur fyrir peðin tvö, sem hann hefur tapað. 24... Bxc3+ 25. Rxc3 De5+ 26. Be2 Re4! 27. Bxc4 Re4 29. c3 Dh2 30. Hxe4 – Ekki er betra að leika 30. Hf3 Dh1+ 31. Ke2 Hd2+ 32. Ke3 Dxa1 o.s.frv. 30... Dh1+ 31. Bf1 Dxe4+ 32. Be2 Dh1+ 33. Bf1 Hhe8 34. Dc5+ Bc6 og hvítur gafst upp. Eftir 35. e7 De4+ 36. Be2 Hxe7 37. Df5+ Dxf5 38. gxf5 Hde8 39. Ha2 Bf3 40. Bd4 Hxe2+ 41. Hxe2 Hxe2+ verður liðsmunur of mikill. Fjórða skák einvígisins verður tefld í dag og hefst klukkan 17. Þetta er mikilvæg skák fyrir Hannes, sem stýrir hvítu mönnunum. Góð aðstaða er fyrir áhorfendur og skákskýring- ar eru á skákstað. Auk Olís er Guð- mundur Arason styrktaraðili einvíg- isins. Movsesjan sigraði í annarri skákinni SKÁK Faxafen 12 OLÍS-EINVÍGIÐ 10. til 15. feb. 2003 dadi@vks. is Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson RÁÐSTEFNA um nýbreytni í kennsluháttum grunnskóla verður á Grand hóteli Reykjavík í dag, fimmtudaginn 13. febrúar, kl. 14– 17.30. Efni ráðstefnunnar er kennsluhættir á 21. öldinni, einstak- lingsmiðað nám og samvinna nem- enda þar sem beitt er fjölþrepa kennsluskipulagi. Fjallað verður um þessi viðfangsefni bæði frá sjónar- horni fræðanna og framkvæmdar í skólunum. Fyrirlesarar koma úr röðum fræðimanna, þar á meðal einn frá Kanada, úr röðum kennara og frá Kennaraháskóla Íslands. Sýning í Ráðhúsinu Sýning á nýbreytniverkefnum úr skólum borgarinnar verður í Ráð- húsi Reykjavíkur helgina 15.–16. febrúar kl. 11–18 báða dagana. Í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur verða hátt í 40 grunnskólar borgar- innar með kynningar á nýbreytni- verkefnum. Sýnd verða verkefni á sviði tölvutækni og margmiðlunar, s.s. heimasíður, tungumálavefir, hönnunarverkefni o.fl. Einnig verða verkefni tengd umhverfismálum, úti- kennslu, fjölmenningu, list- og verk- greinum, lestrarkennslu þar sem notast er við bangsa og notkun Lego við tækni- og eðlisfræðikennslu o.fl. Jafnframt verður dagskrá báða sýningardagana með reglulegu milli- bili þar sem nemendur koma fram með tónlistaratriði, dansatriði og fleira. Markmiðið er að vekja athygli kennara, foreldra og annarra borg- arbúa á því sem vel er gert á sviði ný- breytni í skólastarfi, miðla upplýs- ingum til skóla og vera skólum hvatning til dáða. Hvatningarverðlaun Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur 2002–2003 verða afhent í Ráðhúsi Reykjavíkur sunnudaginn 16. febrúar kl. 15 í fyrsta sinn. Mark- mið þeirra er að veita grunnskólum í Reykjavík jákvæða hvatningu í starfi, vekja athygli á því starfi sem fram fer í grunnskólum borgarinnar og stuðla að auknu nýbreytni- og þróunarstarfi. Foreldrum, kennur- um, skólum, Fræðslumiðstöð og öðr- um borgarstofnunum var boðið upp á að tilnefna verkefni til verð- launanna. Þetta er samstarfsverkefni Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, Skólastjórafélags Reykjavíkur og Kennarafélags Reykjavíkur. Ráðstefna um ný- breytni í kennslu- háttum HEILSUHRINGURINN VILT ÞÚ FRÆÐAST? Tímarit um holla næringu og heilbrigða lífshætti. Áskriftarsími 568 9933 Síðumúla 27 • 108 Rvík Veffang: http:www.simnet.is/heilsuhringurinn/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.