Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ / / / / / Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15. B.i. 10 ára. / Nú verður ekkert gefið eftir í lokabaráttunni. Hasarhlaðnasta Star Trek myndin til þessa Lokabaráttan er hafin! KRINGLAN Sýnd kl. 5.50. B.i. 12. Sýnd kl. 10.30 Stranglega bönnuð innan 16. Náðu þeim í bíó í dag. Kl. 9. B. i. 14. Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Sýnd kl. 10. Enskur texti H.K DV Kvikmyndir.is H.L MBL Kvikmyndir.com Sýnd kl. 6. Aðalhlutv. Helga Braga Jónsdóttir,Steinn Ármann Magnússon, Kjartan Guðjónsson, Sjöfn Evertsdóttir, Gunnar Eyjólfsson og kristín Ósk Gísladóttir. Framleiðandi : Kristlaug María Siguðrard. / Kikka Leikstjóri : Helgi Sverrisson byggð á samnefndri bók sem kom út fyrir jólin. Bráðskemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna DV Sýnd kl. 6 og 8. ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 8. SV MBL Radíó X OHT Rás 2 HK DV 2 Tilnefningar til Óskarsverðlauna Aukahlutverk karla: Christopher Walken Besta tónlistin: John Willams REGLULEG uppistands-kvöld er eitthvað semhefur heldur vantað hér álandi elds og ísa, þrátt fyrir að uppistandslistin njóti sífellt meiri hylli. Breyting verður á því með fyrsta alþjóðlega uppistands- klúbbnum á Íslandi, Rosalegu uppi- standi, sem hyggst standa fyrir uppistandskvöldum á sex til átta vikna fresti. Fara fyrstu kvöldin fram á Sport- kaffi í kvöld, föstudag og laugardag. Líklegt er að fyrstu gestirnir á nýju uppistandskvöldunum, Írinn David O’Doherty og Nýsjálending- urinn Rhys Darby eigi ekki eftir að valda vonbrigðum. Þeir eru atvinnu- menn í bransanum og hafa starfað við grínið í fimm ár. Ágústa Skúladóttir, leikstjóri og grínisti, og leikarinn Neil Haigh standa fyrir uppákomunum en þau mynda einnig Iceland Take Away Theater. Ágústa er ennfremur leik- stjóri Sellófóns eftir Björk Jak- obsdóttur, sem sýnt er á skemmti- staðnum Nasa. Upphafið að þessu öllu saman er heimsókn tveggja breskra grínista til landsins, Alun Cochrane og How- ard Read, fyrir um ári. Þeir tróðu upp í Kaffileikhúsinu við góðan orðstír en heimsóknin var fyrir til- stuðlan Ágústu og Neils. Vegna þess hversu góðar undirtektirnar voru ákváðu þau að halda ótrauð áfram að flytja inn skemmtikrafta. Ágústa verður kynnir á skemmt- uninni og ætlar líka að grínast að- eins til að koma fólki í stuð. Kynntust í Edinborg En hverjir eru þessir tveir er- lendu grínistar sem eru komnir til að skemmta Íslendingum? David var árið 2000 tilnefndur til hinna virtu Perrier-nýliðaverðlauna á Edinborgarhátíðinni fyrir uppi- standssýningu sína og í fyrra hlaut hann titilinn grínisti ársins hjá breska blaðinu The Observer. Einn- ig vann hann nýliðakeppnina Svo þú heldur að þú sért fyndinn hjá Stöð 4 í Bretlandi árið 1999. Hann hefur m.a. troðið upp í Brussel, New York, Prag og Melbourne og oft komið fram í sjónvarpi. Auk þessa er David barnabókahöfundur. Rhys er frá Nýja-Sjálandi og hef- ur tvisvar verið tilnefndur til verð- launa í heimalandinu og kom, sá og sigraði á síðustu Edinborgarhátíð. Hann er fluttur búferlum til London þar sem hann hefur haft aðsetur síðustu mánuði og starfar á vegum þekktrar umboðsskrifstofu. „Við kynntumst þeim báðum á síðustu Edinborgarhátíð þar sem við komum öll fram á sama stað,“ segir Ágústa en hún og Neil fóru með Iceland Take Away Theatre á hátíðina. Þeir hafa hvorugir komið hingað áður en hafa lagt sig fram við að kynnast landi og þjóð. „Ég las ferðabók á leiðinni hing- að,“ segir Rhys. „Eftir lesturinn í flugvélinni virðist hann vera með hverja einustu tölulega staðreynd um Ísland á hreinu,“ segir David og bætir við: „Við komum hingað á þriðjudag þannig að við höfum tíma til að kynna okkur ýmislegt um þjóðina fyrir sýningarnar.“ Gert grín að landanum? Þeir ætla því báðir að flétta gríni og glensi um landann inn í sýn- inguna. David segir stíl þeirra beggja bjóða upp á það því þrátt fyrir föst atriði sé alltaf svigrúm fyrir spjall við áhorfendur og slíkt. „Ég býst við því að ég eigi eftir að tala eitthvað um Írland og bera það saman við Ísland. Svo syng ég líka og spila á píanó,“ upplýsir David og vekur athygli á því að Rhys myndi hins vegar sjálfur hljóð. „Við höfðum aldrei efni á píanói þannig að ég verð að búa til eigin hljóð,“ segir Rhys, sem ætlar að ræða heimalandið eins og David. Mikið er hlegið á meðan viðtalinu stendur og greinilegt að þeim er grínið í blóð borið. David og Rhys dvelja á landinu þar til á mánudag og hafa áhuga á að skoða sig um. „Við verðum að finna okkur eitthvað meira að gera því við eigum eftir að fara á hausinn ef við sitjum bara að sumbli á bör- um,“ segir David og vísar til þess sem honum finnst óheyrilegt verð á bjór. Barn í okkur öllum Rhys segir að hann hafi langað að fara til London vegna þess að það sé helsti samkomustaður grínista í heiminum og því mikið um að vera. David er hins vegar búsettur í Dublin og ferðast mikið um heim- inn. „Ég skrifa líka barnabækur,“ segir David. Þessir tveir starfsvettvangar eru ekki eins ólíkir og þeir líta út fyrir að vera í fyrstu. „Reyndar er svipað að lesa úr barnabókum fyrir krakka og að vera með uppistand fyrir fólk undir áhrifum áfengis,“ segir hann og glottir: „Það býr barn í okkur öll- um.“ Bæði Ágústa og Neil telja að framtíðin fyrir uppistand á Íslandi sé björt. „Hugmyndin með þessum reglulegu kvöldum er sú að auk þess að flytja inn þekkta grínista á alþjóðlega vísu þá viljum við skapa vettvang fyrir íslenska uppistand- ara. Við viljum hafa íslenskan grín- ista með í hvert sinn,“ útskýrir Neil. Hefur vantað vettvang „Gallinn fyrir uppistandara hér- lendis er að það er enginn vett- vangur fyrir þá að koma fram. Keppnin Fyndnasti maður Íslands fer fram einu sinni á ári en það er misjafnt hvers konar tækifæri sig- urvegararnir fá,“ segir hann og bætir við: „Kannski þegar líður á getur ver- ið að formið hjá okkur breytist og líkist meir grínklúbbi á Englandi, þar sem þrír eða fjórir grínistar koma fram á sama kvöldi.“ „Ég er mjög spennt fyrir þessu og vonast til þess að byrjunin verði góð,“ segir Ágústa að lokum. Tveir erlendir grínistar skemmta á Sportkaffi næstu kvöld Alveg rosalegt uppistand Morgunblaðið/Þorkell Líf og fjör færist yfir landið með Rhys Darby, David O’Doherty, Ágústu Skúladóttur og Neil Haigh. Uppistand verður á Sportkaffi fimmtudag, föstudag og laugardag. Húsið verður opnað kl. 20 og hefst skemmtunin kl. 21. Pantanir í síma 820 0646. Miðaverð 2.000 krónur og 1.500 fyrir stúdenta. Handan sólar (Abril Despedaçado/ Behind the Sun) Drama Brasilía 2001. Skífan VHS. Bönnuð innan 12 ára. (95 mín.) Leikstjórn Walter Sall- es. Aðalhlutverk José Dumont, Rodrigo Santoro, Ravi Ramos Lacerda. BRASILÍSKI kvikmyndagerðar- maðurinn Walter Salles vakti fyrst verulega athygli á vettvangi heimsk- vikmyndanna 1999 með hinni marg- verðlaunuðu Central Station sem m.a. fékk Gullbjörninn í Berlín og Óskarstilnefningu. Handan sólar hefur vakið lítið síðri athygli, var til- nefnd til Golden Globe-verðlauna á síðasta ári og vann Litla Gullljónið á Feneyjahátíðinni. Viðfangsefni myndarinnar er blóðhefndin í sinni grimmustu mynd; heiftúðug átök milli blásnauðra bænda, lítilla fjölskyldna á nágrannabýlum, átök sem upphaflega stóðu um skit- inn landskika en eru löngu farin að snúast um að halda hefðina, að elstu synir gjaldi með blóði fyrir blóð, þeg- ar blóð þess er síðast féll hefur storknað og gulnað og tunglið er fullt. Tonio, eldri bróðir hins unga og viðkvæma Pacu, vill binda enda á þessa fáránlegu hefð en fær ekki haggað staðföstum og ströngum föð- ur og tekur enn eitt lífið, í nafni blóð- hefndarinnar. En þegar að því er komið að hann fórni sér og falli í val- inn, fyrir hefðina, sættir hann sig ekki við meint örlög, sem hefur hörmulegar afleiðingar í för með sér. Þessi hæggenga en einkar ljóð- ræna mynd tekur verulega á áhorf- andann, er glæsilega úr garði gerð, kröftug, sjóðheit og ögrandi. Alls ekki auðveld á að horfa en afskap- lega gefandi. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Bölvuð blóðhefndin Sendum grænmetismat í hádeginu til fyrirtækja Sími 552 2607 fyrir hádegi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.