Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 10

Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGMENN fögnuðu almennt á Al- þingi í gær nýlegri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um opinberar fram- kvæmdir til að draga úr slaka í efnahagslífinu. Málið var rætt utan dagskrár að frumkvæði Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur ríkisstjórnin samþykkt að veita 6,3 milljarða króna til eflingar at- vinnulífsins á næstu mánuðum. Þing- menn úr stjórnarandstöðunni gagn- rýndu það þó helst að í boðuðum framkvæmdum ríkisstjórnarinnar væri einblínt um of „á verktakastarf- semi á sviði vegagerðar og bygging- ariðnaðar,“ eins og Ögmundur Jón- asson, þingmaður VG, orðaði það. Bentu þingmenn á að atvinnuleysið gerði einnig vart við sig á öðrum svið- um atvinnulífsins. Jóhanna Sigurðar- dóttir, þingmaður Samfylkingarinn- ar, benti til að mynda á að vegaframkvæmdir nýttust ekki til að draga úr atvinnuleysi kvenna. Davíð Oddsson forsætisráðherra svaraði þessari gagnrýni m.a. á þann veg að fyrirhugaðar aðgerðir myndu hafa óbein áhrif á fjölda annarra starfa en þeirra sem sneru að „jarðýtum, gröf- um og vegagerð“. Ánægja með endurunnin loforð Steingrímur J. Sigfússon benti m.a. á í framsöguræðu sinni að 3.300 karlar væru um þessar mundir skráðir atvinnulausir og tæplega 2.850 konur. Hann sagði því boðað átak ríkisstjórnarinnar fagnaðarefni. „Það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin horfist þannig í augu við aðstæður og vaxandi atvinnuleysi og vill grípa til aðgerða. Það er einnig ánægjuleg að sjá gömul kosningaloforð endurunn- in. Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði erum hlynnt endurvinnslu og erum þar af leiðandi sátt við það að ríkisstjórnin fari inn á þá braut og endurvinni gömul kosningaloforð eins og menningarhúsin sem nú á að veita peningum til réttum og sléttum fjórum árum eftir að þeim var fyrst lofað í aðdraganda kosninga sem þá voru í vændum.“ Steingrímur spurði í lok ræðu sinnar forsætisráðherra m.a. að því hvort Vegagerðin hygðist, vegna átaks ríkisstjórnarinnar, draga til baka áform sín um uppsagn- ir. Davíð Oddsson sagðist ekki geta svarað því beint hvort Vegagerðin hygðist draga uppsagnir sínar til baka en sagði þó ljóst í sínum huga að Vegagerðin myndi þurfa á öllu sínu að halda til þess að glíma við fyrir- huguð verkefni. „Þetta eru svo mikil verkefni á svo skömmum tíma að Vegagerðin mun þurfa á öllu sínu að halda. En ég er ekki að tala fyrir hönd Vegagerðarinnar varðandi ein- stakar uppsagnir. Ég hef það ekki hjá mér.“ Ráðherra sagðist telja að aðgerð- irnar myndu hafa áhrif um allt land. „Við teljum að það sé augljóst að þessi innspýting muni í raun ná til landsins alls.“ Hann sagði að þótt meginþungi framkvæmdanna væri bundinn við landsbyggðina myndu störfin sem af þeim hlytust þó ekki koma landsbyggðinni einni til góða. „Ísland er orðið eitt atvinnusvæði og þegar svona mikið er tekið á þá mun það skila sér um landið allt.“ Ráð- herra lagði jafnframt áherslu á að umrædd verkefni væru engin at- vinnubótarverkefni af gamla skólan- um. „Þetta eru allt saman mikilvæg verkefni sem menn, m.a. í þessum sal, hafa lagt áherslu á. Þau munu áfram standa og auðvitað duga sem best því fólki sem er næst þeim þegar til framtíðar er horft.“ Tímasetning skynsamleg Ráðherra sagði einnig að tímasetn- ing umræddra aðgerða hefði verið skynsamleg. „Ég tel að þetta hafi verið hinn skynsamlegi tími, eins og utanríkisráðherra hefur bent á í sam- tölum, og það var með það í huga sem við tveir unnum þetta mál aðallega sjálfir og með hjálp vegamálastjóra reyndar.“ Að lokum sagði ráðherra að fjár- málaráðherra, Geir H. Haarde, og hans menn væru þessa dagana að vinna að frumvarpi til fjáraukalaga sem þarf að leggja fram vegna átaks- ins. „Ég sé ekki annað en að menn myndu taka því vel að hraða því í gegnum þingið þótt skammt sé til loka þess vegna þess að um þetta efni er slík samstaða,“ sagði ráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, sagði að vissu- lega bæri að fagna því að ríkisstjórn- in flýtti framkvæmdum til að bregðast við vaxandi atvinnuleysi. „Öðrum þræði lýsir þetta þó nokkr- um kosningaskjálfta ekki síst þegar um er að ræða fjármögnun með kosn- ingavíxli sem næstu ríkisstjórn er ætla að greiða fyrir,“ sagði hún. Jó- hanna sagði einnig í ræðu sinni að það væri nöturlegt að sjá hver hlutur höfuðborgarsvæðisins og kvenna væri í boðuðum aðgerðum. „Í hlut höfuðborgarsvæðisins kemur aðeins um 1 milljarður af 6,3 milljörðum sem verja á til atvinnuskapandi aðgerða eða rúmlega 15%,“ sagði hún og benti á að 64% atvinnulausra á landinu öllu væru á höfuðborgarsvæðinu. Í máli Halldórs Ásgrímssonar ut- anríkisráðherra kom m.a. fram að það hefði ávallt verið lögð á það áhersla af hálfu ríkisstjórnarinnar að láta hluta af ágóða af sölu ríkisbank- anna renna til samgöngumála, til at- vinnuþróunar og til byggingar menn- ingarhúsa á landsbyggðinni. „Þetta hefur ríkisstjórnin sagt allan tímann og sá málflutningur hefur verið skýr í mörg ár. Hér er því ekki um nein endurunnin kosningaloforð að ræða heldur eru efndir hér á ferðinni í samræmi við stefnu sem hefur verið uppi í langan tíma.“ Þá sagði Halldór: „Það er afskaplega miður í þessu samhengi eins og háttvirtur þing- maður Jóhanna Sigurðardóttir gerði hér að fara að ala á sundurlyndi milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis- ins af þessu tilefni. Tekur hún þar upp sama málflutning og nýskipaður talsmaður Samfylkingarinnar fyrr- verandi borgarstjóri í Reykjavík. Þetta er landsmál sem skiptir alla íbúa landsins miklu máli.“ Atvinnuleysi víðar Guðjón A. Kristjánsson, þingmað- ur Frjálsynda flokksins, fagnaði fyr- irhuguðum framkvæmdum og sagð- ist löngum hafa verið þeirrar skoðunar að nauðsynlegt væri að lag- færa vegakerfi landsins. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, fagnaði sömuleiðis vilja stjórnvalda til að slá á atvinnuleysið en lagði áherslu á að atvinnuleysið gerði víðar vart við sig en í verktakastarfsemi á sviði vega- gerðar og byggingariðnaðar. Til dæmis væri þörf á fleira starfsfólki á sjúkrahúsum, á öldrunarstofnunum, í heimaþjónustu, hjá stofnunum fyrir fatlaða og í löggæslunni. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að það væri mikilvægt að ráðast skuli í vega- framkvæmdir, þær framkvæmdir hefðu mikla þýðingu fyrir lands- byggðina en Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, benti m.a. á að skv. athugunum Samfylk- ingarinnar yrði erfitt að ráðast í nokkrar framkvæmdir fyrr en í fyrsta lagi eftir sex til tólf mánuði. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði m.a. að með aðgerðunum væri verið að leggja grunn að íslenska velferðar- kerfinu og Jón Bjarnason, þingmað- ur VG, sagði eins og aðrir þingmenn að það væri fagnaðarefni að ráðist skyldi í aðgerðir til að styrkja sam- göngur í landinu. Að lokum sagði Einar Oddur Kristjánsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, að hægt væri að ráðast strax í framkvæmdirnar vegna peninganna sem fengjust við sölu á þeim ríkisfyrirtækjum sem nú væri verið að selja. Ekki væri því um kosningavíxil að ræða eins og fram hefði komið hjá Jóhönnu Sigurðar- dóttur. Utandagskrárumræða um ákvörðun ríkisstjórnar um opinberar framkvæmdir Þingmenn ánægðir með aðgerðirnar Morgunblaðið/Kristinn Hluti af auknu fé ríkisstjórnarinnar til atvinnumála á að renna til byggingaframkvæmda. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra gagnrýndi skipulagsmál Reykja- víkurborgar í utandagskrár- umræðu á Alþingi í gær, en í um- ræðunni ræddu þingmenn um nýlega ákvörðun ríkisstjórn- arinnar um opinberar fram- kvæmdir til að draga úr slaka í efnahagslífinu. Í lok umræðunnar vék forsætisráðherra að skipu- lagsmálum borgarinnar, en áður hafði Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnt það að aðeins einum milljarði af 6,3 milljörðum skyldi varið í framkvæmdir á höf- uðborgarsvæðinu. „Það kom okkur á óvart, okkur [Halldóri Ásgrímssyni] utanrík- isráðherra, þegar við vorum að fara yfir þessi mál með vega- málastjóra að skipulagsmál höf- uðborgarinnar skyldu vera í því ástandi sem þau eru,“ sagði Dav- íð. „Ég sem gamall borgarstjóri, borgarfulltrúi í 20 ár og fyrsti þingmaður Reykjavíkur, verð að segja það að ég hef verulegar áhyggjur af því að skipulags- málin skuli hafa verið í þeirri stöðu sem þau eru; til að mynda hin mislægu gatnamót á mörkum Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar. Vegamálastjóri tjáði okkur að það væri engin leið til þess eins og skipulagsmálum þar væri háttað, hjá borgaryf- irvöldum, að hægt væri að byrja á því verki innan átján mánaða. Og það eru auðvitað mikil von- brigði að skipulagsmálum sjálfrar höbuðborgarinnar skuli vera þannig háttað að þegar menn eru að grípa til aðgerða þá sé ekki einu sinni hægt að koma pen- ingum til hjálpar borgarbúum vegna þess hvernig menn hafa búið í haginn í þessu hlutafélagi.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra Gagnrýnir skipulags- mál borgarinnar ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Alls eru 23 mál á dag- skrá. Strax í upphafi fundar hefst ut- andagskrárumræða um skýrslu nefndar um flutningskostnað og kl. 11 fer fram umræða utan dagskrár um flugvallaskatta. GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir ekki þörf á afskiptum sínum af opinberum aðilum, sem neita að greiða dráttarvexti ef þeir lenda í vanskilum við einkafyrirtæki. Segir hann löggjöfina nægilega skýra í þessum efnum og því sé ekki þörf á tilskipunum hans þess efnis að auka jafnræði í viðskiptum einkafyrir- tækja og hins opinbera. Sem kunnugt er leiddi nýleg könnun Samtaka at- vinnulífsins, SA, í ljós að opinberir aðilar eru í vanskilum við um fimmt- ung fyrirtækja og í 60% tilvika neiti þeir að greiða dráttarvexti af skuld- um sínum. Geir segir þessa viðskiptahætti óviðunandi og ekki síst það ef rétt sé að opinberir aðilar hafi hótað að rifta viðskiptum við fyrirtæki sem krafist hafa dráttarvaxta vegna vanskila, en þetta segjast SVÞ hafa frétt. Geir segir að ekki gildi sérstakar reglur um opinbera aðila í þessum efnum. „Það eru til í landinu sérstök vaxtalög þar sem mönnum er heimilt að leggja dráttarvexti á útistandandi kröfur eftir ákveðnum reglum og op- inberir aðilar eru ekki undanþegnir þeim. Hins vegar er mönnum frjálst að semja um greiðslukjör og greiðslufresti. Ég geri ráð fyrir að oft fái opinberir aðilar lengri greiðslu- fresti en aðrir. En almenna reglan er alveg skýr og þeir sem standa ekki í skilum með eðlilegum hætti verða að taka sig á. Ef einhverjir hafa beitt hótunum eins og gefið hefur verið í skyn, en ég kann ekki sönnur á, þá er það auðvitað algjörlega óviðunandi.“ Fjármálaráðherra um opinbera aðila sem neita að greiða dráttarvexti Ekki þörf á afskiptum en hótanir óviðunandi JÓNAS Kristjánsson var í gær ráð- inn útgáfustjóri Eiðfaxa ehf. og verð- ur hann framkvæmdastjóri og rit- stjóri tímaritanna Eiðfaxa, Eiðfaxa International, Stóðhestablaðsins og vefjarins eidfaxa.is. Jónas Kristjánsson var m.a. rit- stjóri DV og forvera þess í 36 ár. Hann hefur einnig gefið út bækur um hrossaræktun og haldið úti gagnabanka um hross á Netinu. Fram kemur í tilkynningu frá Eið- faxa að ráðning Jónasar sé mikil- vægur liður í endurskipulagningu fyrirtækisins. Endurfjármögnun standi yfir á rekstrinum og nýir hlut- hafar hafi bæst í hópinn, en stefnt sé að mikilli sókn í markaðsmálum. Jónas Krist- jánsson útgáfustjóri Eiðfaxa ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ÞRÍR ungir menn voru handteknir í fyrrinótt eftir að hafa brotist inn í fyrirtæki við Nóatún í Reykjavík. Til verksins notuðu þeir stolna hagla- byssu, skutu gat á glerið, fóru inn og stálu einni fartölvu. Þegar þeir voru stöðvaðir af lögreglunni, tveim klukkustundum eftir innbrotið, fannst tölvan og haglabyssan í bíl þeirra. Við yfirheyrslu viðurkenndu mennirnir að hafa brotist inn í fyr- irtækið. Þeir sögðust hafa keypt byssuna af manni u.þ.b. viku áður. Auk þessa innbrots viðurkenndu mennirnir að hafa brotist inn í versl- un í Spönginni nóttina áður með því að brjóta þar rúðu. Þar var m.a. stol- ið nokkrum myndavélum og linsum. Munina höfðu þeir notað til að greiða fíkniefnaskuldir. Skutu af hagla- byssu á sýn- ingarglugga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.