Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 39 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake VATNSBERI Afmælisbörn dagsins: Þú ert ævintýragjarn, kappsamur og vel gefinn. Nánustu sambönd þín verða í brennidepli á þessu ári. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þig langar til að hafa sam- band við foreldri þitt eða yf- irboðara. Hvort sem sam- band ykkar er gott eða slæmt þá áttu eitthvað ósagt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Tilfinningar ráða ríkjum í samskiptum þínum við fólk í dag. Það er líklegt að dulin spenna komi upp á yfirborð- ið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú gætir freistast til óþarfra fjárútláta í dag. Þér finnst þú geta keypt hlutina af því þú sérð fram á að aðrir borgi brúsann. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ræddu við maka þinn eða ná- inn vin í dag. Samvera ykkar skiptir meira máli en sam- ræður ykkar. Þú þarft á ná- lægð að halda. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú hefur kjark til að tjá þig um eitthvað sem skiptir máli í vinnunni. Þér hefur fundist þú eiga við ofjarl þinn að etja en nú sérðu hlutina í öðru ljósi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það eru líkur á að elskendur tali saman af hreinskilni í dag. Þetta getur leitt til já- kvæðra breytinga. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þig langar til að gera heimili þitt vistlegra. Farðu að eigin smekk og hugsaðu ekki um hvað öðrum finnst. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú ert óvenju djarfur í orðum þínum og gerðum í dag. Jafnvel hversdagslegustu hlutir verða óvenjulegir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagurinn hentar vel til að huga að fjáröflunarleiðum. Eins og stendur er besta lausnin sennilega fólgin í því að leita eftir fjármögnun annarra. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér er hætt við sjálfsdekri í dag. Þig langar til að slaka á og láta aðra sjá um hlutina. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur þörf fyrir að koma skoðunum þínum á framfæri. Eins og stendur finnst þér heiðarleiki skipta mestu máli. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú gætir komist að leynd- armáli í trúnaðarsamtali. Gættu þess að sýna nær- gætni og koma fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra stað- reynda. SÓLBRÁÐ Sólbráðin sezt upp á jakann, sezt inn í fangið á hjarni. Kinn sína leggur við klakann, kát eins og augu í barni. Seytlan úr sporunum sprettir, spriklar sem glaðasta skrýtla. Gutlandi, litlir og léttir, lækirnir niðr eftir trítla. Ólöf Sigurðardóttir LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 13. febrúar, er sextugur Tómas Ingi Olrich, mennta- málaráðherra, Álfabyggð 20, Akureyri. Á afmæl- isdeginum bjóða Tómas Ingi og frú Nína Þórðardóttir vinum og velunnurum að gleðjast með þeim í Odd- fellowhúsinu, Sjafnarstíg 3, Akureyri, kl. 17–19. 60 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 16. febr- úar, verður sextugur Birg- ir Arnar, forstjóri, Laug- arásvegi 2. Eiginkona hans er María S. Arnar. Í tilefni þessa taka þau á móti gestum í safn- aðarheimili Áskirkju v/ Vesturbrún á morgun, föstudaginn 14. þ.m., milli kl. 17 og 19. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6 4. Bb5 Bg7 5. O-O e5 6. Bc4 Rf6 7. d3 O-O 8. a3 d6 9. Hb1 a6 10. b4 b5 11. Ba2 cxb4 12. axb4 Bg4 13. h3 Bxf3 14. Dxf3 Rd4 15. Dd1 Hc8 16. Bd2 Rh5 17. Bb3 Rf4 18. Rd5 Rxd5 19. exd5 Rxb3 20. Hxb3 Db6 21. c3 Db7 22. Df3 f5 23. Ha3 Hce8 24. Hfa1 Ha8 25. H1a2 Hfe8 26. c4 e4 27. dxe4 fxe4 28. Db3 bxc4 29. Dxc4 Hac8 30. Db3 Bd4 31. Hxa6 Hf8 32. Be3 Hc3 33. Ha7 Staðan kom upp í A-flokki alþjóðlega mótsins í Bermúda sem lauk fyrir skömmu. Alexander Motylev (2.640) hafði svart gegn Mohamad Al-Modiahki (2.571). 33...Hxe3! 34. Dxe3 Dxb4 35. De2 Aðrir drottningarleikir höfðu einnig tapað: 35. Dg3 Db1+ 36. Kh2 Be5 og svartur vinnur; 35. Da3 De1+ 36. Kh2 Be5+ 37. g3 Hxf2+ 38. Hxf2 Dxf2+ 39. Kh1 Bxg3 og svartur vinnur. 35...Hxf2! 36. Dxf2 De1+ og hvítur gafst upp. 4. skák Olís- einvígisins hefst kl. 17.00 í höfuðstöðvum Olís, Sunda- görðum 2. Seinni skákin í einvígi tölvuforritsins Tiger 15 gegn Arnari E. Gunn- arssyni og Braga Þorfinns- syni hefst á sama stað og tíma. Áhorfendur eru hjart- anlega velkomnir en Guð- mundur Arason styrkir þessa skákveislu ásamt Olís. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Tilgangurinn með því að spila út einspili í vörn er auðvitað sá að sækja stungu. En stundum er nóg að hóta því að taka stungu. Suður gefur; AV á hættu. Norður ♠ KG96 ♥ 109 ♦ K10 ♣Á9854 Vestur Austur ♠ 10 ♠ 8743 ♥ KG532 ♥ Á764 ♦ ÁD643 ♦ 9872 ♣72 ♣D Suður ♠ ÁD52 ♥ D8 ♦ G5 ♣KG1063 Spilið kom upp á lands- liðsæfingu á sunnudaginn. Í NS voru Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson, en AV Steinar Jónsson og Stefán Jóhannsson: Vestur Norður Austur Suður Stefán Þorl. Steinar Jón – – – 1 lauf 1 hjarta Dobl 3 hjörtu 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Jón opnar á Standard-laufi, Stefán kemur inn á hjarta og Þorlákur doblar nei- kvætt til að sýna fjórlit í spaða. Steinar hindrar með þremur hjörtum og NS teygja sig í fjóra spaða. Sem er út af fyrir sig ágætis geim og a.m.k. góð „fórn“ yfir fjórum hjörtum. Stefán kom út með smátt hjarta upp á ás Steinars, sem skipti síðan snarlega yfir í laufdrottn- ingu. Hann horfði á lauf- ásinn í blindum og vissi svo sem að stunga væri ólíkleg – þá þyrfti makker að eiga ásinn blankan í trompi – en hins vegar var fjórlitur Steinars í trompi nógu öflugur til að binda hendur sagnhafa. Ef sagn- hafi tekur fjórum sinnum tromp fæst aldrei slagur á tígulkóng, og ef hann bíður með trompið og spilar tígli nær vörnin stungunni í laufi. Þetta er frekar óvenju- legt stef í vörn og lær- dómsríkt. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Bridsfélag Kópavogs Aðalsveitakeppninni lauk sl. fimmtudag eftir æsispennandi loka- baráttu þar sem þrjár efstu sveitirn- ar náðu allar að hafa forystu, sveit Sigfúsar áður en keppni hófst, sveit Ragnars eftir fyrri leikinn en að lok- um stóð sveit Jón Steinars uppi sem sigurvegari og jafnara gat það nú ekki verið ! Lokastaðan: Jón Steinar Ingólfsson 162 Sigfús Örn Árnason 161 Ragnar Jónsson 159 Vinir 145 Með Jóni Steinari spiluðu Jens Jensson, Þórður Björnsson, Birgir Örn Steingrímsson og Guðmundur Baldursson. Í kvöld verður eins kvölds tví- menningur, ákjósanleg upphitun fyrir þá sem ætla á Bridgehátíð, en að sjálfsögðu eru allir bridgespilarar hjartanlega velkomnir. Spilað er í Þinghóli, Hamraborg 11, og hefst spilamennska kl. 19.30. Eldri borgarar í Hafnarfirði Spilaður var tvímenningur á sjö borðum hjá Bridsfélagi eldri borg- ara í Hafnarfirði þriðjudaginn 11. febrúar. Úrslit urðu þessi. Bjarnar Ingimarss. – Sævar Magnúss. 188 Bragi Björnss. – Auðunn Guðmundss. 180 Jón Sævaldsson – Hermann Valsteinss. 171 Sverrir Jónsson – Sófus Berthelsen 164 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Ég hef séð myndina áður … MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík       Heyrðu, þú þarna, burt með þig!! Það gengur bara fínt hjá þeim þrátt fyrir að þau séu svo ólík … Laugavegi 56, sími 552 5980 Allt á að seljast verslunin hættir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.