Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Strákar mínir, ég er nú bara borgarstjóri R-lista kjósenda. Ísalp færir út kvíarnar Nýr vefur og kynningarátak ÍSLENSKI alpaklúbb-urinn er að færa útkvíarnar þessa dag- ana og hefur hleypt af stokkunum öflugu kynn- ingarátaki. Meðal annars hefur nýr vefur verið ræst- ur á Netinu, www.isalp.is. Nýskipaður formaður Ís- lenska alpaklúbbsins er Halldór Kvaran. – Segðu okkur fyrst frá Ísalp… „Þetta er félagsskapur karla og kvenna sem hafa sameiginlegt áhugamál sem er fjallamennska af hvers kyns toga. Við erum þá að tala um allt frá ísklifri og klettaklifri yfir í ósköp venjulegar fjallgöngur og ferðir á jökla. Innan ramm- ans rúmast síðan flest það sem fólk er að gera á fjöllum, snjó- bretti, vélsleðar o.s.frv. Félagið gengst fyrir fjölda nám- skeiða um fjallamennsku á ári hverju. Það eru gjarnan sérhæfð námskeið og í sumum tilvikum flokkaskipt eftir því hvar þátttak- endur eru staddir á braut fjalla- mennskunar. Þannig eru námskeið t.d. í kletta- og ísklifri sem taka á grundvallaratriðum og síðan önn- ur sem eru fyrir þá sem eru lengra komnir. Af sérhæfðum námskeið- um má nefna mat á snjóflóðum m.t.t. leiðarvals í fjalllendi. Almenn snjóflóðabjörgun , björgun félaga úr snjóflóðum, fyrsta hjálp á fjöll- um, klæðnaður á fjöllum og þannig mætti áfram telja. Af öðru skemmtilegu sem Ísalp stendur fyrir má nefna að við erum að yf- irtaka Banff-fjallamyndahátíðina, en hún fer fram dagana 10.–11. mars í Smárabíói og verða sýndar einar átján myndir, stuttar og lengri sem fjalla um allt það sem menn gera á fjöllum. Nanoq var áður með þessa kvikmyndahátíð en menn voru sammála um að það þjónaði betur hagsmunum allra að Ísalp sæi um framkvæmdina. Þá vil ég nefna að við höldum ís- klifurshátíð einu sinni á ári. Stefnt er að því að hún verði í nágrenni Kirkjubæjarklausturs á þessu ári, en nokkrir staðir eru einnig í bak- höndinni ef veðurfar er óhagstætt sunnanlands. Til þessara hátíða höfum við boðið erlendum klifrur- um, frægum og snjöllum og sumir þeirra hafa skrifað myndskreyttar greinar í erlend tímarit um fjalla- mennsku. Þannig má skoða okkur sem einn lið af mörgum í kynningu á Íslandi, sérstaklega m.t.t. ferða- laga á vetrum. Á félagslega sviðinu má segja að við höfum einar fimmtán ferðir á ári, miserfiðar, höldum mynd- bandskvöld einu sinni í viku og op- ið hús einu sinni í mánuði í félags- heimili okkar í Skútuvogi 1g, auk árshátíðar, jólaglöggs og þorra- blóts.“ – Félagafjöld og kynjaskipting- in? „Þetta eru um það bil 300 fé- lagar og má segja að viðvarandi frá upphafi félagsins, árið 1977, hafi kynjahlutfallið ver- ið 80%/20% körlum í hag. Það hefur þó verið að breytast að undan- förnu og auk þess höf- um við alltaf kappkost- að að hafa konu í stjórn. Ég vil geta þess að stefnt er að því að ná allt að 7–800 félögum samtals í fé- lagið á næstu tveimur árum og við erum afar bjartsýn á að það tak- ist.“ – Gæti þetta ekki verið mun stærra félag? „Það hefur örugglega loðað við Ísalp í gegnum tíðina að hér sé á ferðinni lítill harðkjarna fé- lagsskapur karla sem stunda ís- og klettaklifur, íþróttir sem fólk hef- ur þá haft á tilfinningunni að séu óaðgengilegar og beinlínis hættu- legar. Við höfum verið að vinna gagngert að því að undanförnu að breyta þessari ímynd. Ekki svo að skilja að ís- og klettaklifur séu ekki hættuleg, þar þarf að gæta ýtrustu varúðar og fara eftir ströngum reglum, heldur miklum mun frem- ur höfum við viljað opna félagið meira með því að benda á alla þá möguleika sem þar er að finna.“ – M.a. með því að opna nýjan vef? „Já, en ekki bara með vefnum. Við stefnum að því að fara með kynningar á grunn- og háskólastig og félagar í Ísalp sem hafa staðið fyrir námskeiðum í ýmsum út- færslum fjallamennsku í fé- lagsmiðstöðvum í samvinnu við ÍTR hafa orðið varir við stórauk- inn áhuga ungs fólks af báðum kynjum. Hvað vefinn varðar, þá hefur einn úr okkar hópi, Helgi Borg, lagt ómælda vinnu í hann síðustu fjóra mánuðina í sjálfboða- vinnu og fyrir tveimur mánuðum var hann opnaður. Hann á að vera miðpunktur fjallamennsku á Ís- landi. Þarna er allt um ísklifur, klifur og fjallamennsku á Íslandi á einum stað bæði á íslensku og ensku, hann er sumsé ekki aðeins liður í kynningu okkar innanlands heldur einnig liður í landkynning- unni.“ – Er vefurinn talsvert heimsótt- ur? „Mjög mikið þótt hann hafi lítið verið kynntur. Við erum afar ánægð með viðtökurn- ar. Útlendingar eru líka mikið að skoða hann.“ – Er eitthvað sem við höfum ekki kembt í þessu spjalli? „Ég myndi vilja segja frá því að við erum að berjast fyrir því að stofnsetja styrktarsjóð þar sem ungt fólk sem ætlar í hvetjandi fjallamennsku getur fengið styrki. Ætlum að reyna að fá ríki og borg með í svoleiðis sjóð. Þetta er vist- vænt markmið, náttúruvænt og ekki síst göfugt og gott fordæmi fyrir unga fólkið.“ Halldór Kvaran  Halldór Kvaran fæddist í Reykjavík 1961. Stúdent frá VÍ 1982. Starfaði þar eftir við Heildverslun Gunnars Kvaran og frá árinu 2000 hjá Danól. Halldór er deildarstjóri mat- vörudeildar Danól. Er nýskip- aður formaður Íslenska alpa- klúbbsins. Einnig formaður Klifurfélags Íslands. Maki er Kristín Gísladóttir og eiga þau saman tvö börn en tvö hvor til viðbótar af fyrri samböndum. Kappkostað að hafa konu í stjórn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.