Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ FLOSI Kristjánsson, aðstoðarskóla- stjóri Hagaskóla, sem nýlega tapaði dómsmáli gegn Reykjavíkurborg þar sem hann krafðist ógildingar á þeirri ákvörðun Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur að segja honum upp sem tölvuumsjónarmanni skólans, hefur ekki ákveðið hvort hann muni áfrýja málinu til Hæstaréttar. Flosa var sagt upp á grundvelli þess að kjarasamningur KÍ og launanefndar sveitarfélaga gerði ráð fyrir afnámi aukagreiðslna til kennara og skóla- stjórnenda. Segir Flosi að uppsögnin hafi haft í för með sér 70 þúsund kr. mánaðarlegan tekjumissi. Hefði hann haldið viðbótar- greiðslum óskertum hefðu laun hans verið um það bil 30 þúsund krónum lægri nú en skólastjóri í 500 nem- enda grunnskóla ber út býtum skv. kjarasamningi. Gert sé ráð fyrir því að fastalaun hans samkvæmt núgild- andi kjarasamningi nái yfir þau aukastörf sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann segir tölvuumsjón nú vera í lágmarki í Hagaskóla enda fái hann ekki lengur greidda yfirvinnu fyrir 25% starf sem tölvuumsjónar- maður. „Það er séð til þess að tölvu- kerfið virki en það er ekki lagt eins mikið í vinnuna við það og áður,“ segir Flosi. Hann segir dóminn ekki breyta neinu fyrir aðra aðstoðar- skólastjóra hafi þeir ekki verið með nein aukaverkefni og tekjur af þeim, sem hann segir aukinheldur mjög fá- títt. „Ég býst við að það sé nokkuð algengt að þeir hafi ákveðið að taka ekki að sér aukastörf, heldur vinna sitt aðalstarf á grundvelli taxta sam- kvæmt fastlaunakerfi kjarasamn- ings. Hins vegar mega deildarstjór- ar og kennarar fá greidda yfirvinnu fyrir aukastörf. Það er hægt að hækka þá um 3–4 launaflokka vegna sérstakra verk- efna, færni eða ábyrgðar, en skóla- stjórar og aðstoðarskólastjórar fá hins vegar eina greiðslu án tillits til þess hvað þeir kunna, geta, eða vilja gera.“ Aðstoðarskólastjóra Hagaskóla sagt upp sem tölvuumsjónarmanni Ekki ljóst hvort mál- inu verður áfrýjað SÍÐASTLIÐINN sunnudag fjölgaði óvænt í fjárhúsunum á Ísabakka hér í sveit. Þá bar ærin Kolla en þau hjón Margrét Gunnarsdóttir og Agnar Jóhannsson reka fjárbú á jörð sinni. Börnin á bænum gáfu gimbrinni nafnið Fjóla drottning sem er hin myndarlegasta og mikið fagnaðarefni á bænum að fá slíkan vorboða. „Við tókum eftir því fyrir nokkru að ærin fór að verða öðruvísi en hinar í ullarfari og þykkildi að koma undir hana, héldum að um einhverja sýkingu væri að ræða“, sagði Agnar, „en svo var komið lamb á sunnudagsmorguninn, það er eitthvert óeðli með þessa á.“ Elstu menn hér um slóðir muna ekki eftir að ær hafi borið fyrir miðjan febrúar utan það að dug- mikill bóndi, Unnsteinn Her- mannsson í Langholtskoti, lét 10 ær bera um miðjan janúar fyrir nokkr- um árum. Þetta var aðeins tilraun hjá honum og þá voru notaðir hormónasvampar. Slíkt hefur einn- ig verið gert á tilraunastöðvum og ær látnar bera þrisvar á tveimur árum. Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Björg, Eyrún og Ævar Agnarsbörn á Ísabakka með lambið Fjólu Drottn- ingu ásamt hvolpnum Tásu og hundinum Lappa. Vorboði á þorra JÖFNUNAR niðurgreiðslu á heyrn- artækjum er að vænta á næstu vikum að sögn Jóns Kristjánssonar heil- brigðisráðherra. Rannveig Magnúsdóttir sendi ráð- herra opið bréf í Morgunblaðinu fyrir skömmu þar sem hún óskar eftir svari hans varðandi jöfnun niður- greiðslu á heyrnartækjum. Rannveig segir aukafjárveitingu sem ráðherra beitti sér fyrir hafa átt að tryggja jafna niðurgreiðslu tækja til neyt- enda en að ekkert bólaði á fram- kvæmdum. Heilbrigðisráðherra svaraði Rann- veigu í gær og sagðist vona að málið leystist á næstu vikum. „Við erum að semja við Heyrnartækni. Þeir samn- ingar hafa tekið lengri tíma en æski- legt hefði orðið en þeir eru á lokastigi. Við reiknum með því af jafnræðisá- stæðum að þetta verði sama þátttaka í greiðslum og hjá Heyrnar- og tal- meinastöðinni. Við erum að vinna að samningi þar um. Síðan þurfum við að gefa út reglugerð í framhaldi af því,“ segir Jón og bætir við að hann hafi verið fullbjartsýnn í bréfi sínu til Rannveigar þar sem hann vonaðist til að samningar næðust fyrir sl. haust. Von á niður- greiðslu heyrnartækja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.