Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 16
Höfðust við í skotgröfum í 10 stiga frosti sem líður sprengjuherferð af áður óþekktu umfangi og hræðilegri áróð- ursherferð sem beindist gegn þessu litla, umsetna svæði. Þar við bætist að þeir fengu hræsn- ara [andstæðinga talibanastjórnar- innar í Afganistan] til að berjast við okkur í 15 daga samfleytt. Í hvert skipti sem þessir menn réðust gegn okkur brutum við þá á bak aftur og neyddum til að bera fallna og særða af yfirráðasvæði okkar.“ Mistókst háðulega að ráða niðurlögum 300 mújahedína Sagði bin Laden fátt staðfesta bet- ur en þessi dæmi hversu huglausir Bandaríkjamenn væru, fréttir af meintu afli þeirra væru lygar og upp- spuni. „Til að taka þetta saman þá lauk bardaganum með algerum ósigri þessa alþjóðlega bandalags hins illa, öllum þessum hersveitum þeirra mis- tókst að ráða niðurlögum örfárra mújahedína – 300 mújahedína sem höfðu falið sig í skotgröfum sem dreifðust yfir eins ferkílómetra svæði og þar sem hitastigið var 10 gráður í mínus á Celsíus. Bardaganum lauk þannig að 6% okkar manna urðu fyrir meiðslum – við vonum að Guð samþykki þá sem píslarvotta – og aðeins urðu skemmd- ir á 2% skotgrafanna, þökk sé Guði. Ef öll þessi öfl hins illa gátu ekki náð markmiðum sínum á svæði sem er einn ferkílómetri að stærð, gegn örfáum mújahedínum sem ekki réðu yfir miklum búnaði, hvernig geta þá þessi illu öfl haft betur gegn músl- imaheiminum?“ Ramadan-mánuð [heilagur mánuður múslima]. Á sautjánda degi Ramadan upphófust afar umfangsmiklar sprengjuárásir, einkum eftir að yfir- menn Bandaríkjahers höfðu sann- færst um að nokkrir leiðtoga al- Qaeda væru enn í Tora Bora, þeirra á meðal þessi auðmjúki þjónn Guðs [þ.e. bin Laden] og annar mújahedín, Dr. Ayman al-Zawahiri [hægri hönd bins Ladens]. Sprengjunum rigndi niður á okkur hvenær sem var sólarhringsins og herþotur flugu yfir okkur dag og nótt,“ sagði bin Laden. „Helltu eldhrauni yfir okkur“ „Pentagon [þ.e. bandaríska varnar- málaráðuneytið] kappkostaði ásamt bandamönnum sínum að sprengja upp og eyða þessum litla bletti, í reynd þurrka hann algerlega í burtu,“ hélt bin Laden áfram. „Flugvélar helltu eldhrauni sínu yf- ir okkur, einkum eftir að þær höfðu lokið öðrum verkefnum sínum í Afg- anistan. Bandaríkjaher réðst gegn okkur með „snjallsprengjum“ sínum, sprengjum sem vega þúsundir kg, klasasprengjum og „byrgjabönum“. Sprengjuflugvélar, t.d. af gerðinni B-52, flugu gjarnan yfir höfðum okk- ar í meira en tvær klukkustundir í senn og vörpuðu niður 20 til 30 sprengjum í einu. Endurbættar flug- vélar af gerðinni C-130 héldu áfram að láta sprengjum rigna yfir okkur á nóttunni, með því að nota nútímagerð af sprengjum. Bandaríkjaher þorði hins vegar ekki að ráðast gegn vígi okkar, hvað OSAMA bin Laden, leiðtogi al- Qaeda-hryðjuverkasamtakanna, lýsir því í ávarpinu sem leikið var á arab- ísku sjónvarpsstöðinni al-Jazeera í fyrrakvöld hvernig hann og 300 liðs- menn hans lifðu af loftárásir Banda- ríkjahers á hellavígi þeirra í Tora Bora í Afganistan fyrir rúmu ári. Hingað til hafa menn talið líklegt að bin Laden hefði látist í árásum Bandaríkjamanna. Talin ósvikin Talsmenn Bandaríkjastjórnar og sérfræðingar ýmsir m.a. á sviði arab- ískrar tungu og menningar telja að hljóðupptakan sé ósvikin og þar tali sjálfur bin Laden. Sérfræðingar á sviði hljóðgrein- ingar og upptöku- tækni segja að ef- anum verði í raun aldrei fyllilega eytt í þessum efn- um en benda á að mikið bergmál einkenni upptök- una. Fyrir þær sakir verði hljóðmerk- ið veikara og óskýrt en bergmál geti komið til sökum þess að upptakan fari þannig fram að hljóðnemi sé notaður til að taka upp eldri upptöku sem spil- uð sé af segulbandi um hátalara eða að sá sem talar sé staddur í rými þar sem bergmál sé mikið, t.a.m. í helli. Á upptökunni lýsir bin Laden að- stæðunum í Tora Bora svo: „Ég var í för með um það bil 300 mújahedínum [íslamskir vígamenn]. Við grófum 100 skotgrafir á svæði sem er ekki meira en einn ferkíló- metri að stærð, ein skotgröf fyrir hverja þrjá bræður mína, en markmið okkar var að komast hjá mannfalli af völdum sprengjuregnsins. Allt frá fyrstu stundu hernaðarað- gerða Bandaríkjanna á 20. rajab árið 1422, sem jafngildir 7. október 2001, var sprengjum skipulega varpað á bækistöðvar okkar. Þessar sprengju- árásir héldu áfram fram undir miðjan Osama bin Laden lýsir því hvernig 300 al-Qaeda-menn lifðu af loftárásir Bandaríkjahers í Tora Bora AP Afganskur hermaður skellihlær meðan félagi hans fylgist með árásum bandarískra herflugvéla á meint fylgsni liðsmanna al-Qaeda-hryðjuverkasamtakanna í Hvítufjöllum nálægt Tora Bora í desember 2001. ’ Til að taka þettasaman þá lauk bardaganum með al- gerum ósigri þessa alþjóðlega banda- lags hins illa. ‘ Osama bin Laden ERLENT 16 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÁR var í gær liðið frá því að réttarhöldin yfir Slobodan Milosevic, fyrrverandi for- seta Júgóslavíu, hófust í Haag í Hollandi en hann er sakaður um stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð í átökunum á Balkanskaga 1991–1995 og 1998–1999. Halda saksókn- arar því fram að Milosevic hafi verið heilinn á bak við þjóðern- ishreinsanir Serba í Bosníu, Króatíu og í Kosovo. Vitnaleiðslur standa enn í málinu og í gær hélt Aleksandar Vasiljevic, fyrrverandi yfirmaður júgóslavnesku leyniþjónustunnar, áfram að fjalla um tengsl Milosevics við hersveitir Bosníu-Serba og Bosníu-Króata í átökunum 1991–1995. Milosevic hefur ávallt neitað því að hafa haft nokkur völd yfir þessum sveitum. Réttarhöldin yfir Milosevic, sem er 61 árs, hófust 12. febrúar 2002. Í sept- ember á síðasta ári lauk málflutningi vegna atburða í Kosovo 1998–1999 og nú standa yfir vitnaleiðslur vegna átakanna í Bosníu og í Kró- atíu. Verði Milosevic fund- inn sekur á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsisdóm. Beðið eftir Holbrooke Þegar réttarhöldin hófust fyrir ári hélt Carla del Ponte, aðalsaksóknari við stríðsglæpadómstól Sam- einuðu þjóðanna, því fram að margir úr innsta hring júgóslavn- eska embættismannakerfisins myndu vitna gegn Milosevic. Frétta- skýrendur telja þetta ekki hafa geng- ið eftir og segja að aðeins þrír hátt- settir embættismenn hafi borið vitni gegn fyrrverandi yfirmanni sínum. Er þess beðið með mikilli eftir- væntingu að Richard Holbrooke, sáttasemjari Bandaríkjastjórnar í átökunum á Balkanskaga, komi fyrir rétttinn. Ekki er þó ljóst hvenær af þessu verður því bandarísk stjórn- völd vilja ekki heimila Holbrooke að bera vitni nema fyrir liggi samkomu- lag um eðli og umfang spurninga, sem beint verður til hans. Eitt ár frá því að réttarhöldin hófust Slobodan Milosevic Haag. AFP. TILRAUNIR bandarískra yf- irvalda til þess að sýna fram á tengsl milli al- Qaeda-hryðju- verkasamtak- anna og íraskra stjórnvalda er afsökun svo hægt verði að hefja árásir á Írak. Þetta segir Sa- lem al-Qubaissi, formaður írskrar þingnefndar um alþjóðamál. Bandarísk stjórnvöld sögðu í fyrrakvöld að ný upptaka af rödd sem eignuð er Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda, sannaði að Írak- ar og al-Qaeda starfi saman. Í upp- tökunni er hvatt til sjálfsmorðs- árása gegn Bandaríkjunum og Ísrael. Qubaissi sagði hins vegar að Bandaríkin hefðu árangurslaust beitt allri leyniþjónustu sinni til þess að finna tengsl milli Íraks og al-Qaeda. Hann sagði að ásakanir um tengsl Íraks við al-Qaeda væru til þess ætlaðar að blekkja banda- rískan almenning, sem væri mót- fallinn hernaðarárás á Írak, að ekki væri talað um almenning ann- ars staðar í heiminum. Telur Saddam trúvilling Þrátt fyrir staðhæfingar Banda- ríkjamanna vakti athygli í ávarpi bins Ladens að ekki var að sjá sem hann væri ýkja hrifinn af Saddam Hussein. Hann sagði múslima eiga að fylkja liði með Írökum hvort sem Saddam yrði áfram við völd eður ei. „Við núverandi aðstæður er ekkert að því að múslimar fylki liði með sósíalistunum [þ.e. Baath- flokki Saddams] gegn „krossför- unum“, jafnvel þó að við teljum og höfum lýst því yfir að þessir sósíal- istar séu trúvillingar,“ sagði bin Laden um Saddam og stjórn hans. Írakar neita tengslum við bin Laden Bagdad. AFP. Saddam Hussein

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.