Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 11 Heimsferðir stórlækka verðið til Mallorka. Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til Mallorka alla mánudaga í sumar á frábærum kjörum og við stórlækkum verðið til þessarar vinsælu eyju í Miðjarðarhafinu, sem hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í 30 ár. Þeir sem bóka fyrir 15. mars geta tryggt sér allt að 32.000 kr. afslátt fyrir fjölskylduna í valdar brottfarir, eða 8.000 kr. á manninn. Nú kynnum við glæsilega nýja gististaði á frábæru verði, til að tryggja þér toppaðbúnað í fríinu og þjónustu reyndra fararstjóra Heimsferða allan tímann. Bókaðu til Mallorka og tryggðu þér 32.000 kr. afslátt af ferðinni Beint flug alla mánudaga í sumar Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 39.962 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 26. maí, Valentin Park, með 8.000 kr. afslætti. Verð kr. 49.950 M.v. 2 í stúdíóíbúð í viku, Valentin Park, með 8.000 kr. afslætti, 26. maí. Lægsta verðið til Mallorka Glæsilegir nýir gististaðir San Valentin Club Munið Mastercard ferðaávísunina Kringlunni & Hamraborg VOR 2003 [s v a rt á h v ítu ] Full búð af nýjum spennandi vorvörum Nýtt kortatímabil 568 4900 552 3636 JÓN Kaldal bygginga- fræðingur er látinn, sextugur að aldri. Jón var fæddur í Reykjavík, 14. mars árið 1942. For- eldrar hans voru Jón Kaldal, ljósmyndari í Reykjavík, og Guðrún Kaldal húsmóðir. Jón stundaði nám við Myndlistarskólann í Ásmundarsal á árunum 1958–62. Sveinsprófi lauk hann í húsasmíði árið 1964 og prófi í byggingarfræði frá Byggingatækniskólanum í Kaup- mannahöfn árið 1966. Á árunum 1966–71 starfaði hann á Teiknistofunni Ármúla 6. Frá árinu 1971 starfaði hann sjálfstætt og rak Teiknistofuna Arko ásamt fé- lögum sínum. Jón teiknaði fjöl- margar byggingar sem setja svip sinn á höf- uðborgarsvæðið, þ.á m. skipulagði hann og teiknaði íbúðahverfi sem Byggung lét reisa í Vallarási og við Eið- isgranda á níunda ára- tug síðustu aldar. Með- al síðari verka hans má nefna sumarhúsa- byggð sem hann skipu- lagði og teiknaði við Vatnsenda í Skorradal. Jón var fyrsti for- maður Byggingafræðingafélags Ís- lands á árunum 1967–72. Þá sat hann um árabil í stjórn Djassvakn- ingar. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Steinunni Kaldal tækniteiknara. Þau eignuðust fimm börn. Andlát JÓN KALDAL FASTEIGNAGJÖLD á íbúa í Hafn- arfirði hafa að meðaltali hækkað um 40% frá árinu 2000 samkvæmt út- reikningum Morgunblaðsins, sem er 22% raunhækkun þar sem verðbólga var 15% á tímabilinu. Þegar ekki er tekið tillit til verðbólgu er hækkunin á tímabilinu 33% í Kópavogi, 27% í Garðabæ, 25% á Seltjarnarnesi og 19% í Reykjavík. Þetta kemur út þeg- ar brúttóálagningu sveitarfélaganna á íbúðarhúsnæði er deilt með fjölda íbúa 1. desember árið á undan. Fasteignagjöld eru að meðaltali lægst í Reykjavík eða tæplega 30 þús- und krónur á hvern íbúa og hæst í Kópavogi eða rúmar 37 þúsund krón- ur. Það sem getur skekkt þennan sam- anburð er meðalfjöldi íbúa á hverju heimili og hversu verðmætar eignir eru í hverju sveitarfélagi. Má t.d. ætla að á Seltjarnarnesi og í Garðabæ sé hærra hlutfall einbýlishúsa en í Reykjavík. Hlutfallið ætti þó að hald- ast tiltölulega óbreytt milli ára hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig, bæði hvað varðar tegund húsnæðis og fjöl- skyldustærð. Því ætti úttektin að gefa góða mynd af þeim hækkunum sem orðið hafa á fasteignagjöldum á hverj- um stað síðustu ár. Þannig hafa fast- eignagjöld hækkað um 9.560 krónur að meðaltali á hvern Hafnfirðing frá árinu 2000, um 9.225 krónur á hvern Kópavogsbúa, 7.867 krónur á hvern Garðbæing, 6.080 krónur á hvern Sel- tirning og 4.830 krónur á hvern Reyk- víking. Fasteignaskattur lægstur í Garðabæ Fasteignagjöld greiða allir eigend- ur fasteigna og eru gjöldin samansett úr fasteignaskatti, vatnsgjaldi og sorphirðugjaldi. Þá innheimta flest sveitarfélög lóðarleigu og holræsa- gjald. Fasteignaskatturinn er lægst- ur í Garðabæ eða 0,31% af fasteigna- mati húss og lóðar. Skatturinn er hæstur í Hafnarfirði og á Seltjarnar- nesi eða 0,36% af fasteignamati. Lóðarleiga, sem hlutfall af fast- eignamati lóðar, er lægst í Reykjavík eða 0,08%. Flestar lóðir á Seltjarn- arnesi eru eignarlóðir en í þremur götum er innheimt lóðarleiga sem nemur 0,75% af fasteignamati lóðar. Það er hæsta hlutfall lóðarleigu í þeim sveitarfélögum sem Morgunblaðið skoðaði. Í Kópavogi eru í ár teknar 8,5 krónur fyrir hvern fermetra lóðarinn- ar í leigu, sem er 36 aurum meira en var innheimt árið 2002. Holræsagjald er innheimt í öllum þeim sveitarfélög- um sem Morgunblaðið skoðaði að Sel- tjarnarnesi undanskildu. Holræsa- gjald reyndist lægst í Garðabæ eða 0,07% af fasteignamati en hæst í Kópavogi, 0,13%. Yfirleitt hefur fasteignaskattur ekki hækkað milli áranna 2002–2003 hjá sveitarfélögunum á höfuðborgar- svæðinu sem athuguð voru. Mest er hækkunin milli áranna 2000 og 2001. Í Hafnarfirði var fasteignaskatturinn fyrir árið 2003 reyndar hækkaður úr 0,32% í 0,36% en á móti lækkaði hol- ræsagjald úr 0,16% í 0,12% þannig að raunhækkun er engin. Í Garðabæ var einnig gerð svipuð tilfærsla sem hafði enga raunbreytingu í för með sér. Þannig lækkaði fasteignaskatturinn úr 0,385% í 0,310% en á móti hækkaði vatnsgjaldið úr 0,075% í 0,15%. Sorphirðugjald hæst í Kópavogi Sorphirðugjaldið er hæst í Kópa- vogi eða 9.100 krónur á íbúð en lægst á Seltjarnarnesi, 4.800 krónur á íbúð. Öll sveitarfélögin, nema Seltjarnar- nes og Garðabær, hækkuðu sorp- hirðugjald milli áranna 2002 og 2003. Í Garðabæ borga eigendur fasteigna 7.100 krónur fyrir sorphirðu í ár sem og í fyrra. Í Reykjavík hækkaði gjald- ið úr 6.600 krónum fyrir tunnuna árið 2002 í 7.260 krónur nú. Í Kópavogi hækkaði sorpgjald á íbúð úr 8.650 krónum í 9.100 krónur. Í Hafnarfirði nam hækkunin 1.000 krónum, fór úr 6.000 kr. í 7.000 kr. Í endurskoðuðu fasteigna- og brunabótamati sem tók gildi í sept- ember 2001 lækkaði brunabótamat að meðaltali um 4% á landsvísu og fast- eignamat hækkaði um 14%. Í kjölfar- ið breyttu ýmis sveitarfélög álagning- arstuðli sínum til að endurskoðað fasteignamat leiddi ekki til hærri fast- eignagjalda. Í samanburðinum sem hér er gerður er þó litið á brúttó- álagningu í milljónum króna, þ.e. án lækkunar til lífeyrisþega. Saman- burðurinn sýnir hversu mikið sveit- arfélögin innheimtu í fasteignagjöld síðustu fjögur ár miðað við fjölda íbúa í desember árið á undan og ætti því að gefa ágæta vísbendingu af því hver þróunin hefur verið á tímabilinu. '!  ! .5 + %6 +&( 7  81     9     ' ( '  80 /0'1  :% (  & 1' (  ; '(  9& 6/ (   !    # )   <   - ) # -   -      ,4$$ < $  !  #4 # -   -,   $, 80 -, 80 -, 80 !, 80  ) -  #)  ' ( '   /& 1' ( &( + '(    ' /  ' (  :% (  5    ' /  ' (  %   ' %  9   '   ( %  ='  (  % ( /0'1  ='  '   >'(  &( 25(((  , #  $,! $ # -,  ))- ,$! $ - , ! # ,    -   ! #! 02 )   ! %2 2   / % ?/    80  '        80    ()1 ?/    80  '        80    $ ?/    80  '        80      ?/    80  '        80 '  ?/    80  '        80    -#  -  #)   ) -)   -  - #)    #  # #-#)  # -)) -#-  -  ) )  -#  ## )-  #  ) - -# )-) #    )###   #-  )- -- #    1  Um 40% hækkun gjalda í Hafnarfirði Fasteignagjöld á höfuðborgarsvæðinu einna lægst í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.