Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FJÁRMAGNIÐ sem ríkisstjórnin
hefur ákveðið að verja í sérstökum
aðgerðum til atvinnusköpunar, rúm-
ir 6 milljarðar króna, dreifist nokkuð
jafnt um landið, sbr. meðfylgjandi
kort. Sé miðað við nýju kjördæma-
skipunina er dreifingin heldur jöfn
milli landsbyggðarkjördæmanna en
flestar fyrirhugaðar framkvæmdir
falla utan marka Reykjavíkurborg-
ar. Mest kemur til með að renna til
framkvæmda í Suðurkjördæminu
nýja, eða tæpir tveir milljarðar, auk
framkvæmda sem á að flýta en hafa
þegar verið ákveðnar.
Helgi Hallgrímsson, fráfarandi
vegamálastjóri, sagði við Morgun-
blaðið að flestar þær vegafram-
kvæmdir sem hægt væri að ráðast í á
næstu 18 mánuðum þyrftu ekki að
fara í mat á umhverfisáhrifum. Yf-
irleitt yrði um endurbætur á eldri
vegum að ræða og á stöku stað væri
vinna vegna umhverfismats að baki.
Helgi sagði að nú færi í hönd vinna
við að ákveða hvaða framkvæmdir
nákvæmlega yrði ráðist í.
Vegamálastjóri sagði að á Norð-
austurlandi væri t.d. brýnt að ráðast
í frekari endurbætur á Norðaustur-
vegi um Öxarfjörð, Melrakkasléttu,
Þistilfjörð, Langanes og austur til
Bakkafjarðar. Einnig væri mikið
verk fyrir höndum að tengja Vopna-
fjörð betur við hringveginn.
Að sögn Gísla Eiríkssonar, um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar á
Vestfjörðum, er brýnt að ráðast t.d. í
vegabætur um Ísafjarðardjúp og á
leiðinni milli Ísafjarðar og Patreks-
fjarðar. Þörf væri á nýju slitlagi víða
um Vestfirði en eftir væri að ákveða
þessar framkvæmdir nánar. Hann
sagði áætlanir Vegagerðarinnar
hafa miðað við 5–6 milljarða kr.
kostnað við að koma bundnu slitlagi
á vegina til Ísafjarðar og Patreks-
fjarðar. Einn milljarður myndi því
hafa töluvert að segja fyrir svæðið.
Mikil viðbót fyrir
Byggðastofnun
Ekki liggur fyrir hvernig Byggða-
stofnun mun ráðstafa þeim 700 millj-
ónum króna sem verja á til sérstaks
atvinnuþróunarátaks. Að sögn Aðal-
steins Þorsteinssonar, forstjóra
Byggðastofnunar, er af nægum
verkefnum að taka og erfitt að nefna
eitt frekar öðru sem brýnt sé að ráð-
ast í. Unnið verði að málinu með
stjórn Byggðastofnunar og iðnaðar-
ráðuneytinu á næstunni en væntan-
lega verði haft að leiðarljósi að dreifa
verkefnunum sem mest um landið.
Aðalsteinn segist aðspurður ekki
hafa vitað af ákvörðun ríkisstjórnar-
innar fyrr en hún var tilkynnt sl.
þriðjudag.
Til marks um hve þetta er mikil
viðbót fyrir Byggðastofnun þá námu
framlög til atvinnuþróunarfélaga í
landinu rúmum 100 milljónum króna
á síðasta ári og útlán stofnunarinnar
á þessu ári verða um 2,8 milljarðar
króna. Aðalsteinn segir að líklega
verði 700 milljónunum ráðstafað í
samráði við atvinnuþróunarfélögin.
Fé til atvinnusköpun-
ar dreifist um landið
! "
#
$!% &
'
!
$
(
)
'
&
')
*
+
'
%
) %
!
) %
(
'
)
$!
,%
-
.
!
" !
#
&)
/
0
()1
'
,
2%
'"#
1
3 2
" #
3 2
" $
02 ,
)
'
$
'
!
')
2%
!
%'4&
% ! "
."
0
%
&
"
Morgunblaðið/Arnheiður
Starfsmenn Fyllingar ehf. á Hólmavík í vegaframkvæmdum á Ströndum.
Flestar vega-
framkvæmdir án
umhverfismats
BÆJARSTJÓRAR Grindavíkur og
Ölfuss lýsa yfir mikilli ánægju með
þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
verja 500 milljónum króna í Suður-
strandarveg, sem hefur verið í und-
irbúningi síðustu misseri milli Þor-
lákshafnar og Grindavíkur. Um er
að ræða tæplega 60 km langan veg
sem leggja þarf frá grunni. Vinna
við matsskýrslu vegna umhverfis-
áhrifa er á lokastigi, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins. Áætl-
aður kostnaður við veginn hefur
verið 800–1.200 milljónir króna, eft-
ir því hvernig vegarstæðið liggur.
Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í
Grindavík, segir ákvörðun rík-
isstjórnarinnar vera mikið fagn-
aðarefni og 500 milljónirnar muni
koma verkinu vel á veg. Suður-
strandarvegur hafi verið mikið bar-
áttumál Grindvíkinga, Ölfusbúa og
Sunnlendinga allra.
„Við teljum þetta vera mikið
hagsmunamál fyrir Sunnlendinga
og Suðurnesjamenn,“ segir Ólafur
Örn en hann átti ásamt fleiri sveit-
arstjórnarmönnum úr Grindavík,
Ölfusi, Árborg og Hveragerði fund
með samgönguráðherra í síðustu
viku þar sem Suðurstrandarvegur
var helsta umræðuefnið.
Í rökstuðningi til ráðherra er
$!%
&
!
" . "#
$
500 milljónum í Suð-
urstrandarveg fagnað
BÆJARSTJÓRARNIR á Ak-
ureyri og Vestmannaeyjum,
Kristján Þór Júlíusson og Ingi
Sigurðsson fagna því mjög að
ríkisstjórnin hafi staðfest að
leggja einn milljarð til bygg-
inga menningarhúsa í þessum
byggðarlögum.
„Ég er mjög ánægður með að
þessi niðurstaða liggur nú fyrir
og að ákveðið hefur verið að
leggja þetta fé til verkefnisins.
Ég er mjög sáttur,“ sagði
Kristján Þór, en fyrsti fundur
fulltrúa bæjarins og mennta-
málaráðuneytis um málið verð-
ur haldinn í dag, fimmtudag.
Bandaríska ráðgjafarfyrir-
tækið Artec skilaði skýrslu um
menningarhús á Akureyri síð-
astliðið sumar. Í henni er lagt
til að í húsinu verði tónlistar-
skóli, tónleikasalur fyrir allt að
700 manns og leikhús sem tæki
um 350 manns í sæti. Kristján
Þór sagði að þótt þessi skýrsla
væri til kæmi í ljós hvaða hug-
myndir úr henni yrðu notaðar.
„Við sníðum okkur stakk eftir
vexti,“ sagði hann. Nú þyrftu
menn að einhenda sér í að koma
málinu í formlegan farveg.
Hvað staðsetningu varðar
koma einkum tveir staðir til
greina, á háskólasvæðinu á Sól-
borg eða á uppfyllingu við
Strandgötu.
Tillögur heimamanna
liggi fyrir í vor
Ingi Sigurðsson, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum, sagði Eyja-
menn fagna því að ákveðið hefði
verið að leggja fjármuni í
menningarhús í Eyjum. Fyrir
fáum árum var gerð tillaga að
menningarhúsi í hrauninu, „það
var stór og mikil hugmynd og
við erum í raun enn spennt fyrir
henni, en ekki nákvæmlega í
þeirri mynd sem hún var sett
fram í á þeim tíma,“ sagði Ingi.
Þannig hafi samkvæmt tillög-
unni verið gert ráð fyrir stórum
sal í húsinu, en síðan hafi risið
gott ráðstefnuhús í Eyjum.
Ingi sagði að menn biðu nú
eftir að ráðuneytið setti sig í
samband við heimamenn til að
fara yfir hugmyndir og út-
færslur, en ætlunin væri að nú
næsta vor yrði búið að vinna
hugmyndir að húsi. Til greina
kæmi að endurgera eldra hús
og bæta við nýbyggingu eða
byggja nýtt hús. Hugmyndin
væri að í menningarhúsinu
væntanlega yrði gosminjasafn,
náttúrugripa- og fiskasafn sem
og sýning um Tyrkjaránið auk
þess sem þar yrði einnig salur
t.d. fyrir tónleika og leiksýning-
ar.
Bæjarstjórar
á Akureyri og í
Vestmannaeyjum
Fagna fjár-
munum til
byggingar
menningar-
húsa