Morgunblaðið - 13.02.2003, Blaðsíða 7
bent á mikilvægi vegarins fyrir fisk-
flutninga milli svæða, ferðaþjón-
ustuna og umferðaröryggi milli
landshluta. Þá er mikið öryggi talið
vera í Suðurstrandarvegi, t.d. ef
Reykjanesbraut lokaðist eða ófærð
yrði um Hellisheiði og Þrengsli.
Ólafur Örn segir að á þessum
fundi hafi engin skilaboð komið frá
samgönguráðherra um að vegurinn
væri kominn á kortið. „Við viljum
því meina að fundurinn hafi skilað
góðum árangri. Þegar menn hafa
skoðað rökin sjá þeir að það er vel
þess virði að ráðast í gerð vegarins.
Við fögnum því líka að ríkisstjórnin
hafi með þessu viljað efla atvinnulíf
á svæðinu,“ segir Ólafur Örn.
Nafni hans og starfsbróðir í Ölf-
usi, Ólafur Áki Ragnarsson, fagnar
því sömuleiðis að ráðast eigi í gerð
Suðurstrandarvegar.
Ný aðkoma að Þorlákshöfn
Framkvæmdin sé ekki síst mik-
ilvæg fyrir Þorlákshafnarbúa þar
sem ný innkeyrsla í bæinn fylgi veg-
inum.
„Það hefði staðið okkar byggð-
arlagi töluvert fyrir þrifum hefði
þessi ákvörðun ekki komið núna.
Okkar aðalskipulag hefur byggt á
Suðurstrandarveginum því við ger-
um ráð fyrir nýjum miðbæjarkjarna
í tengslum við nýju innkeyrsluna.
Vegurinn hefur einnig mikla þýð-
ingu fyrir Grindavík og Árborg-
arsvæðið,“ sagði Ólafur.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 7
www.urvalutsyn.is
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt.
Úrval-Úts‡n
Rau›ar fer›ir
Aukinn afsláttur ef bóka›
er fyrir 20. mars.
Aldrei h
agstæ›a
ra a›
fer›ast
til sólar
landa!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
02
34
02
/2
00
3
Hjón
- afsláttur 18.000 kr.
4ra manna fjölskylda
- afsláttur 36.000 kr.
6 manna fjölskylda
- afsláttur 54.000 kr.
Taktu ákvör›un
strax!!
Rau›ar afsláttarfer›ir
eru a› seljast upp.
Á FUNDI skipulags- og byggingar-
nefndar Reykjavíkur í gær lögðu
fulltrúar Reykjavíkurlistans fram
fyrirspurn um hvort og þá hvernig
unnt væri að flýta vegaframkvæmd-
um í Reykjavík, í tilefni af tillögum
ríkisstjórnarinnar um sérstakar að-
gerðir til atvinnusköpunar. Var óskað
eftir upplýsingum um stöðu skipu-
lagsvinnu vegna mislægra gatnamóta
Miklubrautar og Kringlumýrarbraut-
ar en fyrirhugað er að á fundi borg-
arráðs í næstu viku verði lögð fram
áætlun um flýtingu framkvæmda.
Í fyrirspurn frá fulltrúum R-listans
sagði meðal annars:
„Í tillögum ríkisstjórnarinnar frá í
gær [þriðjudag] um sértækar aðgerð-
ir til atvinnusköpunar er gert ráð fyr-
ir að einum milljarði króna verði, auk
þegar ákveðinna heimilda, varið til
verkframkvæmda á höfuðborgar-
svæðinu á næstu 18 mánuðum. Kom
fram í máli oddvita stjórnarflokkanna
að mestur vilji stæði til að verja þeirri
upphæð til framkvæmda á umrædd-
um gatnamótum sem eru einhver þau
fjölförnustu á landinu og mikil slysa-
gildra eins og þekkt er. Hins vegar
hamlaði vinna vegna skipulags- og
umhverfismála því eins og fram kom í
máli þeirra. Af þeim sökum er spurt
hvort unnt sé og þá hvernig að flýta
þessari vinnu borgarbúum og lands-
mönnum til heilla.“
Ólafur F. Magnússon, áheyrnar-
fulltrúi F-lista í nefndinni, lagði fram
bókun þar sem hann óskaði þess að
gerð yrði framkvæmda- og kostnað-
aráætlun sem gerði ráð fyrir nægi-
legri „umferðarrýmd“ til framtíðar á
Miklubraut frá Kringlumýrarbraut
að Bústaðavegi. Aðeins hefði verið
gert ráð fyrir tveimur akreinum í
hvora átt á þessum hluta Miklubraut-
ar og vafasamt að það gæti tryggt
nægilega „umferðarrýmd“.
Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks í
skipulags- og byggingarnefnd lýsa
þeir yfir ánægju með að fulltrúar R-
listans hafi áttað sig á mikilvægi mis-
lægra gatnamóta við Miklubraut og
Kringlumýrarbraut. „Þekkt er að nú-
verandi meirihluti tók þessi gatnamót
út af aðalskipulagi þvert á stefnu
sjálfstæðismanna og frestaði þar af
leiðandi framkvæmdum um mörg ár,“
segir í bókuninni.
Skipulags- og byggingarnefnd
Kanna hvernig
flýta má fram-
kvæmdum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferðarþungi er mikill á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.
KOSTNAÐUR við gerð jarðganga undir Almannaskarð er áætlaður
um 700 milljónir króna, að mati Vegagerðarinnar, en hluti aðgerða
ríkisstjórnarinnar var að verja 500 milljónum króna á næstu 18 mán-
uðum til þessarar jarðgangagerðar.
Að sögn Helga Hallgrímssonar vegamálastjóra stendur til að bjóða
göngin út næsta haust, að undangenginni rannsóknar- og undirbún-
ingsvinnu sem hægt sé að byrja strax á. Ekki er þörf á mati á um-
hverfisáhrifum, en göngin eru aðeins rúmur kílómetri á lengd. Ráð-
ast þarf í nokkrar vegaframkvæmdir Hornafjarðarmegin við skarðið.
Gangagerð undir Almanna-
skarð boðin út í haust
SAMFYLKINGIN nýtur stuðnings
37,7% kjósenda samkvæmt könnun
sem Rannsóknarsvið IBM við-
skiptaráðgjafar gerði fyrir morg-
unþáttinn Ísland í bítið á Stöð 2.
Fylgi Sjálfstæðisflokks mældist
36,6%, fylgi Framsóknarflokks
13,3%, fylgi Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs mældist 6,9% og
Frjálslynda flokksins 1,4%.
Þeir sem tóku þátt í könnuninni
voru spurðir hvern þeir vildu helst
sjá sem forsætisráðherra að lokn-
um kosningunum í maí og sögðust
flestir, eða 46,9%, vilja Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur en 39,1% vildi
sjá Davíð Oddsson. 5,2% Halldór
Ásgrímsson og 2,9% Steingrím J.
Sigfússon.
Þá sögðust flestir, eða 47,8%,
telja að Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur yrðu áfram við
stjórn eftir kosningarnar en 14,9%
töldu að mynduð yrði samsteypu-
stjórn Samfylkingar og Framsókn-
arflokks. 7,6% höfðu trú á að Sam-
fylkingin myndi ein verða í
ríkisstjórn.
Í könnuninni, sem var gerð sím-
leiðis, tóku þátt 834 einstaklingar á
aldrinum 16–67 ára á landinu öllu.
Þegar spurt var um fylgi við flokka
tók 361 afstöðu. Könnunin fór fram
7.–10. febrúar og var úrtakið lag-
skipt slembiúrtak byggt á kvóta-
hlutföllum úr þýði.
Ísland í bítið lætur kanna fylgi þingflokkanna
Flestir vilja Ingibjörgu Sól-
rúnu sem forsætisráðherra