Morgunblaðið - 13.02.2003, Qupperneq 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KÍNAKJÓLL 8990
BLÚNDUKJÓLL 9.990
BUXUR 4.990
SKÓR 5.990
KÍNAKJÓLL 8.990
(LITIR: RAUÐUR, BLÁR, SVARTUR, LJÓSGRÁR, GRÆNBLÁR)
BUXUR 4.990 (LITIR: HVÍTT, BEINHVÍTT)
SKÓR 5.990 (LITIR: HVÍTIR, SVARTIR, BEINHVÍTTIR)
Ferming...
H
á
rg
re
ið
s
la
:
P
ri
m
a
d
o
n
n
a
/E
rl
a
,
M
a
ja
,
B
e
g
g
a
,
Á
s
ta
Meiriháttar fermingarfatnaður
FLAUELSBUXUR 7.990, (LITIR: SVART, RAUTT, BEINHVÍTT)
FLAUELSJAKKI 9.990 (LITIR: SVART, RAUTT, BEINHVÍTT)
BOLUR 3.990 (MARGIR LITIR)
SKÓR 5.990 (LITIR: HVÍTIR, SVARTIR, BEINHVÍTTIR)
Opnum eftir
1 dag
Einingar-Iðjufélagar
athugið!
Orlofsferðir félagsins
sumarið 20
Þýskaland-Frakkland-Luxembourg-Holland-Belgía
Dagana 1. til 13. júní verður haldið
til Beneluxlandanna svonefndu
og helstu nágranna, ef næg þátttaka fæst.
Hámarksfjöldi er 54 manns.
Verð kr. 107.500 á mann
miðað við gengi 23. október 2002.
Óbyggðir Vestfjarða
Fjögurra daga síðsumarferð verður farin til Ísafjarðar,
Hornvíkur, Hesteyrar og Grunnavíkur 12. til 15. ágúst.
Verð kr. 19.000 á mann.
Nánari upplýsingar og skráning í ferðirnar
er á skrifstofu félagsins á Akureyri, sími 460 3600.
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
Guðmundur J. Guðmundsson
sagnfræðingur flytur fyrirlestur á
vegum kennaradeildar Háskólans á
Akureyri í dag, fimmtudaginn 13.
febrúar, kl. 16.15 í stofu 16 í Þing-
vallastræti 23. Fyrirlesturinn nefnist
Grænlandsverslunin á miðöldum
fram til 1400. Þar ræðir Guð-
mundur um Grænlandsverslunina,
einkum á 13. og 14. öld, og rekur
breytingar á skipakosti, flutnings-
leiðum og útflutningsvörum svo eitt-
hvað sé nefnt. Einnig er útflutnings-
vörum Grænlendinga fylgt eftir að
þeim hefur verið umskipað í Noregi
og athugað til hvers þær voru not-
aðar og dregnar eru fram vísbend-
ingar um að Grænlendingar hafi
verkað skreið eftir 1300 og hún hafi
orðið ein af útflutningsvörum þeirra.
Í DAG
DYRAVERÐIR á veitingastöðum,
alls um 30 manns, luku fimm
kvölda námskeiði á Akureyri í
vikunni en um er að ræða sam-
starfsverkefni Einingar–Iðju og
lögreglunnar. Að sögn Þorsteins
Péturssonar lögreglumanns var
farið yfir lög og reglur, samskipti
dyravarða og lögreglu, borg-
aralega handtöku, skoðun skil-
ríkja, réttindi og skyldur, trygg-
ingar í starfi, slysahjálp,
brunavarnir, fræðslu um fíkniefni
auk verklegra æfinga í handtöku.
Þorsteinn sagði það stefnu
þeirra aðila sem að námskeiðinu
stóðu, að ekki starfi aðrir við
dyravörslu en þeir sem hafi farið
á slíkt námskeið. Hann sagði að
vegna hins mikla áhuga yrði boð-
ið upp á annað námskeið fljótlega.
Morgunblaðið/Kristján
Jón Knutsen, varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar, heldur fyrirlestur um skyndihjálp á námskeiði dyravarða.
Dyraverðir veitingastaða á skólabekk
VINNA við athugun á möguleikum
til þéttingar byggðar á Akureyri
hefur verið í gangi. Bjarni Reykja-
lín skipulags- og byggingafulltrúi
Akureyrarbæjar sagði að unnið
hefði verið að því að skoða auð
svæði í bænum. Ekki kæmu þó öll
svæði til greina í þessu sambandi,
þar sem halda þyrfti eftir einhverj-
um grænum svæðum.
„Við erum nú að skoða þann
möguleika að skipuleggja lóðir
undir 3–4 bjálkahús milli Einholts
og Hlíðarbrautar, á svæði neðan
við Shellnesti. Bjálkahúsin hafa
hvergi passað inn í hjá okkur við
skipulag eldri hverfa, þannig að
það var ákveðið að gera tilraun
þarna og við erum einmitt nú að
kynna fyrstu hugmyndir um skipu-
lag svæðsins. Þá var okkar falið að
forgangsraða þeim svæðum sem
þykja fýsileg undir íbúðabyggð.
Við teljum það þó ekki fyrirhafn-
arinnar virði að taka eina og eina
lóð undir.“
Bjarni sagði að hugmyndir um
þéttingu byggðar gætu rekist á
hugmyndir íþrótta- og tómstunda-
ráðs um boltavelli og græn svæði.
Málið yrði því að skoða í samráði
við ÍTA.
Hugmyndir um einbýlis-
húsalóðir við Einholt
Möguleikar á þéttingu byggðar til skoðunar
SÉRSTAKAR undanþágur sem gilt
hafa á Akureyri um útivistartíma 13
til 15 ára eru nú fallnar úr gildi. Af
því tilefni hafa lögreglan og
forvarnarfulltrúi bæjarins tekið
höndum saman í kynningarátaki á
reglum um útivistartíma og dreifa á
næstunni póstkortum með hinum
nýju reglum til allra nemenda í
grunnskólum á Akureyri að því er
fram kemur í frétt frá Akureyrarbæ.
Lögregla og foreldrar í hinu
svokallaða foreldrarölti munu
einnig efna til átaks í því skyni að
tryggja að reglunum sé fylgt eftir.
Bryndís Arnarsdóttir, forvarnar-
fulltrúi Akureyrarbæjar, leggur
áherslu á að foreldrar axli ábyrgð
sína og bendir á að besta forvörnin
sé að lög um útivistartíma séu virt.
Breytingar
á útivistar-
tíma
MÁLÞING um safnamál verður
haldið í Laugarborg í Eyjafjarðar-
sveit á morgun, föstudaginn 14. febr-
úar, og hefst það kl. 13.30.
Jón Jónsson flytur erindi um safn-
amál í Eyjafirði, Guðrún María
Kristinsdóttir fjallar um tilgang
safna og brýnustu verkefni á þeim
vettvangi í Eyjafirði, Guðrún Helga-
dóttir heldur erindi um átthagafræði
með sérstakri áherslu á söfn og
ferðaþjónustu og þá verða almennar
umræður um safnamál í Eyjafirði og
áherslur á næstu misserum. Fund-
urinn er öllum opinn.
Málþing um
safnamál
♦ ♦ ♦
Nýr listi
www.freemans.is