Morgunblaðið - 13.02.2003, Side 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 37
AÐALFUNDUR Samtaka um
krabbameinsrannsóknir á Íslandi
var haldinn í byrjun febrúar, en
samtökin voru stofnuð fyrir átta
árum. Þau hafa frá upphafi notið
velvildar GlaxoSmithKline og
Pharmacia/PharmaNor, en fyr-
irtækin hafa lagt fram fjármagn
til samtakanna til þess að veita
ferðastyrki til vísindamanna sem
starfa við krabbameinsrannsóknir
hér á landi. Styrkirnir eru ætl-
aðir til þess að íslenskir vís-
indamenn geti kynnt rannsókn-
arniðurstöður sínar erlendis eða
farið í námsferðir til þess að læra
og flytja inn nýjar rannsókn-
araðferðir, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á aðalfundinum afhentu Svava
Guðmundsdóttir frá Pharmacia/
PharmaNor og Sveinn Skúlason
frá GlaxoSmithKline fimm ferða-
styrki fyrir árið 2002. Styrkþeg-
arnir eru: Chen Huiping læknir,
Evgenía Mikaelsdóttir líffræð-
ingur, Hrefna Jóhannesdóttir líf-
fræðingur, Sigurdís Haraldsdóttir
læknanemi og Þórgunnur Eyfjörð
Pétursdóttir líffræðingur.
Laufey Ámundadóttir, gjaldkeri Samtaka um krabbameinsrannsóknir á Ís-
landi, Svava Guðmundsdóttir, frá Pharmacia/PharmaNor, Hrefna Jóhann-
esdóttir, Þórgunnur Eyfjörð Pétursdóttir, Sveinn Skúlason frá Glaxo-
SmithKline, Sigurdís Haraldsdóttir og Laufey Tryggvadóttir, formaður
Samtaka um krabbameinsrannsóknir á Íslandi. Á myndina vantar Chen
Huiping og Evgeníu Mikaelsdóttur.
Lyfjafyrirtæki styðja
krabbameinsrannsóknir
Samtökin Styrkur – úr hlekkjum
til frelsis halda fund í dag, fimmtu-
daginn 13. febrúar, kl. 20.30 í í Safn-
aðarheimili Háteigskirkju. Anna
Valdimarsdóttir sálfræðingur verð-
ur með fræðsluerindi og Áslaug Ein-
arsdóttir kynnir niðurstöður úr
rannsókn sinni um heimilisofbeldi.
Heimasíða samtakanna er: http://
www.styrkur.net.
Stuðningsmenn Róger Calero, að-
stoðarritstjóra mánaðarblaðsins
Perspectiva Mundial og blaðamanns
við fréttablaðið The Militant, standa
fyrir opinberum fundi í Pathfinder
bóksölunni, Skólavörðustíg 6b (bak-
við) í Reykjavík, í dag, fimmtudag-
inn 13. febrúar, kl. 20. Calero sem er
fæddur í Nicaragua, á á hættu að
vera vísað frá Bandaríkjunum.
Lawrence Mikesh, fulltrúi varn-
arnefndar fyrir Róger Calero, er
staddur á Íslandi og mun fjalla um
málið.
Er þörf á samkeppni í mennta-
málum? Samband ungra framsókn-
armanna heldur málþing um sam-
keppnisstöðu háskólanna, LÍN og
framtíðarsýn í menntamálum í dag,
fimmtudaginn 13. febrúar, kl. 20 á
Hverfisgötu 33, Reykjavík. Fram-
sögumenn verða: Hjálmar Árnason
alþingismaður, Ármann Höskulds-
son, þjóðlífsfulltrúi í háskólaráði Há-
skóla Íslands, Runólfur Ágústsson,
rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst,
Sæunn Stefánsdóttir, háskólanemi
og frambjóðandi Framsóknarflokks-
ins. Pallborð að loknum framsögum.
Fundarstjóri er Dagný Jónsdóttir,
formaður SUF. Allir eru velkomnir.
Friðarsinnar efna til frið-
samlegrar göngu á Lækjartorgi
um kl. 19 í kvöld, fimmtudaginn 13.
febrúar, til að styðja tillögu sem
Frakkar og Þjóðverjar hafa lagt
fram til að afstýra Íraksstríði og
hafa bæði Rússar og Kínverjar sam-
þykkt þær.
Í DAG
Rangt nafn
Nafn Hallbjörns V. Rúnarssonar,
varabæjarfulltrúa í Sandgerði, var
rangt í frétt á blaðsíðu 20 í blaðinu í
gær. Um leið og nafn hans er leiðrétt
er beðist velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Eau de toilette. Ferskur austurlenskur ilmur
Body mist. Ferskleiki skógarins
Bath and body oil. Dularfullur, heitur ilmur
Body lotion. Viðarilmur
Kertið. Kryddaður ilmur
HIMNESK UPPLIFUN
Ilmirnir frá cacharel
hitta beint í hjartastað
Falleg hjörtu með
ilmpúðri fylgja með
NOA,
Gloria og
Anais Anais
50 ml glösum í tilefni
VALENTÍNUSARDAGSINS
FIMMTUDAGSTILBOÐ
Suðurlandsbraut
Sími 533 3109
Opið
mán.-fös. kl. 12-18
laugardaga kl. 10-16
Verð áður 3.995
Verð nú 2.495
Strigaskór
Black Street
3litir
Str. 28-41
Full búð af nýjum vörum
Ásendi - vandað hús
Erum með í einkasölu ákaflega
vandað og fallegt einbýlishús á
einni hæð u.þ.b. 150 fm og að
auki ca 20 fm garðskáli auk 30 fm
bílskúrs. Húsið er mjög vel
skipulagt m.a. með fjórum
herbergjum, stóru eldhúsi, góðum stofum o.fl. Flísalagður garðskáli með
heitum potti. Eigninni hefur verið haldið mjög vel við. Endurnýjað eldhús
og baðherbergi. Eignin afh. e. 2-3 mánuði. V. 23,5 m. 2843
Orð á hreyfingu. Samtökin ’78
bjóða upp á hádegisfyrirlestur í sam-
vinnu við félagsvísindadeild Háskól-
ans, Mannréttindaskrifstofu Íslands
og Félag samkynhneigðra og tvíkyn-
hneigðra stúdenta, FSS, á morgun,
föstudaginn 14. febrúar, kl. 12 í stofu
101 í Odda Háskóla Íslands. Þóra
Björk Hjartardóttir málfræðingur
flytur fyrirlestur sem hún nefnir Orð
á hreyfingu. Orð og orðanotkun
tengd samkynhneigð. Fjallar hún
m.a. um orð á viðkvæmum eða bann-
helgum sviðum, þau viðbrögð sem
notkun þeirra vekur og ástæður
þess. Að fyrirlestrinum loknum
gefst áheyrendum kostur á að bera
fram spurningar og taka þátt í stutt-
um umræðum.
Nautnablót í Hótel Glym í Hval-
firði verður á morgun, föstudaginn
14. febrúar, í tilefni af valentínus-
ardeginum. Á boðstólum verður
kvöldverðarhlaðborð, sýning á ljós-
myndum Pálma Einarssonar, lista-
konan Kjuregej Alexandra Arg-
unova frá Jakútíu flytur ástaróða frá
landi sínu og kvæðamennirnir Grét-
ar Þórisson og Pétur Björnsson
koma á blótið auk sagnaþula, sem
segja „öðruvísi“ ástarsögur. Nautna-
blótið hefst kl. 19 og er verð kr.
4.900. Tilboð verður á gistingu þessa
nótt, kr. 5.000 á mann og innifalið er
morgunverðarhlaðborð. Sjá nánar
heimasíðu www.hotelglymur.is.
Á MORGUN
BANDALAG ÍSLENSKRA LEIKFÉLAGA
Vantar þig gervi
fyrir grímuballið?
Hárkollur • Trúðanef • Gervinef • Tannlakk
Gerviskegg • Gerviaugnhár • Lithársprey
Leikhúsfarði • Gervitennur • Gervieyru
Gerviskallar • Gerviblóð • Gervihor
Sendum í póstkröfu!
Laugavegi 96 • www.leiklist.is • 551 6974