Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 38
DAGBÓK
38 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Hali-
fax, Mánafoss og Sylvia
koma í dag. Dettifoss
fer í dag.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 9–12.30 bókband og
öskjugerð, kl. 9.45–10
helgistund, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13–16.30 opin smíða-
og handavinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13 bók-
band, kl. 14–15 dans.
Helgistund á morgun
kl. 10.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga.
Fimmtudagur: kl. 13
tréskurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15–16 bóka-
spjall, kl. 17–19 æfing
kórs eldri borgara í
Damos.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13
verslunin opin, kl. 13–
16 spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 hárgreiðsla
og opin handa-
vinnustofa, kl. 9.30
danskennsla, kl. 14
söngstund.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
kl. 13.30 söngtími, kl.
15.15 dans, kl. 9–14 hár-
greiðsla.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 10 hárgreiðsla, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 11 búta-
saumur, kl. 13 málun,
bútasaumur og leikfimi
karla, kl. 19.30 fé-
lagsvist á Álftanesi.
Rútuferðir samkvæmt
venju.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt kl.
10, glerlist kl. 13, bingó
kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13,
framsögn kl. 16.15,
bridsnámskeið kl.
19.30. S. 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, frá
hádegi vinnustofur og
spilasalur opinn S.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.05 og 9.50 leik-
fimi, kl. 10.50 leikfimi,
kl. 9.30 klippimyndir,
kl. 12.30 vefnaður, kl. 13
gler- og postulíns-
málun, kl. 17 myndlist,
kl. 20 gömlu dansarnir,
kl. 21 línudans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 13
brids.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og perlu-
saumur, og hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10 boccia, kl. 11
leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
bútasaumur, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerðir,
hárgreiðsla.
Korpúlfar Grafarvogi,
samtök eldri borgara,
hittast á fimmtudögum
kl. 10. Aðra hverja viku
er púttað á Korpúlfs-
stöðum en hina vikuna
er keila í Keilu í Mjódd.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10–11
boccia, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræfing
og mósaík.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð og boccia-
æfing, kl. 13 hand-
mennt og spilað.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11. Skemmtifundur
verður haldinn laug-
ardaginn 15. febrúar kl.
14 á Vesturgötu 7. Birg-
ir Þórarinsson flytur
hugvekju og gamanmál,
samleikur ungra barna
á píanó og fiðlur, stjórn-
andi Guðrún Ásbjörns-
dóttir, almennur söng-
ur og dans, undirleikari
Þorvaldur Jónsson.
Kaffiveitingar, allir vel-
komnir.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl.
19.30 félagsvist.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Biblíulestur kl.
17 í umsjá Skúla Svav-
arssonar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13. Skráning
kl. 12.45, spil hefst kl.
13.
Í dag er fimmtudagur 13. febr-
úar, 44. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Skylt er oss,
hinum styrku, að bera veikleika
hinna óstyrku og hugsa ekki
um sjálfa oss.
(Róm. 15, 1.)
Öflugir og góðir stjórn-málamenn stjórna
ekki eftir skoðanakönn-
unum og almenningsáliti
frá degi til dags. Menn
sem búa yfir stjórnvisku,
hvort sem það er á vett-
vangi stjórnmála eða at-
vinnulífs, hafa hæfileika
til að sjá samhengi at-
burða langt fram í tím-
ann. Annars komast þeir
ekki í fremstu röð. Lýð-
skrumið hefur aldrei lif-
að eða leitt neina þjóð.
Það er athyglisverthvernig Tony Blair,
forsætisráðherra Bret-
lands, hefur tekið á
Íraksdeilunni heima fyr-
ir. Þrátt fyrir að almenn-
ingsálitið hafi snúist
gegn honumhefur hann
eindregið stutt áform
Bandaríkjamanna um að
koma Saddam Hussein
Íraksforseta frá völdum
og stöðva framleiðslu
gjöreyðingarvopna. Blair
hefur talað fyrir því á
vettvangi Sameinuðu
þjóðanna og NATO.
Minnisstætt er hvernigMargrét Thatcher
og Ronald Reagan komu
fram sem eitt þegar bar-
ist var við kommúnistana
í Kreml. Birtingarform
baráttunnar nú er með
öðrum hætti en minnir
samt á samstöðu þessara
ríkja á níunda áratugn-
um. Virðist engu máli
skipta þótt Verka-
mannaflokkurinn fari nú
með stjórn í Bretlandi og
Repúblikanar í Banda-
ríkjunum.
Stuðningsmenn Sam-fylkingarinnar hafa
frá upphafi samsamað
sig Tony Blair og skrifað
greinar honum til dýrð-
ar. Var gengið svo langt
að lýsa sigri Blairs í þing-
kosningunum 1997 sem
sigri vinstri manna í Evr-
ópu og skáluðu Össur
Skarphéðinsson og Mörð-
ur Árnason í kampavíni á
baksíðumynd DV.
Rökrétt er því að ályktaað farsæll forsætis-
ráðherra Breta höfði
ennþá til stuðnings-
manna Samfylking-
arinnar og þeir styðji
stefnu hans varðandi
málefni Írak. Samfylk-
ingarfólk ætti samkvæmt
því að flykkja sér að baki
stefnu Blairs og Halldór
Ásgrímssonar sem vilja
virkja varnarákvæði
NATO til handa Tyrkjum
vegna hættu á átökum
við Íraka.
Málflutningur ráða-manna Frakklands,
Þýskalands og Belgíu,
sem eru þau NATO-ríki
sem eru þessu andsnúin,
er í takt við það sem
meirihluti almennings
vill heyra. Hins vegar er
mikilvægt að stjórn-
málamenn horfi á sam-
hengi hlutanna lengra
fram í tímann og leiði
þjóðir sínar áfram með
farsælum ákvörðunum.
Það gerir þá að öflugum
pólitíkusum sem munað
er eftir. Reynist þær
ákvarðanir rangar er
einfaldlega skipt um
valdhafa.
STAKSTEINAR
Framtíðarsýn og farsæl-
ar ákvarðanir
Víkverji skrifar...
FYRIR nokkrum vikum fékk Vík-verji þá flugu í höfuðið að það
væri sniðugt að selja íbúðina sína og
kaupa nýja, stærri og flottari. Hann
hætti reyndar við eftir skamma leit
en meðan á henni stóð rakst hann á
nokkur athyglisverð dæmi um orða-
notkun í fasteignaauglýsingum. Í
einni slíkri var tíundað að með íbúð-
inni fylgdi „sérstæður bílskúr“. Vík-
verji hélt í fyrstu að þetta væri sér-
kennilegur bílskúr og var satt að
segja bara nokkuð spenntur fyrir því
að eignast svoleiðis skúr. Þegar bet-
ur var að gáð kom í ljós að bílskúrinn
var ósköp venjulegur en þar sem
hann stóð úti á lóð en var ekki hluti
af blokkinni var hann talinn „sér-
stæður“. Fasteignasala í Reykjavík
auglýsti að hún væri „með íbúðir í
sölumeðferð“ sem þýddi væntanlega
að íbúðirnar voru til sölu, ekki að
það hafi gengið svo illa að selja þær
að það hafi þurft að senda þær í sér-
staka „sölumeðferð“ til að gera þær
eftirsóknarverðari. Eitt athygl-
isverðasta dæmið var þó þegar ris-
íbúð í miðbænum var auglýst sem
„penthouse“. Samkvæmt orðabók
Websters þýðir „penthouse“ íbúð á
þaki stórhýsis, þakíbúð, sem er alls
ekki það sama og risíbúð. Enska
orðið fyrir risíbúð er „garrett“ en
það orð er auðvitað ekki nándar
nærri eins flott orð og „penthouse“.
x x x
ÞÆR eru fastur liður í tilverunni,vefsíðurnar sem birta ljós-
myndir af fólki á skemmtistöðum.
Við þessu er lítið hægt að segja, ekk-
ert í lögum bannar mönnum að taka
myndir á opinberum vettvangi og
birta þær. Þeir sem halda úti slíkum
síðum virðast þó ekki allir gera sér
grein fyrir að slíkar netsíður eru ein
tegund fjölmiðla. Þannig hneyksl-
uðust þeir sem halda úti vefsíðunni
djammari.is, sem inniheldur m.a.
myndir af skemmtanalífi Keflavík-
inga, á því að lögreglunni í bænum
skyldi detta í hug að skoða síðuna í
þeim tilgangi að kanna hvort ung-
lingar væru inni á vínveitingastöðum
þar sem þeir hafa ekki leyfi til að
vera. Einn aðstandandi síðunnar
sagði að lögregla hefði ekki leyfi til
að nota síðuna nema með skriflegu
leyfi og var síðunni lokað fyrir net-
þjónum lögreglunnar. Að mati Vík-
verja er rök þeirra sem standa að
síðunni hálfgrátbrosleg. Myndbirt-
ing á Netinu hlýtur að lúta sömu lög-
málum og í öðrum fjölmiðlum. Varla
er hægt að banna lögreglumönnum
að skoða sig um á Netinu frekar en
það er hægt að banna þeim að lesa
dagblöðin eða horfa á sjónvarpið
nema með skriflegu leyfi! Það má
síðan velta því fyrir sér hver ástæð-
an er fyrir þessari viðkvæmni? Hafa
veitingastaðirnir kannski eitthvað að
fela? Og óttast myndasmiðirnir þá
að þeir verði ekki eins velkomnir á
skemmtistöðunum í framtíðinni, ef
myndbirtingar verða til til þess að
hinir brotlegu skemmtistaðir fái
sektir fyrir að hleypa unglingum
inn? Það skyldi þó aldrei vera …
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Léleg þjónusta
EINN daginn ákvað ég að
fara að nota strætó í stað
bílsins. Þetta sparar mér
eyrinn og samræmist einn-
ig herferð sem var gerð um
árið og miðaði að því að fá
fleiri til þess að nota vagn-
inn. Ekki virðist veita af því
að fá fleiri viðskiptavini þar
sem nýbúið er að birta töl-
ur þess efnis að töluvert
vanti til að endar nái sam-
an.
Ég þarf að taka fyrstu
ferð frá Hlemmi kl. 6:48 og
upp í Ártún. Fyrir nokkr-
um vikum keyrði vagn á
þessari leið framhjá, svo ég
hringdi og kvartaði undan
því að ekki hefði verið
stöðvað. Ekki virðist þessi
kvörtun hafa haft mikil
áhrif, því í morgun (7.2.
2003) keyrði vagninn fram
hjá mér aftur þó að skýlið
sé vel upplýst og ég beri
endurskinsmerki. Þessi
ákveðni vagn var of seinn
af stað þennan morguninn
skv. minni klukku og ferð-
inni sem hann var á þegar
hann brunaði framhjá.
Það skiptir mörg okkar
sem tökum strætó miklu
máli að þótt bílstjórinn sé
seinn fyrir, að hann láti nú
ekki viðskiptavini sína
gjalda þess og vinni upp
tíma með því að sleppa
bara að stöðva fyrir þeim.
Þar sem þetta er fyrsta
ferð dagsins ætti ekki að
vera snúið að halda áætlun.
Þess skal getið að mikill
meirihluti bílstjóra hjá
SVR veitir góða þjónustu
og eiga þeir þakkir skildar
fyrir það en inni á milli eru
aðrir sem mættu gjarnan
vera í öðru en þjónustu-
starfi og beini ég orðum
mínum til þeirra.
Af þessari litlu frásögn
minni má eflaust sjá eina af
ástæðunum fyrir því að fólk
tekur ekki strætó og er
mjög auðvelt fyrir stjórn-
endur SVR að laga það.
Sáttur er ég við gjaldskrár-
hækkun hjá þessu þarfa
fyrirtæki ef þeir bara sæju
sér fært að taka mig með.
Kristinn Jónsson.
Dýragrafreitur
Í VELVAKANDA 10. febr-
úar sl. er kisumamma að
spyrjast fyrir um dýragraf-
reit. Dýraverndunarfélag
Reykjavíkur hefur reynt
árum saman að fá einhvern
skika í landi borgarinnar
fyrir gæludýragrafreit en
alltaf hefur eitthvað verið
því til fyrirstöðu.
Gefinn var ádráttur um
lóð í Grafarvogi en það varð
ekki. Sl. þrjú ár hefur fé-
lagið verið í óformlegum
viðræðum við skipulagsyf-
irvöld um þetta mál og nú
síðast fyrir jólin. Þá var
okkur sagt að til stæði að
úthluta einhverjum skika í
Álfsnesi eða einhvers stað-
ar á þeim slóðum, en það
ræðst af væntanlegu skipu-
lagi, sem ekki er vitað hve-
nær verður tilbúið.
Í viðræðum við fyrrver-
andi bæjarstjóra í Keflavík
kom fram að þar hefði verið
til athugunar svæði, nálægt
væntanlegri stækkun
kirkjugarðsins þar. En
þetta höfum við ekki fengið
staðfest. Og í Flekkudal í
Kjós mun einnig standa til
að gera gæludýragrafreit
fljótlega.
Við vonum bara að eitt-
hvað fari að ganga í þessu
máli. Hægt er að senda
dýraverndarfélaginu tölvu-
póst í dyravernd@dyra-
vernd.is
Sigríður Ásgeirsdóttir,
formaður Dýraverndun-
arfélags Reykjavíkur.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
NÚ þegar búið er að
hækka farþegagjöldin í
strætó þá vil ég benda á að
þeir sem að taka strætó
eru mestmegnis náms-
menn, krakkar og eldri
borgarar. Leiðréttið mig
ef það er vitlaust hjá mér
en eru þetta ekki þeir hóp-
ar sem eiga minnstan pen-
ing?
Hvað eru þeir hjá
strætófélaginu að hugsa?
Þótt það hafi verið tap hjá
þeim þá batnar það ekki
með því að hækka gjöldin,
ef ég mögulega kemst hjá
því þá mun ég sleppa því
að taka strætó. Og það
munu fleiri gera, sér-
staklega þeir sem eiga
ekki nein af þessum kort-
um eða strætómiðum.
Er allavega ekki hægt
að veita nemendum og
eldri borgurum afslátt?
Það getur vel verið að
eldri borgarar fái afslátt
nú þegar (hef ekki kynnt
mér það) en ég held að
nemendur séu mun fátæk-
ari en eldri borgarar!
Lækkið fargjaldið aftur
(allavega kortin).
Hundóánægður
strætófarþegi.
Hækkun hjá Strætó
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 kinnhestur, 8 hófdýr-
um, 9 káka, 10 gyðju-
heiti, 11 mastur, 13
skyldmennið, 15 karl-
fugl, 18 moð, 21 stormur,
22 kyrra, 23 vondum, 24
afgjald af jörð.
LÓÐRÉTT
2 styrk, 3 langloka, 4
minnast á, 5 fiskum, 6
eldstæðis, 7 fornafn, 12
háttur, 14 mólendis, 15
vers, 16 reika, 17 mein,
18 skæld, 19 kút, 20
lykta.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 skokk, 4 kennd, 7 riðan, 8 lúkan, 9 dæl, 11
korg, 13 enda, 14 ósinn, 15 hlóð, 17 nýta, 20 und, 22
ráman, 23 uxinn, 24 akrar, 25 lúnar.
Lóðrétt: 1 sprek, 2 orðar, 3 kind, 4 koll, 5 nakin, 6
dunda, 10 ærinn, 12 góð, 13 enn, 15 herfa, 16 ólmur, 18
ýtinn, 19 agnar, 20 unir, 21 dufl.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16