Morgunblaðið - 13.02.2003, Qupperneq 40
ÍÞRÓTTIR
40 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
virtist geta komið í veg fyrir sigur
Kópavogsliðsins. Framarar voru á
öðru máli, þeir tóku leikhlé, endur-
skipulögðu leik sinn og tóku m.a.
Garcia úr umferð í framhaldinu. Það
virkaði vel, bitið datt úr sókn HK-
liðsins og Fram gekk á lagið, skoraði
fimm mörk í röð og fór Hjálmar Vil-
hjálmsson mikinn á þessum kafla.
Eftir átta misheppnaðar sóknir í röð
tókst Má Þórarinssyni að binda enda
á þrautagöngu HK og jafna metin
þegar 50 sekúndur voru eftir af hefð-
bundnum leiktíma.
HK-liðið byrjaði betur í framleng-
ingunni og nýtti sér það vel að vera
með einum manni fleiri á leikvellin-
um eftir að Björgvin Þór Björgvins-
syni var vikið af velli í þriðja sinn
skömmu fyrir lok hefðbundins leik-
tíma. Heimamönnum tókst að kom-
ast í tveggja marka forystu, 31:29, en
Framliðið neitaði að gefast upp og
Héðinn Gilsson jafnaði metin fyrir
Fram, 34:34, í þann mund sem leik-
tíminn rann út í fyrri framlengingu.
Framliðið byrjaði síðari framleng-
inguna betur. Guðjón Drengsson og
Héðinn skoruðu sitt hvort markið og
Framarar voru sterkari í fyrrihálfleik en gekk illa að hrista
HK-menn af sér og nýta sér góða
markvörslu Sebastí-
ans Alexandersson-
ar. Bæði lið léku 5+1
vörn sem virkaði vel
hjá Fram-liðinu þar
til að Jaliesky Garcia flutti sig yfir á
hægri vænginn fékk hann að leika
lausum hala, skoraði 7 mörk í fyrri
hálfleik og átti auk þess fjórar línu-
sendingar, þrjár af þeim gáfu mörk.
Óskiljanlegt var að framliggjandi
varnarmaður Fram elti ekki Garcia
heldur hélt sig vinstra megin og
fylgdi Vilhelm Gauta Bergsveinssyni
eftir. Vörn HK gekk illa og Björgvin
Gústafsson náði sér ekki á strik í
markinu. Eftir rúmlega 20 mínútna
leik skipti hann við Arnar Frey
Reynisson og hafði sú skipting til-
ætluð áhrif því Arnar varði vel það
sem eftir lifði af þessum langa leik.
Fram var marki yfir í hálfleik, 16:15.
Snemma í síðari hálfleik náði HK
að hrifsa til sín frumkvæðið og eftir
rúmlega 18 mínútna leik var forysta
liðsins fjögur mörk, 28:24, og ekkert
tryggðu liðinu tveggja marka for-
skot. Á þessum kafla var Garcia far-
inn að haltra og útlitið ekki gott hjá
HK. En skjótt skipuðust veður í lofti,
Hjálmar var rekinn út af og Ólafur
Víðir minnkaði muninn í eitt mark úr
vítakasti, 36:35, Fram missti knött-
inn og Már jafnaði metin. Hjálmar
kom inn á en þá missti HK Atla Þór
Samúelsson út af í 2 mínútur. Það
nýttu Framarar sér og komust
marki yfir áður en flautað var til leik-
hlés í síðari framlengingu.
Einum færri voru HK-menn ekki
af baki dottnir. Ólafur Víðir jafnaði
metin, 37:37. Fram svaraði með
tveimur mörkum, 39:37, og rétt áður
en Hjálmar skoraði 39. markið var
Jóni Heiðari Gunnarssyni vísað af
leikvelli í liði HK. Fram tveimur
mörkum yfir, einum leikmanni fleiri
og tvær mínútur og tíu sekúndur eft-
ir. Einum leikmanni færri tókst HK
að minnka muninn, 39:38, með marki
frá Garcia sem hafði brugðið sér inn
á línuna. Misheppnuð sending á Guð-
jón Finn gaf HK kost á hraðaupp-
hlaupi sem Samúel Árnason skoraði
úr og jafnaði, 39:39, þegar 1,05 mín-
útur voru eftir. Fram hóf sókn sem
endaði hálfri mínútu síðar þegar tek-
ist hafði að opna vörn HK, en línu-
sending á Harald Þorvarðarson var
ónákvæm, hann náði ekki að koma
höndum á boltann og HK hafði öll
tromp á hendi. Sjötti maður þeirra
bættist við sóknina og þeir léku af yf-
irvegun allt til loka að Ólafi Víði
tókst að finna Alexander á línunni
sem brást ekki bogalistin.
Gríðarlegur fögnuður braust út á
meðal leikmanna HK og stuðnings-
manna sem höfðu svo sannarlega
ástæðu til að gleðjast eftir að hafa
fetað nær allan tilfinningaskalann á
meðan á leiknum stóð.
Eftir jafnspennandi og þetta var
synd að annað liðið varð að bíta í það
súra epli að tapa. Framliðið á ekkert
síður en HK-liðið heiður skilinn fyrir
að leggja sig fullkomlega fram og
berjast til síðasta blóðdropa, en
svona eru íþróttirnar, því miður
verður alltaf einhver að tapa og að
þessu sinni var það Fram. Það hefði
hæglega getað verið á hinn veginn.
Morgunblaðið/Sverrir
Alexander Arnarson, til vinstri, gerði sigurmarkið, 40:39, eftir tvíframlengdan leik við Fram, eftir
sendingu frá Ólafi Víði Ólafssyni. Hér fagna þeir félagar sætinu í úrslitaleik bikarsins.
Alexander var hetjan
ALEXANDER Arnarson tryggði HK sæti í úrslitum bikarkeppninnar
þegar hann tryggði sínu liði sigur með marki á síðustu sekúndu í
tvíframlengdum spennuleik í Digranesi, 40:39, eftir sendingu frá
Ólafi Víði Ólafssyni. Leikurinn var ævintýralega jafn og svo virtist
sem Fram væri að tryggja sér sæti í úrslitum þegar liðið var með
tveggja marka forskot, 39:37, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir
auk þess að vera einum leikmanni fleiri. Baráttan hefur ævinlega
verið aðal HK-liðsins, leikmenn liðsins neituðu að gefast upp og
með gríðarlegri seiglu skoruðu þeir þrjú síðustu mörk leiksins og
innsigluðu sér sæti úrslitum bikarsins um aðra helgi.
Ívar
Benediktsson
skrifar
& :;
< 9;
4 88- 8
4; &
$ 9% 2
=
>
>
?
=
$ 9% 2
5
67
>
>=
>@
@
>
-
"-
"
%
89
66
>
=?
>
>
>
4A
ÞÝSKA 3. deildar liðið
TSG Burgdorf datt held-
ur betur í lukkupottinn
þegar það dróst gegn
Guðjóni Val Sigurðssyni
og Patreki Jóhannessyni
og samherjum í Tusem
Essen í 8 liða úrslitum
þýsku bikarkeppninnar í
handknattleik. For-
ráðamenn félagsins
ákváðu að taka íþrótta-
höll í Hannover á leigu
fyrir leikinn og nú er
uppselt á hann, alls hafa
rúmlega 5.000 miðar
verið seldir á viðureign-
ina sem fram fer 2. mars
nk. og ljóst að þetta litla
félag fær drjúgar tekjur,
en það leikur alla jafna í
litlu íþróttahúsi sem
rúmar nokkur hundruð
áhorfendur.
Gríðarlegur áhugi er
fyrir þýsku bikarkeppn-
inni að þessu sinni og
þegar hafa selst 6.500
miðar á undanúrslita- og
úrslitaleikina sem fram
fara í Color Line-
íþróttahöllinni í Ham-
borg 12. og 13. apríl þótt
enn sé ekki ljóst hvaða
lið verða í undanúrslit-
unum því 8 liða úrslit
eru enn ekki hafin.
Íþróttahöllin í Hamborg
rúmar vel á annan tug
þúsunda áhorfenda. Tvö
„Íslendingalið“ geta
komist til Hamborgar,
Wallau Massenheim, sem
Einar Örn Jónsson leik-
ur með og tryggði sér
sæti í gær, og Essen,
sem Guðjón Valur og
Patrekur leika með.
TSG
Burg-
dorf datt
í lukku-
pottinn
80%
A
FS
LÁ
T
T
U
R
ÚTSALA
7.-23.FEB
ALLT AÐ