Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 41
RÚNAR Sigtryggsson, lands-
liðsmaður í handknattleik,
verður áfram hjá spænska lið-
inu Ciudad Real á næstu leiktíð.
Rúnar óttaðist að samningi
hans yrði sagt upp þar sem fé-
lagið hefur á undanförnum
misserum sankað að sér nýjum
leikmönnum en honum hefur
nú verið tjáð af forráðamönn-
um félagsins að ekki standi til
að segja honum upp.
„Það var ákveðinn léttir að
fá að vita þetta. Ég var búinn
að heyra ýmsar sögur, þar á
meðal að samningi mínum yrði
sagt upp en svo verður ekki þó
svo að félagið hafi keypt
nokkra nýja menn og ætli að
kaupa fleiri,“ sagði Rúnar við
Morgunblaðið en hann gerði
tveggja ára samning við
spænska liðið síðastliðið sumar.
Ciudad Real ætlar sér stóra
hluti í framtíðinni en liðið hefur
tryggt sér fjóra nýja leikmenn.
Þar er fremstur í flokki Ólafur
Stefánsson, sem yfirgefur
Magdeburg í sumar og gengur
í raðir spænska liðsins. Hinir
eru Egyptinn Hussein Zaky,
markakóngur á HM, sem kom
til Ciudad Real í síðustu viku og
lék sinn fyrsta leik um síðustu
helgi, Frakkinn Didier Dinart,
sem talinn er besti varn-
armaður heims, og slóvenska
skyttan Ales Pajovic, sem á að
koma til félagsins 2004 en for-
ráðamenn Ciudad róa að því
öllum árum að fá hann í sumar.
Einn leikmaður er fallinn úr
skaftinu en Rússinn Sergei
Pogarelov yfirgaf Ciudad Real
í síðustu viku í kjölfar komu-
Zaky og er Pogarelov genginn í
raðir Lyon í Frakklandi.
Rúnar um kyrrt
hjá Ciudad Real
Rúnar Sigtryggsson
BJÖRGVIN Björgvinsson var í gær dæmdur úr
leik eftir fyrri ferðina á heimsmeistaramótinu í
stórsvigi í St.Mortiz, þar sem keppnisgalli hans
var ólöglegur. Björgvin var í 46. sæti eftir fyrri
ferðina af 125 keppendum. „Gallinn verður að
sleppa út ákveðnu magni af lofti og það kom í
ljós að galli Björgvins var rétt undir þeim stuðli
sem upp er settur. Ég hélt að allir gallarnir sem
við erum komnir með væru prófaðir hvað þetta
varðar en þetta eru þeir sömu og við höfum ver-
ið með og koma frá góðu fyrirtæki. Ég hafði
aldrei heyrt um þetta áður og við reyndum að
malda í móinn en ákvörðuninni varð ekki hnik-
að,“ sagði Kristinn Björnsson, fyrrverandi
skíðamaður, sem er fararstjóri og þjálfari hjá ís-
lenska skíðafólkinu á HM. Björgvin keppir í
svigi á sunnudaginn en þá getur hann keppt í
gallanum sem hann notaði í gær þar sem staðl-
arnir í sviginu eru öðruvísi.
Björgvin í ólög-
legum galla
Árni réð sér ekki fyrir kæti þegarMorgunblaðið dró hann afsíðis í
sigurstemningu HK-inga í Digranesi
í gærkvöld en eins og
ávallt lifði Árni sig
inn í leikinn af lífi og
sál og tók virkan þátt
í honum af hliðarlín-
unni.
„Okkar aðalsmerki í vetur hefur
verið stemningin og það má svo sann-
arlega segja að hún hafi verið okkar
aukamaður í leiknum. Við fórum svo-
lítið illa að ráði okkar í venjulegum
leiktíma. Ég hélt að við værum að
slíta þá frá okkur þegar við náðum
fjögurra marka forskoti en við misst-
um dampinn og eftir það var leikur-
inn barátta upp á líf eða dauða.
Framararnir stálu sigri af okkur í
Digranesi í haust og þeir stálu stigi af
okkur í Safamýrinni. Auðvitað runnu
ýmsar hugsanir í kollinum á mér
undir lokin vitandi af þessu en sem
betur fer datt þetta okkar megin.“
Það dró töluvert af ykkur þegar
Garcia fór að haltra í seinni hálfleikn-
um. Vað það ekki áhyggjuefni?
„Vilhelm og Garcia voru orðnir
mjög sárir en það var ekkert annað
fyrir mig að gera en að henda þeim
inná til skiptis og segja þeim að
þegja. Það hvíldi mikið á Ólafi Víði og
þessi 19 ára strákur sýndi mikinn
kjark og skoraði mikilvæg mörk. Það
voru fleiri en Ólafur sem tóku af
skarið. Már og Atli skoruðu mikilvæg
mörk og Alexander reyndist hetjan
okkar. “
Hvernig líst þér á að glíma við Aft-
ureldingu í úrslitaleiknum?
„Það verður bara gaman en ég
verð að segja eins og er að ég átti
ekki von á að Afturelding kæmist í
úrslitin. Það breytir því ekki að hver
sem andstæðingurinn er þá mætum
við til leiks í Höllina með eitt að
markmiði. Við mætum hungraðir og
ætlum að vinna. Við settum okkur
ákveðin markmið í haust og erum á
góðri leið með að ná þeim. Breytt
hugarfar er kannski lykillinn að góðu
gengi í vetur. Menn eru farnir að trúa
á sjálfan sig og þegar stemningin er
til staðar getum við unnið hvaða lið
sem er,“ sagði Árni og bætti því við
menn yrðu að halda sig á jörðinni.
„Við eigum leik við KA á laugardag-
inn og ég vil landa sigri í þeim leik.“
Meiri löngun hjá okkur
Ólafur Víðir Ólafsson, hinn 19 ára
gamli leikstjórnandi HK-liðsins, var
sigurreifur þegar Morgunblaðið náði
tali af honum í sigurstemningu HK-
inga. Ólafur tók hvað eftir annað af
skarið. Hann skoraði átta mörk í
leiknum og átti línusendinguna á Al-
exander þegar hann skoraði sigur-
markið.
„Við erum orðnir vanir því að vera
í þessari stöðu og eins og í leiknum
við ÍR í 8-liða úrslitunum sýndum við
mikla seiglu og gáfumst aldrei upp.
Ég vil meina að það hafi verið meiri
löngun hjá okkur að komast í Höllina.
Stemningin var gríðarleg í liðinu,
stuðningsmenn okkar frábærir og
það kom ekki til greina að tapa.“
Spurður um úrslitaleikinn við Aft-
ureldingu sagði Ólafur; „Það kom
mér talsvert á óvart að Mosfellingar
skildu taka Val. Hins vegar er Aftur-
elding með reynt lið svipað og Fram
og með góða einstaklinga svo ég
reikna með hörkuleik. Ég var áhorf-
andi á bikarúrslitaleik HK og Hauka
fyrir tveimur árum. Þá sá ég HK
tapa en ég í Höllina um aðra helgi til
þess eins að vinna bikarinn,“ sagði
Ólafur.
Köstuðum sigrinum frá okkur
„Það er auðvitað gríðarlega sárt að
sætta sig við þessi úrslit. Við vorum
tveimur mörkum yfir og manni fleiri
þegar rúmar tvær mínútur voru eftir
og leikurinn því algjörlega í okkar
höndum. En á hreint óskiljanlegan
hátt köstuðum við sigrinum frá okk-
ur,“ sagði Heimir Ríkharðsson, þjálf-
ari Fram, við Morgunblaðið eftir
leikinn.
Heimir sagði að sínir menn hefðu
farið illa að ráði sínu hvað nýtingu á
færum varðar, ekki bara undir lokin
heldur allan leikinn. „Við klúðruðum
góðum færum trekk í trekk og þegar
upp er staðið tapaðist leikurinn á
þessu. Auðvitað ræður heppni tölu-
vert miklu þegar leikir eru svona
jafnir en við áttum að sigra en
kannski ætluðu menn að reyna að
hanga á forskotinu í stað þess að taka
af skarið.“
Jaliesky Garcia var ykkur mjög
erfiður lengi framan af leik en gripuð
þið ekki of seint til þess að taka hann
úr umferð?
„Það var ákveðin vörn sem við vor-
um búnir að leggja upp með. Við vild-
um meina að Björgvin hefði átt að
geta tekið Garcia en þegar við sáum
að það gekk ekki ákváðum við að
klippa hann út.“
Morgunblaðið/Sverrir
HK-menn fögnuðu gríðarlega eftir sigurinn á Fram í gærkvöldi – enda full ástæða til – sæti í
úrslitaleiknum í bikarnum í höfn í annað sinn í sögu félagsins.
Árni Stefánsson, þjálfari HK, var orðinn vonlítill
Óskaði Frömur-
um til hamingju
EF ég á að segja þér alveg eins og er þá óskaði ég Frömurum til
hamingju með sigurinn þegar Héðinn kom þeim í tveggja marka for-
skot þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Svona á maður auðvitað
ekki að hugsa. Það má aldrei gefa upp vonina og síst ég en útlitið
var dökkt hjá okkur. Strákarnir sýndu hins vegar úr hverju þeir eru
gerðir og ég er rosalega stoltur af þeim,“ sagði Árni Stefánsson,
þjálfari HK, við Morgunblaðið eftir sigurinn dramatíska á Fram.
Eftir
Guðmund
Hilmarsson
GABRIEL Batistuta hefur verið
úrskurðaður í tveggja leikja bann af
aganefnd ítalska knattspyrnusam-
bandsins. Batistuta, sem á dögunum
fór frá Roma sem lánsmaður til Int-
er, var fundinn sekur um að gefa
andstæðingi sínum olnbogaskot í
leik Inter á móti Reggina.
MARTIN Keown, varnarmaður
Arsenal, hefur verið sektaður um
5.000 pund, jafnvirði 625.000 kr., fyr-
ir að hafa hrint Ruud van Nistelrooy
í viðureign Manchester United og
Arsenal í desember. Atvikið fór
framhjá dómara leiksins en náðist á
myndband og var dæmt eftir því.
MARK Bosnich hefur áfrýjað
dómi sem féll honum í óhag á dög-
unum þegar hann höfðaði mál á
hendur Chelsea fyrir ólöglega upp-
sögn á samningi í framhaldi af því að
hann féll á lyfjaprófi. Vinni Bosnich
málið á hann inni rúmar 37 millj.
króna hjá Chelsea.
HINN 35 ára varnarmaður Black-
burn, Craig Short, hefur framlengt
samning sinn við félagið til eins árs.
DAVID Batty, varnarmaður
Leeds, lék með varaliði félagsins
gegn Sheffield Wed. í gær, en Batty
hefur verið frá vegna meiðsla í lang-
an tíma. Reiknað er með að hann
komi inn í aðallið Leeds fljótlega.
BRIAN Kerr, nýr landsliðsþjálfari
Íra, er vonsvikinn vegna ákvörðunar
Roy Keane, 31 árs, að hætta að leika
með írska landsliðinu. Kerr segist
hafa átt þriggja tíma fund með
Keane í síðustu viku og þar hafi
Kenae gefið sterklega í skyn að hann
myndi gefa kost á sér í landsliðið á
nýjan leik. Stuttu síðar hafi annað
hljóð verið komið í strokkinn.
KERR, sem ætlaði að byggja lið
sitt í undankeppni EM í kingum
Keane, segir að Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Man. Utd., hafi
náð að snúa ákvörðun Keane – feng-
ið hann til að hætta við að leika með
Írlandi á ný.
FULHAM og Liverpool hafa bæði
áhuga á að fá til sín ítalska þjálf-
arann Fabio Capello, 54 ára, frá
Roma. Barcelona og Bayern Münch-
en hafa einnig hug á að fá þennan
snjalla þjálfara, sem hefur þjálfað
AC Milan og Real Madrid með góð-
um árangri. Árstekjur hans hjá
Roma eru 332 millj. ísl. kr.
TALANT Dujshebaev, spænski
landsliðsmaðurinn í handknattleik
sem leikur með Rúnari Sigtryggs-
syni hjá Ciudad Real á Spáni, er með
rifinn vöðva í læri og verður frá
keppni og æfingum næstu fjórar vik-
urnar.
SHAWN Kemp, körfuknattleiks-
maður hjá Orlando, er kominn í leik-
bann, þar sem hann féll á lyfjaprófi –
og fær hann ekki laun á meðan hann
tekur út leikbann sitt, en Kemp féll á
sínu þriðja lyfjaprófi.
FÓLK
Einar Örn
með tólf
EINAR Örn Jónsson og
félagar í Wallau Massen-
heim, tryggðu sér í gær-
kvöldi rétt til að leika í
undanúrslitum þýsku bik-
arkeppninnar með því að
leggja Gummersbach
33:31. Einar Örn átti stór-
leik í horninu og gerði
tólf mörk fyrir Wallau.
Göppingen komst einn-
ig áfram í gærkvöldi með
sigri á Spenge. Hinir tveir
leikirnir í átta liða úrslit-
um verða síðar, Flens-
burg-Handewitt mætir
Kiel 26. febrúar og 2.
mars heimsækir Essen lið
Burgdorf.