Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 49
FJÖLMIÐLASLAGURINN um
bandarísku poppstjörnuna Michael
Jackson heldur
áfram og hefur
sjónvarpsstöðin
Fox fallist á að
sýna myndband
sem Jackson lét
sjálfur taka og
sýna samtöl
breska sjón-
varpsmannsins
Martins Bash-
irs og Jacksons. Áformað er að
sjónvarpsþátturinn, sem nefnist
Michael Jackson, taka tvö: Viðtalið
sem þeir vildu ekki sýna, verði
sýndur í Bandaríkjunum 20. febr-
úar. Þátturinn verður tveggja tíma
langur.
Bandarískar sjónvarpsstöðvar hafa
nýtt sér þá athygli sem málefni
Jacksons hafa vakið. Þáttur Bas-
hirs var sýndur á ABC sjónvarps-
stöðinni í síðustu viku og horfði 27,1
milljón manna á þáttinn í Banda-
ríkjunum.
Jackson reiddist því hvaða mynd
Bashir dró upp af honum, sem
skrítnum óþroskuðum manni sem
segist stundum leyfa börnum að
sofa hjá sér í rúminu. Jackson lýsti
því yfir að hann hefði látið starfs-
menn sína taka samtöl þeirra Bash-
ir upp og þær upptökur sýni greini-
lega að klippt hefði verið í burtu allt
það lof og skjall sem Bashir á að
hafa borið á Jackson, yfirlýsingar
um hversu góður faðir hann væri og
hversu sér þætti leitt hve allir væru
fljótir að gagnrýna Jackson.
Talsmaður Fox segist ekki vita
hvað Jackson fái greitt fyrir mynd-
böndin. ABC mun hafa greitt
bresku sjónvarpsmönnunum nærri
400 milljónir króna fyrir upp-
haflega þáttinn. Stuart Backer-
man, talsmaður Jacksons, sagði að
Fox hefði orðið fyrir valinu þar sem
sjónvarpsstöðin hefði boðist til að
meðhöndla efnið af nærgætni gagn-
vart Jackson. Nokkrar aðrar stöðv-
ar hefðu haft áhuga, þar á meðal
stóru stöðvarnar þrjár. Backerman
segir að myndbandið sýni m.a. við-
tal við Debby Rowe, fyrrum eig-
inkonu Jacksons og móður tveggja
barna hans.
Jackson er sagður hafa samþykkt
að ræða við Ed Bradley í sjón-
varpsþættinum 60 mínútum um
helgina en hætti við á síðustu
stundu og Bradley fór tómhentur
frá Neverland, búgarði Jacksons.
Sjónvarpsstöðin NBC mun bráð-
lega sýna sjónvarpsþátt um meint-
ar lýtaaðgerðir sem Jackson er
sagður hafa lát-
ið gera á andliti
sínu …Nicole
Kidman neitaði
því að hún hefði
átt í ástarsam-
bandi við Jude
Law við frum-
sýningu á The
Hours, í Lond-
on. Law og eig-
inkona hans, Sadie Frost, hafa átt í
erfiðleikum að undanförnu og hefur
leikarinn gefið út yfirlýsingu til
fjölmiðla varðandi málið. Biður
hann fjölmiðla um að halda aftur af
sér og gefa þeim tækifæri til að
vinna úr vandanum.
FÓLK Ífréttum
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5 og 8. B. I. 16.
Sýnd kl. 5, 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10.
Náðu þeim í bíó í dag.
í mynd eftir Steven Spielberg.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 4. Ísl tal. / Sýnd kl. 4. Ísl. tal. / Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
KRINGLAN ÁLFABAKKI AKUREYRI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / kl. 8 og 10. B. i. 14. / kl. 6 og 8. B. i. 14.
Sýnd kl. 10.30.
Radíó X SV MBL
HK DVÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Missið ekki af einni
skemmtilegustu mynd ársins.
Leonardo diCaprio og Tom
Hanks hafa aldrei verið betri.
KEFLAVÍK / AKUREYRI
Sýnd kl. 8. / Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 4 og 6
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
ÁLFABAKKI KRINGLAN
Kvikmyndir.isRadíó X
a.
Sýnd kl. 5. ísl. tal. / Sýnd kl. 8. enskt tal.
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK AKUREYRI
2Tilnefningar til ÓskarsverðlaunaAukahlutverk karla: Christopher WalkenBesta tónlistin: John Williams