Morgunblaðið - 24.02.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003 9
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Glæsilegt úrval af
undirfötum
Nýjar peysur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Ullarkápur
kr. 1.000
Aðeins þessa viku
v. Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Lagersala
á Nesinu
50-90%
afsláttur
Glæsilegur ferðafatnaður
Léttir jakkar, buxur, blússur
og bolir
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardag frá kl. 10.00—16.00.
Pelsfóðurjakkar
og -kápur
Hver einasti hlutur í búðinni með 50% afslætti
Húsgögn, ljós, fatnaður og gjafavörur
Opið virka daga kl. 11-18, laugardag kl. 11-16 og sunnudag kl. 13-16.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Okkar árlega rýmingarsala
Opið frá kl. 11–18 • Laugardaga frá kl. 10.30–16
Ný sending af vorvörum
Nýr þykkur Argos listi
yfir 4000 nýir vöruflokkar.
Betra verð og frábær gæði.
Búsáhöld, mublur, verkfæri, ljós,
gjafavara, garðvörur, leikföng,
baðherbergisvörur, rúmfatnaður,
skartgripir, íþróttavörur o.fl.
sími 555 2866
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá stjórn Barnageðlæknafélags
Íslands og yfirlækni barna- og ung-
lingageðdeildar LSH, Ólafi Ó. Guð-
myndssyni, sem dagsett er sl. laug-
ardag:
„Stjórn Barnageðlæknafélags Ís-
lands fagnar þeirri umræðu sem
fram hefur farið um þörf á tafar-
lausum úrbótum á geðheilbrigðis-
þjónustu við börn og unglinga. Á
fundi fulltrúa stjórnar ásamt yfir-
lækni barna- og unglingageðdeildar
LSH í heilbrigðisráðuneytinu í gær
kom fram eindreginn vilji til úr-
lausna og skilningur á að málið þolir
enga bið.
Í viðtali við Eydísi Sveinbjarnar-
dóttur, sviðsstjóra hjúkrunar á geð-
sviði LSH í Morgunblaðinu í dag
[laugardaginn 22. febrúar] koma
hins vegar fram ákveðin atriði sem
nauðsynlegt er að gera athuga-
semdir við. Í fyrsta lagi er ástandið
við unglingageðdeild LSH ekki nýtt
af nálinni, þessi staða hefur verið
fyrir hendi til nokkurra ára en farið
versnandi. Að okkar mati hefur ein-
faldlega ekki verið brugðist við
þessum vanda og er ein helsta skýr-
ing þess óviðunandi stjórnunarleg
staða BUGL innan Landspítala –
háskólasjúkrahúss. Hjúkrunarsviðs-
stjórinn segir einnig að BUGL geti
ekki orðið sjálfstæð eining innan
LSH vegna þess að „deildin uppfylli
ekki skilgreiningu Landspítalans til
að teljast sérstakt svið“ og að með
auknu sjálfstæði BUGL sé meiri
hætta á faglegri einangrun deild-
arinnar. Þetta eru merkilegar full-
yrðingar í ljósi þess að í flestum
öðrum löndum eru barna- og ung-
lingageðdeildir sjálfstæðar einingar
innan háskólasjúkrahúsa.
Stjórn Barnageðlæknafélags Ís-
lands og yfirlæknir BUGL lýsa
undrun sinni á samsetningu og
vinnubrögðum við skipan 5 manna
nefndar sem forstjóri LSH setti til
að leysa málefni BUGL. Ekkert
samráð hefur verið haft um skipan
þessarar nefndar þriggja hjúkrun-
arfræðinga og tveggja lækna undir
formennsku sviðsstjóra hjúkrunar
geðsviðs. Slík vinnubrögð dæma sig
sjálf og ætti öllum að vera ljóst van-
hæfi setts formanns.
Stjórn Barnageðlæknafélags Ís-
lands og yfirlæknir BUGL telur ein-
sýnt í ljósi alvarlegrar stöðu málsins
að heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið skipi þegar í stað starfs-
hóp sem komi með tillögur til úr-
lausnar því málið þolir enga bið.
Hér er ekki um einkamál þess
starfsfólks sem þjónustuna veitir að
ræða og enn síður skrifstofufólks
LSH heldur varðar málið fyrst og
fremst fjölskyldur 80.000 barna og
unglinga landsins.“
Yfirlýsing stjórnar Barnageðlæknafélagsins varðandi
geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga
Lýsa undrun með
skipan nefndar
INNAN Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss er unnið að því að taka
í notkun svokallað DRG-flokkunar-
kerfi á öllum klínískum sviðum
spítalans um mitt næsta ár. Árið
2005 verður fjármögnun spítalans
að hluta byggð á framleiðni sem
fundin er út með þessari flokkun.
Samkvæmt upplýsingum frá
LSH er DRG-flokkun sjúkdóms-
tengd flokkun og ein leið til að
lýsa starfsemi eða framleiðni spít-
alans. Flokkunin byggist á um tíu
þúsund sjúkdómsgreiningum og
sex þúsund aðgerðum, sem skipta
legusjúklingum spítalans í 500
flokka. Hver DRG-flokkur hefur
tiltekna vigt sem endurspeglar
þarfi sjúklingahópsins og kostnað
við meðhöndlun tiltekinna sjúk-
dóma. Til dæmis er sjúklingur sem
fer í gerviliðaaðgerð á mjöðm 4,5
sinnum dýrari en kona sem fæðir
barn eðlilega.
Nú stendur sem hæst vinna við
kostnaðargreiningu og upptöku
DRG-flokkunar á kvennasviði,
skurðlækningasviði, svæfinga-,
gjörgæslu- og skurðstofusviði,
barnasviði og lyflækningasviði eitt
og tvö. Lengst er þessi vinna kom-
in á kvennasviði þar sem stefnt er
að undirskrift samnings við yfir-
völd um fjármögnun þess árið 2004
að hluta eftir DRG-flokkun. Samn-
ingar við önnur svið eru gerðir í
tilraunaskyni. Í undirbúningi er
líka DRG-flokkun eða sambærileg
flokkun á endurhæfingar-, geð- og
öldrunarsviði. Flokkun á slysa- og
bráðasviði verður skoðuð sérstak-
lega.
Fjármögnun LSH
byggð á framleiðni