Morgunblaðið - 24.02.2003, Síða 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003 13
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Verkstæði
VERSLUN • VERKSTÆÐI
Radíóþjónusta Sigga Harðar
Áratuga reynsla tryggir gæðin
Allar viðgerðir á fjarskiptabúnaði
Setjum öll tæki í bílinn þinn
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
Sig
ur
ðu
rH
ar
ða
rso
n,
ra
fe
in
da
vir
ki
HARÐAR deilur eru nú í Íhalds-
flokknum breska um leiðtoga-
hæfileika Iains Duncan Smiths,
að sögn fréttavefjar BBC. Er
jafnvel rætt um að nýr leiðtoga-
slagur geti verið í aðsigi ef flokk-
urinn fer illa út úr sveitarstjórn-
arkosningum sem verða í
Englandi 1. maí auk þingkosn-
inga í Wales og Skotlandi. Bent
er á að deilurnar komi sér afar
vel fyrir Tony Blair, forsætisráð-
herra og leiðtoga Verkamanna-
flokksins, en vegna andstöðu
meðal almennings við árás á Írak
stendur ráðherrann nú höllum
fæti í könnunum. Flokkarnir
tveir hafa verið álíka sterkir í
könnunum síðustu vikurnar.
Íhaldsþingmaðurinn John
Bercow, einn af andstæðingum
stefnu Duncan Smiths, sagðist í
sjónvarpsviðtali við David Frost í
gær ekki útiloka leiðtogaskipti.
„Ég held að það geti gerst frem-
ur fyrr en síðar. Það er ljóst að
mikil óánægja er ríkjandi,“ sagði
Bercow.
Kraumar undir
Lengi hafa kraumað undir
niðri deilur milli annars vegar
þess arms Íhaldsflokksins sem vill
færa hann nær því sem nefnt er
nútímaleg umbótastefna, t.d. með
því að styðja réttindi samkyn-
hneigðra og hætta harðri and-
stöðu við Evrópusambandið og
hins vegar þeirra sem vilja halda
fast við gamlar hefðir og harða
hægristefnu. Nýlega var aðal-
framkvæmdastjóra flokksins,
Mark MacGregor og öðrum, hátt-
settum embættismanni skyndilega
vikið úr starfi en þeir töldust
báðir til umbótasinna.
Michael Portillo, sem lengi var
einn af forystumönnum flokksins
og aðaltalsmaður umbótasinna,
réðst harkalega á Duncan Smith í
útvarpsviðtali á laugardag og
sagði brottreksturinn hafa valdið
miklum urg í stjórn flokksins.
Einnig sagði hann að staða Ther-
esu May, sem gegnir embætti
flokksformanns, væri óviðunandi
þar sem ekki hefði verið haft
neitt samráð við hana um brott-
reksturinn. Þessu hefur May hins
vegar vísað á bug en viðurkennir
að síðustu dagar hafi verið „dálít-
ið hávaðasamir“.
Portillo sagðist ekki sjálfur
myndu gefa kost á sér í leiðtoga-
embættið en neitaði að tjá sig um
líkurnar á því að Duncan Smith
gæti enn náð að laga stöðuna.
Hann sagði að staða leiðtogans
hefði verið góð þar til umræddur
brottrekstur var ákveðinn.
MacGregor studdi á sínum tíma
Portillo er hann reyndi að ná
kjöri sem flokksleiðtogi.
Sagði Portillo að skipun
MacGregors í embætti aðal-
framkvæmdastjóra hefði á sínum
tíma verið tilraun forystunnar til
að efla samheldni í flokknum og
auk þess væri hann einstaklega
hæfur. En nú hefði honum verið
fórnað og mun lélegri maður,
Barry Legg, skipaður í staðinn
en hann er til hægri í flokknum
eins og Duncan Smith. Verið væri
að marka flokknum enn þrengri
bás í litrófi stjórnmálanna en áð-
ur.
Michael Portillo sagður
allt að því „geggjaður“
„Menn virðast hafa búið þessa
kreppu til í forystu flokksins,“
sagði Portillo og var ljóst að
skeytinu var beint að Duncan
Smith. Ónafngreindir heimild-
armenn úr röðum stuðnings-
manna Duncans Smiths sögðu í
samtali við The Sunday Tele-
graph að Portillo virtist vera orð-
inn „vitlaus“ þegar hann ræddi
um leiðtogaskipti. Höfðu þeir eft-
ir Duncan Smith að honum fynd-
ist Portillo vera svo „fullur af
sjálfsupphafningu að jaðraði við
geggjun“.
Liam Cox, sem fer með heil-
brigðismál í skuggaráðuneyti
Íhaldsflokksins, sagði í gær að
gagnrýnendur Smiths ættu að
„halda sér saman“ en ekki er víst
að menn hlýði því ákalli. John
Major, fyrrverandi forsætisráð-
herra og flokksleiðtogi, sagði í
gær að fólk væri að missa þol-
inmæðina gagnvart flokknum og
deilunum yrði að ljúka en hann
tók ekki afstöðu í sjálfum deil-
unum.
Þingmaðurinn Derek Conway,
sem ekki er stuðningsmaður
Portillos, sagði að aðeins „bjáni“
myndi hunsa viðvörun Portillos
og virtist kenna Duncan Smith
um ástandið, sagði að kreppan
hefði skollið á eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Menn yrðu að út-
skýra hvers vegna MacGregor
hefði verið rekinn. Fyrrverandi
þingmaður Íhaldsflokksins, Mich-
ael Brown, sagði að ummælum
Portillos í útvarpsviðtalinu mætti
líkja við fræga ræðu sem Geoffr-
ey Howe flutti árið 1990 en hún
er talin hafa markað upphafið að
falli Margaret Thatcher úr leið-
togasætinu.
Duncan Smith hart gagn-
rýndur af samflokksmönnum
Reuters
Iain Duncan Smith, leiðtogi Íhalds-
flokksins í Bretlandi.
Portillo segir leið-
togann ýta undir
sundrungu með
brottrekstri aðal-
framkvæmda-
stjóra