Morgunblaðið - 24.02.2003, Qupperneq 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss kemur í dag.
Brúarfoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kemur til
Straumsvíkur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinustofa
kl. 13, söngstund á
morgun kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl.13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 mynd-
list.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11 samverustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga. Mánu-
dagur kl. 16 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30–18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, framhalds-
flokkur.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10, leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, handavinna kl. 9–
16.30, félagsvist kl. 14,
kl. 9–14 hárgreiðsla.
Félag eldri borgara,
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara í Garða-
bæ, mánudaga kl. 17.30
í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli. Söngfólk
er hvatt til að koma og
taka þátt í starfi með
kórnum. Stjórnandi
kórsins er Kristín Pjet-
ursdóttir.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt kl.
10, kóræfingar kl.
10.30, tréskurður kl.
13, félagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13,
línudans fyrir byrj-
endur kl. 18, dans-
kennsla í samkvæm-
isdönsum, framhald kl.
19 og byrjendur kl.
20.30. S. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf.
Fimmtudaginn 27.
febrúar er félagsvist í
samstarfi við Hóla-
brekkuskóla, allir vel-
komnir. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.
10.50 leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 postlíns-
málun og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl.
14.15 spænska, fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9–15 fóta-
aðgerð, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13–16.45 opin
handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.30–10.30 boccia,
kl. 11–12 leikfimi, kl.
12.15–13.15 dans-
kennsla, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Gullsmárabrids. Brids
að Gullsmára. Skrán-
ing kl. 12.45, spil hefst
kl. 13.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu, Vallarbraut 4,
Njarðvík, öll mánu-
dagskvöld kl. 20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19
brids.
Minningarkort
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Í dag er mánudagur 24. febrúar,
55. dagur ársins 2003, Matthías-
armessa. Orð dagsins: En sá sem
uppfræðist í orðinu, veiti þeim,
sem uppfræðir, hlutdeild með sér
í öllum gæðum.
(Gal. 6, 6.)
EINAR Stefánsson augn-læknir gerir að um-
talsefni afstöðu Íslands
innan Heimsvið-
skiptastofnunarinnar
(WTO) til tillögu um
aukna fríverslun með
landbúnaðarvörur, í
Morgunblaðsgrein á föstu-
daginn.
Hann vitnar í frétt
Morgunblaðsins af mál-
inu, þar sem segir að „Ís-
land sé í breiðri fylkingu
ríkja á borð við Noreg,
Sviss, Japan, ESB, S. Kór-
eu og fleiri og viðbrögð
þessara ríkja hafa öll ver-
ið afdráttarlaus og nei-
kvæð“.
Einar segir: „Það ætti
að vera umhugsunarefni
að Ísland skipi sér í flokk
með ríkjum sem berjast
einarðlega gegn auknu
viðskiptafrelsi á þessu
sviði. Það er ljóst að al-
þjóðlegt viðskiptafrelsi er
Íslandi mjög mikilvægt
enda eru millilanda-
viðskipti tiltölulega stór
hluti af þjóðarbúskap okk-
ar. Í samræmi við það
hafa íslensk stjórnvöld yf-
irleitt stutt aukið frelsi í
alþjóðaviðskiptum en
gera undantekningu þeg-
ar kemur að landbún-
aðarmálum.“
Það er hárrétt hjá Ein-ari að þessi afstaða
ætti að vera umhugsunar-
efni. Hún ætti hins vegar
ekki að koma þeim sem
kunnugir eru íslenskum
stjórnmálum á óvart.
Landbúnaðurinn hefur
alltaf átt sér sína hags-
munagæslumenn. Þá hef-
ur ekki síst verið að finna í
Framsóknarflokknum. Nú
kveður reyndar við nýjan
tón, í ræðu Halldórs Ás-
grímssonar á flokksþingi
Framsóknarflokksins, þar
sem hann sagði tillögur
WTO lýsandi dæmi um
hvers bæri að vænta en
hvatti bændur til að líta á
væntanlegar breytingar
sem tækifæri.
Spurningin er hvort bar-átta hagsmunagæslu-
mannanna gagnist bænd-
um yfirhöfuð, svo ekki sé
talað um almenning. Er
staða bænda eftirsókn-
arverð? Umfangsmikið
kerfi tolla og annarra inn-
flutningshafta hefur hald-
ið uppi óhagkvæmri fram-
leiðslu, sem um margt
hefur minnt á áætl-
unarbúskap. Bændum hef-
ur, að minnsta kosti ekki í
miklum mæli, verið fært
að bæta hag sinn af eigin
rammleik og njóta ávaxta
erfiðis síns.
Ástæða er til að takaundir með Einari:
„Einangrunarstefna í
landbúnaði hefur í för
með sér að matarverð á Ís-
landi er með því hæsta
sem þekkist og miklu
hærra en í nágrannalönd-
um ... Viðskiptahöft í land-
búnaði kosta landsmenn
marga milljarða á ári og
beinar greiðslur úr rík-
issjóði bæta mörgum millj-
örðum við en þrátt fyrir
þennan mikla kostnað er
hagur íslensks landbún-
aðar ekki góður.“ Kannski
eru nú gömlu hags-
munagæslumennirnir
farnir að átta sig á þessum
veruleika.
STAKSTEINAR
Gætir ríkisstjórnin hags
bænda og almennings?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI á nokkra kunningjasem hann hefur grunaða um að
telja sig yfir það hafna að nota
strætisvagna til að komast um í
henni Reykjavík. Snemma beygist
krókurinn í þessum efnum, marg-
ur ungur pilturinn telur sig nauð-
synlega þurfa að eignast bifreið
um leið og bílprófi hefur verið náð.
Eftir að ökuskírteinið er í höfn
kemur einfaldlega ekki til greina
að nota strætó.
Kannski getur Reykjavík ekki
talist almennileg borg fyrr en al-
menningssamgöngur eru orðnar
þess eðlis, að menn noti þær frek-
ar en einkabílinn (eða a.m.k. ekki
síður). Allir þekkja jú að í stór-
borgunum erlendis er oftast nær
betra að fara með lestinni eða
strætisvagninum, heldur en þvæl-
ast um á einkabíl í miðborginni.
Víkverji nefnir þetta að þessu
sinni vegna þess að í síðustu viku
þurfti hann tvo daga í röð að fara
með strætó í vinnuna. Yfir engu
var að kvarta, vagninn fór beina
leið úr miðbænum, þar sem Vík-
verji á heima, og í Kringluna, þar
sem Morgunblaðið er til húsa.
Það er semsé ekki alltaf ástæða
til að kvarta yfir almennings-
samgöngunum í Reykjavík og Vík-
verji er sumpartinn þeirrar skoð-
unar að það geri öllum gott, að
þurfa af og til að taka strætó í
vinnuna.
x x x
VÍKVERJI rak augun í þessiskrif á vefritinu Pressunni:
„Það eru kosningar í nánd og
skoðanakannanir sýna að litli
bróðir Morgunblaðsins, Sjálfstæð-
isflokkurinn, á í vök að verjast.
Morgunblaðið er augljóslega þann-
ig innréttað að það svíkur ekki
sinn minnsta bróður.“
Pressan tekur fram í umfjöllun
sinni að enginn efist um sjálfstæði
ritstjórnar Morgunblaðsins. Þess
vegna veki eftirtekt hversu
áherslur í fréttaflutningi, leiðara-
skrif blaðsins, Staksteinar og
Víkverji, hljómi saman við mál-
flutning sjálfstæðismanna. „Það
eru kosningar í nánd og skoð-
anakannanir sýna að litli bróðir
Morgunblaðsins, Sjálfstæðisflokk-
urinn, á í vök að verjast,“ segir
Pressan síðan.
Á dauða sínum átti Víkverji von
en ekki þessu! Ætla menn nú að
fara að festa merkimiða einhverra
pólitískra flokka á aumingja Vík-
verja? Öllum ætti að vera ljóst að
Víkverji er fjarskyldur ættingi
Ragnars Reykáss; eiginlega ræðst
pólitísk afstaða hans helst af því
hvaða dagur vikunnar er.
Á hinn bóginn hvarflar að Vík-
verja gamalt orðtæki sem hljóðar
svona: margur heldur mig sig.
Að gefnu tilefni er þó rétt að
taka fram að Víkverji er vel upp
alinn og var vissulega kennt í
æsku að menn ættu aldrei að
svíkja sinn minnsta bróður.
Morgunblaðið/Kristinn
Allir í strætó!
Þunglyndi
Í DAG er fiskur nánast orð-
in munaðarvara. Hér áður
fyrr var fiskur nánast í
hvert mál og kjöt til hátíða-
brigða. Ég las það einhvers
staðar að í Japan þekkist
það lítið að fólk þjáist af
þunglyndi. Í þeirri grein
kom fram að Japanir borða
mikinn fisk og þarna væru
tengsl á milli. Ætli geti ver-
ið að þegar kvótinn var
settur á og fiskverð fór að
hækka að ekki hafi aðeins
þunglyndis orðið vart hjá
þeim sem horfðu á örfáa
heppna í kringum sig verða
ríka – heldur hafi verið orð-
ið svo dýrt að kaupa í soðið
að við urðum þunglyndari
fyrir vikið þar sem við
borðuðum minna af fiski?
Ég veit ekki.
En guði sé lof að ég er
ekki svo þunglynd að ég
sjái ekki hvað litlu hlutirn-
ir, sem sumum þykir ef-
laust kjánalegt að tala um,
eru góðir. Þar vil ég nefna
að íslenskt grænmeti er sko
fyrsta flokks og mikið er ég
þakklát þeim garðyrkju-
bændum að vera farnir að
rækta t.d. tómata núna.
Dásamlegt. Og það sem
meira er, það er hægt að
kaupa grænmeti um þessar
mundir án þess að fá sam-
viskubit yfir eyðslunni.
Að lokum. Eitt lítið bros
á dag getur bjargað honum.
Verum dugleg að brosa
hvert til annars.
Ein fyrir austan.
Líst vel
á Þórólf
MIG langar að bjóða nýja
borgarstjórann í Reykjavík
hjartanlega velkominn til
starfa í Ráðhúsinu. Ég veit
að ekki er auðvelt að vera
eftirmaður Ingibjargar
Sólrúnar, sem var svo sterk
á öllum sviðum. En mér og
fleirum líst vel á Þórólf,
hann byrjar vel og lofar
góðu.
270826-2619.
Hækkun
fargjalda
FARGJALD í strætó er nú
komið í 220 kr. fyrir mann-
inn og skildist mér á vagn-
stjóra að þessi hækkun hafi
komið til vegna kostnaðar
við reksturinn. Það eru
námsmenn, öryrkjar og
aldraðir sem aðallega nota
strætó, en það er sá hópur
sem síst mátti við hækkun-
um. Ein ferð fram og til
baka í skóla eða bæinn
kostar því 440 krónur. Get-
ur ekki ríki eða borg styrkt
þessa starfsemi frekar en
að hækka fargjaldið? Mér
finnst þetta næstum því
fjárkúgun fyrir þá sem eru
peningalitlir.
Farþegi.
Fyrirspurn
ÉG vil koma á framfæri
þeirri fyrirspurn til Georgs
Lárussonar, hjá Útlend-
ingaeftirlitinu, hvers vegna
Taílendingar fái ekki að
koma í heimsókn til Íslands
sem ferðamenn þegar þeir
hafa öll umbeðin skilríki.
050243-7969.
Strætófargjöld
HVERS vegna er strætis-
vagnagjald ódýrara fyrir
öryrkja en ellilífeyrisþega?
Er það sama í hvaða formi
er, hvort heldur er í miðum
eða kortum? Hver eru rök-
in fyrir þessu?
Kristín Sigurðardóttir.
Tapað/fundið
Rauður GSM-sími
týndist
NOKIA GSM-sími með
rauðri framhlið týndist í
janúar. Upplýsingar í síma
551 3768 eða 552 7712.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
MJÖG mikill ágreiningur
virðist vera milli heil-
brigðisstofnana og lyfsala
nú um stundir, vegna
hækkandi lyfjaverðs.
Eitt er víst að lyf hafa
hækkað mjög mikið, und-
anfarin misseri, hver sem
ástæðan er. Glöggt dæmi
birtist í Fréttablaðinu 20.
febr. sl. Þar fjallar Andri
Backmann um skjaldkirt-
ilslyf sem dæmi, og tvö-
földun verðs á milli teg-
unda.
Ég notaði Thyroxin
Natrium í mörg ár,en
skyndilega voru þau ekki
til, heldur Euthyrox sem
reyndust helmingi hærri í
verði. Þetta er aðeins eitt
lítið dæmi um allar þær
hækkanir, sem yfir fólk
hefur dunið.
Þar sem lyfjakostnaður
er mjög stór rekstrarliður
hjá fólki, sem þarfnast
þeirra í einhverjum
mæli,svo og sjúkrastofn-
ana, ekki síst stóru spít-
alana, stærstu notenda
lyfja.
Er því mjög mikil
ástæða til að þessi mál
verði skoðuð af raunsæi,
svo þessi mikli ágrein-
ingur skýrist og það sem
fyrst.
Sem betur fer hefur
Thyroxin Natrium verið
skráð að nýju, og er vænt-
anlegt á markað 1. mars
n.k. á svipuðu verði og það
var selt á áður. Heill sé
þeim innflytjanda sem læt-
ur gott af sér leiða.
Virðingarfyllst,
Svanur Jóhannsson.
Verð lyfja
LÁRÉTT
1 lækna, 4 staup, 7 jöfn-
um höndum, 8 fugls, 9
keyra, 11 skynfæri, 13
hlífi, 14 bor, 15 reka í, 17
hnupl, 20 bein, 22
krumla, 23 dóni, 24 spen-
dýrið, 25 skammt undan.
LÓÐRÉTT
1 skessa, 2 uppnám, 3
virða, 4 slæma, 5 kurfur,
6 hroki, 10 sívalningur,
12 flana, 13 bókstafur, 15
drengja, 16 stífla, 18 sár,
19 hæð, 20 mæða, 21 Ís-
land.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 skammdegi, 8 sömdu, 9 mussa, 10 lem, 11
merla, 13 annar, 15 skaps, 18 hreif, 21 kál, 22 krana, 23
afurð, 24 sakamaður.
Lóðrétt: 2 kímir, 3 maula, 4 dimma, 5 gisin, 6 ósum, 7
maur, 12 lap, 14 nær, 15 sekk, 16 afana, 17 skata, 18
hlaða, 19 efuðu, 20 fæða.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16