Morgunblaðið - 24.02.2003, Page 32
32 MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 10.40. Sýnd kl. 10. Enskur texti
Stranglega b.i. 16 ára.
Magnaðasti spennuhrollur ársins sem hefur
allstaðar slegið í gegn.
Hefur verið líkt við “The Sixth Sense”
Áður en þú deyrð,
færðu að sjá
Hann hafði
drauma-
stúlkuna við
hlið sér...
...en áttaði
sig á því
þegar hún
var farin
Frumsýnd 28. febrúar
Sýnd kl. 6. ísl tal. Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10.10. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Radíó X
HK DV
ÓHT Rás 2
í mynd eftir Steven Spielberg.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 8 og 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.40, 8, OG 10.20. B. I. 16.
Magnaðasti spennuhrollur ársins sem
hefur allstaðar slegið í gegn.
Hefur verið líkt við “The Sixth Sense”
Áður en þú deyrð, færðu að sjá
ÁLFABAKKI AKUREYRI
ÞEIR félagar, Halldór Eiríksson, Helgi Snær Sigurðsson og
Hrappur Steinn Magnússon opnuðu á laugardag sýningu
sýna „Það sem þú vilt sjá“ í Gallerí Skugga við Hverfisgötu
39.
„Þemað er að athuga þá hugmynd hvað það sé sem fólk
vilji sjá, – hvað höfði til fólks,“ sagði Helgi Snær aðspurður
um tilgang sýningarinar. „Hún fjallar að miklu leyti um
ábyrgð áhorfandans, og veltir upp þeirri spurningu hvort
við sem áhorfendur erum ekki í raun að búa til það menn-
ingarumhverfi sem við lifum í, með sínum kostum og göll-
um.“
Af myndum sem ljósmyndari blaðsins náði á opnuninni er
ekki annað að sjá en sýningin hafi vakið almenna ánægju og
þótt forvitnileg. Listamennirnir þrír spinna saman ólíka
myndmiðla, svo sem sjónvarpstækni, myndefni ýmiss konar
og skúlptúra.
Í tilkynningu segir að sýningin skoði meðal annars sið-
ferðislegt gildismat okkar, en að sögn Helga var sýningin að
hluta innblásin af heimsókn stórrar stjörnu úr vissum um-
deildum undirflokki kvikmyndaiðnaðarins, en heimsókn
hans olli töluverðu fjaðrafoki í íslensku samfélagi á sínum
tíma. Að sögn Helga ku enginn þó hafa orðið svo hneyksl-
aður af sýningunni á frumsýningardaginn að viðkomandi
hafi strunsað út.
Sýningin stendur til 9. mars og eru húsakynnin opin frá
13 til 17 alla daga nema mánudaga. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Listamennirnir þrír fylgjast með viðbrögðum gesta: Helgi
Snær Sigurðsson, Halldór Eiríksson og Hrappur Steinn
Magnússon.
Gestir sýningarinnar gaumgæfa kvenmannsbúk á bláum
hnetti. Er þetta það sem þau vilja sjá?
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Þau virðast hafa gaman af vangaveltum listamannanna um
siðferðislegt gildismat: Ari Freysson og Eva Ómarsdóttir.
Ábyrgð áhorfandans
ÞRJÚ ný dansverk voru sett á svið
af Íslenska dansflokknum í Borg-
arleikhúsinu á föstudag.
Sýningin ber heitið „Lát hjartað
ráða för“, en er samansett af verk-
inu Stingray eftir Katrínu Hall,
Black Wrap eftir Ed Wubbe og
Symbiosis eftir Itzik Galili.
„Við fengum ofboðslega fallegar
og hlýjar móttökur,“ sagði Katrín
Hall, höfundur Stingray og list-
dansstjóri flokksins, aðspurð um
móttökur áhorfenda á frumsýning-
unni. „Erlendu þáttakendurnir
höfðu jafnvel á orði hvað áhorfend-
urnir væru frábærir.“
„Þetta er mjög fjölbreytt sýning,
með þremur ólíkum verkum sem
öll eru frumsamin. Í verkinu
Stingray er tónlistin einnig frum-
samin. Það er mikið lagt í búninga
og leikmynd, umgjörðin er falleg
og sýningin sjónræn í alla staði.“
Verk Katrínar, Stingray, fjallar
að því er segir í tilkynningu, á
óræðan hátt um stefnumót ein-
staklingsins við sjálfan sig og
þrána eftir frelsi. Verk Wubbe,
Black Wrap, sækir sér hins vegar
innblástur í óuppgerð atvik í lífi
fólks. Loks er dúett hins ísraelska
Galili, Symbiosis, um fáránleika
hins hversdagslega ástarsambands.
Dansflokkurinn mun halda sex
sýningar til viðbótar, en sú síðasta
verður 4. apríl.
Að lokinni sýningu: Herdís, Peter Anderson, Nadia Banine og Elín Norðdal
stinga saman nefjum.
Morgunblaðið/Jim SmartDansarar Íslenska dansflokksins flytja Symbiosis eftir Itzik Galili.
Bros á vörum áhorfenda og dynjandi lófatak vitnaði um gæði nýjustu sýn-
ingar Íslenska dansflokksins.
Dansað
eftir
hjartanu
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir þrjú ný dansverk í Borgarleikhúsinu