Morgunblaðið - 27.02.2003, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003 19
The King of Queens
The Bachelor
Everybody
Loves Raymond
Spennan magnast í The Bachelor
eftir því sem stúlkunum fækkar.
Verður það Gwen, Helene eða
Brooke sem tekur pokann sinn
í kvöld? Fylgstu með kraumandi
kynþokka og geislandi gáfum
í kvöld kl. 22.00.
F
im
m
tu
d
a
g
a
r
alltaf ókeypis
Raymond er nánast óþolandi á heimili en Debra
elskar hann samt. Sama á við um foreldra hans
og bróður, þótt kærleikurinn geti verið kekkjóttur
á köflum. Á dagskrá í kvöld kl. 20.00.
Þættirnir vinsælu um sendilinn íturvaxna,
Doug Heffernan, hina indælu eiginkonu hans,
Carrie, og algerlega truflaðan tengdaföður,
eru alltaf konungleg skemmtun.
The King of Queens í kvöld kl. 21.00.
SILVAN Shalom, sem verið hefur
fjármálaráðherra í stjórn Ariels
Sharons, forsætisráðherra Ísraels,
þáði í gær boð Sharons um að taka við
embætti utanríkisráðherra í nýrri
ríkisstjórn hans.
Búist hafði verið við því að fráfar-
andi utanríkisráðherra, Benjamin
Netanyahu, héldi starfi sínu í hinni
nýju fjögurra flokka stjórn Sharons.
Kom tilnefning Shaloms því verulega
á óvart.
Fregnir hermdu í gærkvöldi að
Netanyahu hefði fallist á að taka við
embætti fjármálaráðherra gegn því
skilyrði að hann yrði jafnframt að-
stoðarforsætisráðherra.
Shalom er 44 ára gamall og lítt
þekktur utan Ísraels. Hann hefur
lengi verið í hópi dyggustu stuðnings-
manna Sharons. Shalom hefur starf-
að sem blaðamaður og var m.a. að-
stoðarvarnarmálaráðherra og
ráðherra vísinda áður en hann tók við
fjármálaráðuneytinu í fyrri stjórn
Sharons. Hann er sagður hafa lagt
fast að Sharon að tilnefna hann í eitt
af valdamestu ráðherraembættunum.
Óvænt ráðherra-
skipti í Ísrael
ÓHÁÐIR rannsóknarmenn,
sem kanna Kólumbíu-slysið,
hafa birt myndir af hitahlífum
með undarlegum, gulrauðum
förum og þykir það styðja
kenningar
um, að
geimferjan
hafi orðið
fyrir ein-
hverju
hnjaski er
hún var á
leið til jarð-
ar. Harold
Gehman,
formaður rannsóknarnefndar-
innar, segir, að þetta sýni ekki
hitaskemmdir. Ferjan fórst er
hún kom inn í gufuhvolfið en þá
sýndu skynjarar, að ofurheitt
rafgas, sem umlukti hana, hafði
með einhverjum hætti komist
inn í hana, líklega um sprungur
í hitaskildinum. Hefur sú kenn-
ing verið að styrkjast, að geim-
rusl hafi skaddað hana eða jafn-
vel einhver hlutur, sem losnað
hafi af henni sjálfri.
Ekki
kraftaverk
KAÞÓLSKA kirkjan úrskurð-
aði í gær, að „grátandi“ trefja-
glersstytta af Maríu mey í
litlum bæ skammt frá Perth í
Ástralíu, væri ekki kraftaverk.
Hefur styttan dregið til sín þús-
undir manna alls staðar að úr
landinu og einnig fólk frá öðr-
um löndum. Barry Hickey,
erkibiskup í Perth, sagði, að
rannsókn sýndi, að tárin væru
jurtaolía í bland við rósaolíu.
Hann vildi þó ekkert um það
segja hvort um vísvitandi
blekkingar væri að ræða. Sagt
er, að styttan hafi farið að
„gráta“ í mars fyrir ári en tára-
flóðið stöðvaðist um miðjan jan-
úar síðastliðinn.
Sambands-
laust
við Pioneer
NASA, bandaríska geimvís-
indastofnunin, hefur misst
samband við geimfarið Pioneer
10 en það var sent á loft fyrir
rúmlega 30 árum. Upphaflega
var aðeins búist við, að það ent-
ist í 21 mánuð. Pioneer varð
fyrst til að fara í gegnum loft-
steinabeltið og senda til jarðar
nærmyndir af Júpíter. Gerði
það ýmsar aðrar athuganir á
reikistjörnunni og staðfesti, að
hún er aðallega í vökvaformi.
Líklegt er, að senditæki Pion-
eers hafi loks gefist upp en
geimfarið er nú með stefnu á
rauðu stjörnuna Aldebaran.
Alvarlegt
ferjuslys
FUNDIST hafa lík 28 manna
en 42 er enn saknað eftir að
eldsvoði í yfirfullri ferju olli því,
að hún sökk undan ströndum
Norður-Súmötru í Indónesíu á
mánudag. 63 mönnum tókst að
bjarga en raunar er ekki vitað
með vissu hver margir voru um
borð. Hafði það ekki verið
skráð en alsiða er, að því og ör-
yggiskröfum almennt sé lítið
sinnt í Indónesíu. Veldur það
mörgum slysum á ári hverju.
STUTT
Kenning
um árekst-
ur við rusl
styrkist