Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.icelandair.is Alltaf ódýrast á Netinu D-LISTI FÆR 39,5% FYLGI Sjálfstæðisflokkurinn fengi 39,5% atkvæða og 25 þingmenn kjörna ef gengið yrði til kosninga nú en Sam- fylkingin fengi 34% fylgi og 22 þing- menn. Eru þetta niðurstöður könn- unar sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir Morgunblaðið. Fylgi Framsóknar mældist 11,7%. „Leiðarvísir“ George W. Bush Bandaríkja- forseti tilkynnti í gær að birtur yrði „leiðarvísir“ um friðarumleitanir í Miðausturlöndum um leið og Palest- ínumenn hefðu staðfest skipan nýs forsætisráðherra. Bæði Palest- ínumenn og Ísraelar létu í ljósi efa- semdir um tilkynningu forsetans. Hrekjast úr landi Háir vextir og óstöðugt gengi krónunnar hafa haft mjög skaðleg áhrif á íslenskan iðnað, sagði Vil- mundur Jósefsson, formaður Sam- taka iðnaðarins, á Iðnþingi í gær. Kvaðst hann hafa áhyggjur af því, að háir vextir myndu hrekja fram- leiðslufyrirtæki úr landi. Ekki atkvæðagreiðsla? Auknar líkur eru nú taldar á því að Bandaríkjamenn hætti við að bera undir atkvæði í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna drög að álykt- un er fæli í sér heimild til að afvopna Íraka með vopnavaldi. Biðja um stuðning Serbnesk stjórnvöld fóru í gær fram á að fá stuðning erlendra ríkja og alþjóðastofnana, þar sem hætta sé á að öflum sem andsnúin er um- bótum í landinu vaxi ásmegin í kjöl- far morðsins á Zoran Djindjic, for- sætisráðherra Serbíu, sl. miðviku- dag. Alls hafa rúmlega 180 manns verið handteknir í tengslum við rannsókn morðsins. Bjartsýni á samning Fulltrúar samninganefnda Ís- lands og Færeyja eru bjartsýnir á að innan skamms muni takast að ganga frá víðtæku samkomulagi um við- skipti á milli landanna, m.a. um frí- verslun með landbúnaðarvörur. Óvíst með loðnuna Ekki tókst að mæla veiðistofn loðnu í rannsóknarleiðangri sem lauk nú í vikunni og ríkir óvissa um ástand stofnsins. Ekki er grundvöll- ur fyrir úthlutun upphafskvóta. FERMINGAR 2003 L a u g a r d a g u r 15. m a r s ˜ 2 0 0 3 Yf ir l i t Stóriðjuframkvæmdir við Kárahnjúka og væntanleg ál- versbygging á Reyðarfirði hafa hleypt fjöri í atvinnu- lífið fyrir austan. Guðni Einarsson og Ragnar Axelsson brugðu sér austur. Píanisti Polanskis Roman Polanski gerir síðari heimsstyrjöldina að um- fjöllunarefni sínu í kvikmyndinni Píanistinn. Skarphéð- inn Guðmundsson hlýddi á orð leikstjórans. Skuggahverfið tekur breytingum Birta og útsýni spila stórt hlutverk í hönnun fjölbýlis- húsahverfis sem rísa á í Skuggahverfinu. Jóhanna Ingvarsdóttir ræddi við Einar I. Halldórsson. Bjart yfir Austfirðingum á sunnudaginn Í dag Sigmund 8 Viðhorf 36 Viðskipti 14/16 Umræðan 37/38 Erlent 20/22 Minningar 39/43 Höfuðborgin 22/23 Kirkjustarf 44/45 Akureyri 26 Myndasögur 48 Suðurnes 27 Bréf 48/49 Árborg 28 Dagbók 50/51 Landið 29 Íþróttir 5255 Heilsa 33 Leikhús 56 Neytendur 30/31 Fólk 51-61 Listir 31/36 Bíó 58/61 Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62 Þjónustan 35 Veður 64 * * * ÞEMADÖGUM í Laugarnesskóla lauk í gær með því að börnin sungu og dönsuðu við lagið Ég syng í rigning- unni. Nemendur unnu alla vikuna að fjölbreyttum verk- efnum tengdum vatni. Hluti nemenda setti til að mynda upp stíflu í læk í Katlagili en aðrir heimsóttu Nauthóls- vík. „Þetta heppnaðist mjög vel og nemendur fengu að vinna að fjölbreyttum verkefnum þar sem sköpunar- gleðin fékk að njóta sín,“ sagði Helgi Grímsson skóla- stjóri. Í kjölfarið skreyta nú skólann mjög fjölbreytt verk nemenda. Dansað í rigningunni Morgunblaðið/Sverrir „ÞETTA er gríðarlegt áfall,“ sagði Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, framkvæmdastjóri Íslandsfugls í Dalvíkurbyggð, en stjórn félagsins samþykkti í gær að óska eftir að það yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Ís- landsfugl fékk greiðslustöðvun í síð- ustu viku í kjölfar þess að viðskipta- banki félagsins gjaldfelldi afurðalán fyrirtækisins. Forsendur greiðslu- stöðvunar eru hins vegar brostnar þar sem viðvarandi hallarekstur er á félaginu vegna hins lága afurðaverðs á kjötmarkaði. Rögnvaldur sagði að undanfarið hefði um 15 tonnum verið slátrað hjá Íslandsfugli á viku og væri gert ráð fyrir að einnig yrði slátrað í næstu viku. Fóðrun og eldi fugla hafa verið tryggð fram eftir næstu viku, en Ólafur Rúnar Ólafsson skiptastjóri mun væntanlega taka ákvörðun um framhaldið. Ekki grunnur fyrir áframhaldandi rekstri „Vissulega hefðu menn óskað að mál hefðu farið á annan veg,“ sagði Rögnvaldur Skíði. „En þegar farið var ofan í málið var ekki talinn neinn grunnur fyrir áframhaldandi rekstri. Það var búið að stöðva allt rekstrarfé félagsins með gjaldfellingu á afurða- láni þannig að ekki var hægt að reka það nema með eignasölu eða því að fá inn nýtt fé. Menn mátu stöðuna þannig að ástandið á kjötmarkaðn- um væri með þeim hætti að ekki væri verjandi að slást í þessu leng- ur.“ Hann bætti við að eignirnar væru til staðar í Dalvíkurbyggð þannig að vissulega væru mögu- leikar fyrir hendi á meðan eignirnar væru til. 45 starfsmenn Alls starfa um 45 manns hjá Ís- landsfugli og haft er eftir Sigmundi Ófeigssyni, stjórnarformanni félags- ins, í frétt frá fyrirtækinu að stjórnin harmi mjög lyktir málsins, einkum vegna starfsfólksins. Gjaldþrot Ís- landsfugls endurspegli hið hörmu- lega ástand sem sé nú á kjötmarkaði. Afurðaverð á svínakjöti, kjúklingum og lambakjöti sé í sögulegu lágmarki sem leiði af sér hallarekstur hjá framleiðendum, sláturleyfishöfum og vinnslustöðvum. Áætlanir um framleiðslu, rekstrarkostnað og gæðamál hafi staðist, en tekjurnar algjörlega brugðist vegna hins lága afurðaverðs en þar liggi rót vandans fyrst og fremst. Tap félagsins á liðnu ári nam um 150 milljónum króna. Íslandsfugl óskar gjaldþrotaskipta Akureyri. Morgunblaðið. HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness frestaði í gær að ákveða refsingu 19 ára pilts sem var fundinn sekur um að hafa haft 57 ljósmyndir með barnaklámi í tölvu hjá sér. Pilturinn játaði skýlaust brot sitt. Í dómnum segir að þegar litið er til alvarleika brotsins annars vegar og hins vegar hreins sakaferils, ungs aldurs, játningar, iðrunar og vott- orðs geðlækna sem lagt var fyrir dóminn, þyki mega ákveða að ákvörðun um refsingu verði frestað. Haldi pilturinn skilorð í tvö ár verð- ur honum engin refsing gerð. Með myndir af barnaklámi í tölvunni SAMBÍÓIN og Háskólabíó hafa ákveðið að lækka almennt miðaverð um 6,25% eða úr 800 krónum í 750 krónur. Lækkunin tók gildi í gær. Segir í fréttatilkynningu frá Sambíó- unum og Háskólabíói að sökum stærðar og aukinna umsvifa hafi fyr- irtækin náð fram hagstæðari inn- kaupum og þannig getað lækkað ýmsan kostnað við reksturinn. Einn- ig hafi gengi dollarans hjálpað til við að lækka verð á kvikmyndum sem eru keyptar á frjálsum markaði. Lækkar um 50 krónur í bíó TÆPLEGA þriðjungur þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í lok febr- úar voru á aldrinum 15–24 ára eða 30,2%, samanborið við 28,1% árið áður, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Hlutfall ung- menna á atvinnuleysisskrá hefur ekki verið hærra í um 10 ár. Í lok febrúar höfðu 1.239 ein- staklingar verið atvinnulausir í sex mánuði eða lengur, samkvæmt upp- lýsingum frá Hagstofu Íslands. Þetta er 19,9% af heildarfjölda at- vinnulausra á landinu. Þetta hlutfall var 12,7% í lok febrúar 2002. Árið 1998 var hlutfall þeirra sem höfðu verið atvinnulausir í sex mánuði eða lengur 35%. Þeim fækkaði hratt á næstu árum og árið 2002 var hlut- fallið orðið 19,4%. Atvinnuleysi á landinu öllu er nú um 4,1%. Mesta at- vinnuleysi ungmenna í tíu ár ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.