Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 9 Eddufelli 2, s. 557 1730 Bæjarlind 6, s. 554 7030. Opið mán–fös. frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 Glæsilegur vor- fatnaður frá Pas Str. 36-42 & 44-56 Glæsilegar kjóldragtir Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14 Franskar stúdentadragtir með Lísu B. Hjaltested Þátttakendum er kennd notkun ilmkjarnaolía fyrir börn og fullorðna á fyrirbyggjandi hátt og í baráttunni við ýmsa almenna kvilla. Ýmis búnaður fylgir auk kennslumöppu. Kennt 21.– 22. mars (föstud. kl. 19:30-22 og laugard. kl. 14:30-17) Notkun ilmkjarnaolía - stig 1 Auðbrekku 14, Kópavogi, símar 544 5560 og 820 5562, www.yogastudio.is Nýtt kortatímabil Flott sumarlína Heimakjólar ný sending Opið til kl. 16 í dag Laugavegi 4, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Vor 2003 Augustsilk Augustsilk Opið í dag frá kl. 13 -17 í Síðumúla 35 – 3. hæð  Útsala – Útsala Silkipeysur frá kr. 1.900 Mikið úrval í „small“ Silkináttfatnaður frá kr. 1.900 Flottir dúkar og pashminur Engin kort Maura-heilsársfrakkar með lausu fóðri Bómullarfrakkar Laugavegi 63, sími 551 4422 15-50% afsláttur Nýtt kortatímabil EIRÍKUR Þorláksson, forstöðu- maður Listasafns Reykjavíkur, segir að samstarfs safnsins við Ís- landssíma hafi verið einkar farsælt fyrir báða aðila. Nýtt samkomulag hefur nú verið gert og tekur Eirík- ur skýrt fram að Íslandssími standi við allar skuldbindingar sín- ar gagnvart safninu og vel það. Samstarfssamningur frá 30. des- ember 2000 átti að renna út í lok þessa árs en Eiríkur segir að vegna þess að Íslandssími hefur nú runnið inn í nýtt fjarskiptafélag með Halló og Tali, hafi verið ákveðið að gera nýtt samkomulag. Aðilar hafi verið sammála um að í stað fullrar greiðslu Íslandssíma til listasafnsins, skv. upphaflegum samningi, væri báðum í hag að beint fjárframlag yrði hluti af því sem upphaflega var áætlað. Á hinn bóginn héldi Íslandssími, undir merkjum hins nýja sameinaða fyr- irtækis, áfram að greiða fjar- skiptakostnað safnsins til ársloka 2005. Ávinningur safnsins kæmi því fram á lengri tíma og væri síst minni. Í raun mætti segja að sam- starfssamningurinn hafi verið framlengdur um tvö ár. Eiríkur bendir á að á þeim tíma sem samn- ingurinn var undirritaður hafi hann verið sá stærsti sem menn- ingarstofnun hérlendis hafi gert við einkafyrirtæki. Sú staðreynd að safnið og fyrirtækið ætli að vinna áfram saman á ýmsum svið- um sé glöggt merki um ánægju beggja með samstarfið. Samkvæmt hinu nýja samkomu- lagi sem var undirritað í lok febr- úar og síðan samþykkt í borgar- ráði greiðir Íslandssími safninu samtals sjö milljónir króna, þar af fjórar vegna fjarskiptakostnaðar til ársloka 2005 og þrjár milljónir í lokagreiðslu. Einnig kostar fyrir- tækið GSM-leiðsögn um safnið. Ís- landssími afsalaði sér réttindum til að vera sýnilegur styrktaraðili safnsins og getur listasafnið orðið sér úti um nýja styrktaraðila á þessu ári. Listasafn Reykjavíkur og Íslandssími áfram í samstarfi Sjö milljóna króna greiðslur á þremur árum STEFÁN Snævarr hefur verið skipaður prófessor í heimspeki við háskólann í Lillehammer í Noregi. Stefán hefur kennt við skólann undanfarin fjög- ur og hálft ár og gegndi áður stöðu dósents. Sótt er sérstak- lega um prófess- orsstöðu við há- skólann í Lille- hammer og verð- ur umsækjandi að leggja fram ígildi tveggja dokt- orsritgerða. Stefán lagði fram doktorsritgerð sína Minerva and the Muses. The Place of Reason in Aesthetic Judgement, auk fjölda smágreina. Þá lagði hann og fram bókarhandrit á norsku, Fra Logos til Mytos. Metaforer, mening og erkjennelse. Í fyrri bók Stefáns er fjallað um spurninguna hvort listdómar séu bara smekksatriði en í hinni síðari hvort myndhverfingar hafi sérstaka merkingu og hvor þær geti veitt fólki þekkingu. Stefán Snæv- arr skipaður prófessor Stefán Snævarr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.