Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 EKKI tókst að mæla veiðistofn loðnu í rannsóknaleiðangri Haf- rannsóknastofnunarinnar sem lauk nú í vikunni og ríkir mikil óvissa um ástand stofnsins. Ekki er grund- völlur fyrir upphafsúthlutun loðnu- kvóta fyrir sumar- og haustvertíð sem hefst 20. júní. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, seg- ir mikla óvissu um ástand loðnu- stofnsins. Fundist hafi talsvert af þriggja ára loðnu úti fyrir Austur- landi en þó ekki í nærri nógu miklu magni til að standa undir heilli ver- tíð. Þá hafi nánast ekkert sést til tveggja ára loðnu fyrir Norður- og Norðvesturlandi. Íshröngl og bræl- ur hafi auk þess torveldað leit úti fyrir Vestfjörðum og því hafi leið- angrinum verið sjálfhætt. Þannig hafi ekki náðst að mæla efnivið fyr- ir næstu vertíð. Samkvæmt veiði- reglu, sem notuð hafi verið með ágætum árgangri á loðnustofninn til þessa, hafi hann ekki nægileg gögn í höndum til að leggja til upp- hafskvóta fyrir næstu vertíð. Sé brýnt að leggja áherslu á auknar rannsóknir sem allra fyrst, til að fá úr því skorið hvert raunverulegt ástand stofnsins er. Hjálmar vill þó ekki útiloka að efniviðurinn sé til og telur líklegt að breytt hitafar sjávar við landið hafi haft áhrif á útbreiðslusvæði ung- loðnu. „Seiðafjöldi 2001-árgangsins var sá fjórði mesti sem mældur hefur verið í 34 ár. Þótt ekki sé alltaf gott samband milli seiðafjölda og ár- gangastærðar seinna á ævinni ætti það að gefa vísbendingar um sterk- an árgang. Það er mjög hlýtt í haf- inu fyrir norðan land og hlýsjórinn nær langt út. Það er líka hlýr sjór fyrir austan og því get ég ímyndað mér að þessi árgangur sé dreifður um óhefð- bundið útbreiðslusvæði. Mér þykir að minnsta kosti ólíklegt að þessi loðna hafi öll drepist og vonandi heldur hún sig norðar og vestar en við höfum áður séð,“ segir Hjálmar. Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson Loðnuvertíðin er að fjara út og ljóst að ekki verður bætt við kvótann. Mikil óvissa er um ástand loðnustofnsins SAMNINGAR um byggingu 322.000 tonna álvers Alcoa í Reyðarfirði verða undirritaðir eystra í dag. Hægt er að skrifa undir þar sem starfsleyfi frá Um- hverfisstofnun og álit Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) voru gefin út í gær. ESA telur að Reyðarfjörður uppfylli þau skilyrði sem nauðsynleg séu svo opinberir aðilar geti veitt svæðisbundna aðstoð. Segir að stuðningurinn sé sömuleiðis vel innan marka um hámarksaðstoð. Þá veitti Umhverfisstofnun í gær starfsleyfi fyr- ir starfsemi 322.000 tonna álvers á iðnaðarsvæðinu við Hraun í Reyðarfirði. Leyfið tekur gildi um leið og starfsemi hefst og gildir til 1. júní 2020. Samningana undirrita Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og Geir H. Haarde fjármálaráð- herra, Alain J.P. Belda, stjórnarformaður og for- stjóri Alcoa, Michael Baltzell, formaður samninga- nefndar Alcoa, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, Friðrik Soph- usson forstjóri og Guðmundur Bjarnason, bæj- arstjóri Fjarðabyggðar. Álverssamningar undir- ritaðir í Reyðarfirði í dag Morgunblaðið/RAX Mikið verður um dýrðir í Reyðarfirði í dag. Jóhann Þorsteinsson og Edda Gísladóttir unnu við undirbúning hátíðarhaldanna í gærkvöld og halda hér á tölvugerðri mynd af álverinu eins og það mun væntanlega líta út. Gunnar Ásgeir Karlsson, bakarameistari í Fjarða- brauði, með hátíðarköku, sem verður 10 metra löng og 45 cm breið, vegur 273 kg og er fyrir 1.400 manns. ESA og Umhverfisstofn- un hafa gefið grænt ljós SÝNING á verkum Louisu Matthías- dóttur listmálara var opnuð í Hafn- arborg í gærkvöldi. Við það tækifæri sagði Matthías Johannessen skáld frá kynnum sínum af Lousiu og list hennar. „Ísland var alltaf með henni með ein- hverjum hætti. Annars var hún svo sjálf- stæð og fór sínar eigin leiðir á hverju sem gekk. Hún gekk aldrei neinni tísku á hönd. Hún var ekki einn af þessum listamönnum sem náðu sér niðri í fjöl- miðlum, það gerði hún í verkum sínum,“ sagði Matthías í samtali við Morg- unblaðið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísland var alltaf með henni  Hún var/Lesbók 16 MIKLAR annir hafa verið á þingi síðustu daga og var 41 þingmál á dagskrá þegar þingfundur hófst í gærmorgun. Laust fyrir miðnætti leit út fyrir að þingið myndi klár- ast um kl. 2 í nótt en þá gekk nokkuð vel að afgreiða mál. Framan af degi var mikil umræða um frumvarp samgönguráðherra til hafnalaga. Ágreiningur var um það milli stjórnar og stjórnarandstöðu hvort afgreiða ætti það frumvarp frá þingi. Einnig var ágreiningur um afgreiðslu annarra frumvarpa, s.s. frumvarps til raforkulaga, frumvarps um vatnsveitur sveitarfélaga og frumvarps um lýðheilsustöð. Nokkur frumvörp voru hins vegar gerð að lögum á ellefta tímanum í gærkvöld. Þar á meðal frumvarp um fjáraukalög 2003, vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar í atvinnu- og byggðamálum og frumvarp um stofnun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkis- ins. Starfsáætlun Alþingis gerði ráð fyrir að þingstörfum á þessu kjörtímabili lyki 14. mars. Laust fyrir miðnætti leit því út fyrir að það tækist þrátt fyrir að þingstörf drægjust fram fyrir miðnætti. Útlit fyrir þinglok í nótt  Alþingi/10 SÖNGKONAN Birgitta Haukdal syngur ekki lengur „Segðu mér allt“ heldur „Open your heart“ en lagið verður flutt á ensku í lokakeppni Evróvisjón í Riga í maí. Tökum er nýlokið á myndbandi við lagið, sem Ragnar Bragason leikstýrir, og verð- ur það frumflutt í Sjónvarpinu laug- ardaginn 22. mars. Sungið á ensku í Riga  Segðu/59 „Segðu mér allt“ verður „Open your heart“ „ÞAÐ lá við að það væri athöfn, þegar karlarnir fengu sér í nefið úr dós- unum,“ segir Helgi Hálf- danarson um tóbaksdósir föður síns, síra Hálfdanar Guðjóns- sonar, vígslubiskups á Sauðár- króki. Eru það silfurdósir í bar- okkstíl með stóra perlumóðurskel yfir allt lokið og gyllingu á því inn- anverðu. Upphaflega voru dósirnar í eigu Jóns Vigfússonar Hólabiskups, sem lést árið 1690, síðar Páls Páls- sonar í Þingmúla en hann drukkn- aði með dósirnar í vasanum í Grímsá á Völlum. Komu dósirnar fram þegar lík hans rak. Helgi segir að Snæfríður Ís- landssól kunni að hafa handleikið gripinn. Hann rekur eigendasögu dósanna í viðtali í Lesbók í dag. Dósirnar eiga að vera ættargripur með niðjum síra Hálfdanar og skal þeim ekki fargað úr ættinni nema þær gangi til Þjóðminjasafnsins. Víðförlar tóbaksdósir  Sagan af/Lesbók 10 TOLLGÆSLAN á Keflavík- urflugvelli handtók í gær Ís- lending á fertugsaldri sem hugðist smygla um 150 grömmum af hassi til lands- ins. Fíkniefnin voru falin í skóm mannsins en hann hafði holað hæla þeirra út til að koma hassinu fyrir. Maðurinn er búsettur í Danmörku en kom til lands- ins með síðdegisvél frá Kaup- mannahöfn í gær. Að sögn Kára Gunnlaugssonar, aðal- deildarstjóra tollgæslunnar, kvaðst maðurinn hafa ætlað efnið til eigin neyslu. Lög- reglan á Keflavíkurflugvelli tók við rannsókn málsins en það telst að fullu upplýst. Skrýtin lykt úr skónum ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.