Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐINU hefur borist at- hugasemd frá Geir H. Haarde, fjár- málaráðherra, m.a. vegna ummæla Jó- hönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, í blaðinu í gær um að stjórnarflokkarnir afnámu tengingu persónuafsláttar við verðlagsbreyting- ar: „Jóhönnu Sigurðardóttur svíður það greinilega að bent skuli á þá staðreynd að hún var ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem fyrst rauf tengingu persónuaf- sláttar við verðlagsbreytingar. Það gerðist á valdatíma ríkisstjórnarinnar sem sat 1989 – 1991 en þá var Jóhanna félagsmálaráðherra en Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. Þetta var skömmu eftir að hinu nýja stað- greiðslukerfi skatta var komið á í árs- byrjun 1988 en þá var gert ráð fyrir að persónuafsláttur fylgdi lánskjaravísi- tölu, sem hefur reyndar síðan verið af- lögð. Persónuafsláttur hefur ekki fylgt verðlagsvísitölu síðan þá. Þetta hafa eldri borgarar réttilega bent á að und- anförnu og tengslin þarna á milli voru endanlega afnumin með lögum 1996. Engin sérstök rök mæla heldur með tengingu af þessu tagi. Þegar stað- greiðslukerfinu var komið á voru vísi- tölutengingar af ýmsu tagi hins vegar algengar í lögum enda verðbólga þá mikil. Nú er ástandið gjörbreytt eins og allir þekkja. Persónuafsláttur hefur undanfarin ár hækkað til samræmis við almennar umsamdar kauphækkan- ir á vinnumarkaðnum og ekkert við það að athuga að mínum dómi. Samkvæmt tölum samtaka eldri borgara vantar 28% upp á að persónu- afslátturinn hafi haldið verðgildi sínu frá 1988. Það er hins vegar athyglis- vert að 20 af þessum 28 prósentum voru fram komin 1994, þ.e.a.s. á meðan Jóhanna Sigurðardóttir var ráðherra. Í ljósi þessara staðreynda finnst mér nokkuð djarfmannlegt hvernig Jó- hanna Sigurðardóttir kastar stórgrýti úr glerhúsi sínu. Staðreyndin er hins vegar sú að eldri borgarar, rétt eins og aðrir þegn- ar landsins, hafa notið mikils ávinnings af þeirri efnahagsstefnu sem hér hefur verið fylgt undanfarin ár og haft hefur að leiðarljósi að bæta lífskjörin. Þannig hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna þeirra sem eingöngu fá bætur al- mannatrygginga aukist um 39% á sl. tólf árum. Það er ástæðulaust að gera lítið úr þeim mikla árangri.“ Kastar stórgrýti úr glerhúsi Geir H. Haarde um ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur SEGJA má að fyrsti dagur þingvik- unnar, sl. mánudagur, hafi gefið tón- inn fyrir það sem koma skyldi. Vikan hófst nefnilega á því að formaður efnahags- og viðskiptanefndar þings- ins, Einar K. Guðfinnsson, kom fimmtán sinnum í pontu til að mæla fyrir jafnmörgum nefndarálitum, það gerði hann á alls 23 mínútum. Enginn annar tók til máls í fjórtán fyrstu málunum. Þingmaðurinn kom semsé aftur og aftur í ræðustól og því oftar sem hann kom þeim mun hraðmæltari varð hann; líkt og hann væri að flýta sér að lesa nefnd- arálitið. Eftir að Einar hafði mælt fyrir fimmtánda málinu gerði hann hlé á þessum ferðum sínum upp í ræðustólinn og niður úr honum aft- ur. Tveir þingmenn komu fram með nokkrar athugasemdir við fimm- tánda málið og að því búnu tók ann- ar nefndarformaður, Hjálmar Árna- son, formaður iðnaðarnefndar, við og mælti fyrir sínu nefndaráliti. Hann kom þó ekki eins oft upp og Einar að þessu sinni. Þannig hófst hin annasama vika á þingi sem jafnframt er síðasta þing- vikan á þessu kjörtímabili. Þing- fundir hófust fyrir hádegi alla dag- ana og stóðu fram eftir kvöldi og jafnvel fram á nótt. Og einn fundur stóð yfir alla nóttina eða þar til fór að birta af degi. Í upphafi hvers fundar voru yf- irleitt um fjörutíu til fimmtíu þing- mál á dagskrá. Fjölmörg mál voru því rædd og afgreidd. Í gærkvöldi eða þegar þetta er skrifað var búið að gera hátt í fimmtíu frumvörp að lögum í vikunni og nær tuttugu þingsályktunartillögur höfðu verið samþykktar. Sem dæmi um hraða afgreiðslu má nefna að 29 laga- frumvörp voru afgreidd frá Alþingi á 14 mínútum á mánudag. Líklega ekki oft sem slíkt gerist. Miðað við þann málafjölda og hraða sem einkenndi þingstörfin var kannski ekki að undra þótt Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, gerði vinnutíma þingmanna að umtalsefni eina nótt- ina. Í máli hans kom nefnilega fram að það væri svolítið sérstakt að á sama degi og þingmenn hefðu sam- þykkt lög um vinnu- og hvíldartíma skipverja skyldu þingmennirnir sjálfir vinna fram eftir öllu! Já, hraðinn var mikill. Á því fengu ýmsir þingmenn að kenna. Til dæm- is fréttist af þingmanni sem ætlaði svo sannarlega að taka til máls í til- teknu máli. Sat hann því sem fastast í þingsalnum. Þegar líða tók á nótt- ina þurfti hann hins vegar að bregða sér á klósettið. En þegar hann kom til baka var málið afgreitt. Forseti þingsins hafði á meðan tekið það á dagskrá og þar sem enginn tók til máls var „umræðunni“ lokið áður en þingmaðurinn náði að koma sér til baka! Þuríður Backman, þingmaður Vinstri grænna, fékk líka að kenna á hraðanum. Hún átti von á því að þurfa að mæla fyrir nefndaráliti eina nóttina. Hélt hún að tíminn væri nægur og fylgdist með umræðunum úr skrifstofu sinni. Fyrr en varði var mál hennar hins vegar komið á dag- skrá og þurfti hún því að flýta sér frá skrifstofunni yfir í þingsalinn. En hraðinn var svo mikill að hún gleymdi gleraugunum sínum. Sagði hún frá því í upphafi ræðu sinnar enda þurfti hún að vitna í þing- skjalið. Nokkrir þingmenn létu ekki segja sér það tvisvar; brugðust skjótt við og réttu henni sín gler- augu – svo hægt yrði að bjarga mál- unum. Fyrst fékk hún gleraugu frá góðhjörtuðum framsóknarþing- manni. Setti hún þau upp en sagði svo að hún sæi ekkert með þessum framsóknargleraugum. Eftir að hafa prófað einhver gleraugu til viðbótar tók hún við gleraugunum hans Jóns Bjarnasonar, flokksbróður síns. Varð henni þá að orði að gleraugu Vinstri grænna væru best; hún sæi best með þeim. Starfsáætlun Alþingis gerði ráð fyrir að þingstörfum á þessu kjör- tímabili myndi ljúka 14. mars. For- seti Alþingis, Halldór Blöndal, sagði alltaf aðspurður í vikunni að það myndi væntanlega nást. Um hádegi í gær var hins vegar torséð hvernig það ætti að takast; ellefta þingmál dagsins, frumvarp samgöngu- ráðherra til hafnalaga, var til um- ræðu og þar með átti eftir að fjalla um þrjátíu mál til viðbótar skv. dag- skrá dagsins. Fjölmargir höfðu kvatt sér hljóðs í umræðunni um hafnalög- in og þegar komið var fram yfir há- degi voru margir þingmenn enn á mælendaskrá, aðallega þingmenn Vinstri grænna og Samfylking- arinnar. Svo virtist sem málþóf væri í uppsiglingu þótt enginn í stjórn- arandstöðunni vildi viðurkenna það – opinberlega að minnsta kosti. Málþóf er reyndar ekki óþekkt undir lok þingstarfa. Stjórnarand- stöðuflokkar grípa stundum til þess í þeim tilgangi að hafa áhrif á það hvaða frumvörp verða afgreidd frá þingi og hvaða frumvörp verða geymd. Þegar samkomulag um það hefur náðst milli stjórnar og stjórn- arandstöðu hættir stjórnarandstaðan málþófinu og þinginu lýkur. Þegar þetta er ritað hefur ekkert slíkt sam- komulag náðst. En kannski það náist í nótt. Hver veit? Og náist það er þinginu lokið á þessu kjörtímabili.      Í nógu að snúast á þingi EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra bragðar á ís- lensku lambakjöti í tilefni íslenskra daga sem nú standa yfir í Nóatúnsverslununum. Guðni brá sér á bak við borðið í Nóatúni við Hringbraut í Reykjavík og afgreiddi þetta „besta lamb í heimi“ til við- skiptavina. Íslenskir dagar í Nóatúni eru árlegur við- burður. Þeir voru settir í gær og standa til 27. mars. Ýmsar nýjungar verða kynntar í verslununum þessar vikur auk þess sem boðið verður upp á uppskrifta- þjónustu. Guðni bragðar „besta lamb í heimi“ ÞORGERÐUR Katrín Gunn- arsdóttir, formaður allsherjar- nefndar Alþingis, sendi Morg- unblaðinu athugasemd þar sem hún vill leiðrétta það sem fram kom í máli Heiðrúnar Lindu Marteinsdóttur, formanns Lögréttu – félags lagadeildar Háskólans í Reykjavík, um að fulltrúar Lögréttu hafi ekki verið boðaðir á fund allsherjar- nefndar vegna umfjöllunar um breytingar á lögum um lög- menn. „Þeir, eins og aðrir fulltrúar annarra nemendafélaga, voru boðaðir af ritara og skjalaverði nefndasviðs Alþingis sem sjá um boðun á fundi þingnefnda. Fulltrúar Lögréttu fengu því boð á fundinn og var nafn þeirra m.a. sett á dagskrá þessa umrædda fundar alls- herjarnefndar,“ sagði Þorgerð- ur Katrín í athugasemd sinni. „Fulltrúar Lögréttu fengu boð“ GREIÐSLUR fyrir röntgenrann- sóknir hafa hækkað úr 900 krónum í allt að 18.000 krónur frá árinu 1993 fram til dagsins í dag. Þetta kemur fram í skriflegu svari heilbrigðisráð- herra, Jóns Kristjánssonar, við fyrir- spurn Ástu R. Jóhannesdóttur, þing- manns Samfylkingarinnar. Þingmaðurinn spyr um hlutdeild sjúklinga í kostnaði við rannsóknir, m.a. í kostnaði við röntgenrannsókn- ir. Í svarinu kemur m.a. fram að sjúkratryggðir hafi greitt 900 kr. fyrir hverja komu til röntgengreiningar 1993. Greiðslurnar breyttust á næstu árum með nýjum reglugerðum, en skv. reglugerð sem tók gildi 1. janúar 2002 hækkaði hámarksgreiðsla fyrir röntgengreiningu í 18.000 kr. Úr 900 kr. í 18.000 kr. PÁLL Pétursson félagsmálaráð- herra sagði á Alþingi í gær að hann myndi leggja það til við Trygginga- stofnun ríkisins að hún greiddi með sama hætti og hingað til úr Fæðing- arorlofssjóði meðan verið væri að at- huga með hvaða hætti greidd verði orlofslaun úr sjóðnum. Eins og fram kom í skriflegu svari ráðherra fyrr í mánuðinum, við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Sam- fylkingarinnar, telur hann að Fæð- ingarorlofssjóði beri að greiða for- eldrum orlofslaun vegna þess tíma sem þeir eru í fæðingarorlofi og njóti greiðslna úr sjóðnum. Jóhanna Sigurðardóttir kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar í gærmorgun og spurði ráðherra hvernig hann ætlaði að standa að framkvæmd þess að greiða orlofs- launin með greiðslum úr Fæðingar- orlofssjóði. Jóhanna sagði að enginn vafi léki á að greiða yrði öllum þeim, sem tekið hafa fæðingarorlof, slíka orlofsgreiðslu afturvirkt frá því nú- gildandi lög um fæðingar- og for- eldraorlof tóku gildi árið 2000. Ráð- herra sagði hins vegar ekki ljóst hvort slíkar greiðslur yrðu afturvirk- ar til ársins 2000. Samkvæmt fæð- ingarorlofslögunum væri kærufrest- ur þrír mánuðir og kæra fyrndist eftir þann tíma. Því væri afturvirkn- in lögfræðilegt úrlausnarefni. Jóhanna spurði einnig hvenær Tryggingastofnun fengi leiðbeining- ar um hvernig ætti að haga fram- kvæmd þessara greiðslna. Ráðherra sagði að verið væri að fara yfir málið en það væri umfangsmikið. Hann sagði m.a. að skoða þyrfti fordæmi, dóma og forsendur lagasetningar- innar. Jóhanna kvaðst hafa orðið fyrir vonbrigðum með svör ráðherra og sagði að svo virtist sem hann væri kominn á flótta undan eigin ákvörð- un. Úrskurður hans hefði verið mjög skýr. Sagðist hún telja að hann væri nægilegur til að þeir sem ættu rétt á fæðingarorlofi og hefðu átt síðustu tvö ár gætu farið í Tryggingastofnun og óskað eftir þessum orlofslaunum. Þá sagði Jóhanna að það myndi aldr- ei standast fyrir dómstólum að byggja afturvirkni orlofsgreiðsln- anna á þriggja mánaða kærufresti. Almennur fyrningarfrestur væri fjögur ár. Orlofslaun úr Fæðingarorlofssjóði Deilt um hvort greiðslur verði afturvirkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.