Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 55 DANSKA knattspyrnusambandið seldi alla lausa miða á landsleik Danmerkur og Noregs, sem fram fer á Parken í Kaupmannahöfn hinn 7. júní, á aðeins 41 mínútu í gærmorgun. Þjóðirnar mætast í undankeppni Evrópumóts landsliða og áhuginn fyrir slag grannþjóðanna er gíf- urlegur. Lars Berendt hjá danska knattspyrnusambandinu segir að hæglega hefði verið hægt að selja 100 þúsund miða á leikinn. Parken tekur 42 þúsund áhorf- endur og verður þéttskipaður. Í gærmorgun hóf danska sambandið að selja þá 12.659 miða sem ekki höfðu verið pantaðir eða fráteknir og tók það fljótt af. Ekki hefur verið svona mikill áhugi fyrir leik í Danmörku í tæp fjögur ár, eða síðan Danir mættu Ísraelsmönnum í aukaleikjum um sæti í úr- slitakeppni EM haustið 1999 en þá seldist upp á 33 mínútum. Norðmenn segja að þeir hefðu einir og sér getað selt 42 þúsund miða til að fylla Parken. „Áhuginn hér fyrir þessum leik er gíf- urlegur,“ sagði Knut Kristvang hjá norska knattspyrnusamband- inu. Uppselt á 41 mínútu á Parken  FRAM tapaði sínum fyrsta leik í deildabikarkeppninni í gærkvöldi þegar þeir heimsóttu Þór frá Akur- eyri í Bogann þar í bæ. Jóhann Þór- hallsson skoraði tvívegis fyrir Þór í fyrri hálfleik en Kristinn Tómasson minnkaði muninn úr víti í þeim síð- ari.  GESTIRNIR sóttu mun meira en skyndisóknir heimamanna voru jafn- an hættulegar, hraðar og markviss- ar. Þór hefur unnið alla þrjá leiki sína í deildinni og er með 9 stig eins og Fram sem hefur leikið einum leik meira.  STACY Dragila, stangarstökkvari frá Bandaríkjunum, segir að hún sé mjög nærri því þessa dagana að komast yfir 4,88 metra eða 16 fet. Dragila endurheimti heimsmetið frá Svetlönu Feofanovu fyrir hálfum mánuði þegar hún vippaði sér yfir 4,78 metra.  „ÉG hef æft vel og það hefur geng- ið vel, ég hef meira að segja reynt nokkrum sinnum við 4,88 metra en ekki enn komist alveg yfir, en ég er mjög nærri því,“ segir Dragila og vonast til að bæta heimsmetið á HM í Birmingham, en þar verður stang- arstökkskeppnin einn af hápunktum mótsins enda búist við miklu einvígi Dragilu og Feofanovu.  JUSTIN Gatlin, 21 árs gamall spretthlaupari frá Bandaríkjunum, sigraði í 60 metra hlaupi á HM innan- húss í gær, hljóp á 6,46 sekúndum. „Þetta sýnir öllum hvað ég get og menn verða að vara sig á mér, ekki bara Maurice [Green] og Tim [Montgomery],“ sagði kappinn kampakátur eftir sigurinn.  ZHANNA Block frá Úkraínu sigr- aði í 60 metra hlaupi kvenna nokkuð örugglega en heimsmeistarinn í 100 metra hlaupi utanhúss hljóp á 7,04 sekúndum.  ADAM Malysz frá Póllandi sigraði á heimsbikarmóti í skíðastökki í Finnlandi í gær, fékk 267,4 stig fyrir að stökkva 122 metra og 128 metra. Heimamaðurinn Matti Hautamaki varð annar með 262,8 stig.  RAY Allen, einn þeirra sem skipar bandaríska körfuknattleiksliðið sem tekur þátt í Ólympíuleikunum í Aþenu næsta ár, segist ætla að keppa, jafnvel þó leikmenn fengju ekki greitt fyrir það.  HANN segir að „Draumaliðin“ á fyrstu tvennum leikunum hafi fengið greitt þó svo fólk hafi ekki vitað af því, en hins vegar hafi þeir ekkert fengið þegar keppt var í Sydney.  MEG Mallon lék í gær á 10 undir pari á LPGA mótaröðinni en stúlk- urnar léku þá á Welchs Fry Classic. Hún lék á 60 höggum og átti góðan möguleika á að leika á 11 undir og jafna metið í mótaröðinni, sem Ann- iku Sörenstam frá Svíþjóð á, en hún lék á 59 höggum í Phoenix fyrir tveimur árum. FÓLK ÓVÍST er að Don Hutchison, miðjumaður West Ham, geti leikið með skoska landsliðinu gegn því íslenska á Hampden Park þann 29. mars. Berti Vogts, landsliðsþjálfari Skota, hefur lagt mikla áherslu á að fá þennan 31 árs gamla leik- mann inn í lið sitt en Hutchi- son er nýkominn í gang á ný eftir tíu mánaða fjarveru vegna alvarlegra hnjá- meiðsla. Hutchison átti að leika með West Ham gegn Everton í dag og þar hefði hann verið í byrj- unarliði félagsins í fyrsta skipti í heilt ár, en hann varð fyrir meiðslum á ný og þarf að hvíla í tíu daga. Hutchison hefur komið sex sinnum inn á sem varamaður hjá West Ham á undanförnum vikum og hann lék með Skotum í síð- asta mánuði þegar þeir töp- uðu, 2:0, fyrir Írum á heima- velli í vináttulandsleik. Óvíst með Hutchison gegn Íslandi Jafnt var með liðunum fyrstumínúturnar þar til Magnús Gunnarsson kom Keflavík í nauma forystu með tveimur þriggja stiga körf- um. Það var samt ekki nóg til að kveikja neistann og Damon Johnson bætti um betur í upphafi annars leikhluta. En þegar svo Breiðhyltingar hófu að saxa nið- ur forskotið sást að Keflvíkingum mislíkaði það mikið enda oft farið flatt á því að slaka fullmikið á með naumt forskot. ÍR-ingar gáfu samt lítið út á það og með átta síðustu stigum fyrri hálfleiks tókst þeim að halda heimamönnum við 8 stig, 52:44. Heimamenn mættu vígreifir til síðari hálfleiks. Það skilaði nokkrum stigum til að byrja með en eftir glæsilega troðslu Edmund Saunders eftir sendingu Damons kviknaði neistinn. Keflvíkingar hófu að henda sér á eftir hverjum bolta og rifu boltann úr höndum gestanna. ÍR- ingum var brugðið, þetta var of mik- ið fyrir þá. Keflvíkingar tóku enn betur við sér þegar Jón N. Haf- steinsson sýndi góða baráttu er hann tók á mikinn sprett á eftir Ei- ríki Önundarsyni í hraðaupphlaupi upp völlinn og sló boltann úr hönd- um hans en náði ekki að stöðva sig fyrr en hann hafði rutt niður mörg- um auglýsingaskiltum. Eftirleikur- inn var auðveldur. „Það kom slæmur kafli í lok fyrri hálfleiks og við duttum þá aðeins niður en við náðum okkur á strik eft- ir hlé,“ sagði Jón eftir leikinn. „Það byggist allt á vörninni, það verður að stöðva lykilmenn þeirra eins og Eirík og útlendinginn auk þess að gefa ekki færi á skotum,“ bætti Jón við og telur liðinu alla vegi færa ef það nær að fækka og stytta slöku kaflana, sem hafa oft komið liðinu í klandur í vetur. „Við náum oft tutt- ugu stiga forskoti en þá kemur upp kæruleysi en við megum það ekki og verðum að spila allar fjörutíu mín- úturnar vel. Það gæti komið okkur í koll síðar en við erum að vinna í þessum vanda, nú eru bara nokkrar mínútur mjög slakar, sem er nokkuð minna en vanalega.“ Edmund Saunders byrjaði vel og gerðist síð- an of kærulaus en tók sig á eftir hlé. Damon þurfti ekki að taka leikinn í sínar hendur en stóð samt fyrir sínu eins og reyndar flestir leikmenn Keflvíkinga – eftir hlé. Breiðhyltingar voru ekki alveg með á nótunum og áttu ekkert svar þegar mótherjar þeirra spýttu í lóf- ana. „Við vorum ekki að gera neitt sérstakt fyrstu tvo leikhlutana en spiluðum sérlega illa í næstu tveim- ur og þetta var ömurlegt enda vant- aði alla baráttu í liðið. Þá hættum við að berjast og misstum trú á sigur. Við vissum nákvæmlega hvað þeir ætluðu að gera, spila svæðisvörn en okkur tókst ekki að leysa þann vanda og í sóknum okkar vorum við alveg stjarfir. Við ræddum um hvað við yrðum að gera til að vinna en gerðum ekkert af því,“ sagði Sig- urður Þorvaldsson eftir leikinn en hann átti ágætan leik. Ómar Sæv- arsson skilaði einnig sínu og Eiríkur Önundarson og Eugene Christopher einnig en það verður að koma meira frá þeim ef ÍR á að vinna. Alltaf öruggt hjá Keflvíkingum LEIÐIR skildu ekki fyrr en í síðari hálfleik þegar Keflvíkingar fengu ÍR í heimsókn í fyrsta, eða fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitunum í bar- áttunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik, í gærkvöldi í Keflavík. Framan af gerðu Keflvíkingar ekki meira en þeir nauðsyn- lega þurftu til að halda öruggri forystu en eftir hlé tóku þeir á sig rögg og unnu örugglega, 103:75. Síðari leikurinn verður á sunnu- daginn í Breiðholtinu, þar sem ÍR vann fyrri leik liðanna í deildinni svo að ekki er öll von úti enn fyrir Breiðhyltinga. Stefán Stefánsson skrifar Morgunblaðið/Árni Sæberg Clifton Cook skorar fyrir Tindastól en það dugði ekki til því Predrag Bojovic tryggði Haukum sigur á síðustu stundu. Hér reynir Bojovic, til vinstri, að stöðva Cook án árangurs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.