Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.icelandair.is Alltaf ódýrast á Netinu HÁIR vextir og óstöðugt gengi krón- unnar hafa stórskaðað íslenskan iðn- að. Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka iðnaðarins, á Iðn- þingi í gær. Hann sagði stjórnvöld þurfa að grípa til aðgerða þegar í stað og veita fé til Tækniþróunarsjóðs og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. „Það er þurrð á fjármagni eftir erf- iðleika á hlutafjármörkuðum síðustu misserin og fjárfestar halda að sér höndum. Einmitt þá er brýnt að hið opinbera láti myndarlega til sín taka. Vilmundur sagði mikilvægt að ráð- stöfun opinbers fjár væri með þeim hætti að hún stuðlaði að vexti og framþróun atvinnulífsins. „Þetta er sérstaklega mikilvægt að hafa í huga þessi misserin þegar við stöndum frammi fyrir mestu framkvæmdum Íslandssögunnar og höfum náð mik- ilvægum áföngum í einkavæðingu með sölu ríkisbankanna. Á sama tíma skortir tilfinnanlega fé til vísinda-, tækniþróunar- og nýsköpunarstarfs í landinu.“ Tekjur af einkavæðingu renni til nýsköpunar Vilmundur gagnrýndi stjórnvöld fyrir að veita fé í óarðbærar fram- kvæmdir en setja á sama tíma ekki fé í sjóði sem stuðla að rannsóknum og þróun. „Kostnaður við ný Siglufjarð- argöng er talinn verða 6–8 milljarðar króna. Það svarar til þess að göngin kosti fjórar til fimm milljónir króna á hvern íbúa Siglufjarðar. Kostnaðinn má líka setja í annað samhengi, t.d. við ráðstöfunarfé Tæknisjóðs Rannís sem hefur veitt verkefnisstyrki til hagnýtra rannsókna og fjármögnun- ar sprotafyrirtækja. Tæknisjóður hefur haft um 200 milljónir til ráð- stöfunar á hverju ári undanfarin ár. Það fé, sem varið verður til Siglu- fjarðaganganna, hefði dugað Tækni- sjóði í 30–40 ár.“ Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Tækniþróunarsjóður eiga að vera meginuppspretta fjármagns til ný- sköpunar- og þróunarstarfs ís- lenskra fyrirtækja, að sögn Vilmund- ar. „Nýsköpunarsjóður hefur, ekki frekar en aðrir, farið varhluta af hremmingum á fjármagnsmarkaði og er nú svo komið að stjórn sjóðsins hefur ákveðið að sinna engum nýjum verkefnum á næstunni. Þetta ástand er algjörlega óviðunandi. Ég skora á stjórnvöld að grípa til aðgerða þegar í stað og veita fé til Tækniþróunar- sjóðs og Nýsköpunarsjóðs atvinnu- lífsins. Með því er horft til framtíðar og búið í haginn fyrir atvinnulíf sem verður að vera fært um að vera upp- spretta atvinnu og hagsældar þegar framkvæmdaaldan sem nú er byrjuð að rísa hnígur aftur.“ Að sögn formannsins hefur sam- keppnisstaða iðnaðar, sjávarútvegs og annarra samkeppnisgreina farið jafnt og þétt versnandi með frekari gengishækkun krónunnar. „Er nú svo komið að þanþol þessara greina er að bresta. Það er gersamlega óþol- andi fyrir forráðamenn og eigendur íslenskra fyrirtækja að vita aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér.“ Þeir bestu fara fyrst Vilmundur lýsti áhyggjum yfir því að framleiðslu væri rutt úr landi vegna hás vaxtastigs. „Mikilvægt er að menn geri sér grein fyrir því hversu mikið er hér í húfi. Hættan er sú að á byggingartíma virkjana og stóriðju verði háir vextir og hátt gengi íslensku krónunnar til þess að murka lífið úr landvinnslu á fiski, samkeppnisiðnaði og ferðaþjónustu. Íslenskt atvinnulíf verður þá fá- breyttara og frumstæðara eftir en áður. Við munum þá missa úr landi þá tæknivæddu framleiðslu sem hér hefur verið að þróast undanfarin ár. Það eru útflutningsfyrirtæki með starfsemi erlendis sem forða sér fyrst,“ sagði Vilmundur og bætti síð- an við: „það eru þeir bestu sem fara fyrst, þegar að kreppir.“ Morgunblaðið/Sverrir Fjölmenni sótti Iðnþing Samtaka iðnaðarins í gær. Háir vextir hrekja fyrir- tækin úr landi ÞORVALDUR Gylfason prófessor við Háskóla Íslands sagði í erindi sínu á Iðnþingi að til að auka fram- leiðni í landinu þyrfti að styrkja inn- viði hagkerfisins og átti þá við upp- töku veiðigjalds og aukin framlög til menntamála. Efla þyrfti hagkvæmni og heilbrigða samkeppni inn á við og utan og að Ísland þyrfti að ganga í Evrópusambandið með öllu sem því fylgdi, en ESB væri félagsskapur sem Íslendingar ættu heima í. Þorvaldur sagði að uppsveiflan í íslensku efnahagslífi á árunum 1996 til 2000 hefði að miklu leyti verið vegna erlendrar lántöku. Hann sagði að of mikil vinna lægi á bakvið tekjur fólks hér á landi og birti tölur sem sýndu að vinnustund- ir á hvern starfsmann hér á landi væru orðnar svipað margar og í Bandaríkjunum, eða 1.850 á ári, á meðan sömu tölur fyrir Noreg hljóða upp á 1.400 vinnustundir og innan við 1.600 í Svíþjóð. Hann sagði að Ísland væri aftar- lega á merinni í samanburði við þær þjóðir sem við bærum okkur saman við þegar litið væri til landsfram- leiðslu á hvern starfsmann og þegar skoðuð væri landsframleiðsla á vinnustund kæmi í ljós enn dekkri mynd. Þorvaldur sagði að hér á landi væri hlutfall menntaðs fólks á há- skólastigi lágt eða um 40% af mann- fjölda á meðan talan væri yfir 70% í Bandaríkjunum, um 50% í ESB og um 60% í OECD. Þorvaldur sagði einnig að skatt- byrði hér á landi hefði þyngst meira en í öðrum OECD-löndum frá árinu 1985, að Grikklandi frátöldu, og að skattbyrði hér væri orðin svipuð og í ESB-löndunum. Þorvaldur sagði að erlendar heild- arskuldir landsins væru orðnar 125% sem hlutfall af landsfram- leiðslu og hefðu aukist úr um 60% síðan 1995. Ennfremur sagði Þorvaldur að nú væru skammtímaskuldir 30% af heildarskuldum þjóðarinnar og væru orðnar fjórum sinnum hærri en gjaldeyrisforði Seðlabankans. Hann sagði að það væri vel þekkt regla að skammtímaskuldir ættu ekki að fara yfir gjaldeyrisforðann. Um útflutning landsins sagði Þor- valdur að útflutningur sem hlutfall af landsframleiðslu hefði staðið í stað hér á landi frá árinu 1960 á meðan hann hefði tvöfaldast í OECD á sama tímabili. Hann sagði að jafnvel hjá meðaltali smáríkja, með Afríkuríki þar á meðal, væri mun meiri aukning útflutnings. Fyrirtæki að breytast í lærdómsstofnanir Páll Skúlason rektor Háskóla Ís- lands sagði í sínu erindi að fyrirtæki dagsins í dag væru að breytast í lær- dómsstofnanir og þar nefndi hann til stuðnings aukna áherslu á mann- auðsstjórnun innan fyrirtækja. Hann sagði að engin atvinnugrein væri jafnvaxandi og menntun, og sagði að hér á landi ætti að leggja grunn að auknum menningariðnaði en þar ættu Íslendingar feikilega möguleika. Sagði Páll að ef árlegur vöxtur í fjölda nemenda í háskólanámi næstu 10 ár yrði sá sami og meðaltal síðast- liðinna fimm ára sýndi, yrðu nem- endur á háskólatigi 33.700 árið 2013 og þar af 19.200 í HÍ, en í dag eru 14.100 nemendur á háskólastigi í landinu, þar af 8.027 í HÍ. Páll gerði næst samsetningu vinnuafls í landinu að umfjöllunar- efni. Sagði hann að hlutfall háskóla- menntaðs vinnuafls hefði farið úr 11% í 16% á tímabilinu frá 1991– 2001. Miðað við áframhaldandi sama vöxt háskólamenntaðra starfsmanna á vinnumarkaði má búast við að þeir verði orðnir 41.300 talsins árið 2013, að sögn Páls. ESB félagsskap- ur fyrir Ísland AÐEINS rúmur þriðjungur fé- lagsmanna Samtaka iðnaðarins er hlynntur því að Ísland gangi í Evr- ópusambandið. Þetta eru niðurstöð- ur könnunar sem Gallup gerði fyrir samtökin og kynntar voru á Iðnþingi í gær. Í síðustu könnun sem SI gerði á afstöðu félagsmanna til ESB sumar- ið 2001 sögðust 57,8% hlynnt aðild. Könnunin nú sýnir að 34,5% fé- lagsmanna eru hlynnt aðild Íslands að ESB en 46% eru andvíg og 19,5% segjast hvorki vera hlynnt né andvíg aðild. Þegar félagsmenn voru spurðir hvort þeir teldu að taka ætti upp evru í stað íslensku krónunnar sögð- ust 59% vera hlynnt því, 32% andvíg og 9% hvorki né. Tæpur helmingur félagsmanna, 45,6%, sagðist telja að það yrði gott fyrir efnahag Íslands í heild að ganga í ESB, 34,6% að það yrði slæmt og 19,9% töldu að það væri hvorki gott né slæmt. Meirihluti félagsmanna, 69%, er hlynntur því að taka upp viðræður um aðild Íslands að ESB, 20% eru því andvíg og 11% hvorki né. Á Iðnþingi 2002 kom fram að sam- tökin teldu rétt fyrir Íslendinga að sækja um aðild að Evrópusamband- inu. Á þingi gærdagsins sagði Vil- mundur Jósefsson, formaður Sam- taka iðnaðarins, að stjórn og ráðgjafaráð samtakanna myndu skoða Evrópumálin sérstaklega á fundi sínum í vor. Stuðningur við Evrópu- sambandsaðild minnkar !    "#$  %    ! &' ( #!)*$+ 7 8%/ . $ % 8  9& : )& +       ( )*+&, -)%  .  /  !/  !/ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF FRAMBOÐ á fjármagni til fjárfest- ingar í sprotafyrirtækjum og til ný- sköpunar er langt undir þörfum fyr- ir endurnýjun í atvinnulífinu,“ voru orð Valgerðar Sverrisdóttur, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, á Iðn- þingi í gær. Ráðherra sagði nýsköp- un hafa átt erfitt uppdráttar síðustu þrjú árin vegna skorts á áhættu- fjármagni. Valgerður sagði að með und- irritun samnings um álver í Reyð- arfirði í dag verði nær þrjátíu ára barátta Austfirðinga fyrir stóriðju loksins komin í höfn. Ráðherra sagði uppbyggingu atvinnulífsins þó snú- ast um „margt fleira en stóriðju- framkvæmdir“. „Nýsköpun atvinnulífsins með til- komu nýrra þekkingarfyrirtækja og nýrrar framleiðsluvöru starfandi fyrirtækja eru ekki síður mikils virði. Þó verður ekki horft framhjá því að nýsköpunin hefur átt erfitt uppdráttar síðustu þrjú árin vegna skorts á áhættufjármagni í kjölfar samdráttarins sem hófst snemma árs árið 2000. Einkafjárfestar hafa nær alveg haldið að sér höndum og geta Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins til virkrar þátttöku í nýjum félögum er lítil um þessar mundir. Framboð á fjármagni til fjárfestingar í sprota- fyrirtæki og til nýsköpunar er því langt undir þörfum fyrir endurnýjun í atvinnulífinu.“ Ónógt áhættufé
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.