Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 37
Í KJÖLFAR svokallaðrar vott- orðadeilu milli heilbrigðisráðuneytis og heilsugæslulækna á síðasta ári mótuðust kröfur um að valkostir um starfsemi heimilislækna væru nauð- synleg forsenda fyrir framtíð heim- ilislækninga á Íslandi. Fyrsta maí 2002 sögðu heilsugæslulæknar á Suð- urnesjum upp störfum sínum til að fylgja eftir þessari sannfæringu sinni. Víðar knúðu heimilislæknar á um sama málefni með kröfugerðum, upp- sögnum og leyfum frá starfi. Í nóv- ember náðist samkomulag milli Fé- lags íslenskra heimilislækna og heilbrigðisráðherra. Ráðherra gaf út yfirlýsingu þar sem lýst er vilja ráðu- neytis hans til að framtíðarskipulag starfsemi heimilislækna á Íslandi verði annars vegar á heilsugæslu- stöðvum og hins vegar með sjálf- stæðri móttökustarfsemi heimilis- lækna. Í kjölfar þessa lýstu allir heilsu- gæslulæknarnir tíu, sem starfað höfðu á Suðurnesjum, sig reiðubúna að endurráða sig. Þá var þeim tjáð að ekki stæði öllum læknunum til boða að ráða sig aftur því fækka ætti læknastöðum við heilsugæsluna og einnig yrðu kjör lakari en áður. Á grundvelli þessa ákváðu flestir læknanna að sækjast ekki eftir end- urráðningu og í þeim skorti á heim- ilislæknum sem ríkir hérlendis gengu þeir beint inn í önnur störf. Nokkrum árum áður hafði ríkt heimilislæknaskortur á Suðurnesj- um. Þáverandi stjórnendur sóttu þá hluta þessara lækna til annarra landa með fyrirheitum um aðstöðu og launakjör. Í kjölfar þess mönnuðust allar læknastöður. Vaktir sem áður voru oft mannaðar af nemum mönn- uðust af reyndum læknum. Fræðslu- starf blómstraði, nemar sóttu í kennslu og þjálfun á Suðurnes, mót- taka fyrir sykursjúka var sett á stofn, lektorsstaða fékkst til stofnunarinnar og tími uppbyggingar ríkti. Allri þess- ari stefnumótun og uppbyggingu var fórnað á einu bretti. Í kjölfar þessa ríkir nú algert vand- ræðaástand á Suðurnesjum þar sem skortir stórlega á lögbundna grunn- þjónustu heilbrigðiskerfisins. Frá fyrsta nóvember hafa aðeins þrír heilsugæslulæknar starfað á svæði sem þyrfti a.m.k. 12–13 heilsugæslu- lækna og samkvæmt síðustu fréttum hafa orðið afföll í þeim hópi. Fleiri heimilislæknar hafa hikað við að ráða sig og verið ósáttir við kjör og vinnu- skilyrði. Nemar og unglæknar hika einnig þar sem kennslu og stuðning sem fæst í skjóli eðlilegrar starfsemi heilsugæslunnar vantar. Sérhæfing í læknisfræði er stöðugt að aukast og mun halda áfram. Ein- mitt sú þróun kallar á „generalist- ann“, heimilislækninn, til að standa í fremstu móttökulínu með sína breiðu þjálfun, ekki síst á vakttíma. Til heilsugæslulækna leitar fólk með fjöl- breytt, ógreind vandamál og alls kon- ar bráðavanda auk langvinnra vanda- mála. Til að takast á við þessi fjölbreyttu verkefni þarf „generalist- ann“, sérfræðinga í heimilislækning- um. Aukin sérhæfing kallar hins veg- ar á aukinn bakstuðning sérhæfðari kollega og stöðugt endurmat á þeirri samvinnu. Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja virðast vera að gera kerf- isbreytingu í starfsemi heilsugæsl- unnar og hverfa frá „generalistan- um“, heimilislækninum. Stofnuninni stóð til boða að endurráða hóp heim- ilislækna, en virðist í staðinn ætla að ráða hjúkrunarfræðinga og sér- greinalækna. Hjúkrunarfræðingar sinna ekki læknisverkum. Gæði þjón- ustu sérgreinalækna verða ekki dreg- in í efa, en fyrir fjölbreytilegar þarfir skjólstæðinga frumþjónustunnar er hún ekki hin sama og þjónusta sér- menntaðra heimilislækna þegar til lengdar lætur. Ætli HSS að veita frumþjónustu með sérgreinalæknum stangast það á við þann skilning sem heimilislæknar hafa lagt í afstöðu nú- verandi heilbrigðisráðherra gagnvart heilsugæslunni sem grunnþjónustu og fram hefur komið á umliðnum mánuðum. Í yfirlýsingu ráðherra frá nóvember sl. felst vilji til að snúa til betri vegar neikvæðri þróun í heilsu- gæslunni og einstakar stofnanir rík- isins sem virðast fylgja annarri stefnu skaða trúverðugleika viljayfirlýsing- arinnar. Heimilislæknar hafa m.a. fyrir dómstólum verið minntir á tvískipt- ingu heilbrigðiskerfisins, í grunn- þjónustu og sérfræðiþjónustu. Grunnþjónustan er vel skilgreind í lögum sem frumþjónusta og heilsu- gæslustöðvar skulu vera í öllum hér- uðum til að veita sjúkratryggðum að- gang að lögbundinni grunnþjónustu. Einnig eru launakjör lækna grunn- þjónustunnar ákvörðuð sem stendur af Kjaranefnd og gagnvart fyrrver- andi heilsugæslulæknum var sú stað- reynd talin binda hendur stjórnenda HSS. Vandséð er því hvernig stjórn- endur HSS geta farið út í slíka kerf- isbreytingu án þess að lenda í mót- sögn við fyrri gerðir eða í andstöðu við málflutning heilbrigðisráðuneytis- ins og Tryggingastofnunar ríkisins gagnvart heimilislæknum. Spyrja má hvort sú kerfisbreyting að hverfa frá „generalistanum“ í grunnþjónustunni sé ekki í eðli sínu pólitísk ákvörðun sem gæti haft afleiðingar á landsvísu og ætti ekki að takast af stjórnendum einstakra stofnana. Lausn á því vandræðaástandi sem ríkir á Suðurnesjum verður að finna sem fyrst áður en meiri truflun og skaði verður. Það er skýlaus réttur al- mennings að starfsemi heilsugæsl- unnar gangi eðlilega fyrir sig. Eigi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að annast heilsugæslu er eina framtíð- arlausnin að byggja í grunninn á þjónustu heimilislækna. Verða íbúar Suðurnesja áfram án heimilislækna? Eftir Þóri B. Kolbeins- son og Gunnstein Stefánsson Þórir er formaður Félags íslenskra heimilislækna og Gunnsteinn meðstjórnandi. Gunnsteinn Stefánsson Þórir B. Kolbeinsson „Það er skýlaus réttur almennings að starf- semi heilsugæslunnar gangi eðlilega fyrir sig.“ UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 37 1. flokki 1989 – 50. útdráttur 1. flokki 1990 – 47. útdráttur 2. flokki 1990 – 46. útdráttur 2. flokki 1991 – 44. útdráttur 3. flokki 1992 – 39. útdráttur 2. flokki 1993 – 35. útdráttur 2. flokki 1994 – 32. útdráttur 3. flokki 1994 – 31. útdráttur H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: Útdráttur húsbréfa Húsbréf Koma þessi bréf til innlausnar 15. maí 2003. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í DV, laugardaginn 15. mars. Upplýsingar um útdregin húsbréf má einnig finna á heimasíðu Íbúðalánasjóðs: www.ils.is. Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 DAGGÆSLA í heimahúsum er fyrir börn frá 6 mánaða aldri og þar til þau fara í leikskóla. Þetta ævi- skeið er eitt það viðkvæmasta í lífi barnanna okkar og mikið í húfi að búa þeim öruggt umhverfi þar sem þörfum þeirra er sinnt af alúð. Í Kópavogi eru að jafnaði um 150 til 200 börn í gæslu í heimahúsum hjá um 40 dagforeldrum. Til þess að styðja enn betur við þetta þjónustu- úrræði og skapa því traust og tiltrú var á síðasta ári ákveðið að taka reglur Kópavogsbæjar um dag- gæslu barna í heimahúsum til gagn- gerrar endurskoðunar. Nýjar reglur voru síðan samþykktar í bæjar- stjórn síðastliðið vor. Í reglunum er að finna ýmsar nýj- ungar, en stærsta breytingin og sú sem hér er til umfjöllunar, snýr að fyrirkomulagi eftirlits með daggæsl- unni. Eftirlitið er núna í höndum sér- staks eftirlitsaðila sem fer í sex óboðaðar eftirlitsheimsóknir á ári með gátlista þar sem hann fer yfir fjölda barna, fjölda barna yngri en eins árs, ákveðin öryggisatriði og aðbúnað og tilkynnir niðurstöðu heimsóknar til yfirmanns daggæslu- deildar. Ef í ljós kemur í eftirlits- heimsókn að einhverju er ábótavant eru gefin fyrirmæli um úrbætur. Ef ekki er farið að fyrirmælum getur það leitt til leyfissviptingar og er kveðið á um þá málsmeðferð í regl- unum. Í dag eru 38 dagforeldrar starf- andi í Kópavogi og hefur verið farið í þrjár óboðaðar heimsóknir til hvers þeirra síðan 1. september sl. Ekki verður annað sagt en að eftirlitið hafi gengið vel og niðurstöðurnar séu almennt mjög jákvæðar fyrir þetta þjónustuúrræði. Aðeins í einu tilviki var eitt barn umfram leyfileg- an fjölda hjá dagforeldri og hjá tveimur dagforeldrum voru við eft- irlit þrjú börn yngri en eins árs, en samkvæmt reglum mega þau bara vera tvö. Þessi tilvik voru komin í lag innan nokkurra daga. Athuga- semdir voru gerðar varðandi tiltekin öryggisatriði samkvæmt gátlista, en að sjálfsögðu ber dagforeldrum að gæta öryggis barnanna í hvívetna. Athugasemdum um öryggisatriði fækkaði úr 15 niður í fjórar frá fyrstu heimsókn. Enn önnur nýjung í eftirlitinu snýr að forráðamönnum, en einu sinni á ári er aflað upplýsinga hjá þeim um viðhorf þeirra til daggæslu dagforeldris til þess að bæta, ef unnt er, það sem þeim finnst miður fara. Allir foreldrar sem áttu börn í gæslu hjá dagforeldrum í Kópavogi í janúar sl. fengu sendan spurninga- lista um viðhorf sitt til daggæslunn- ar. Samtals voru sendir út 155 listar og bárust svör frá 90 foreldrum eða rúmum 58%. Það voru viss vonbrigði hvað heimtur voru litlar þar sem könnunin telst ekki marktæk, þ.e. ekki er hægt að fullyrða að viðhorf þeirra sem svöruðu endurspegli við- horf þeirra sem ekki svöruðu. En af- staða þeirra sem svöruðu var afger- andi, 94% þeirra voru mjög ánægðir eða frekar ánægðir með daggæslu barns síns hjá dagforeldri, enginn var mjög óánægður, 2% voru frekar óánægðir og 5% hvorki né. Þau skref sem hafa verið stigin með breyttum reglum í daggæslu í Kópavogi lofa góðu um framhaldið. Daggæsla er þjónustuúrræði sem þarf að fá viðurkenningu í samfélag- inu. Hún þarf að njóta trausts þegar að kemur að öryggi barnanna okkar og vissu fyrir því að þau njóti góðrar umönnunar til að þroskast og dafna meðan foreldrarnir eru í vinnu eða skóla. Það er einkar mikilvægt að foreldrar, dagforeldrar og sveitar- félög sinni skyldum sínum sam- viskusamlega og eigi í góðu sam- starfi. Dagforeldrar í Kópavogi hafa sýnt að þeir eru starfi sínu vaxnir og leggja sig fram við að búa börnum góðar aðstæður. Það hefur verið ánægjulegt hversu gott samstarf hefur verið við dagforeldra í Kópa- vogi við að koma þessu nýja fyr- irkomulagi í framkvæmd. Þátttaka þeirra frá upphafi og framlag hefur verið ómetanlegt. Nýtt fyrirkomu- lag í daggæslu í heimahúsum Eftir Emilíu Júlíusdóttur og R. Maríu Þorsteinsdóttur „Dagforeldrar í Kópa- vogi hafa sýnt að þeir eru starfi sínu vaxnir.“ Emilía er yfirmaður daggæsludeild- ar og María starfar hjá Félagsþjónustu Kópavogs. R. María Þorsteinsdóttir Emilía Júlíusdóttir HUGHRIF heitir það víst þegar eitthvað treður sér inn í kollinn á manni við upplifun sem ekkert á skylt við þá athöfn sem verið er að starfa við þegar hughrifin verða. Ég væri ekki að hafa orð á þessu nema vegna þess að ítrekað hef ég orðið fyrir þessu síðustu dagana Þetta hefur alltaf gerst við lestur. Það leiðir svo hugann að þeirri ólukku að fólki skyldi kennt að lesa. En auðvitað leiddi hvað af öðru, allt er þetta höggormsskrattanum að kenna, hann tældi Evu til að eta af skilningstrénu og í framhaldi af því fór mannskepnan að hugsa og gera mun á réttu og röngu. En nú er ég víst kominn í skóg- arferð og langt af sporinu með það sem ég byrjaði að segja frá. Ég var að lesa, fyrst las ég grein eftir óháð- an væntanlegan þingmann sem heldur úti rosalega óháðum vefmiðli sem heitir Pressan, Ásgeir heitir óháða þingmannsefnið og hann var að skrifa um Davíð sem laug og Ingibjörgu sem talaði í Borgarnesi. Næst fletti ég upp á Heimi.is og þar skrifaði einn alóháðasti fjölmiðla- maður samtímans Stefán Jón Haf- stein og hann var að skrifa um, nema hvað, Davíð sem laug og Ingi- björgu sem talaði í Borgarnesi. Þá kom Mogginn inn um lúguna og hvað sé ég þar nema einn af mínum uppáhalds rithöfundum Einar Kára- son, þótt það komi þessu máli ekk- ert við þá get ég ekki stillt mig um að minnast á minn uppáhaldskafla í bókinni hans Óvinafagnaður, bókin sú er snild, þar eru hlutirnir sagðir án málskrúðs og þar er þessi dásamlegi kafli. „Bróðir minn er skítseiði“ Þarna er sagt í fjórum orðum það sem ritbullur nota til tugi blaðsíðna, og hvað þetta á vel við. Það eru hughrifin, aftur og aft- ur stend ég mig að því að sjá Tuma Sighvatsson ljóslifandi fyrir mér í samtímanum, það er margur Tum- inn í dag. En ég var þar kominn sem ég fékk Moggann í hendur og þetta góða skáld hann Einar Kárason er þá að skrifa þar og um hvern annan en Davíð sem laug og Ingibjörgu sem talaði í Borgarnesi. Hvernig getur staðið á því að í hvert einasta skipti þegar ég fer að lesa greinar þessara góðu manna þá kemur mér í hug Jósep Göbbels? Hughrif Eftir Hrafnkel A. Jónsson Höfundur er héraðsskjalavörður í Fellabæ. „…allt er þetta högg- ormsskratt- anum að kenna, hann tældi Evu til að eta af skilningstrénu…“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.