Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sylvia kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Svilas fór í gær. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Leik- húsferð sunnudaginn 6. apríl kl. 20, „Með fullri reisn“, skráning í Hraunseli. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Aðstoð við gerð skattframtals verður þriðjudaginn 18. mars á skrifstofu FEB, panta þarf tíma. Silfurlínan opin mánu- daga og miðvikudaga frá kl. 10–12, s. 588 2111. Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Fé- lagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Bók- band í dag kl. 10–12. Félag aldraðra í Mos- fellsbæ. Munið göngu- hópinn frá Hlégarði kl. 11 í dag. Allir velkomn- ir. Fólk er beðið að taka barnabörnin með í gönguna. Skrifstofan í Hlégarði er opin á þriðjudögum kl. 10–12. Heitt á könnunni. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Á mánudög- um og þriðjudögum er postulínsnámskeið, þriðjudaga kl. 13 er boccia, umsjón Ernst Bachmann. Allar upp- lýsingar um starfsem- ina á staðnum og í síma 575 7720. Gullsmári, Gullsmára 13. „Ljós í glugga“- dansleikur verður haldinn í félagsheim- ilinu Gullsmára í kvöld laugardaginn 15. mars og hefst kl. 20. Rifjaðir verða upp gamli sel- skapsleikir og dansar. Helga Þórarinsdóttir kynnir og stjórnar. Magnús Randrup spil- ar á harmoniku. Allir velkomnir. Vesturgata 7. Bingó verður þriðjudaginn 18. mars kl. 13.15, pönnukökur með rjóma í kaffitímanum. Allir velkomnir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Karlakórinn Kátir karlar, æfingar á þriðjudögum kl. 13 í Félags- og þjónustu- miðstöðinni Árskógum 4. Söngstjóri er Úlrik Ólason. Tekið við pönt- unum í söng í s. 553 2725 Stefán, s. 553 5979 Jón eða s. 551 8857 Guðjón. Breiðfirðingafélagið. Félagsvist í Breiðfirð- ingabúð á morgun, sunnudag, kl. 14. Allir velkomnir. Kaffiveit- ingar. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁÁ, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Holta- smára 1, 201 Kópavog- ur, s. 535 1825. Gíró og greiðslukort. Dval- arheimili aldraðra, Lönguhlíð, Garðsapó- teki, Sogavegi 108, Ár- bæjarapóteki, Hraunbæ 102a, Bókbæ í Glæsibæ, Álfheimum 74, Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, Bóka- búðinni Grímsbæ v/ Bústaðaveg, Bókabúð- inni Emblu, Völvufelli 21, Bókabúð Graf- arvogs, Hverafold 1–3. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Reykjanesi: Kópavog- ur: Kópavogs Apóteki, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfju, Set- bergi. Sparisjóðnum, Strandgötu 8–10, Keflavík: Apóteki Keflavíkur, Suðurgötu 2, Landsbankanum, Hafnargötu 55–57. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu í Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, sími 551 3509. Í dag er laugardagur 15. mars, 74. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Enn sagði hann við þá: „Gæt- ið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt.“ (Mark. 4, 24.)     Það er engan veginnhægt að finna út ná- kvæma tölu á þeim kon- um og börnum sem hneppt eru í ánauð en töl- ur frá Sameinuðu þjóð- unum segja að 2 milljónir séu í klóm kynlífsþrælk- unar […] Svo er það hitt að slíkar tölur segja manni í raun ekkert því hvert eitt og einasta tilvik er slíkur harmleikur að ekki nokkur maður getur ímyndað sér raunir þessa ólánsömu fórnarlamba.“     Þetta er svar LukasMoodysson, leik- stjóra myndarinnar Lilja að eilífu, er hann er spurður um umfang kyn- lífsþrælkunar sem lýst er svo átakanlega í mynd- inni. Kjarninn í svarinu felst í þeim orðum að töl- ur segja lítið um ofbeldið sem hvert og eitt fórn- arlamb þarf að líða eins og líf hinnar sextán ára gömlu Lilju, sem ginnt er í kynlífsánauð til Svíþjóð- ar, sýnir.     Myndin vakti sterk við-brögð í Svíþjóð og hér á landi hefur hún vissulega verið umtöluð síðan hún var sýnd við lok ráðstefnunnar Átak gegn verslun með konur. Þar var vakin athygli á að mansal kemur okkur öll- um við enda brot á grund- vallarmannréttindum. Það má aldrei líðast að einstaklingar séu beittir ofbeldi sem felst í kynlífs- þrælkun og stjórnvöld verða að varast að skapa umhverfi þar sem skipu- lögð starfsemi af þessu tagi nær fótfestu.     Meginhlutverk rík-isvaldsins er að verja borgara fyrir of- beldi og á ráðstefnunni kom fram í máli Sól- veigar Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, að samvinna lögreglu Eystrasaltsríkjanna og Norðurlandanna hefði verið aukin. Öll starfsemi þar sem mansal getur þrifist verður að vera uppi á yfirborðinu svo glæframenn undirheim- anna nái ekki að hneppa fólk í þrældóm þar sem lög og reglur ná ekki til. Við slíkar aðstæður eru fleiri berskjaldaðir fyrir ofbeldinu.     Ímynd Moodysson varsorglegt að sjá enga út- gönguleið fyrir Lilju úr þessum hræðilegu að- stæðum. Sjálfsvirðingin og sjálfsbjargarviðleitnin var engin og lögreglan í Svíþjóð birtist sem ávísun á flugfarseðil aftur heim í örbirgð fyrrverandi heimkynna. Þá vaknar sú spurning hvort fórnar- lömb mansals eigi ekki að fá tækifæri til að setjast að í því landi sem þau eru flutt til að því gefnu að þau kjósi það og njóti öfl- ugrar verndar frekar en að þau séu send aftur heim til landsins sem þau komu frá. Það myndi stuðla að því að fólk gæfi sig fram við stjórnvöld og að það sæi útgönguleið úr ánauð. STAKSTEINAR Möguleg útgönguleið fórnarlamba mansals Víkverji skrifar... VÍKVERJI frétti af hóp arkitektasem var í skoðunarferð um ný- byggingu Barnaspítala Hringsins í vikunni. Eitt af því sem vakti athygli þeirra var gríðarstórt og for- kostulegt fiskabúr í anddyri hússins sem var uppfullt af framandi skraut- fiskum í öllum regnbogans litum. Upplýstu hönnuðir hússins að þeir hefðu verið sérstaklega ánægð- ir með að fá búrið samþykkt á hönn- unarferlinu enda hefði það sýnt sig á sýningardegi byggingarinnar að börn, sem komu til að berja mann- virkið augum, hópuðust fyrir fram- an herlegheitin, full aðdáunar. Besta staðfestingin á ágæti búrs- ins væri hins vegar að skrautfisk- arnir virtust vera búnir að bræða hjörtu iðnaðarmanna, sem störfuðu í byggingunni, því þeir gerðu það að vana sínum að raða stólum upp framan við fiskabúrið í vinnuhléum og njóta útsýnisins á meðan þeir drukku kaffið sitt. Stóð heima að þegar hópurinn var á útleið sátu tveir hraustlegir iðn- aðarmenn gegnt búrinu og sötruðu kaffisopa á meðan þeir spjölluðu um daginn og veginn. ÞEGAR Víkverji var lítill varhann stundum skammaður fyrir að leika sér í stofunni enda þótti hún fínasta vistarvera hússins. Sömu- leiðis fannst Víkverja alltaf mun fínna að fara í klippingu ef það var gert á stofu, þ.e. hárgreiðslustofu í stað þess að fara til rakara. Eitthvað eimir eftir af því viðhorfi að stofur séu fínar því nú er varla sú stofnun sett á laggirnar að ending- unni -stofa sé ekki klesst við nafnið. Þannig var nýverið stofnsett Höf- uðborgarstofa, en ómögulegt er að ráða af nafninu hver starfsemin er. Öllu verra er að mati Víkverja að gamlar og góðar stofnanir hafa hver á fætur annarri umbreyst í „stofur“ á undanförnum misserum. Þannig kannast líklega flestir við að barna- verndarnefndir hafa fengið yfir sig apparat sem kallast Barnaverndar- stofa og nöfnin Fiskistofa og Lög- gildingarstofa dúkka reglulega upp í fréttum. Innan um snyrtistofur, lög- mannsstofur, arkitektastofur og nuddstofur er að finna Biskupsstofu og Jafnréttisstofu og hið gamla góða Heilbrigðiseftirlit má muna fífil sinn fegri því frá og með síðustu skipu- lagsbreytingu gengur það undir nafninu Umhverfis- og heilbrigð- isstofa, svo þjált sem það nú er. Sömuleiðis hefur Gatnamálastjóri umbreyst í Gatnamálastofu, fast- eignadeild borgarinnar í Fast- eignastofu og verkfræðideildin er orðin mun fínni eftir að hún var hækkuð í tign upp í Verkfræðistofu. Víkverji spyr: Hvað er næst? Munum við breyta réttarsölum í dómstofur og bókasöfnum í les- stofur? Það eru ennþá eftir nokkrir ágætir möguleikar til að rugla al- menning fullkomlega í ríminu, ef það hefur ekki tekist nú þegar með öllu nafnahringlinu. Morgunblaðið/Þorkell Dómstofa Reykjavíkur? MARÍA Ellingsen leik- kona skrifaði grein í Morgunblaðið sl. fimmtu- dag og lýsir þar mikilli óánægju með virkjunar- áform og forystuna í sam- félaginu. Í greininni fetar hún troðnar slóðir virkjunar- andstæðinga í flestum at- riðum. Það var þó tvennt, sem fékk mig til að staldra við. Annars vegar spyr hún hvort það finnist ekki á Íslandi stjórnmála- maður á borð við Nelson Mandela sem fórnar sér fyrir fólkið og landið en ekki öfugt. Nú vill svo til að af- staða Mandela til stíflna og vatnsaflsvirkjana ligg- ur fyrir því að hann var í forystu fyrir gerð skýrslu um stíflur og áhrif þeirra í heiminum og sagði þeg- ar hann afhenti loka- skýrslu nefndarinnar í London m.a. þetta.: „Vandamálið er ekki stífl- urnar. Það er hungrið, þorstinn og myrkrið í borgunum. Það eru borgir og sveitabæir án rennandi vatns, án ljóss, án hrein- lætistækja… Það er raun- veruleg knýjandi þörf fyr- ir orku í öllum merking- um þess orðs.“ Nelson Mandela hafði nefnilega öðrum fremur skilning á nauðsyn þess að virkja orkulindirnar í þágu fólksins til að bæta lífskjör þess. Í annan stað kemur á óvart í málflutningi Maríu þegar hún segir umhverf- isverndarsinna vilja eitt- hvað annað en virkjanir að þá skuli hún taka dæmi um erfðabreytta matvælaframleiðslu og segir slíkt vera merki um framtak sem mæti sér- stakri velþóknun þar á bæ. Að tilraunum við erfðabreytingar á ís- lensku byggi ólöstuðum er það nýstárlegt að halda þessu fram þar sem slík ræktun mætir einmitt mjög víðtækri andstöðu umhverfisverndarsinna víða um heim. Fróðlegt væri að vita hvort María talar þar í nafni annarra þeirra, sem kalla sig um- hverfisverndarsinna vegna andstöðunnar við virkjanir. Þorsteinn Hilmarsson. Ósátt ÉG er ákaflega ósátt við nýlega umfjöllun Frétta- blaðsins um afmælisdag Bryndísar Schram. Það eru mörg ár liðin síðan þessi atburður var og er ekki sanngjarnt að taka þessa konu fyrir, konu sem alltaf hefur verið hvers manns hugljúfi. Það mætti taka marga aðra fyrir frekar en hana. Margrét Hansen. Tapað/fundið Íþróttataska og heimilislyklar ÍÞRÓTTATASKA með merki Manchester United fannst fyrir utan Köku- bankann í Garðabæ. Í töskunni eru íþróttaföt. Uppl. í síma 565 8070. Á sama stað eru í óskil- um heimilislyklar. Tapað/fundið Gleraugu týndust í Árbæjarhverfi GLERAUGU í lillablárri keðju týndust í Árbæjar- hverfi. Skilvís finnandi hafi samband í síma 617 6451 eða 566 6492. Ungbarnagalli týndist GRÁR ungbarnaflísgalli frá 66°norður týndist ásamt handprjónuðum vettlingum beigelituðum, undirhúfu og húfu frá Benetton, beigelitað með litlum fiðrildum á. Finn- andi vinsamlegast hafið samband við Sigurrós í síma 893 5785 og 552 5785. Dýrahald Kisa – svæði 104 KISAN okkar hann Belg- ur hefur ekki sést heima hjá sér í Vogahverfinu síðan á föstudaginn var, 7. mars. Belgur er síams- blanda, svartur með rauða ól og eyrnamerkt- ur. Þeir sem vita eitthvað til ferða hans eru beðnir um að hringja í síma 892 7958. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Nelson Mandela og orkulindirnar Morgunblaðið/Ingó LÁRÉTT 1 kvenna, 8 ámæli, 9 bylgjur, 10 guð, 11 synja, 13 býsn, 15 krukku, 18 menntastofnunar, 21 auð, 22 eyja, 23 eru ekki vissir, 24 hegningar- húsið. LÓÐRÉTT 2 frumefni, 3 kroppa, 4 þarflaus, 5 svæfill, 6 skepna, 7 hugboð, 12 verk, 14 tré, 15 kenjar, 16 vera hissa á, 17 fælin, 18 hvell, 19 ósiður, 20 snjólaust. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 skráp, 4 nýtur, 7 ertan, 8 lokki, 9 dró, 11 funi, 13 maka, 14 leifa, 15 kurl, 17 skot, 20 lim, 22 pakki, 23 játar, 24 reiði, 25 rimma. Lóðrétt: 1 skerf, 2 rætin, 3 pund, 4 nóló, 5 tukta, 6 reisa, 10 reipi, 12 ill, 13 mas, 15 kopar, 16 rukki, 18 kútum, 19 terta, 20 lini, 21 mjór. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.