Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ársæll Jóhann-esson fæddist á Slitvindastöðum í Staðarsveit 14. maí 1916. Hann andaðist á St. Franciskusspít- alanum í Stykkis- hólmi 6. mars síðast- liðinn. Hann var sonur hjónanna Vil- borgar Matthildar Kjartansdóttur, f. 5. des. 1885, d. 28. mars 1972, og Jó- hannesar Guð- mundssonar, f. 17. nóv. 1878, d. 14. maí 1924. Systkini Ársæls eru: 1) Una, f. 12. sept. 1908. 2) Jónfríður, f. 10. des. 1909. 3) Anna Guðmunda, f. 28. jan. 1911. 4) Ólína, f. 1. sept. 1912. 5) Kjartan, f. 27. nóv. 1913. 6) Maríus, f. 23. febr. 1915. 7) Vil- sínum, hjónunum Elíasi Kristjáns- syni, f. 29. júní 1880, í Straum- fjarðartungu í Miklaholtshreppi, d. 10. des. 1938, og Sigríði Guð- rúnu Jóhannesdóttur, f. 25. júní 1888, í Lunansholti í Landsveit, Rang., d. 16. okt. 1928 á Elliða. Uppeldissystkini Ársæls eru: Kristján, f. 6. ágúst 1911, Vigdís Auðbjörg, f. 31. jan. 1914, Hulda Svava, f. 12. ágúst 1917, Jóhannes Sæmundur, f. 21. apríl 1920. Þau eru látin. Eftirlifandi eru Jóhanna Halldóra, f. 19. júní 1915, Matt- hildur Valdís, f. 21. mars 1923, og Unnur, f. 23. mars 1926. Árið 1932 fluttist Ársæll að Ytra-Lágafelli í Miklaholtshreppi með fósturföður sínum sem hóf þar búskap með Söru Magnús- dóttur, f. 20. apríl 1908, d. 13. mars 1995 í Hafnarfirði. Börn Söru og Elíasar eru: Erla, f. 10. sept. 1932, Sigríður Guðrún, f. 7. júlí 1934, Magnús, f. 7. sept. 1935, og Elías Fells, f. 27. febr. 1937. Útför Ársæls verður gerð frá Fáskrúðarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. hjálmur, f. 28. maí 1917. 8) Ingunn, f. 16. des. 1919. 9) Ingvar, f. 14. mars 1922. 10) Jón Júlíus, f. 12. apríl 1924. Þau eru látin. Eftirlifandi er Jó- hannes, f. 24. apríl 1924. Kona Ársæls var Jóhanna Guðbjörg Óladóttir, f. 18. júlí 1916 á Smjörhóli í Öxarfjarðarhreppi í N-Þing., d. 17. sept. 1991. Foreldrar henn- ar voru Óli Jón Jó- hannesson, bóndi í Öxarfirði, og kona hans Anna Guðmundsdóttir. Ársæll og Jóhanna voru barnlaus. Er Ársæll var sex ára fluttist hann að Elliða í Staðarsveit. Þar ólst hann upp hjá fósturforeldrum Okkur, systkinin frá Ytra-Lága- felli, langar til að minnast vinar okk- ar, hans Alla, eins og við kölluðum hann, með nokkrum orðum. Allt frá æsku okkar tengdumst við honum sterkum böndum. Alli var 22 ára þeg- ar sú sorg henti fjölskylduna á Ytra- Lágafelli að faðir okkar lést. Hann hafði kennt sér meins snemma sum- ars og þegar leið að hausti lagðist hann inn á Landakotsspítala þar sem hann lést 10. desember árið 1938. Það urðu döpur jól sem í hönd fóru hjá fjölskyldunni á Ytra-Lágafelli. En áfram heldur lífið þótt sorgir verði á vegi okkar. Þannig tókst móð- ir okkar á við framtíðina með það fyrst og síðast í huga að sjá barna- hópnum sínum farborða. Vigdís hálf- systir okkar og Þórarinn Hallgríms- son, maður hennar, tóku Sigríði Guðrúnu, systur okkar, í fóstur en hún var þá fimm ára. Hún kom síðan í sveitina með farfuglunum á vorin og var heima hjá mömmu og systkinum sínum yfir sumarið öllum til gleði. El- ías, sonur Kristjáns uppeldisbróður Alla, kom einnig í sveitasæluna á vor- in. Þá brugðu fimm kátir kálfar á leik. Á þessum tímamótum tók Alli þá ákvörðun að vera um kyrrt á Lága- felli. Þannig gerði hann móður okkar kleift að búa áfram. Þau ákváðu að vinna sameiginlega að búrekstrinum en þau höfðu skiptan fjárhag. Vinnu- dagur beggja var langur og vinnu- stundirnar ekki skráðar. Þannig bjuggu þau næstu ellefu árin. Í minn- ingu okkar krakkanna voru þetta góð ár, sólríkir sumardagar sem liðu við störf og leiki með frændsystkinunum á Syðra-Lágafelli. Þegar við hugsum til þessara ára koma margar myndir í hugann. Við minnumst Alla við heyskapinn en hann var afbragðs sláttumaður. Oft söng hann við raust þar sem hann sló af krafti. Alla þótti gaman að syngja og hann kunni langa vísnabálka sem hann söng fyrir okkur á gleðistundum seinna á ævinni. Það var mikið verk að heyja Lágafellstúnið með þeim verkfærum sem notuð voru á þessum tíma. Þegar leið á sumarið var heyjað á engjum því aldrei voru hey of mikil. Það var skemmtilegur tími fyrir okk- ur krakkana. Við fengum að standa undir eins og það var kallað, þ.e. að standa undir fyrri bagganum meðan seinni bagginn var settur upp klakk- inn. Eftir að við systkinin stálpuð- umst fórum við að fara heim með lest- ina. Þá var eins gott að hvorki snaraðist á hestunum né að þeir lentu í fúakeldu, en slóðin var stundum blaut og erfið yfirferðar. Síðustu ferð- irnar heim í hauströkkrinu eru sér- staklega minnisstæðar. Þegar heim var komið voru baggarnir leystir og heyinu komið fyrir í hlöðunni. Í end- urminningunni fyllti ilmurinn af heyinu og lyktin af sveittum hestum loftið. Það var eitthvað sem veitti vel- líðan, öryggiskennd, fyrirheit um nægt fóður fyrir búfénaðinn á kom- andi vetri. Við krakkarnir áttum til að stelast í hlöðuna svo lítið bæri á og klifra upp á þverbitana og láta okkur detta niður í heyið. Mikið kitlaði okk- ur yndislega í magann meðan við svif- um í loftinu. Haustið er annasamur tími í sveit- inni. Þegar haustsmölun hófst var mikið um að vera. Bændur af næstu bæjum komu saman á Lágafelli, drukku kaffi og gæddu sér á heima- bökuðu meðlæti hjá móður okkar meðan þeir skipulögðu leitina. Menn voru glaðir og eftirvæntingarfullir er þeir stikuðu til fjalla – hverjar skyldu heimturnar verða? Alli fór framar- lega í flokki, fjárglöggur og marka- glöggur með afbrigðum. Hann var léttur á fæti og þolinn og naut sín vel í hópi leitarmanna. Hann Alli var mikill dýravinur. Á seinni árum þegar til tals kom að brenna sinu á svæðum sem ekki voru slegin var hann því alltaf mótfallinn. Hann taldi áhættuna of mikla, það yrði að taka tillit til músanna og fuglanna, vina hans. Hann óttaðist að e.t.v. væru þeir komnir af stað með hreiðurgerð og eldurinn yrði þeim til tjóns. Hann bar umhyggju fyrir sín- um litlu vinum. Við gætum tínt til fleiri myndir frá þessum tíma í lífi okkar með Alla. Stundum var ekki auðvelt að átta sig á því hvaða hlutverki hann gegndi í lífi okkar. Var hann frændinn, uppeldis- bróðirinn, föðurímyndin – eða kannski allt þetta. Þeim þætti í lífi hans og okkar systkinanna sem tengj- ast þessum minningabrotum lauk þegar móðir okkar flutti frá Ytra- Lágafelli. Aðskilnaðurinn var á vissan hátt erfiður fyrir okkur öll en sú stund hlaut að koma. Alli hélt búskap áfram á Lágafelli. Hann kvæntist Jóhönnu Óladóttur, ættaðri úr Öxarfirði, og bjuggu þau saman á Lágafelli í rúm 30 ár. Jó- hanna var ekki heilsuhraust. Hún þurfti oft að leita til lækna og vera að heiman af þeim sökum. Alli var svo lánsamur að eiga frændfólk og vini í næsta nágrenni sem reyndust honum vel þegar á þurfti að halda. Soffía, frænka hans á Hofstöðum, aðstoðaði hann bæði í sambandi við veikindi Jó- hönnu og ýmsa aðra hluti. Það var líka gott að leita til Sveins á Stekkjar- völlum þegar traktorinn bilaði. Egg- ert frændi hans átti mörg sporin fyrir hann og með honum og ekki má gleyma Sigga vini hans í Hrísdal. Fleiri frændur átti hann í nágrenninu sem lögðu honum gott til. Veikindi Jóhönnu ágerðust þegar leið á ævi hennar. Þar kom að hún lagðist inn á St. Franciskussjúkra- húsið í Stykkishólmi. Þar naut hún góðrar umönnunar. Hún lést 17. sept. árið 1991. Alli var þegar hér var kom- ið sögu farinn að kenna lasleika sem ágerðist smátt og smátt. Að því kom að hann ákvað að selja bústofninn og flytja á Dvalarheimilið í Stykkishólmi. Þar dvaldi hann síðustu tíu árin. Eftir að faðir okkar lést var jörðin seld ríkinu til að hægt væri að gera upp skuldir búsins, m.a. lán sem tekið hafði verið til kaupa á jörðinni nokkr- um árum áður. Jörðin var því í rík- iseign öll búskaparár Alla. Þegar hann ákvað að hætta búskap vaknaði löngun hjá okkur systkinunum til að eignast jörðina. Fyrir milligöngu Alla varð sú löngun að veruleika. Hann naut þess að koma að Lágafelli og rölta þar um gamlar slóðir. Þá leit hann við í skemmunni, gekk í kring- um gamla traktorinn og velti fyrir sér hvort hann væri enn gangfær. Stund- um var hann keyrður í heimsóknir til frændsystkinanna á nágrannabæjun- um. Þannig hélt hann góðu sambandi við sveitina sína á meðan heilsan leyfði. Alli var notalegur í umgengni. Hann var fámáll maður, æðrulaus og bar tilfinningar sínar ekki á torg. Þeg- ar dró að lokum var hann aftur farinn að baksa við kindurnar sínar á Lága- felli. Þar kveðjum við Alla með þakk- læti í huga. Megi hann hvíla í friði. Systkinin frá Ytra-Lágafelli. Ársæll Jóhannesson, fyrrum bóndi á Ytra-Lágafelli, er lagður til hinstu hvílu í dag. Hann er þar lagður til að samsamast mold sveitar sinnar í kirkjugarðinum á Fáskrúðarbakka við hlið eiginkonu sinnar, Jóhönnu Óladóttur, sem lést síðsumars árið 1991. Það má ekki minna vera en ég, með lítilli minningargrein, þakki honum fyrir mína hönd og konu minnar, sem og fyrir hönd fyrrum sveitunga minna, hvort heldur þeirra sem brott eru fluttir eða enn sitja um kyrrt að búum sínum, fyrir áratuga samfylgd og samstarf og vináttu alla. Svo hörmulega bar til forðum tíð að Elías Kristjánsson á Elliða missti konu sína, Sigríði Jóhannesdóttur, af barnsförum, frá sex börnum á ungum aldri. Þar að auki höfðu þau hjón tekið til fósturs ungan svein utan úr Stað- arsveit, Ársæl frá Slitvindastöðum, en hversu gamlan veit ég ekki. Eftir lát konu sinnar bjó Elías enn í fjögur ár að Elliða, en flutti þá með barnahóp- inn á nágrannajörðina Ytra-Lágafell í Miklaholtshreppi og hélt áfram bú- skap sínum þar með seinni konu sinni, Söru Magnúsdóttur, ættaðri frá Bíldudal. Sorglega skammt varði það hjónaband því Elías féll frá af völdum krabbameins langt fyrir aldur fram árið 1938, og stóð þá Sara uppi með barnahópinn sem enn hafði stækkað um fjögur. Var allt þetta mikil harm- saga og horfði illa fyrir ekkjunni með börnin sín mörgu, bæði ung og smá. Fyrstu börn þeirra Elíasar og Sigríð- ar heitinnar voru þó að vísu komin nokkuð til fullorðinsára er hér var komið sögu og flutt úr foreldrahúsum sum hver, en samt voru auðséðir erf- iðleikar framundan á heimilinu. En fóstursonurinn, Ársæll, reyndist eng- inn veifiskati. Nú, er hann var tuttugu og tveggja að aldri hófst í raun bú- skaparsaga hans á Ytra-Lágafelli og stóð hún með engum hléum um rösk- lega hálfrar aldar skeið. Árin sem þau bjuggu saman á jörð- inni, Ársæll og Sara, unnu þau í félagi að búskapnum, en höfðu aðskilinn fjárhag, og var samkomulag þeirra um þá tilhögun mjög gott að því er ég best veit. Annars hefi ég minn litla fróðleik um þessi mál frá mér eldra fólki, en var sjálfur á mjög ungum aldri er þau gerðust. Sara hætti bú- skap sínum 1949 og flutti til Hafnar- fjarðar með börnin. Ársæll hélt hins- vegar áfram búskapnum á Ytra-Lágafelli. Hann hafði fest þar yndi og sterkar rætur sem ekki voru auðveldlega upp slitnar. Hann greri einfaldlega við þessa jörð og vann henni allt sem hann mátti þar til krafta tók að þrjóta löngu, löngu síð- ar. Nú varð hann einbúi um sinn, að heita mátti, eftir að Sara fór, en bjó þó með ráðskonum af og til, uns til hans fluttist kona jafnaldra honum norðan frá Smjörhóli í Axarfirði, Jóhanna Óladóttir að nafni. Það var á öndverð- um sjöunda áratugnum. Þau gengu í hjónaband árið 1966. Hafi það ekki verið vitað fyrir, þá kom fljótt í ljós að Jóhanna var afar veil til heilsu og gekk með illvígan og lítt skilgreinan- legan sjúkdóm sem olli því að hún var engan veginn fær um útivinnu, en inn- anbæjarstörfum gat hún að mestu sinnt um allmörg ár og Ársæll taldi það þá ekki eftir sér að vera henni hjálplegur með þau ef svo stóð á. Jó- hanna var um margt afar sérstök kona. Hún gat verið létt í lund á köfl- um þegar af henni bráði og fé- lagsskapur hennar var auðvitað betri en enginn fyrir Ársæl og þau bæði. Hún kunni óhemju mikið af vísum, ljóðum og þulum, nýjum og fornum og fór gjarna með þetta af munni fram þegar við átti; einnig vel að sér um gömul máltæki og ýmiskonar þjóðlegan fróðleik. Þegar best gekk með sauðfjárbúskapinn hjá manni hennar brá hún á gaman, lengdi nafn eiginmannsins og kallaði hann Fjár- sæl, en það var allt í góðu. En þegar fram í sótti ágerðist heilsuleysi Jó- hönnu svo að ekki varð undan því vik- ist að koma henni til varanlegrar dval- ar á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi og þar var hún meira og minna þar til yf- ir lauk síðla sumars 1991, eins og fyrr segir. Heima á Lágafelli var hún þó tíma og tíma til að byrja með og ann- aðist Ársæll hana þá af mikilli kost- gæfni og umhyggju og þrátt fyrir það aukaerfiði sem því fylgdi að hafa hana heima brást honum ekki væntum- þykjan um konuna sína. Urðu margir til að dást að þolinmæði hans. Mörg síðustu árin sem hún lifði gat hún þó engan veginn heim komist. Eftir að Jóhanna fór burt til lang- dvalar bjó Ársæll einn að öðru leyti en því að hann fékk til sín unglinga þegar þörf kallaði mest, um sauðburð, við heyskap og við gangnastúss á haustin og varð aldrei mannfátt. Ársæll var maður vinnunnar, fyrst og seinast. Vinnan var hans aðal. Hann var svo heppinn að vinnan að búinu til lífs- framfærslu hans var um leið hans tómstundaiðja (hobbý). Hann þurfti ekki á öðru „hobbý“ að halda í lífinu; engum dýrum tækjum eða langferða- lögum til að stytta sér stundir eða „drepa tímann“ eins og mörgum er mikil nauðsyn nú á tímum. Hann var sannkallaður vinnuvíkingur og unni sér ógjarna hvíldar með góðri sam- visku. Væri sjálfsagt nú á tímum kall- aður vinnufíkill og það með nokkrum rétti, því oft og einatt gekk hann fram af sjálfum sér í kappinu við að koma frá hinu og þessu verkinu sem illa þoldi bið að hans dómi. Var ekki fyrir það að synja að sumir hentu góðlát- legt gaman að honum af þessum sök- um, en það var reyndar mjög ómak- legt. Í sveita þíns andlitis skaltu brauðs þíns neyta, segir í Heilagri ritningu. Engan hefi ég þekkt sem þessi orð eiga jafnvel við og Ársæl á Lágafelli. Ekki samt það að hann væri „bölvaður og burtrekinn af jörð- innni“, eins og Adam forðum, svo maður haldi áfram að vitna í Ritn- inguna, heldur blessaðist honum jörð- in hans og hún blessaði hann með því að gróa fagurlega á hverju vori, að langmestu leyti laus við kal, með lag- lega hallandi túnin mót suðvestri og sól. Víðast hvar urðu skakkaföllin af völdum kals á kuldaskeiði síðustu ald- ar meiri en á Lágafelli. Svo heppilega vildi til að öll erfiðu verkin sem æv- inlega þurfti að inna af höndum við búskap ollu Ársæli á Lágafelli einmitt mestri gleði og lífsfyllingu, ef svo má að orði komast. Erfiðar fjárleitir, steypuvinna, böðun sauðfjár og allt annað sem hafði í för með sér vos og erfiði, það voru hans sælustu stundir og ljómaði þá hreinlega af honum gleðin meðan á atinu stóð. Enda skal ég meðganga sjálfur að hafa oft haft gaman af slíku ati því oft gat verið glatt á hjalla í þessari hröslulegu vinnu sem alla jafna fór fram í góðum félagsskap. Fyrir kom að hann mætti ótil- kvaddur til þannig starfa á öðrum bæjum og naut sá er þessar línur ritar m.a. stundum slíkrar aðstoðar hans. Ársæll tók að sínu leyti þátt í upp- byggingarstarfi því hinu mikla sem gekk yfir sveitir landsins upp úr miðri síðustu öld og margt hefur verið um ritað. Nýtt íbúðarhús byggði hann í stað hins eldra, ný fjárhús komu í stað gamalla, myndarleg á þeirra tíma mælikvarða, nýjar hlöður við þau, auk þess sem túnin þöndust út um allar jarðir. Er nú fagurt heim að Lágafelli að líta neðan af þjóðveginum, en þar er nú aðeins sumarhúsabyggð. Ársæll var fjármaður mikill. Sauðféð var „toppurinn“ í lífi hans. Hann var að því leyti nákominn „ættingi“ Bjarts í Sumarhúsum að hann var elskur að sínu fé og lét sér afar annt um það. Það var honum ofar öllu. Fylgdist einnig vökulum augum með fé ná- granna sinna, bæði því sem hélt sig í grennd við túnið og svo langt sem augu hans námu útum Elliðahlíð og flóana þar fyrir neðan þar sem sums staðar voru illar keldur reiðubúnar að hremma saklausa kind. Oft fór hann fótgangandi könnunarferðir um þess- ar slóðir að sumri og hausti, stundum ríðandi, því hesta átti hann lengst af tiltæka. Þrátt fyrir að vera löngum einbúi var Ársæll félagslyndur maður. Hann gekk í þau félög sem var að hafa í Miklaholtshreppi, og starfaði í þeim meira og minna til búskaparloka sinna, sótti fundi þeirra og fylgdist vel með þeim málum sem efst voru á baugi hverju sinni. Einnig duglegur að sækja þá mannfagnaði aðra sem í boði voru, skemmtisamkomur, af- mæli sveitunganna o.s.frv. Þar var oftar en ekki tekið lagið og kom þá skýrt og greinilega í ljós að Ársæll hafði prýðilega söngrödd sem hann hafði alltof sjaldan tækifæri til að beita, og kunni að auki fjöldann allan af sönglögum. Jörðin Ytra-Lágafell var lengstaf ríkisjörð. Hún var síðasta ríkisjörðin í Miklaholtshreppi. Þótt ekki væri hún eignarjörð Ársæls vann hann henni allt sem hann orkaði og fórnaði henni kröftum sínum og manndómi öllum, og þar kom um síðir að hann eignaðist sína elskuðu jörð, en hvorki kann ég að rekja þá sögu né hirði um að lengja grein mína úr hófi fram. En þá var vinnuþrek Ársæls farið að gefa sig nokkuð þegar hér var komið sögu og gamla hestaheilsan að bila. Ljótar blikur á lofti í framleiðslumálum bænda. Allt lagðist þetta á eina sveif. Það var þó ekki með öllu tregðulaust að Ársæll lét af búskap sínum. Hann þráaðist við um stund, en svo fór, einn fagran haustdag, að ærnar hans voru allar sem ein reknar upp á bíl sem flutti þær í lokaáfanga. Ársæll var að heiman þann dag. Nokkru síðar seldi hann Erlu Elíasdóttur og manni hennar, Jóni Einarssyni, jörðina vægu verði, en Erlu gat hann með nokkrum hætti kallað bæði fóstur- dóttur sína og fóstursystur. Bræður hennar höfðu áður byggt sér sumar- hús rétt við túnfótinn. Sjálfur fékk Ársæll inni á Dvarlaheimili aldraðra í Stykkishólmi og undi þar vel síðustu æviárin við frábært atlæti starfsfólks- ins, en kom heim að Lágafelli endrum og sinnum að líta yfir vettvang ævi- starfsins. Ársæll á Lágafelli er dæmi um mann sem ekki þurfti að leita útum lönd og álfur að lífshamingjunni. Hann fann hana á Ytra-Lágafelli í samskiptum við jörð og búfé. Lengra þurfti hann ekki að leita. Það er víð- sýnt frá Lágafelli og útsýnin fögur. Elliðatindar gnæfa hátt og undir þeim Elliðahlíðin grýtt, en fagurgró- in; síðan tindóttur fjallaskaginn áfram vestur í bláma sínum; hið neðra votlendisgrundir Staðarsveitar og blátt hafið framundan og Jökullinn lengst í vestri. Skjólsælt undir Lága- fellshálsi. Það er ekki amalegt að vakna að morgni hvers dags við slíka útsýn þegar skyggni gefur og ekki ástæða til að ætla að annars staðar sé betra. Ég er að gefa mér það, efasemda- maðurinn, að Ársæll hafi nú hitt hana Jóhönnu sína í eilífðinni fyrir handan. Þar þarf helst að vera landslag í lík- ingu við Lágafellshálsinn og Elliða- hlíðina og umfram allt þurfa að vera þar nokkrar lagðprúðar ær á beit í grænum högum. Það þyrfti líka að vera sólskin og angan af þornandi töðu. Erlendur Halldórsson frá Dal. ÁRSÆLL JÓHANNESSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.