Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 61
ÞÝSKA sveitin Scooter hefur um
árabil verið vinsælasta evrópopp-
sveit heims, tónlist sem lýsir sér í
einföldu, takföstu og
poppuðu tæknói.
Sveitin hefur verið
starfandi í níu ár við
góðan orðstír en á síð-
asta ári kom út safn-
platan 24 Carat Gold
sem endurnýjaði að
mörgu leyti áhugann
á sveitinni og fóru
glæný lög sem á henni
eru inn á vinsælda-
lista. Í endaðan mars
kemur svo út ný plata,
sem ber hið lýsandi nafn The Stad-
ium Techno Experience.
Það er Ásgeir Kolbeinsson hjá út-
varpsstöðinni FM957 sem hefur
milligöngu um komu Scooter hingað
til lands.
„Þeir voru með sterka endurkomu
á síðasta ári og í kjölfarið á því fór
ég að kanna áhuga fyrir því að fá þá
hingað yfir,“ segir Ásgeir, spurður
um ástæðu heimsóknarinnar.
„Það kom í ljós að þeir hafa mik-
inn áhuga á landi og þjóð og jafn-
framt því að spila ætla þeir að skella
sér upp á jökla og slíkt.“
Tónleikar Scooter eru mikil sýn-
ing. Sprengingar, ljósadýrð og dans-
arar upp um alla veggi. Feta þeir
svipaðan stíg og landar þeirra í
Rammstein hvað þetta
varðar – eitthvað sem
Íslendingar kynntust
vel hér um árið. Scoot-
er eru enn fremur ekki
mikið fyrir tilrauna-
starfsemi og líkt og
með rokksveitina AC/
DC, sem hefur gefið út
sömu plötuna nánast í
tuttugu ár, veit fólk að
hverju það gengur.
„Scooter eru mjög
fylgnir sinni stefnu og
það er virðingarvert,“ segir Ásgeir.
„Það er alltaf fullt á tónleikum hjá
þeim og þeir hafa sjálfir sagt að
meðan eftirpurn er í gangi muni
þeir halda áfram.“
Allir saman nú: „Harder! Faster!
Scooter!!!“
Scooter spilar í Laugardalshöll 11. apríl
Konungar evrópoppsins
Miðasala hefst 24. mars í verslunum
Símans um land allt.
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.scootertechno.com
Scooter – sannkölluð tæknótröll.
GESTIR í miðbæ
Reykjavíkur hafa
líkast til orðið
varir við teppu og
umstang hjá kaffi-
húsinu Sólon og
þar um kring á
Laugaveginum.
Ástæða þessa er
sú að hér eru
staddir kvik-
myndaframleið-
endur frá Þýska-
landi sem eru að
taka upp mynd
sem á að gerast
alfarið hérlendis. Myndin heitir á
frummálinu Leben wäre schön eða
Lífið er þess virði en aðstandendur
voru staddir hér á landi í fyrra og
kolféllu fyrir landi og þjóð og í
framhaldi var ákveðið að gera
myndina.
Full fjármögn-
un fékkst í
myndina vegna
þessa en handrit
var ekki einu
sinni reiðubúið –
staðsetning
myndarinnar
nægði.
Saga Film rek-
ur erindi þýska
listafólksins hér-
lendis og segir
Sæmundur
Norðfjörð að inn-
streymi fjár til framleiðslu myndar
á borð við þessa sé um 100 millj-
ónir.
Þýsk kvikmynd tekin hér á landi
Þýsku kvikmyndamennirnir að störfum. Morgunblaðið/Sverrir
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 4..
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2 með íslensku tali.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.10.
KEFLAVÍK
ÓHT Rás 2
1/2 H.L. Mbl.
H.K. DV
Radíó X
1/2 Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 6 og 8.
KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Magnaðasti spennuhrollur ársins sem hefur allstaðar slegið í gegn.
Hefur verið líkt við „The Sixth Sense“
Áður en þú deyrð, færðu að sjá
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.10. / Sýnd kl. 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
SV MBLRADIO X KVIKMYNDIR.IS
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.40. / Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 12.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.45. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 2, 5.15, 8, OG 10.45. B. I. 16.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B. i. 14.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20.
Ögrandi mynd sem hefur fengið lof gagnrýnenda um allan
heim með þeim Edward Norton (Fight Club, American
HistoryX), BarryPepper (Saving Private Ryan, GreenMile)
og Philip Seymour Hoffman (Red Dragon, Boogie Nights)
Ef þú ættir 1 dag eftir sem frjáls maður..
gætir þú gjörbreytt lífi þínu?
Lækkað verð! Miðaverð kr. 750.