Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 30
Rafhlöður
Málning
Lakk
Leysiefni, t.d. terpentína
og þynnir
Lyf
Límafgangar
Hreinsilögur
Stíflueyðir
Frostlögur
Olíuefni
Rafgeymar
Klórmenguð efni
Eiturefni og pakkningar
undan þeim
Kvikasilfur, t.d. í hitamælum
Algengustu
spilliefni á
heimilinu
HEILSA
30 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
N
OKKUR umræða hefur átt sér
stað nýlega um lögleiðingu
kannabis hér á landi, en áður
voru þessi mál nokkuð til um-
fjöllunar í júlí í fyrra. Meðal
annars hefur komið fram að breska rík-
isstjórnin hafi haft til athugunar að ekki verði
lengur talið saknæmt að hafa í fórum sínum
kannabis í litlu magni til eigin neyslu. Lög-
regla þar í landi muni ekki handtaka fólk né
sekta fyrir þær sakir einar. Bresk yfirvöld
gerðu sér vonir um að með þessum ráðstöf-
unum gæti lögregla beint kröftum sínum að
öðrum alvarlegri fíkniefnum á borð við kókaín
og heróín.
Forsvarsmenn einhvers konar lögleiðingar
kannabisefna hér á landi hafa því spurt hvort
kominn sé tími til að fara að dæmi Breta í
þessu efni.
Landlæknisembættið telur hins vegar mjög
ótímabært fyrir okkur að íhuga þessi mál,
„náttúruleg“ tilraun í samfélagi á borð við
Ísland gæti haft afleiðingar sem útilokað
væri að sjá fyrir endann á.
Sífellt fleiri rannsóknir koma fram um
skaðlegar afleiðingar kannabisneyslu. Lang-
tímaneysla getur valdið skaða sem er mun meiri en áður var talið, kemur
áþreifanlega niður á heilastarfsemi svo sem skynjun, hugsun og minni.
Skaðinn er þeim mun meiri sem neyslan hefur verið meiri og staðið leng-
ur. Mikil fásinna væri að horfa framhjá slíkum staðreyndum enda er erfitt
að sjá að þörfin fyrir lögleiðingu kannabis sé brýn. Mörg önnur þarfari
verkefni bíða okkar en það.
Fíkniefnaneysla hér á landi hefur vaxið hröðum skrefum að undanförnu.
Segja má að hún líkist faraldri, þ.e. hún breiðist út rétt eins og um smit-
sjúkdóm væri að ræða. Í slíku umhverfi er bæði óráðlegt og varasamt að
leyfa efni sem getur opnað unglingum dyrnar að öðrum fíkniefnum og er
einnig sjálft skaðlegt. Því skiptir máli að slaka hvergi á í baráttu gegn
fíkniefnum. Íslendingar ættu að hafa forsendur til þess að ná árangri í
slíkri baráttu, samfélagið er lítið, vel menntað og við búum á eyju. Því er
ástæða til að styðja við bakið á samtökunum Vímulausri æsku sem stendur
fyrir undirskriftasöfnun til að vekja athygli á þessum málstað þessa dag-
ana.
Sigurður Guðmundsson
landlæknir
Landlæknisembættið.
Heilsan í brennidepli
Slökum hvergi
á gagnvart
fíkniefnum
Sífellt fleiri rann-
sóknir koma fram um
skaðlegar afleiðingar
kannabisneyslu.
Spurning: Vinsamlega upplýstu
mig um slagæðabólgur. Orsakir,
afleiðingar og hvað er til ráða.
Svar: Slagæðabólgur (æðabólg-
ur) eru af ýmsum gerðum, þær
geta verið staðbundnar eða
dreifðar og þær líkjast að mörgu
leyti gigtsjúkdómum. Slag-
æðabólgur eru af flokki sjúkdóma
sem kallast sjálfsnæmissjúkdóm-
ar en bólgubreytingarnar í æð-
unum líkjast því sem sést í liðum í
gigtsjúkdómum eins og t.d. ikt-
sýki. Allir þessir sjúkdómar eru
langvinnir og oftast ólæknandi og
þeir geta valdið talsverðum eða
miklum veikindum. Orsakir slag-
æðabólgu eru óþekktar og þær
gera oftast vart við sig eftir 40-50
ára aldur. Algengustu gerðir
slagæðabólgu eru gagnauga-
slagæðarbólga (risafrumu-
slagæðarbólga; temporal arterit-
is) og þrimla-fjölæðabólga (poly-
arteritis nodosa). er til staðar hjá
einum af hverjum þúsund til 10
þúsund einstaklingum sem eru
yfir fimmtugt og er mun algeng-
ari hjá konum en körlum. Þessi
sjúkdómur fylgir stundum fjöl-
vöðvagigt sem lýsir sér með
verkjum og stirðleika í vöðvum.
Þessi tegund slagæðabólgu er
bundin við æðar í gagnaugum og
höfði og lýsir sér með slæmum
höfuðverkjaköstum, sjóntrufl-
unum og jafnvel blindu, eymslum
í hársverði, hækkuðu sökki og
blóðleysi. Blinda kemur fyrir hjá
allt að 20% sjúklinga en er mjög
sjaldgæf ef réttri meðferð er
beitt. Erfitt er að greina þennan
sjúkdóm með vissu nema tekið sé
vefjasýni úr æð en eftir greiningu
er mikilvægt að hefja strax með-
ferð með stórum skömmtum af
sterum til inntöku til að koma í
veg fyrir blindu. Sumir sjúklingar
geta hætt sterameðferð eftir eitt
ár eða svo en aðrir þurfa að taka
litla skammta árum saman. Gagn-
auga-slagæðarbólga hefur yfir-
leitt ekki teljandi áhrif á lífslíkur
sjúklinganna. Þrimla-fjölæða-
bólga er algengust eftir fertugt
en getur komið fyrir á öllum
aldri. Þessi sjúkdómur er heldur
algengari hjá körlum en konum.
Lyfjaofnæmi getur stundum líkst
þessum sjúkdómi. Sjúkdómurinn
leggst oftast á slagæðar í nýrum,
lifur, hjarta eða meltingarfærum.
Algengustu sjúkdómseinkennin
eru sótthiti, kviðverkir, sár á húð,
þyngdartap, slappleiki og hár
blóðþrýstingur. Nýrnabilun með
bjúg og kláða er einnig algeng.
Án meðferðar deyr um þriðj-
ungur innan árs og flestir innan 5
ára frá því að sjúkdómurinn byrj-
ar. Meðferðin er stórir skammtar
af sterum til inntöku og stundum
eru einnig gefin lyf sem hafa
ónæmisbælandi verkun. Þessi
meðferð ber góðan árangur hjá
um þriðjungi sjúklinga en minni
hjá hinum. Aukaverkanir af þess-
ari meðferð eru oft erfiðar en á
móti kemur að hún getur bætt
lífslíkur sjúklinganna umtalsvert.
Til eru nokkrar aðrar, sjaldgæf-
ari tegundir af slagæðabólgu og
má þar nefna þrimlaroða
(erythema nodosum) sem er bólg-
ur í litlum slagæðum djúpt í húð á
handleggjum og fótleggjum og
Takayasu-slagæðabólgu sem
leggst á stærstu slagæðar lík-
amans, oft með alvarlegum afleið-
ingum. Slagæðabólgur, sama
hvaða nafni þær nefnast, eru al-
varlegir sjúkdómar af óþekktum
uppruna sem erfitt er að lækna
og valda oft langvarandi veik-
indum.
Hvað eru
slagæðabólgur?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM
Orsakir eru
óþekktar
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á hjarta.
Tekið er á móti spurningum á virkum dög-
um milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100
og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok.
Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent
fyrirspurnir sínar með tölvupósti á net-
fang Magnúsar Jóhannssonar:
elmag@hotmail.com.
BÖRN sem alast upp í húsum, sem
eru mettuð tóbaksreyk, eru líkleg
til að þurfa að fara oftar til tann-
læknis en önnur börn, samkvæmt
nýrri rannsókn vísindamanna í
Bandaríkjunum.
Að sögn fréttavefjar BBC telja
vísindamennirnir hugsanlegt að í
tóbaksreyknum sé efni sem geri
börnin viðkvæmari fyrir bakt-
eríum sem valda tannskemmdum.
Vísindamenn við Rochester-
háskóla í New York-ríki rannsök-
uðu 3.500 börn á aldrinum fjögurra
til ellefu ára og komust að þeirri
niðurstöðu að mjólkurtennur fjórð-
ungs þeirra hefðu ekki skemmst ef
þau hefðu alist upp á reyklausum
heimilum. Í blóði barnanna var
meira af nikótínúrefninu kótinín
sem vísindamenn telja að geti bælt
ónæmiskerfið.
„Þetta er enn ein vísbendingin
um að óbeinar reykingar séu slæm-
ar fyrir börn og að öll börn eigi
skilið að alast upp í reyklausu um-
hverfi,“ sagði Andrew Aligne, sem
stjórnaði rannsókninni.
Niðurstaða rannsóknarinnar
sannar þó ekki að óbeinar reyk-
ingar stuðli að tannskemmdum þar
sem vitað er að stéttarstaða hefur
mikil áhrif á það hvort fullorðið
fólk reykir og einnig á mataræði
fjölskyldnanna. Hugsanlegt er því
að tannskemmdirnar séu af völd-
um slæms mataræðis.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vísindamenn telja hugsanlegt að í
tóbaksreyk sé efni sem geri börnin
viðkvæmari fyrir bakteríum sem
valda tannskemmdum.
Óbeinar reyk-
ingar slæmar
fyrir barna-
tennurnar?
VISTVERND í verki er íslenskt
nafn á alþjóðlega verkefninu GAP
eða ,,Global Action Plan“. Verk-
efnið hefur verið í umsjón Land-
verndar síðastliðin tvö og hálft ár,
en hugmyndin á bakvið Vistvernd í
verki er sú að hægt sé að gera lífs-
stíl vistvænni með ýmsum einföld-
um breytingum, án þess að dregið
sé úr lífsgæðum. Boðið er upp á
þátttöku í svokölluðum visthópi,
þar sem heimilishaldið er tekið til
athugunar og endurskoðunar.
Verkefninu hefur vaxið fiskur
um hrygg með tilkomu öflugra
bakhjarla, segir Þóra Bryndís Þór-
isdóttir á skrifstofu Landverndar,
en Fjarðarkaup, Toyota, Sorpa,
Landsvirkjun, Orkuveita Reykja-
víkur og umhverfisráðuneytið
styrkja Vistvernd í verki.
Vistvernd í verki byggist á því
að fulltrúar 5–8 heimila koma
reglulega saman til fræðslufunda
yfir um það bil tveggja mánaða
tímabil. Farið er í gegnum hand-
bók sem fjallar fyrst og fremst um
fimm þætti er tengjast umhverfi og
heimili, það er sorp, orku, sam-
göngur, innkaup og vatn. Leiðbein-
andi styður við bakið á hverjum
hópi.
„Það hefur sýnt sig að fólki
finnst þátttakan í verkefninu mjög
320 heimili
hafa tekið þátt
í visthópi
Sorp
Settu ekki spilliefni í sorptunnuna og
ekki hella þeim í vaskinn. Allt sem sett er í
skólpið og í tunnuna hafnar fyrr eða seinna
í náttúrunni. Skólpið frá heimilum okkar end-
ar úti í sjó og ekki viljum við bæta spilliefnum út í
matarkistuna okkar.
Spilliefnum á að skila í vel merktum ílátum
til móttökustöðva í þínu sveitarfélagi. Á höfuð-
borgarsvæðinu eru það mótttökustöðvar Sorpu sem sinna þessu
hlutverki. Sem dæmi um spilliefni á heimilum má nefna rafhlöður
og lyf.
Bensínstöðvar taka líka á móti ónýtum rafhlöðum og lyfjum er
hægt að skila í næsta apótek.
Hugleiðing vikunnar
Enginn getur gert allt en allir geta gert eitthvað.
Vistvernd í verki – Ráð vikunnar
ÞRETTÁN sveitarfélög á landinu
bjóða íbúum sínum að taka þátt í vist-
hópi, en það eru Akranes, Akureyri,
Austur-Hérað, Árborg, Fjarða-
byggð, Garðabær, Hornafjörður,
Hveragerði, Hvítársíðuhreppur, Ísa-
fjörður, Mosfellsbær, Reykjanesbær
og Reykjavík.
Í sveitarfélaginu Hvítársíðuhreppi
í Borgarfirði eru 84 íbúar og helm-
ingur þeirra tekur þátt í visthópi
þessa dagana.
Í Hveragerði taka starfsmenn úr
umhverfisnefnd bæjarins þátt í vist-
hópi ásamt atvinnunefndarfulltrúum
og öðrum bæjarbúum.
Helmingur umhverfisnefndar
Garðabæjar tekur nú jafnframt þátt í
visthópi, ásamt fleiri bæjarbúum.
Hafið er kynningarátak í Vest-
urbæ Reykjavíkur. Upplýsingum um
verkefnið hefur verið dreift um hverf-
ið og Vesturbæingum boðið sérstak-
lega að taka þátt í visthópi. Þess eru
dæmi að nágrannar hafi, í kjölfar
þátttöku í visthópi, sameinast um
safnkassa til jarðgerðar á lífrænum
úrgangi.
Orkuveita Reykjavíkur býður
starfsmönnum sínum að taka þátt í
visthópum. Árangurinn skilar sér
bæði heima fyrir og á vinnustaðnum.
Málningadeild Orkuveitunnar hefur
til að mynda tekið upp nýtt verklag
og er nú kerfisbundið verið að skipta
út efnum sem teljast vera óæskileg
umhverfi sínu og kaupa viðurkennd-
ar vörur er teljast umhverfisvænni.
Sorpa hélt nýlega kynningarfund
fyrir starfsfólk sitt og er myndarleg-
ur visthópur sem kallast SPARendur
farinn af stað hjá þeim.
Landsvirkjun stendur nú fyrir
kynningarherferð meðal starfs-
manna sinna. Hafa starfsmenn fengið
sendar upplýsingar, ásamt sparperu,
og þeim verið boðið á kynningarfund
um verkefnið. Þrír hópar mynduðust
fyrir norðan, einn í Blönduvirkjun
annar í Laxárvirkjun og sá þriðji í
Kröfluvirkjun. Tveir hópar urðu til í
Reykjavík, einn á Hellu og annar er í
undirbúningi á Selfossi, samtals sjö
hópar.
Leikskólar hafa verið virkir í Vist-
vernd í verki og virkjað börnin til
vistvænni lifnaðarhátta. Tveir hafa
lokið þátttöku í verkefninu, þ.e. Leik-
skólinn Álfheimar á Selfossi og Leik-
skólinn Hulduberg í Mosfellsbæ.
Bandalag íslenskra sérskólanema
býður íbúum stúdentagarða sinna að
taka þátt í visthópum. Stefnt er að því
að koma upp jarðgerðarkassa við
hverja byggingu félagsins.
Heimild: Vistvernd í verki
Helmingur íbúa
Hvítársíðuhrepps
lærir vistvernd