Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 33 ALÞINGISKOSNINGARNAR 10. maí næstkomandi snúast um framtíð Íslands. Þær snúast fyrst og fremst um það hvort Ís- land verði áfram í forystu meðal þeirra þjóða sem hafa getað skapað bestu lífskjör í heim- inum eða ekki. Kjósenda er val- ið á kjördag. Traust skiptir miklu máli í stjórnmálum og þegar litið er til framtíðar er nauðsynlegt að hafa dóm reynslunnar úr fortíðinni í huga. Í íslenskum stjórnmálum tog- ast tvær andstæður á: Frjáls- lyndi og stjórnlyndi. Sjálfstæð- isflokkurinn hefur staðið vörð um hið fyrrnefnda – frelsið. Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn tók síðast við stjórn landsins hefur markvisst verið unnið að því að auka frelsi og skýra leikreglur í landinu. Frelsið leysir krafta einstaklinganna úr læðingi sem opinberar nefndir eða stofnanir ráða ekki yfir og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Best er að styðjast við hlutlæga mælikvarða í þeim efnum. Lít- um á nokkra þeirra:  Kaupmáttur launa á al- mennum vinnumarkaði á tíma- bilinu 1995 til 2003 jókst mest á Íslandi af ríkjum innan OECD. Kaupmátturinn jókst um rúm 27% á þessu tímabili á Íslandi en um tæp 12% að meðaltali í ríkjum OECD. Á tímabilinu stóð kaupmáttur nánast í stað á evrusvæðinu, í Þýskalandi jókst hann aðeins um 1%.  Kaupmáttur lægstu launa hefur aukist um tæp 60% frá árinu 1995.  Skattar ríkisins á ein- staklinga og fyrirtæki hafa ver- ið lækkaðir verulega. Hlutfall ríkisins í staðgreiðslu tekju- skatts hefur aldrei verið lægra frá því að staðgreiðsla var tekin upp árið 1988!  Hlutfall skatttekna hins opinbera af vergri landsfram- leiðslu á Íslandi er með því lægsta sem þekkist í iðnríkjum OECD. Þetta hlutfall hefur far- ið lækkandi og var 34,8% árið 2001. Einungis fimm ríki voru með lægra hlutfall en Ísland.  Fjárlagahalla hefur verið breytt í fjárlagaafgang og skuldir hafa verið greiddar nið- ur. Frá árinu 1996 hafa hreinar skuldir ríkissjóðs lækkað úr 34,5% í 19% af landsframleiðslu.  Hlutfallsleg útgjöld Íslend- inga til menntamála eru nú þau hæstu í Evrópu. Árið 1999 var 14,5% af heildarútgjöldum hins opinbera hér á landi varið til menntamála. Meðaltal í ríkjum ESB var 11,2%.  Ísland er í fyrsta sæti hvað varðar notkun upplýsinga- tækninnar að mati World Economic Forum.  Ísland var í sjöunda sæti af 174 ríkjum þegar Þróun- arstofnun Sameinuðu þjóðanna lét kanna árið 2001 hvar væri best að búa.  Íslenska stjórnsýslan er næstbesta stjórnsýsla í heimi samkvæmt Alþjóðaþróun- arstofnun Harvard-háskóla. Samkvæmt rannsókninni er spilling engin, þjóðfélagið gegn- sætt og dómskerfið sjálfstætt.  Ísland lenti í efsta flokki og 4. sæti þegar stjórnsýslunefnd OECD gerði árið 2001 könnun á þekkingarstjórnun í opinberri stjórnsýslu.  Ísland er í efsta flokki þeg- ar lánshæfi er metið af alþjóð- legum matsfyrirtækjum og hef- ur það aldrei verið jafn hagstætt og nú.  Ísland hefur á síðustu ár- um stokkið hátt upp í mæl- ingum á samkeppnishæfni þjóða og efnahagslegu frelsi.  Ísland er í efsta sæti meðal Evrópuríkja þegar mælt er hversu margir teljast virkir í frumkvöðlastarfsemi. Ísland er efst á frelsislista samtakanna Fréttamenn án landamæra. Fleira mætti nefna en þetta er óumdeilanleg reynsla sem Ís- lendingar hafa af ríkisstjórnum undir forystu Sjálfstæðisflokks- insins og Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra. Stjórnlyndi hefur einkennt ríkisstjórnir og sveitarstjórnir þar sem félagshyggjuöflin hafa farið með völd. Vinstri menn treysta á opinberar nefndir, stofnanir, svið og ráð til að leysa mál. Þeir hafa meiri trú á sam- ræðum stjórnmálamanna held- ur en frumkvæði einstaklinga. Hver er reynsla Íslendinga af vinstri ríkisstjórnum? Nokkrar staðreyndir eru óumdeildar:  Engin vinstri stjórn hefur setið út heilt kjörtímabil.  Há verðbólga, háir skattar og auknar skuldir ríkisins hafa einkennt vinstri ríkisstjórnir.  Kaupmáttur launa rýrnaði um rúm 10% þegar vinstri stjórn var síðast við völd á ár- unum 1988 til 1991. Það þurfti aðeins þrjú ár til! Þetta er það sem vinstri menn kalla velferð- arstjórnir og nú á að gera tilraun til þess að end- urvekja eina slíka. Ákveðnir valdaþyrstir stjórnmálamenn ríða nú um héruð og hafa meðal annars hátt um það að stofnanir samfélagsins njóti ekki trausts. Sjálfir hafa þeir árum saman reynt að grafa undan trausti og tiltrú almenn- ings á stjórnvöldum og beitt til þess hálfkveðnum vísum og gróusögum. Ættu kjósendur að treysta slíkum stjórn- málamönnum? Hinum sömu og telja sig geta sagt hvað sem er fyrir kosningar sem þeir telja falla vel í eyru kjósenda en hafa þau orð síðan að engu eftir kosningar. Tökum nokkur ná- læg dæmi um svikin loforð stjórnmálamanna:  R-listinn lofaði að greiða upp skuldir Reykjavíkurborgar. Annað kom á daginn. Skuld- irnar hafa hækkað um 1100% á tíu ára tímabili og Reykvíkingar skulda nú mest í samanburði við nágrannasveitarfélögin.  R-listinn lofaði að hækka ekki skatta. Þetta loforð var svikið, fasteignaskattar hafa hækkað og útsvarsprósenta Reykjavíkurborgar hefur aldrei verið hærri.  Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir lofaði fyrir síðustu borg- arstjórnarkosningar að fara ekki í þingframboð að ári. Í við- tali við Morgunblaðið 19. maí 2002 sagðist hún verða borg- arstjóri næstu fjögur árin nema hún hrykki upp af: „Ég er ekki á leið í þingframboð að ári.“ Í við- tali við RÚV viku síðar ítrekaði hún þetta með þessum orðum: „Já ég fullyrði algerlega að ég er ekki að fara í þingframboð að ári. Það er alveg ljóst.“ Í dag eru þessi orð einskis virði. Kjósendur hafa skýrt val. Þeir geta valið svikin loforð, aukna skatta, hærri skuldir og verðbólgu með vinstri stjórn eða áframhaldandi hagsæld og betri lífskjör með Sjálfstæð- isflokkinn í forystu. Hann mun halda áfram að treysta fólkinu í landinu og auka athafnafrelsi þess og svigrúm þannig að það geti leitað lífshamingjunnar á eigin forsendum. Reynsla og traust Eftir Magnús Þór Gylfason ’ Frá því að Sjálfstæð-isflokkurinn tók síðast við stjórn landsins hef- ur markvisst verið unn- ið að því að auka frelsi og skýra leikreglur í landinu. ‘ Höfundur er formaður Heimdall- ar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík /magnus@xd.is. besta ein- létta sér- s, 65 ára og mur því vel, u Davíðs Sveitarfélög ðu í borg- lsmenn kattamál að sér ér hljóðs ndurómaði m hjá grænna, rstjórn sagan sögð, ætur hafa eð kaup- hefur nefnt aukningu nblaðinu gara að borga ein- eynd, að þeir að kunar gslegu byrð- ækka skatt- togar ekjuskatts umsvifum í kattsbyrði. s báru kosninga- a falskra ætisráð- f hatrömm- um átökum milli kommúnista og jafnaðarmanna. Komm- únistum var ekki eins illa við neina af andstæðingum sín- um og jafnaðarmenn, sögðu þá túlka kenningu sósíalismans á rangan hátt. Í máli Ögmundar Jónassonar, þingmanns vinstri/ grænna, glittir í þessi gömlu átök: Samfylkingin er eins og Tony Blair í Bretlandi svikari við hinn sanna málstað vinstrisinna. Ingibjörg Sólrún gefur meira að segja til kynna, að Tony Blair hafi stolið „þriðju leiðinni“, því vit- lausasta af öllu vitlausu í nafni vinstrimennsku, frá sér og Kvennalistanum. Hin nýja vinstrimennska Samfylking- arinnar er svik við málstað þeirra, sem eru andvígir aðild Íslands að evrópska efnahagssvæðinu og á móti einka- væðingu. Samfylkingin bregst íslenskri náttúru í þágu þungaiðnaðar. Fyrir þá, sem standa utan hugmyndafræðilegra vé- banda vinstrimennskunnar, eru deilur um inntak kenn- inga sósíalismans og hve langt má teygja þær og toga ekki spennandi. Fyrir hina er um póltískt líf eða dauða að tefla. Forystumenn vinstri/grænna súpa nú seyðið af því að hafa staðið að R-listanum og heyra vonarpening sinn í hópi kjósenda spyrja: „Er ekki langbest að kjósa Sam- fylkinguna, ef við viljum breyta? Þið hafið hvort sem er hvatt okkur til að treysta Ingibjörgu Sólrúnu og kjósa hana í þágu breytinga gegn íhaldinu.“ x x x Utanríkismál settu ekki sterkan svip á eldhúsdags- umræðurnar. Kristján Pálsson, óháður frambjóðandi, ræddi ranglega um að „endurskoðun varnarsamnings- ins“ væri ekki lokið. Þessu var einnig ranglega haldið fram í leiðara DV á fimmtudaginn. Engin endurskoðun á varnarsamningnum stendur yfir. Hann er í fullu gildi, óbreyttur frá árinu 1951. Hins vegar hefur bókun við samninginn, sem ritað var undir 1996, ekki verið end- urnýjuð. Í henni er fjallað um fyrirkomulag varnanna, framkvæmd samningins frá 1951. Varnir Íslands voru til umræðu á fjölmennum fundi Varðbergs þriðjudaginn 11. mars, þar sem við vorum þrjú, sem svöruðum spurningunni: Hvernig tryggjum við varnir Íslands á 21. öldinni? Halldór Ásgrímsson talaði fyrir Framsóknarflokkinn, Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrir Samfylkinguna og ég fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þótt hver ræðumanna hafi nálgast viðfangsefnið frá sínum sjónarhóli, varð niðurstaða okkar allra í grófum dráttum hin sama: Gera verði ráðstafanir til tryggja varnir Íslands og ekki beri að hrófla við þeirri meg- inskipan, sem byggist á aðildinni að Atlantshafs- bandalaginu (NATO) og varnarsamningnum við Banda- ríkin. Frómt frá sagt, er þó erfitt að átta sig á stefnu Sam- fylkingarinnar í utanríkismálum fyrir þessar kosningar. Um tíma mátti ætla, að hún vildi gera þau að höfuðmáli kosninganna með Evrópusambandsaðild að leiðarljósi. Frá því hefur líklega verið horfið. Á dögunum fékk ég fyrirspurn frá jafnaðarmanni, sem hafði verið á Samfylkingarfundi með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í Reykjanesbæ. Hún teldi varnarsamninginn ekki lengur í gildi og áréttaði, að hún hefði verið her- stöðvaandstæðingur. Bað hann mig að skýra stöðu sam- skiptanna við Bandaríkjamenn fyrir sér, því að málflutn- ingur Ingibjargar Sólrúnar hafði greinilega vakið fleiri spurningar en svör, Frásögn Morgunblaðsins í gær af ræðu Ingibjargar Sólrúnar á Höfn í Hornafirði segir okkur, að hún búist við því, að ekki líði á löngu, þar til Íslendingar taki við stjórn Keflavíkurflugvallar af Bandaríkjamönnum og þá verði Reykjavíkurflugvelli lokað. Hvaða viðhorf til varnar- og öryggismála Íslendinga felst í þessum orðum? Hafi stjórnmálamenn eða flokkar ekki skýra sýn á stöðu þjóðarinnar í öryggis- og varnarmálum eiga þeir mikla heimavinnu óunna fyrir kosningar. Eitt er að vera ósammála um hvaða leið eigi að fara til að tryggja varnir Íslands á 21. öldinni, annað er að vita ekkert um málið og taka samt þátt í umræðum um það. x x x Í stjórnmálastarfi um heim allan er deilt um hlutverk ríkisvaldsins og þar með stjórnmálamanna. Alls staðar er ágreiningur um leiðir í skattamálum, hvort þeir séu of há- ir eða lágir. Hvarvetna geta stjórnmálamenn haft mis- munandi sjónarmið í umhverfis- eða atvinnumálum. Hvergi geta þeir gengið fram fyrir umbjóðendur sína, án þess að eiga svar við spurningunni um það, hvernig þeir ætli að tryggja öryggi lands og þjóðar. – vinstri/grænir – varnarmál bjorn@centrum.is FYRIR síðustu alþingiskosn- ingar hét Framsóknarflokkurinn því að hluti barnabóta yrði ótekjutengdur með svokölluðum barnakortum. Í dag eru greiddar um 36 þús. kr. á ári fyrir hvert barn, 7 ára og yngra. Hefur þessi framkvæmd gefist vel og ljóst að íslenskar barnafjölskyldur eru vel að þessum greiðslum komnar. Kosningaloforð Framsókn- arflokksins fyrir næsta kjör- tímabil er að öll börn, líka þau sem eru eldri en sjö ára, fái barnakort. Þessar breytingar leiða hugann að því fyrirkomulagi sem gildir almennt um barnabótakerfið, ekki síst tekjutenginguna. Ég verð að lýsa því yfir, að ég er and- vígur 100% tekjutengingu í því kerfi. Það er eðlilegt að fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið, eignast börn, borgar af náms- lánum o.s.frv. hafi miklar tekjur. Slíkt gerist m.a. vegna mikillar yfirvinnu og þess að ungt fólk leitar eftir allri þeirri vinnu sem það kemst í. Eins og skattaum- hverfi barnafjölskyldna er í dag, lendir vísitölufjölskyldan í víta- hring jaðarskattanna. Þegar tekj- urnar eru miklar fá þessar fjöl- skyldur nær engar vaxtabætur eða barnabætur og oft á tíðum er mjög erfitt að ná endum saman. Þetta ástand er óþolandi og er ég sammála þeim röddum sem nú heyrast innan Framsóknarflokks- ins að tími sé kominn á heildar- endurskoðun á skattkerfinu, þá sérstaklega með tilliti til barna- fjölskyldna. Ég hef ávallt verið talsmaður tekjutengingar, þ.e. að fjár- magnið renni í hvað mestum mæli til þeirra heimila sem hvað lægst- ar hafa tekjurnar. Ég var tals- maður ríkisstjórnarinnar í ör- yrkjadómsmálinu, því mér finnst betra að öryrki með lítinn lífeyr- issjóð fái mun hærri greiðslur á mánuði en maki forstjóra, þar sem heimilistekjurnar eru oft 1-2 milljónir kr. á mánuði. Stjórn- arandstaðan vildi aftur á móti að allir ættu að fá jafn miklar ör- orkubætur, óháð félagslegum að- stæðum. Í þessu máli kristallast ólík lífsýn okkar og það sem að- greinir ólíka stjórnmálaflokka. Fyrir mér er staðreyndin einföld: Sameiginlegir sjóðir okkar eru takmarkaðir og við framsókn- armenn viljum að peningarnir renni til þeirra sem hvað mest þurfa á þeim að halda. Það verður ávallt einhver tekjutenging að vera til hagsbóta fyrir þá þjóðfélagshópa sem hvað lægstar hafa tekjurnar. Með tekjutengingu (svo óaðlaðandi orð sem það nú er) er hugsunin sú að þeir sem hvað mest á stuðningi þurfa að halda fái hlutfallslega stærri sneið af kökunni en þeir sem betur hafa það. Margir stuðningsmenn Framsókn- arflokksins eru öryrkjar, náms- menn og eldri borgarar, þeim þjóðfélagshópum mun Fram- sóknarflokkurinn tryggja áfram- haldandi kjarabætur, fái hann til þess fylgi, í kosningunum 10. maí nk. Barnabætur þarfn- ast endurskoðunar Eftir Birki J. Jónsson „Í víta- hring jað- arskatt- anna.“ Höfundur er aðstoðarmaður félags- málaráðherra og skipar fjórða sætið á lista Framsóknarflokksins í Norð- austurkjördæmi. ð - - - fjalla um og undirbúa frumvarp til laga um fjárhags- legan stuðning við stjórnmálaflokka og þá þætti sem slíkum stuðningi tengjast, eins og Davíð Oddsson forsætisráðherra orðaði það á Alþingi á þeim tíma. Sjö árum eftir þetta samkomulag á milli stjórn- málaflokkanna kom niðurstaðan af nefndarstarfinu. Hún var engin. Enn hafa ekki verið sett lög, þrátt fyrir að margir teldu að samkomulag flokkanna frá árinu 1993 fælist í því að heimila framlög fyrirtækja til stjórn- málaflokkanna að tiltekinni fjárhæð frádráttarbær frá skatti, en á móti yrði sett löggjöf um að opna fjárreiður flokkanna. Þetta hefur auðvitað orðið til þess að auka á tortryggni. Sífellt fleiri líta svo á að leynd og pukur með fjármál stjórnmálaflokka gangi gegn lýðræði og heilbrigðum stjórnarháttum. Jafnræði í leikreglum Samfylkingin hefur á stefnuskrá sinni að sett verði lög um fjárreiður stjórnmálaflokka og hún birti ársreikning sinn opinberlega eftir fyrsta lands- fundinn. Sá flokkur sem ekki hefur léð máls á því að opinbera reikninga sína er Sjálfstæðisflokkurinn. Þegar það er ámálgað að setja þurfi lög um fjármál stjórnmálaflokka klifa talsmenn flokksins á því að hverjum og einum sé frjálst að opna bókhald sitt og birta nöfn styrktaraðila, en þeir ætli ekki að gera það. Sjálfstæðisflokkur – flokkur sérhagsmuna gegn almannahagsmunum – skilur ekki að jafnræði þarf að ríkja í leikreglum milli stjórnmálaflokka og ein lög yfir alla að ganga, alveg eins og alls staðar í þjóð- félaginu. Athyglisvert er að Davíð Oddsson hefur lítið fylgt eftir þeirri hugmynd sem hann hefur sett fram um að lögbundið verði að fyrirtækjum verði bannað að styrkja stjórnmálaflokka. Því er vandséð hvort hug- ur hafi þar fylgt máli. Í því sambandi er ástæða til að benda á að ég tók undir það þegar í haust að skoða ætti þessa hugmynd ef Sjálfstæðisflokkurinn væri jafnframt tilbúinn til að opna fjárreiður sínar og birta ársreikninga opinberlega. Engin viðbrögð hafa fengist við þessu. Það sýnir að ákafi Sjálfstæðis- flokksins að hætta að þiggja framlög frá fyr- irtækjum er varla mikill. s og nátttröll ráðsins sem elur það skuli vera til rreiður stjórn- i.“ Höfundur er alþingismaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.