Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 53
VALUR Fannar Gíslason hefur
gert nýjan samning við knatt-
spyrnudeild Fylkis og er hann til
þriggja ára, eða út keppnistímabilið
2005. Valur Fannar kom til liðs við
Fylki fyrir rúmu ári, frá Fram, og
lék stórt hlutverk hjá Árbæjarliðinu
á síðasta sumri en hann skoraði
meðal annars eitt markanna í sigr-
inum á Fram í úrslitaleik bikar-
keppninnar.
GARÐAR Jóhannsson og Jón
Skaftason úr KR taka út leikbann í
Meistarakeppni KSÍ annað kvöld og
verða því ekki með þegar Íslands-
meistararnir mæta bikarmeisturun-
um, Fylki. Þeir áttu eftir að afplána
eins leiks bann frá síðasta tímabili
og verða því lausir allra mála þegar
Íslandsmótið hefst í maí.
GYLFI Þór Orrason dæmir leik
KR og Fylkis í meistarakeppninni
annað kvöld. Aðstoðardómarar eru
þeir Einar Guðmundsson og Einar
Sigurðsson.
HELGI Þór Jónasson, sem spilaði
einn leik með Þór í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í fyrra, er genginn til
liðs við Leiftur/Dalvík en hann spil-
aði áður með Dalvíkingum. Helgi
mun því ekki leika undir stjórn föð-
ur síns, Jónasar Baldurssonar,
þjálfara Þórs, næsta sumar en þeir
feðgar voru báðir í leikmannahópi
Þórs í fyrra.
BRYNDÍS Bjarnadóttir knatt-
spyrnukona úr Breiðabliki getur
ekki leikið með 21-árs landsliði
kvenna gegn Svíþjóð í Egilshöll í
dag vegna veikinda. Úlfar Hinriks-
son, þjálfari liðsins, valdi Kristínu
Bjarnadóttur úr Val í hennar stað.
FÓLK
JÓN Arnar Magnússon úr Breiða-
bliki hefur keppni árdegis í dag í
sjöþraut á heimsmeistaramótinu í
frjálsíþróttum innanhúss í Birm-
ingham á Englandi. Þetta er í fjórða
sinn sem Jón Arnar er á meðal kepp-
enda á HM í sjöþraut, en hann hefur
í tvígang komið heim með verðlaun í
farteskinu frá mótunum til þessa,
silfur fyrir tveimur árum og brons
þegar keppt var í París fyrir 6 árum.
Þá setti Jón Arnar Norðurlandamet
sitt í sjöþraut, 6.293 stig á HM í
Maeabashi fyrir fjórum árum, en sá
árangur nægði honum þá aðeins til
fimmta sætis í einni mögnuðustu sjö-
þrautarkeppni sögunnar.
Líklegt má telja að heimsmeist-
arinn og heimsmethafinn í tugþraut,
Roman Sebrle frá Tékklandi, leggi
allt í sölurnar til að verja tign sína
sem hann vann á síðasta móti.
Reikna má með að Tom Pappas frá
Bandaríkjunum og Lev Lobodin,
Rússlandi, veiti Sebrle hvað harð-
asta keppni. Þar á eftir komi síðan
Jón Arnar og Erki Nool frá Eist-
landi. Annars eru sjöþrautarkapp-
arnir átta fremur jafnir að getu um
þessar mundir og því má alls ekki
afskrifa Aleksandr Pogorelov frá
Rússlandi og Frakkann Laurent
Hernu, þótt fyrirfram megi líta til
þeirra sem veikustu keppendanna.
Sömu sögu má segja af Tomas Dvor-
ák, Tékklandi. Hann hefur átt erfitt
uppdráttar síðustu misseri. Dvorák
er hins vegar reyndur, er m.a. þre-
faldur heimsmeistari í tugþraut
karla og stendur sig oft hvað best
þegar mikið er lagt undir.
Jón Arnar verður
í eldlínunni á HM
Jón Arnar Magnússon
RÚNAR Alexandersson, fim-
leikamaður, tekur þátt í
sterku heimsbikarmóti í París
um helgina. Þetta er fyrsta
heimsbikarmótið af þremur
hjá Rúnari á næstunni en hann
keppir næst í Cottbus í Þýska-
landi og síðan í Grikklandi.
Hann hefur haft í mörg horn
að líta að undanförnu því um
síðustu helgi hreppti Rúnar
tvenn verðlaun á móti í Kaup-
mannahöfn, þar sem hann
sigraði á bogahesti og varð í
þriðja sæti í hringjum. Þar á
undan keppti Rúnar á bik-
armóti FSÍ, þar sem hann
tryggði Gerplu sigur, og á al-
þjóðlegu móti á portúgölsku
eyjunni Madeira þar sem hann
fékk gull á tvíslá og silfur á
bogahesti.
Rúnar í París
Það var mikil harka í leiknum ogbitnaði það á gæðum hand-
knattleiksins en í aðalhlutverki
lengst af í leiknum
voru arfaslakir
dómarar, Brynjar
Einarsson og Vil-
bergur Sverrisson.
Gestirnir byrjuðu betur og skoruðu
fyrstu fjögur mörk leiksins og
fyrsta mark Eyjamanna kom eftir
tíu mínútna leik. Varnir beggja liða
voru fastar fyrir og komust skyttur
liðanna lítið áleiðis í fyrri hálfleik.
ÍR leiddi í hálfleik, 7:9. Þeir byrj-
uðu svo af miklum krafti í seinni
hálfleik og náðu fljótlega fimm
marka forystu og var það munurinn
framan af seinni hálfleik. Síðustu
tuttugu mínútur leiksins voru
æðiskrautlegar, hverjum Eyja-
manninum á fætur öðrum var vísað
af leikvelli og var oft spurning fyrir
hvað.
Á meðan sáust gróf brot hjá báð-
um liðum sem vel gátu verðskuldað
brottvísanir og sum hver hreinlega
beint rautt spjald, en þau brot létu
dómararnir fram hjá sér fara. ÍR-
liðið jók forystu sína gegn fámenn-
um heimamönnum og niðurstaðan
tíu marka sigur gestanna sem með
sigrinum náðu Valsmönnum að
stigum. Sturla Ásgeirsson var í
feiknastuði í vinstra horni ÍR og
skoraði tíu mörk, eins var fyrirlið-
inn Bjarni Fritzen öflugur. Hall-
grímur Jónasson var einnig í góðu
formi í markinu, varði nítján skot.
Eyjamenn söknuðu sárt leikstjórn-
andans Roberts Bognar sem var
meiddur en mest bar á Davíð Þór
Óskarssyni og Sigurði Bragasyni í
sóknarleik liðsins.
Átakalítill Stjörnusigur
Stjarnan vann átakalítinn sigur áSelfyssingum, 22:35. Gestirnir
áttu þó í erfiðleikum með að hrista
heimamenn af sér í
fyrri hálfleik, en
Stjarnan komst í 2:7
en heimamenn
minnkuðu muninn í
12:13. Í seinni hálfleik var það hins
vegar aldrei vafi hvor væri sterkari
aðilinn.
Stjörnumenn hófu leikinn á 3-2-1
vörn sem virtist virka vel en með
einbeittri vörn komust gestirnir 5
mörkum yfir. Þá urðu gestirnir fyr-
ir nokkurri blóðtöku á 10. mínútu,
en David Kekelian hljóp of mikið
kapp í kinn og hrinti einum leik-
manni Selfyssinga eftir að hafa átt
við hann í vörninni. Var Kekelian
umsvifalaust vísuð leiðin í sturtu.
Sóknarleikur Selfoss fór að virka
um miðjan fyrri hálfleik og mátti á
tíðum sjá skemmtilegar fléttur sem
Ívar Grétarsson var höfundur að.
Þá komst Gísli Guðmundsson einn-
ig í gang í markinu og varði vel á
köflum. Selfyssingar gerðu afdrifa-
rík mistök þegar farið var að líða á
fyrri hálfleikinn, en þá kom Ram-
únas Mikalonis of snemma inn á
völlinn úr fyrstu brottvísun og fékk
þar strax aðra brottvísun. Hann
fékk síðan sínu þriðju brottvísun
þegar 4 sekúndur voru eftir af fyrri
hálfleik og áttu Selfyssingar eftir
það erfitt uppdráttar. Í hálfleik var
staðan 12:14.
Stjörnumenn komu mjög
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik en
þeir hreinlega gerðu út um leikinn
á fyrstu 8 mínútunum. Eftir 13 mín-
útna leik í seinni hálfleik var staðan
orðin 15:26 og í raun aldrei spurn-
ing hvort liðið færi með sigur af
hólmi. Arnar Agnarsson spilaði vel
fyrir Stjörnumenn og var hann án
efa maður leiksins, skoraði 8 mörk
og vann vel í vörn.
Þá sýndi Vilhjálmur Halldórsson
góðan leik og batt vörnina vel sam-
an.
Hjá Selfyssingum var Ívar Grét-
arsson bestur og barðist vel. Gísli
Guðmundsson varði vel í fyrri hálf-
leik en átti verri seinni hálfleik.
ÍR aftur í
annað sæti
ÍR-INGAR gerðu góða ferð til Eyja í gær þegar þeir sigruðu heima-
menn með tíu marka mun, 19:29, og skutust þar með upp í annað
sæti deildarinnar. Á sama tíma vann Stjarnan átakalítinn sigur á
Selfossi, 35:22.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
Helgi
Valberg
skrifar
Auk Garcia er nýliðinn Ásgeir ÖrnHallgrímsson, 19 ára örvhent
skytta úr Haukum, í 15 manna hópi
sem Guðmundur valdi í gær. Enn-
fremur eru Gylfi Gylfason, horna-
maður frá Wilhelmshavener, og Logi
Geirsson, skytta úr FH, í hópnum en
þeir voru ekki með á HM í Portúgal á
dögunum. Þessir leikmenn koma inn í
staðinn fyrir þá Sigurð Bjarnason og
Gústaf Bjarnason, sem eru meiddir,
Heiðmar Felixson og Dag Sigurðs-
son, sem eru uppteknir með sínum fé-
lagsliðum, og Gunnar Berg Viktors-
son.
„Ég valdi Garcia með þeim for-
merkjum að hann yrði kominn með
vegabréfið í tæka tíð og það gengur
vonandi eftir. Miðað við það sem ég
hef séð til hans með HK í vetur tel ég
að hann geti styrkt okkar landslið,
enda vorum við í dálitlum vandræð-
um með sóknarleikinn vinstra megin
á HM í Portúgal. Það er mjög jákvætt
að fá hann inn í hópinn núna og
Garcia fær tækifæri til að sýna sig og
sanna að hann sé gjaldgengur með
okkur í fremstu röð í alþjóðlegum
handknattleik,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að valið á Ásgeiri og
Loga væri liður í þeirri stefnu sinni að
gefa ungum og efnilegum leikmönn-
um reglulega tækifæri með landslið-
inu. „Logi hefur aðeins fengið að
prófa með okkur og nú er komið að
Ásgeiri en þessir tveir eru báðir bráð-
efnilegir leikmenn sem gætu reynst
framtíðarleikmenn með landsliðinu.
Þá er gott að fá Gylfa Gylfason inn í
þennan hóp. Hann hefur staðið sig
mjög vel með Wilhelmshavener í
þýsku 1. deildinni, fær reyndar ekki
úr miklu að moða í horninu hjá liðinu
en nýtir sín færi mjög vel og er sterk-
ur varnarmaður,“ sagði Guðmundur.
Þeir Guðmundur Hrafnkelsson og
Rúnar Sigtryggsson fengu leyfi frá
sínum félagsliðum, Conversano og
Ciudad Real, til að fara til Þýskalands
en þau eiga deildaleiki um sömu helgi.
Íslenska liðið fer til Þýskalands á
fimmtudagsmorguninn og nær að
æfa saman þrisvar í Berlín áður en
kemur að leiknum á laugardag. Liðið
er þannig skipað.
Markverðir: Guðmundur Hrafn-
kelsson, Conversano, og Roland Val-
ur Eradze, Val.
Horna- og línumenn: Guðjón Valur
Sigurðsson, Essen, Einar Örn Jóns-
son, Wallau-Massenheim, Gylfi
Gylfason, Wilhelmshavener, Sigfús
Sigurðsson, Magdeburg, Róbert Sig-
hvatsson, Wetzlar.
Útileikmenn: Patrekur Jóhannes-
son, Essen, Jaliesky Garcia, HK,
Rúnar Sigtryggsson, Ciudad Real,
Aron Kristjánsson, Haukum, Snorri
Steinn Guðjónsson, Val, Ólafur Stef-
ánsson, Magdeburg, Logi Geirsson,
FH, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hauk-
um.
Garcia valinn
í landsliðið
JALIESKY Garcia, Kúbumaðurinn sem leikur með bikarmeisturum
HK, var í gær valinn í íslenska landsliðið í handknattleik í fyrsta
skipti. Garcia er í þann veginn að fá íslenskt ríkisfang og Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari, sagði við Morgunblaðið
í gær að hann vonaðist til þess að Garcia yrði kominn með íslenskt
vegabréf í tæka tíð fyrir næsta laugardag þegar Ísland mætir
Þýskalandi í Berlín.
HREIÐAR Guðmundsson, mark-
vörður ÍR í handknattleik, verður
líklegast frá keppni það sem eftir
er vetrar. Hreiðar meiddist á æf-
ingu á fimmtudagskvöldið og eftir
læknisskoðun í gær er nokkuð
ljóst að krossband í hné er slitið.
Júlíus Jónasson, þjálfari ÍR, sagði í
gærkvöldi að Hreiðar þyrfti að
fara í aðra skoðun á þriðjudaginn
og þá kæmist þetta endanlega á
hreint, þangað til væri ekkert ann-
að að gera en bíða og vona að
krossbandið hefði ekki slitnað, en
sagðist því miður telja það 99%
öruggt.
Hreiðar
væntanlega
frá keppni