Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÓLAFUR B. Thors, formaður stjórnar Fjárfestingarfélagsins Straums, sagði á aðalfundi félagsins í gær að það mikla afl sem fælist í því mætti nota til ýmissa hluta. Eðlilegt væri að ýmsir renndu hýru auga til slíks félags og þeirra áhrifa, sem því gætu fylgt. „Þetta afl má nota til ýmissa hluta, en leið- arljós þeirra sem á hverjum tíma veljast til forystu í félaginu hlýtur alltaf að vera hagsmunir félagsins og allra eigenda þess, en aldrei sér- hagsmunir einhverra fárra.“ Áður hafði Ólafur rakið þær breytingar, sem urðu í hluthafahópi félagsins á síðasta ári og hann sagði að hefðu haft áhrif á innra starf þess. „Á aðalfundi félagsins sem haldinn var 9. apríl í fyrra voru þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Guðmundsdóttir og Ólafur B. Thors kosin í stjórn félagsins og Einar Örn Jónsson í varastjórn. Þessi stjórn sat til 12. nóvember 2002. Á hluthafafundi sem boðað var til þann dag, í kjölfar breytinga á hluthafahópnum, var kosin ný stjórn sem skipuð var sömu mönn- um, utan þess að Kristinn Björns- son kom í stað Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar,“ sagði Ólafur í ræðu sinni. Stjórnin upptekin við að sinna umbrotum í hluthafahópi Hann sagði að umræddur hlut- hafafundur hefði verið þriðji hlut- hafafundur sem stjórnin hefði verið beðin um að boða á starfsárinu, af aðilum sem átt hefðu atkvæðamagn til að krefjast slíks fundar. Beiðnir um tvo fundi af þessum þremur hefðu verið afturkallaðar, önnur reyndar rétt áður en boðaður fund- ur skyldi hefjast. „Á þetta er minnst hér til þess að undirstrika að verulegur tími stjórnar og fram- kvæmdastjóra fór í að sinna þess- um umbrotum í eigendahópnum, sem skoða verður, eftir á að hyggja að minnsta kosti, sem óhjákvæmi- legar afleiðingar þeirra breytinga sem gerðar voru á eðli og starfi fé- lagsins.“ Ólafur sagði að Straumur hefði þróast úr hlutabréfasjóði yfir í fjár- festinga- og umbreytingafélag, sem léti til sín taka á markaðinum með því að hámarka arðsemi eigenda sinna. „Af sjálfu leiðir að félag sem þannig starfar tekur meiri áhættu og leitar hærri ávöxtunar en sjóðir sem á hverjum tíma leita öruggustu aðferða til þess að ávaxta það fé sem þeim er fengið. Hér er ekki verið að meta kosti og galla þessara ólíku aðferða, heldur eingöngu bent á þann mismun sem í þeim felst. Annað sem verður að hafa í huga er það mikla afl sem felst í félagi eins og Straumi, sem nú í mars- mánuði 2003 á eigið fé sem nemur á níunda milljarð.“ Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu varð 812 milljóna króna hagnaður af rekstri Straums á síðasta ári. Eigið fé í árslok nam 7,8 milljörðum króna. Ný tækifæri með Landsbankanum Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hefur Landsbanki Ís- lands keypt fimmtungshlut í Straumi. Ólafur bauð bankann sér- staklega velkominn í hóp hluthafa. „Það er ljóst að með aðkomu Landsbankans skapast ný tækifæri, sem geta eflt allt starf félagsins.“ Þá minntist hann á kaup Straums á hlutum í Íslenska hugbúnaðar- sjóðnum, en nú á Straumur 45,43% í sjóðnum. „Vonir standa til að þau kaup skapi grundvöll að sókn fé- lagsins inn á nýjan markað.“ Ólafur B. Thors, stjórnarformaður Straums, segir hagsmuni félagsins vera leiðarljósið Eðlilegt að ýmsir renni hýru auga til félagsins               !" #  $   %%   &  ' %($  %& ) * +     ,-    $      ,-  #   $.$%  #$                         ! " #  FULLTRÚAR samninganefnda Ís- lands og Færeyja eru bjartsýnir á að innan skamms muni takast að ganga frá víðtæku samkomulagi um viðskipti á milli landanna, sem mun m.a. ná yfir fríverslun með landbúnaðarvörur. Forviðræður eru hafnar á milli þjóðanna og lauk fyrsta fundi samninganefndanna í Færeyjum í gær án þess að nein sérstök vanda- mál kæmu upp og voru samninga- nefndirnar sammála um öll megin- atriði viðræðnanna, að sögn Herluf Sigvaldsson, formanns samninga- nefndar færeysku landsstjórnar- innar. Umfangsmeiri en EES-samningurinn Að sögn Grétar Más Sigurðsson- ar, skrifstofustjóra viðskiptaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins, snú- ast viðræðurnar um útvíkkun á fríverslunarsamningi á milli þjóð- anna, sem taki ekki eingöngu til vöruviðskipta heldur nái einnig yfir þjónustuviðskipti o.fl. svið, sem yrði að umfangi a.m.k. eins um- fangsmikill og EES-samningurinn og hugsanlega umfangsmeirii. M.a. sé rætt um möguleika á auknum viðskiptum með landbúnaðarafurð- ir á milli landanna sem verði ekki háðar öðrum hindrunum en þjóð- irnar hafa sjálfar sett sér. Grétar Már sagði viðræðurnar ganga vel og samningafulltrúar væru þeirrar skoðunar eftir fund- inn í gær að mögulegt sé að ljúka samningum í einni lotu, hugsanlega í næsta mánuði. Reynt yrði að finna einhverja einfalda lausn sem bæði breikki og dýpki möguleika á öllum sviðum viðskipta milli landanna, þar á meðal á sviði þjónustuvið- skipta, fjárfestinga, samgangna og viðskipta með landbúnaðarafurðir. Samningar um fjórfrelsið Herluf Sigvaldsson sagði að upp- haf málsins megi rekja til viðræðna Anfinns Kallsberg, lögmanns Fær- eyinga, og Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra á síðasta ári þar sem rætt um möguleika á því að dýpka og breikka viðskiptasam- starf þjóðanna. Í framhaldi af því hefði verið ákveðið að vinna að nýj- um samningum á milli landanna sem næðu m.a. yfir fjórfrelsið svo- nefnda, það er frjálst flæði vöru, þjónustu, fólks, fjármagns. Hann sagði fundinn í gær hafa verið mjög jákvæðan sem sýndi að Færeyjar og Ísland ættu að geta haldið samningaviðræðum áfram og vonandi yrði unnt að leggja samning til undirritunar fyrir An- finn Kallsberg, lögmann Færeyja og Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra í lok apríl eða byrjun maí. Eftir sé þó að fara yfir tæknileg at- riði væntanlegs samnings. Fjölmörg sóknarfæri Herluf sagði væntanlegt sam- komulag fela í sér fjölmörg sókn- arfæri fyrir Færeyinga og Íslend- inga á flestum sviðum. Sjávar- útvegurinn væri þó erfiður mála- flokkur og samningurinn myndi því sennilega ekki ná til fjárfestinga í sjávarútvegi. „En að öðru leyti sjáum við fjölmörg tækifæri og er ekki síst mikilvægt að samkomu- lagið mun auka á stöðugleika í efna- hagslífi Færeyja og Íslands þar sem öll viðskipti á milli Færeyinga og Íslendinga verða greiðari.“ Forviðræður Íslands og Færeyja um aukið viðskiptasamstarf og fríverslun ganga vel Bjartsýni á að víðtækt samkomulag muni nást ÞAÐ voru hvorki meira né minna en þrjúhundruð skóflustungur sem teknar voru að nýju íþrótta- húsi í Hofsstaðamýri í Garðabæ í gær en bæjarstjóra til aðstoðar við verknaðinn voru börn úr Stjörnunni og Hofsstaðaskóla. Húsið verður notað til íþrótta- kennslu í Hofsstaðaskóla og Fjöl- brautaskólanum í Garðabæ auk þess sem það mun nýtast fyrir íþróttafélag bæjarins, Stjörnuna. Í húsinu verður m.a. löglegur keppnisvöllur í handbolta, sund- laug, þreksalur og aðstaða fyrir tómstundaheimili og félagsstarf og með tilkomu þess eykst að- staða til íþróttakennslu og lík- ams- og heilsuræktar allra ald- urshópa verulega í bænum, að því er segir í frétt frá Garðabæ. Við athöfnina í gær röðuðu börnin sér þannig upp á lóð nýja íþrótta- hússins að þau mynduðu útlínur nýju byggingarinnar. Áformað er að taka húsið í notkun haustið 2004 en áætlaður kostnaður við það er um 500 milljónir króna. Hönnuður byggingarinnar er teiknistofan Úti og inni. Morgunblaðið/Golli 600 hendur þurfti til til að taka skóflustungurnar 300 og létu þessar knáu stúlkur ekki sitt eftir liggja í þeim efnum. Þrjúhundr- uð skóflu- stungur að nýju íþróttahúsi MÖRG mikilvæg rannsóknar- og greiningartæki við Landspítala – há- skólasjúkrahúss eru að niðurlotum komin vegna elli og nær úrelt orðin. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn læknaráðs spítalans hefur sent frá sér þar sem lýst er þungum áhyggjum yfir lágum fjárframlögum til tækjakaupa á spítalanum. Lækna- ráð segir að síðustu þrjú ár hafi árleg framlög til tækjakaupa staðið í stað, verið 218 milljónir króna sem sé ein- ungis um 1% af heildarrekstrar- gjöldum spítalans. „Hafa skal í huga að við sambærilegar heilbrigðis- og menntastofnanir á Vesturlöndum er tækjakaupafé yfirleitt á bilinu 3–5% af heildarrekstrarkostnaði eða 3–5 sinnum hærri en við LSH,“ segir í ályktuninni. Miðað við þessar for- sendur vanti samanlagt 1.300–2.600 milljónir króna til tækjakaupa síð- ustu þrjú árin. „Með þessar tölur í huga og hraða úreldingu á tækja- búnaði spítalans getur læknaráð LSH ekki annað en lýst þungum áhyggjum sínum yfir framtíð LSH sem helsta þjónustu-, vísinda- og kennslustofnun Íslands á sviði heil- brigðismála,“ segir í ályktuninni. Læknaráð LSH lýsir þungum áhyggjum Mikilvæg rannsókn- artæki orðin úrelt UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ ræð-ur fólki frá því að ferðast til Íraks, Kúveit, Gaza-svæðisins og Vestur- bakkans í ljósi þess óvissuástands sem skapast hefur á tilteknum svæð- um í Mið-Austurlöndum. Jafnframt er íslenskum ríkisborg- urum sem staddir eru í Írak ráðlagt að yfirgefa landið. Þá er íslenskum ríkisborgurum sem staddir eru í Kúveit ráðlagt að fylgjast vel með fréttaflutningi af gangi mála og íhuga jafnframt að yfirgefa landið. Þá biður utanríkisráðuneytið um að í öryggisskyni láti aðstandendur þeirra íslensku ríkisborgara sem staddir eru í Mið-Austurlöndum ráðuneytið vita um dvalarstað, síma og fjölskylduhagi viðkomandi. Anna Katrín Vilhjálmsdóttir, sendiráðsrit- ari, segir að viðvörunin sé svipuð og stjórnvöld í vestrænum ríkjum hafi birt á síðustu dögum og vikum. Að- spurð segir hún að ekki liggi fyrir tæmandi upplýsingar um þann fjölda Íslendinga sem dvelur í Mið-Aust- urlöndum. Þar til upplýsingar berist frá þeim eða aðstandendum þeirra geti hún ekki greint frá fjölda þeirra. Í tilkynningunni eru aðstandend- ur beðnir um að senda ráðuneytinu framangreindar upplýsingar á net- fangið: postur@utn.stjr.is. Íslenskum ríkisborgur- um ráðlagt að yfirgefa Írak HINN 15. mars nk. hefst utankjör- fundaratkvæðagreiðsla vegna al- þingiskosninganna 10. maí. At- kvæðagreiðslan fer fram hjá sendiráðum Íslands erlendis, fasta- nefnd Íslands hjá Evrópuráðinu og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræð- ismönnum Íslands erlendis. Utanríkisráðuneytið bendir kjós- endum vinsamlegast á að hafa sam- band við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstaf- ir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefsetr- inu www.kosning2003.is. Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til við- komandi kjörstjórnar á Íslandi. Utankjörfund- aratkvæða- greiðsla hefst 15. mars ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.