Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 54
ÍÞRÓTTIR 54 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT Geir Þorsteinsson, fram-kvæmdastjóri KSÍ, segir að ákveðið hafi verið að hefja keppnina til vegs og virðingar á ný. „Ljóst er að Egilshöll verður vettvangur hennar næstu árin og það þótti heppilegast að leika í mars þar sem úrslitaleikir deildabikarsins og meistarakeppni Íslands og Færeyja verða skömmu áður en Íslandsmót- ið hefst í vor. Því miður vantar enn aðstöðu fyrir áhorfendur í Egilshöll en hún verður komin með vorinu,“ sagði Geir. Efnt var til Meistarakeppni KSÍ í fyrsta skipti árið 1969. Þá léku Ís- landsmeistarar KR gegn bikar- meisturum ÍBV og mættust liðin fjórum sinnum frá febrúar og fram í maí, tvisvar í Vestmannaeyjum og tvisvar á Melavellinum. KR vann þrjá leikjanna og einn endaði með jafntefli. Sami háttur var árið eftir þegar Keflavík hafði betur gegn ÍBA, liði Akureyringa. Frá 1971 til 1979 var um þriggja liða keppni að ræða, með tvöfaldri umferð, og þá tóku þátt þau þrjú lið sem höfðu unnið sér þátttökurétt í Evrópu- keppni það ár. Frá árinu 1980 hefur hinsvegar verið um að ræða einn leik á milli meistara og bikarmeist- ara en það ár gáfu KR-ingar bikar til keppninnar, til minningar um Sigurð Halldórsson, forystumann í félaginu um langt árabil. Frá 1980 var um opinberan opn- unarleik tímabilsins að ræða, sem skyldi fara fram á grasi, en 1996 var tvívegis leikið um bikarinn, bæði að vori og hausti. Samkvæmt breyttri reglugerð skyldu nýkrýnd- ir meistarar og bikarmeistarar mætast í lok tímabils. Haustið 1997 þurfti að fresta leiknum til vorsins eftir þar sem ekki var hægt að koma honum fyrir, og frá haustinu 1998, þegar ÍBV sigraði Leiftur 2:1 á Laugardalsvellinum, hefur leikn- um ekki verið fundinn staður á þéttskipuðu keppnistímabilinu. Þar til nú þegar knattspyrnuhúsin hafa gjörbreytt skilyrðunum. Keflavík, Fram og Valur hafa unnið keppnina oftast, 6 sinnum hvert félag. ÍA og ÍBV hafa unnið 4 sinnum hvort, KR og Víkingur tvisvar hvort og KA einu sinni. KR tekur þátt í meistarakeppn- inni í fjórða sinn. KR-ingar unnu hana 1969 og 1996 (um vorið) en töpuðu fyrir ÍA árið 1995. Fylkir hefur aldrei áður tekið þátt. Meistarakeppni kvenna, sem hófst 1992, hefur legið jafnlengi niðri. Hún verður leikin eftir viku, sunnudaginn 23. mars, og þá mæt- ast KR og Breiðablik. Meistarar krýndir í Egilshöll MEISTARAKEPPNI Knattspyrnusambands Íslands hefur verið end- urvakin eftir fjögurra ára hlé. Íslandsmeistarar KR og bikarmeist- arar Fylkis í karlaflokki mætast í Egilshöll annað kvöld kl. 20.15 og leika um Sigurðarbikarinn, sem hefur verið í vörslu Eyjamanna frá haustinu 1998 þegar keppnin fór síðast fram. KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: Úrslitakeppni karla, Intersportdeildin, 8- liða úrslit, annar leikur: Hveragerði: Hamar - UMFG....................16 Njarðvík: UMFN - KR .........................19.15 Sunnudagur: Úrslitakeppni karla, Intersportdeildin, 8- liða úrslit, annar leikur: Sauðárkrókur: Tindastóll - Haukar.....19.15 Seljaskóli: ÍR - Keflavík........................19.15 1. deild karla, undanúrslit, annar leikur: Laugardalsh: Ármann/Þróttur - KFÍ ......14 Sandgerði: Reynir - Þór Þ. ........................20  Bæjarstjórn Ölfuss hefur ákveðið að bjóða upp á ókeypis sætaferðir til Sand- gerðis frá Þorlákshöfn. HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: 1. deild karla, Essodeild: KA-heimili: KA - UMFA ...........................16 1. deild kvenna. Essodeild: Fylkishöll: Fylkir/ÍR - Fram ...............16.30 Ásvellir: Haukar - FH...........................16.30 Seltjarnarnes: Grótta/KR - KA/Þór ....16.30 Hlíðarendi: Valur - Stjarnan ................16.30 Víkin: Víkingur - ÍBV............................16.30 Sunnudagur: 1. deild karla, Essodeild: Ásvellir: Haukar - Fram............................20 Seltjarnarnes: Grótta/KR - HK................20 KNATTSPYRNA Laugardagur: Vináttulandsleikur kvenna, leikmanna 21 árs og yngri: Egilshöll: Ísland - Svíþjóð .........................13  Aðgangur ókeypis. Deildabikarkeppni karla: Boginn: KA - Fram ...............................12.15 Reykjaneshöll: ÍH - Selfoss.......................14 Fífan: Breiðablik - Fjölnir .........................15 Boginn: Vaskur - Leiftur/Dalvík..........15.15 Reykjaneshöll: Sindri - Breiðablik ...........18 Sunnudagur: Meistarakeppni karla: Egilshöll: KR - Fylkir ...........................20.15 Deildabikarkeppni karla: Boginn: Tindastóll - Hvöt .....................15.15 Reykjavíkurmót kvenna: Egilshöll: KR - Breiðablik .........................18 FIMLEIKAR Íslandsmót í þrepum íslenska fimleikastig- ans verður haldið á morgun, sunnudag, í Íþróttamiðstöðinni Björk í Hafnarfirði kl. 14 til 16.30. Keppendur á mótinu eru þeir sem náð hafa hæstu einkunnum á mótum í íslenska fimleikastiganum í vetur. BORÐTENNIS Coca Cola stigamótið fer fram í Íþróttahúsi TBR á morgun, sunnudag, kl. 10.30. SUND Íslandsmót fatlaðra í sundi verður í Sund- höll Reykjavíkur í dag kl. 15 til 18. UM HELGINA KÖRFUKNATTLEIKUR Haukar - Tindastóll 91:89 Ásvellir, úrslitakeppni karla, Intersport- deildin, 8-liða úrslit, fyrsti leikur, föstudag- ur 14. mars 2003. Gangur leiksins: 0:8, 1:8, 1:16, 4:16, 12:21, 18:28, 20:28, 27:33, 33:38, 39:44, 43:52, 45:60, 52:64, 66:66, 66:69, 68:72, 72:72, 76:77, 79:78, 84:84, 88:87, 88:89, 91:89. Stig Hauka: Stevie Johnson 28, Predrag Bojovic 20, Halldór Kristmannss. 14, Mar- el Guðlaugsson 10, Davíð Ásgrímss. 8, Ingvar Guðjónsson 5, Sævar Haraldss. 4. Fráköst: 27 í vörn, 18 í sókn. Stig Tindastóls: Clifton Cook 32, Kristinn Friðrisson 24, Axel Kárason 14, Michail Antropov 12, Óli Barðdal 5, Helgi R. Viggósson 2. Fráköst: 22 í vörn, 16 í sókn. Villur: Haukar 27 - Tindastóll 26. Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Georg Andersen, ágætir. Áhorfendur: 300.  Staðan er 1:0 fyrir Hauka. Keflavík - ÍR 103:75 Keflavík: Gangur leiksins: 2:0, 5:5, 9:9, 17:9, 23:14, 26:22, 30:22, 36:22, 40:27, 45:36, 52:36, 52:44, 57:44, 65:53, 70:58, 82:58, 86:69, 91:69, 100:71, 103:75 Stig Keflavíkur: Damon Johnson 28, Ed- mund Saunders 19, Magnús Gunnarsson 14, Jón N. Hafsteinsson 10, Guðjón Skúla- son 10, Falur Harðarson 9, Gunnar Ein- arsson 6, Sverrir Þór Sverrisson 4, Gunnar Stefánsson 3. Fráköst: 24 í vörn, 19 í sókn. Stig ÍR: Eugene Christopher 25, Hregg- viður Magnusson 14, Eiríkur Önundarson 11, Sigurður Þorvaldsson 11, Ómar Sæv- arsson 6, Fannar Helgason 4, Pavel Ermol- inskij 2, Benedikt Pálsson 2. Fráköst: 25 í vörn, 12 í sókn. Villur: Keflavík 15 - ÍR 17. Dómarar: Leifur Garðsson og Bjarni G. Þórmundsson. Áhorfendur: 240.  Staðan er 1:0 fyrir Keflavík. 1. deild karla Úrslit um sæti í úrvalsdeild, fyrri leikir: KFÍ - Ármann/Þróttur .......................107:67 Þór Þ. - Reynir S. ..................................90:77  Liðin mætast aftur í Laugardalshöll og Sandgerði á morgun. Tvo sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrvalsdeild. 2. deild karla Úrslitakeppni um sæti í 1. deild: A-riðill: Þór A. - Grundarfjörður .....................148:50 ÍV - Árvakur ..........................................78:70 B-riðill: Hörður Patreksfirði - Dalvík ...............63:97  Úrslitakeppninni lýkur á Akureyri á morgun. Tvö efstu liðin vinna sér sæti í 1. deild. NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: New Jersey - Boston............................ 90:75 Seattle - Dallas ................................. 107:100 Phoenix - Sacramento........................ 109:84 HANDKNATTLEIKUR Valur - FH 23:26 Hlíðarendi, 1. deild karla, Esso-deildin, föstudagur 14. mars 2003. Gangur leiksins: 0:1, 3:1, 3:3, 6:6, 8:8, 10:8, 11:10, 13:13, 15:13, 15:17, 16:19, 17:22, 19:24, 21:25, 23:26. Mörk Vals: Markús Máni Mikaelsson 7/3, Hjalti Pálmason 4, Snorri Steinn Guðjóns- son 4/1, Sigurður Eggertsson 3, Freyr Brynjarsson 2, Alexei Trúfan 1, Ásbjörn Stefánsson 1, Hjalti Gylfason 1. Varin skot: Roland Eradze 15/1 (þar af fóru 4 aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Mörk FH: Arnar Pétursson 8, Björgvin Þór Rúnarsson 5/1, Hálfdán Þórðarson 4, Magnús Sigurðsson 4/3, Logi Geirsson 3, Andri Berg Haraldsson 1, Guðmundur Pedersen 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 15 (þar af fóru 5 aftur til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Stefán Arnarson og Gunnar Við- arsson. Áhorfendur: Um 250. Selfoss - Stjarnan 22:35 Selfoss: Gangur leiksins: 0:2, 3:7, 7:11, 12:14, 13:18, 15:26, 17:27, 17:30, 19:31, 19:32, 20:32, 22:34, 22:35. Mörk Selfoss: Andri Úlfarsson 8/2, Ram- únas Mikalonis 4, Ívar Grétarsson 4/2, Atli Kristinsson 2, Hörður Bjarnarson 2, Jón E. Pétursson 1, Atli Rúnarsson 1. Varin skot: Gísli Rúnar Guðmundsson 10, (þaraf 2 til mótherja), Einar Þorgeirsson 5/2 (1 til mótherja). Utan vallar: 14 mínútur. Mörk Stjörnunnar: Arnar Agnarsson 8, Vilhjálmur Halldórsson 6/1, Kristján Kristjánsson 6, Zoltan Belányi 5, Björn Friðriksson 5/1, Daníel Grétarsson 1, Gunnar Ingi Jóhannsson 1, Þórólfur Niel- sen 1, Arnar Theódórsson 1, David Kekelia 1. Varin skot: Guðmundur K. Geirsson 11/1, (1 til mótherja), Árni Þorvarðarson 5/1 (1 til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson. Áhorfendur: Um 50. ÍBV - ÍR 19:29 Vestmannaeyjar: Gangur leiksins: 0:1, 0:3, 1:4, 3:6, 5:8, 6:8, 7:9, 7:10, 9:12, 10:14, 12:17, 13:19, 14:21, 16:22, 17:23, 18:24, 19:26, 19:29. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 5/2, Sig- urður A. Stefánsson 3, Sindri Ólafsson 3, Sigurður Bragason 3, Michael Lauritzen 2, Erlingur Richardsson 2, Kári Kristjánss. 1. Varin skot: Viktor Gigov 15/1 (þaraf 2 til mótherja.) Utan vallar: 20 mínútur og fengu þeir Rík- harð B. Guðmundsson og Erlingur Rich- ardsson rautt spjald. Mörk ÍR: Sturla Ásgeirsson 10/4, Bjarni Fritzen 7, Ragnar Helgason 6, Ingimundur Ingimundarson 2, Kristinn Björgúlfsson 1, Ólafur Sigurjónsson 1, Þorleifur Björnsson 1, Davíð Ágústsson 1. Varin skot: Hallgrímur Jónasson 19/1 (þa- raf 4 til mótherja), Stefán Petersen 3/1. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Brynjar Einarsson og Vilbergur Sverrisson. Mjög slakir. Áhorfendur: 70 Víkingur - Þór 36:39 Víkin: Gangur leiksins: 0:1, 1:5, 6:7, 10:14, 14:18, 15:19, 15:21, 20:26, 24:29, 28:30, 30:35, 32:38, 36:39. Mörk Víkings: Davíð Guðnason 10, Eymar Kruger 10/1, Hafsteinn Hafsteinsson 6, Ragnar Hjaltested 4/1, Björn Guðmunds- son 4, Ágúst Guðmundsson 2. Varin skot: Jón Á. Traustason 24/3 (þaraf 4/1 til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur og var Björn Guð- mundsson útilokaður. Mörk Þórs: Goran Gusic 15/3, Páll Gíslason 12/2, Aigars Lazdins 4, Halldór Oddsson 2, Árni Þór Sigtryggsson 2, Hörður Sigþórs- son 2, Geir Aðalsteinsson 1. Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 23/1 (þaraf 4 til mótherja.) Utan vallar: 16 mínútur og Bergþór Mort- hens og Arnar Gunnarsson voru útlokaðir. Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. Áhorfendur: 45. Staðan: Valur 24 16 5 3 657:533 37 ÍR 24 18 1 5 710:614 37 Haukar 23 17 1 5 697:559 35 KA 23 14 3 6 633:590 31 HK 23 13 3 7 646:607 29 Þór 24 14 1 9 685:654 29 Fram 23 12 4 7 594:559 28 FH 23 12 2 9 614:592 26 Grótta/KR 22 12 1 9 578:522 25 Stjarnan 24 7 2 15 649:700 16 ÍBV 24 6 2 16 571:682 14 Afturelding 22 5 3 14 538:584 13 Víkingur 24 1 3 20 602:761 5 Selfoss 23 0 1 22 551:768 1 KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla EFRI DEILD, A-RIÐILL: Þór - Fram.................................................2:1 Jóhann Þórhallsson 18., 25. - Kristinn Tómasson 50. (víti). NEÐRI DEILD: A: ÍR - Víðir ...............................................0:0 A: Reynir S. - Árborg ...............................3:2 C: Léttir - Skallagrímur ...........................1:2 England 2. deild: Tranmere - Cardiff ...................................3:3 Lokamínútur leiksins voruspennuþrungnar. Í stöðunni 88:87 brenndi Haukamaðurinn Marel Guðlaugsson af þriggja stiga skoti og í kjölfarið braut hann á Clifton Cook þegar 9,5 sekúndur voru til leiksloka. Cook setti bæði vítaskotin niður og kom Stólunum yfir, 89:88. Hauk- arnir lögðu upp í síðustu sóknina, sem lauk með því að Bojovic fékk knöttinn einn og óvaldaður utan við þriggja stiga línuna. Þar sem leiktíminn var að renna út var ekki annað að gera fyrir Júgóslavann en að skjóta og stuðningsmönnum Hauka til óblandinnar gleði rataði skot Bojovic rétta leið á sama tíma og flautan gall á borði tímavarðar. Leikmenn Hauka fögnuðu gríðar- lega en Stólarnir sátu eftir með sárt ennið. Æðislegt að sjá þristinn detta „Þetta var rosalegur taugaleikur og ég hélt að leikurinn frá því í nóvember ætlaði að endurtaka sig, en þá töpuðum við fyrir Tindastóli hér á Ásvöllum. Það sama var upp á teningnum í þeim leik og þessum. Það gekk lítið upp hjá okkur og taugaveiklunin var mikil. Ég var að verða úrkula vonar um að við myndum snúa leiknum okkur í vil en sem betur fer náðum við að merja sigur og það var æðislegt að sjá þristinn hjá Bojovic detta nið- ur,“ sagði Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka, við Morgunblaðið eftir leikinn. „Þetta eru jöfn lið og ég reikna með sömu spennunni á sunnudaginn,“ sagði Reynir enn- fremur. Haukarnir voru hálfmeðvitund- arlausir á upphafsmínútum leiksins og stuðningsmenn þeirra göntuð- ust með það í leikhléinu hvort ljósasýningin í byrjun leiks hefði slegið þá út af laginu og blindað þá. Norðanmennirnir áttu sviðið og þegar Haukarnir vöknuðu loks til lífsins var staðan orðin 16:1. Reyn- ir Kristjánsson tók leikhlé og hélt þrumuræðu yfir hausamótunum á leikmönnum sínum. Haukarnir náðu að laga stöðuna áður en fyrsti leikhluti var úti, mest fyrir tilstilli Halldórs Kristmannssonar, sem skoraði mikilvægar körfur, og eins þess að Michail Antropov fékk sína þriðju villu undir lok leikhlutans og fjarvera hans gerði það að verkum að Haukarnir áttu greiðari leið að körfunni. Tindastólsmenn héldu Haukunum í hæfilegri fjarlægð í öðrum leikhluta. Munurinn var þetta 6–8 sig og Haukarnir áttu í talsverðu basli gegn hreyfanlegri vörn Tindastóls auk þess sem nokkur sofandaháttur gerði vart við sig í varnarleik þeirra. Örugg forysta Tindastóls Stólarnir voru ekkert á því að slaka á klónni í byrjun síðari hálf- leiks. Kristinn Friðriksson var heitur á þessum tíma auk þess sem Clifton Cook lék Haukavörnina grátt og í upphafi þriðja leikhluta náði Tindastóll 15 stiga forskoti, 60:45. Haukarnir tóku leikhlé, réðu ráðum sínum og Reynir þjálfari ákvað að skella Davíð Ásgrímssyni inn á. Hans hlutverk var að vekja sína menn til lífsins og það má með sanni segja að herbragð Reynis hafi heppnast. Með baráttu og dugnaði tókst Davíð að kveikja neistann hjá félögum sínum og á skömmum tíma söxuðu Haukarnir jafnt og þétt á forskot Tindastóls. Stuðningsmenn Hauka tókust á loft þegar Stevie Johnson jafnaði metin, 66:66, mínútu fyrir lok leik- hlutans en tvær þriggja stiga körf- ur Kristins Friðrikssonar tryggðu Stólunum fjögurra stiga forskot þegar þriðji leikhluti var að baki. Lokakaflinn var æsispennandi og mikill darraðardans stiginn á fjölum íþróttahússins á Ásvöllum. Bojovic reyndist Haukunum ómet- anlegur. Hann kom þeim í forystu í fyrsta sinn í leiknum þegar fimm mínútur voru eftir með þriggja stiga skoti og það sem eftir lifði leiksins skiptust liðin á um að hafa forystu. Heppnin var Haukamegin og á ævintýranlegan hátt tókst Bojovic að innsigla sigur þeirra rauðklæddu. Bojovic var hetja Hauka en hann átti mjög góðan leik, skoraði 20 stig og tók 7 fráköst. Stevie John- son var drjúgur en hefur þó oftast leikið betur. Hann var hins vegar í mjög strangri gæslu og oftar en ekki fengu leikmenn Tindastóls að ganga fullhraustlega á móti hon- um. Halldór Kristmannsson stóð vel fyrir sínu og áður er minnst á innkomu Davíðs Ásgrímssonar. Vel er hægt að skilja gremju Tindastólsmanna yfir úrslitum leiksins því lengst af höfðu þeir undirtökin og barátta þeirra var til fyrirmyndar. Þeir sváfu hins vegar á verðinum á lokasekúndum leiks- ins, gleymdu Bojovic, sem hafði skömmu áður skorað tvær körfur með sama hætti. Clifton Cook lék best norðanmanna, Kristinn átti fínar rispur en var þó fullákafur að skjóta úr vondum færum. Þá átti Axel Kárason góðan leik, bæði í sókn og vörn, þar sem hann glímdi við Stevie Johnson og leysti það betur en flestir aðrir hafa gert í vetur. Sigurskot Bojovic í blálokin ÞRIGGJA stiga karfa frá Predrag Bojovic á lokasekúndunni tryggði Haukum sigur á Tindastóli, 91:89, í æsispennandi leik – þegar liðin léku fyrsta leikinn í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik í gærkvöldi að Ásvöllum í Hafnarfirði. Haukar áttu lengst af á brattann að sækja gegn baráttuglöðum leikmönnum Tindastóls en með harðfylgi tókst Hafnarfjarðarliðinu að knýja fram sigur og það hefur þar með tekið forystu í einvígi liðanna. Guðmundur Hilmarsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.